Morgunblaðið - 03.02.2009, Side 9
„SAMKVÆMT reynslunni má ætla
að á þessu ári verði hafís minna en 14
daga við landið, og eins víst er að ís-
laust verði með öllu. Eins og á síð-
asta ári má þó búast við borg-
arísjökum frá Grænlandsjökli úti
fyrir Vestfjörðum þegar líður á sum-
arið. Þetta er með því hlýjasta og ís-
inn er hvað minnstur síðan veð-
urfarsmælingar hófust á Jan Mayen
1921,“ segir Páll Bergþórsson, fyrr-
verandi veðurstofustjóri, um haf-
ísspána í ár.
Sjaldan jafn hlýtt og nú
Páll rifjar upp sögu slíkra spáa.
„Ársspár um hafís við landið hafa
nú verið gerðar síðan 1969, byggðar
á hausthita á Jan Mayen, en hann er
mjög háður sjávarhitanum í hafinu í
kringum eyna. Þaðan berast svo haf-
straumar til Íslands á hér um bil
hálfu ári. Í fyrstu spánni fyrir 40 ár-
um var búist við 5 mánaða ís við land-
ið. Það varð mjög nærri lagi. Svo
miklum ís hefur ekki verið spáð síð-
an, og ekki heldur orðið.“
Hann segir aðspurður að sjaldan
hafi verið jafn hlýtt á þessum árs-
tíma á þessum slóðum.
„Þessi einkennishiti haustsins á
Jan Mayen hefur sjaldan verið hærri
en nú, aðeins sex sinnum síðan hita-
mælingar hófust á Jan Mayen árið
1921. Hlýindin í hafinu norður undan
hafa sýnt sig að segja mikið til um
samtímis loftslag á öllu norðurhvel-
inu, og ekki síður á næstu árum.
Hámarki ná þau að jafnaði á um 6
áratuga fresti, en þess á milli verður
kuldinn mestur, einnig á um 6 ára-
tuga fresti. Kaldasta árið á síðari
hluta 20 aldar var 1979, og kaldasti
áratugurinn í Stykkishólmi um það
leyti var 1975-1984. Ofan á þessar
hitasveiflur bætist að koltvísýringur
hefur síðustu áratugi aukist meira en
áður af manna völdum og veldur því
vaxandi hlýnun út af fyrir sig,“ segir
Páll Bergþórsson veðurfræðingur.
Ísinn með minnsta móti
GUNNAR Bragi
Sveinsson ætlar að
bjóða sig fram til
efsta sætis á lista
Framsóknarflokks-
ins í Norðvest-
urkjördæmi fyrir
næstu alþing-
iskosningar. Gunn-
ar situr nú sem
oddviti Framsókn-
arflokks í sveitarstjórn Skaga-
fjarðar. Hann hefur í mörg ár tekið
virkan þátt í starfi flokksins.
Vill leiða lista
Framsóknar
Gunnar Bragi
Sveinsson
Samfylking og Vinstri hreyfingin grænt framboð hafa komið sér
saman um að Alþingiskosningar fari fram laugardaginn 25. apríl
næstkomandi. Morgunblaðið mun daglega birta fréttir sem tengjast
framboðum, prófkjörum, kosningafundum o.fl.
Kosningar 2009
SIV Friðleifsdóttir
gefur kost á sér til
endurkjörs sem
oddviti á lista
Framsóknarflokks-
ins í Suðvest-
urkjördæmi í kom-
andi alþingis-
kosningum. Hún
segir mörg vanda-
söm verkefni bíða,
m.a. þurfi að taka ákvarðanir til að
verja heimili og fyrirtæki með rétt-
læti og jafnræði að leiðarljósi. „Ég
býð fram reynslu mína, þekkingu
og krafta til að takast á við þau
verkefni sem vinna þarf samfélag-
inu til heilla á næstu árum,“ segir
Siv.
