Morgunblaðið - 03.02.2009, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 2009
Meira í leiðinni
Veturinn
er ódýrari
í N1
092 6439
Rúðuskafa með bursta
og koparblaði
Verð áður 795 kr.
Verð nú
599 kr.
092 6455
Rúðuskafa með plastblaði
Verð áður 235 kr.
Verð nú
199 kr.
948 3013492
Ísvari í bensín
Verð áður 725 kr.
Verð nú
499 kr.
526 4918030
Ísbræðir á rúður
Verð áður 995 kr.
Verð nú
699 kr.
023 81971699
Tjöruhreinsir 1L
Verð áður 559 kr.
Verð nú
499 kr.
116 TTT10
Íseyðir bensín/dísil
Verð áður 895 kr.
Verð nú
798 kr.
290 8123
Bensínbrúsi 10 L
Verð áður 4.995 kr.
Verð nú
3.598 kr.
202 PMACO12
Loftpressa 150 L/mín
tveggja hausa
Verð áður 23.380 kr.
Verð nú
18.699 kr.
664 210 215
Tappasett fyrir jeppa
Verð áður 11.890 kr.
Verð nú
9.900 kr.
708 TOG15M
Dráttartóg 24 mm/15 m
Verð áður 11.567 kr.
Verð nú
9.998 kr.
948 4207418
Tröppusalt 5 kg
Verð áður 870 kr.
Verð nú
699 kr.
067 80199200
Rain x glerfilma
Verð áður 1.775 kr.
Verð nú
998 kr.
290 8116
Bensínbrúsi 5 L
Verð áður 1.120 kr.
Verð nú
899 kr.
Njóttu vetrarins til hins
ítrasta. Nýttu þér
fjölbreytt og spennandi
tilboð í verslunum okkar
um land allt.
WWW.N1.IS
Sími 440 1000
N1 STÓRVERSLUN BÍLDSHÖFÐA 9
N1 verslanir: Kópavogi, Hafnarfirði, Akureyri, Akranesi,
Ólafsvík, Egilsstöðum, Vestmannaeyjum, Keflavík, Selfossi,
Reyðarfirði og Höfn.
afsláttur
16%
afsláttur
44%
afsláttur
20%
afsláttur
31%
afsláttur
10%
afsláttur
10%
afsláttur
30%
afsláttur
25%
afsláttur
15%
6487 84810000
Poler Tork
bónklútur
Verð áður 1.310 kr.
Verð nú
998 kr.
afsláttur
24%
afsláttur
13%
afsláttur
20%
Lagerhreinsun á
mótorhjóladekkjum
20 – 50% afsl.
Eftir Gunnhildi Örnu Gunnarsdóttur
gag@mbl.is
LEITAÐ hefur verið til Bjargar
Thorarensen, prófessors og deild-
arforseta lagadeildar Háskóla Ís-
lands, að undirbúa stjórn-
arskrárbreytingar og skipulags
stjórnarskrárþings. Þær heimildir
Morgunblaðsins vill hún ekki stað-
festa en telur þetta meðal brýnustu
verkefna ríkisstjórnarinnar.
„Stjórnlagaþing er vænlegasta
leiðin út úr þeirri stöðnun sem er í
þróun stjórnarskrárinnar,“ segir
Björg. Á þannig þingi sé hægt að ná
sátt um grunnreglur þjóðfélagsins.
Björg segir núverandi stjórn-
arskrá byggða á þeirri dönsku,
mjög óskýra og ógagnsæja. „Hún
nefnir ekki þjóðina sem uppsprettu
valdsins. Hún nefnir ekki lýðræði-
eða þingræði. Hún nefnir ekki rík-
isstjórn. Þeir sem ekki þekkja til
skilja ekki hvernig þessi hugtök
virka.“ Breytinga sé því þörf.
„Stjórnarskráin á að vera skýr-
mæltari um grundvallarreglurnar.
En hún á ekki að vera löng.“ Því
þurfi mikla vinnu til að ná saman í
henni grunnreglum í skýrum texta.
„Mitt meginfag hér í háskólanum
er að vinna að rannsóknum á
stjórnarskránum. Ég hefði ekki
viljað útiloka mig frá því með því að
velja ráðherrastólinn.“
Breytt stjórnarskrá fyrir vorið
Spurð hverju þurfi helst að
breyta í stjórnarskránni nefnir
Björg að stefni að því nú fyrir vorið
að breyta auðlindaákvæði hennar.
Einnig að setja inn ákvæði um þjóð-
aratkvæðagreiðslur.