Gefur kost á sér
til endurkjörs
Siv
Friðleifsdóttir
„ÉG HEF ákveðið
að gefa ekki kost á
mér til framboðs
fyrir Framsókn-
arflokkinn í Norð-
vesturkjördæmi
fyrir komandi al-
þingiskosningar,“
skrifar Magnús
Stefánsson, þing-
maður Framsókn-
arflokks og fv. félagsmálaráð-
herra, á heimasíðu sína. Magnús
var kjörinn á Alþingi árið 1995.
„Ástæður þess að ég hef tekið
þessa ákvörðun eru þær að ég á
að baki langan feril sem alþing-
ismaður og ráðherra, tel að nú sé
tímabært að láta af þingmennsku
og að ég takist á við ný verkefni,“
skrifar Magnús.
Magnús
Stefánsson
Ætlar ekki
í framboð
HALLUR Magn-
ússon, ráðgjafi,
hefur ákveðið að
bjóða sig fram í eitt
af efstu sætum á
framboðslista
Framsóknarflokks-
ins í öðru af tveim-
ur kjördæmum
Reykjavíkur fyrir
komandi alþing-
iskosningar. Hallur hefur tekið þátt
í starfi Framsóknarflokksins í rúm-
an aldarfjórðung.
Býður sig fram
í Reykjavík
Hallur
Magnússon
STOFNFUNDUR samtaka grasrót-
arhreyfinga var haldinn sl. sunnu-
dag. Samtökin eru samráðsvett-
vangur grasrótarfélaga á Íslandi
sem vinna að stjórnkerfisbreyt-
ingum og stefna að framboði í næst-
uþingkosningum í öllum kjör-
dæmum. Framhaldsstofnfundur
verður haldinn nk. sunnudag.
Grasrótarhreyfing
Fréttir 9INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 2009
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
• www.hjahrafnhildi.is
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
50-70% afsláttur
Laugavegi 82,
á horni Barónsstígs
sími 551 4473
Útsala
Síðustu dagar
30-50% afsl.
Laugavegi 63 • S: 551 4422
ÚTSALAN
ENN Í FULLUM GANGI
MIKIÐ ÚRVAL AF
FRÁBÆRUM VETRAFATNAÐI
ALLT AÐ
70% AFSLÁTTUR
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
sími 557 1730 sími 554 7030 Opið mánud.-föstud. 10-18
Erum að taka upp
nýjar gallabuxur
Verð 5.900
www.feminin.is • feminin@feminin.is
Bæjarlind 4, Kópavogi • sími 544 2222
Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16
Nýjar vörur
Útsalan enn í fullum gangi
Str. 38-56
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„VIÐ ERUM mjög kátir með þetta.
Þetta hefur tvennt í för með sér. Ann-
ars vegar teljum við að þetta muni
örva það að fólk fari í einhvers konar
viðhaldsverkefni og mun því vonandi
stuðla að því að auka atvinnu meðal
þeirra sem þetta stunda. Hins vegar er
annar þáttur sem er mjög mikilvægt
að komi fram, sem er að við lítum öðr-
um þræði á þetta sem mikilvægt tæki í
baráttunni við svarta atvinnustarf-
semi,“ segir Jón Steindór Valdimars-
son, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, um fyrir-
hugaða niðurfellingu nýrrar ríkisstjórnar á
virðisaukaskatti vegna viðhalds á eigin húsnæði.
Taki gildi sem allra fyrst
Með niðurfellingunni minnki að hans mati mjög freist-
ingin á því að biðja iðnaðarmenn um að „vinna svart“.
Spurður um þýðingu niðurfellingarinnar fyrir atvinnu-
horfur í stétt iðnaðarmanna, andspænis vaxandi atvinnu-
leysi, kveðst Jón Steindór telja „mjög mikilvægt að þetta
taki gildi eins fljótt og hægt er“.
„Eins og ég skil þessi áform núna þá á þetta við um við-
hald á eldra húsnæði en við teljum að þetta eigi að taka til
alls íbúðahúsnæðis, hvort sem það er nýtt eða gamalt.