Spurð um önnur ákvæði sem ný
stjórnarskrá þyrfti að hafa nefnir
hún verklagssreglur milli fram-
kvæmdarvalds og þings. „Þar
skortir á að þingið hafi meiri áhrif.
Stjórnarskráin hefur ekki veitt
nein úrræði við meirihlutaþingræð-
inu.“ Þá nefnir hún skýra þurfi
stöðu og hlutverk forsetans og að
bera eigi breytingar á stjórn-
arskránni undir þjóðina hverju
sinni. Hún segir að sárlega vanti öll
ákvæði um utanríkismál og áhrif al-
þjóðasamfélagsins á það íslenska
og möguleika þingsins að hafa áhrif
á þau. „Utanríkismál eru miklu
stærri þáttur en var þegar stjórn-
arskráin var samþykkt 1944. Veita
þarf utanríkismálanefnd stjórn-
skipulega stöðu.“
Þá þurfi að huga að sérstöku
ákvæði verði sú ákvörðun tekin að
framselja hluta af völdum í hendur
alþjóðastofnunar eins og Evrópu-
sambandsins. „Stjórnarskráin þarf
að veita slíka heimild. Hún þarf að
gera ráð fyrir því að hluta rík-
isvaldsins sé sinnt af öðrum en
handhöfum ríkisvaldsins.“
Björg var í sérfræðinganefnd
sem lögðu hugmyndir fyrir stjórn-
arskrárnefnd sem Jón Krist-
jánsson, fyrrum heilbrigð-
isráðherra í ríkisstjórn
Framsóknar og Sjálfstæðisflokks,
leiddi. Hugmyndirnar náðu ekki í
gegn en nýtast nú. „Nú virðist ekki
skorta pólitíska samstöðu. Þannig
að væntingar mínar eru til þess að
þetta takmark náist.“
Björg kaus að
vinna að nýrri
stjórnarskrá
Breyta þarf ákvæðum fyrir vorið
Morgunblaðið/
Björg Thorarensen Björgu bauðst
að verða dómsmálaráherra.
Í HNOTSKURN
»Björgu Thorarensenbauðst að verða dóms-
málaráðherra en hún kýs
heldur vinna að breyttri
stjórnarskrá.
»Rætt hefur verið við hanaum að vinna að undirbún-
ingi nýrrar stjórnarskrár og
stjórnlagaþingsins en enn er
óljóst hve umfangsmikið verk-
ið verður og hve margir koma
að því.
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
RAUÐI kross Íslands hyggst setja á
fót þjónustumiðstöð á höfuðborg-
arsvæðinu, til að bregðast við
ástandinu í samfélaginu, vegna
stöðunnar í efnahagsmálum þjóð-
arinnar. Þjónustan og skipulagið
mun byggjast á sömu hugsun eins
og viðbrögð við náttúruhamförum,
svo sem Suðurlandsskjálftanum í
sumar sem leið. Í miðstöðinni verð-
ur boðið upp á námskeið, ráðgjöf og
sálrænan stuðning, sem Rauði
krossinn býr yfir mikilli þekkingu
á. „Þörfin fyrir framlag Rauða
kross Íslands hefur sjaldan verið
meiri,“ segir í yfirlýsingu frá stjórn.
Sólveig Ólafsdóttir upplýsinga-
fulltrúi segir undirbúning að þessu
verkefni hafa staðið yfir síðan í
haust, en þegar hafi hjálparsíminn
verið efldur til muna. Innhring-
ingum í hjálparsímann hefur enda
fjölgað um 40% síðan í október.
Hún segir Rauða krossinn hafa
mikla þekkingu og reynslu á sviði
áfallahjálpar og sálrænnar að-
stoðar og ítrekar að nafnleyndar
verði gætt við þá sem koma til með
að sækja hjálp í miðstöðina.
„Við höfum litið mikið til ná-
grannalanda okkar og landsfélaga
á öðrum Norðurlöndum, sér-
staklega Finna í kreppunni á 10.
áratugnum.
Þar kom fram að sálræni hlutinn
varð út undan í aðstoð við fólk á sín-
um tíma,“ segir Sólveig. Finnski
Rauði krossinn setti upp miðstöðvar
u.þ.b. fimm árum eftir að atvinnu-
leysið jókst. Þá var það orðið við-
varandi ástand og atvinnulaust fólk
farið að dragast aftur úr í samfélag-
inu og eiga erfiðara með að ná sér
upp úr farinu, jafnvel þótt störf
væru farin að bjóðast að nýju. Sú
reynsla Finna verður Íslendingum
því víti til varnaðar.
Rauði krossinn setur
upp áfallamiðstöð