Eins og reglurnar eru núna færðu 60 prósent endur-
greidd, það eru reglurnar í dag. Núna er verið að tala um
að fara með þetta í 100 prósent, en aðeins fyrir viðhald,“
segir Jón Steindór, og rifjar upp að gamla frádrættinum
hafi verið komið á til að skapa atvinnu, líkt og nú.
„Þetta var einu sinni 100% en var fært niður í 60%.“
Örvar framkvæmdir
Í HNOTSKURN
»Samtök iðnaðarins fagna tillögum nýrrarstjórnar um mannaflsfrekar framkvæmdir.
» Í verkefnaskrá nýrrar ríkisstjórnar segir aðtekin verði upp „full endurgreiðsla á virðis-
aukaskatti vegna vinnu manna á byggingastað við
slík viðhaldsverkefni“.
Jón Steindór
Valdimarsson
Eftir Sigtrygg Sigtryggsson
sisi@mbl.is
NÝLIÐINN janúarmánuður var
hlýr og úrkomusamur og tíð telst því
hafa verið góð. Fyrri hluti mánaðar-
ins var sérlega hlýr, en síðari hlutinn
svalari. Þetta kemur fram í tíðar-
farsyfirliti Trausta Jónssonar veður-
fræðings.
Meðalhiti í Reykjavík var 1,8 stig
og er það 2,4 stigum ofan við með-
allag. Meðalhitinn á Akureyri var 0,3
stig og er það 2,5 stigum ofan með-
allags. Á Höfn í Hornafirði var með-
alhitinn 2,2 stig og -3,3 stig á Hvera-
völlum. Í Stykkishólmi var
meðalhitinn 1,2 stig, eða tveimur
stigum ofan meðallags.
Mánuðurinn var 14. hlýjasti jan-
úar frá upphafi samfelldra mælinga í
Reykjavík, sem ná aftur til ársins
1870.
Úrkoma var mikil í mánuðinum. Í
Reykjavík mældist hún 108 milli-
metrar og er það um 40 prósent um-
fram meðallag. Á Akureyri mældist
úrkoman 104 mm og er það nærri
tvöföld meðalúrkoma. Ekki hefur
mælst jafnmikil úrkoma í janúar á
Akureyri síðan 1975, en 1990, 2002
og 2004 var hún þó litlu minni en nú.
Á Höfn mældist úrkoman 222 mm og
er það meira en tvöföld meðalúr-
koma þar um slóðir.
Sólskinsstundir mældust 27 í
Reykjavík í janúar og er það nærri
meðallagi. Á Akureyri mældust sól-
skinsstundirnar 15 og er það 8
stundum fleiri en í meðalári.
Janúar var hlýr
og úrkomusamur
Kuldi Það kólnaði talsvert seinni
hluta janúar eftir hlýindi í byrjun.
UM þrjátíu starfsmenn Nýja Glitnis
fara í hæfnispróf á næstu miss-
erum. Fyrstu fimm taka prófið inn-
an hálfs mánaðar. Kristinn Arnar
Stefánsson, regluvörður hjá Glitni,
segir að Birna Einarsdóttir banka-
stjóri hafi ákveðið að setja lyk-
ilstarfsmenn í hæfnispróf eftir að
Fjármálaeftirlitið lagði próf fyrir
hana og bankastjóra ríkisbank-
anna þriggja, sem stóðust það.
„Við gerum strangar kröfur til
yfirmanna bankans,“ segir Krist-
inn, en framkvæmdastjórn, endur-
skoðendur, forstöðumenn verð-
bréfa og eignastýringar sem og
aðrir lykilstjórnendur þurfa að
taka prófið sem er mismunandi eft-
ir starfssviðum. „Svona próf eru
nauðsynleg, því bankastarfsemi er
í eðli sínu mjög flókin.“ Falli
starfsmenn á prófinu fá þeir tæki-
færi til að taka það aftur. Falli þeir
í annað sinn verður staða þeirra
metin og þeir eiga á hættu að
missa vinnuna.
Fjármálaeftirlitið fylgdi Birnu
að málum og hefur farið þess á leit
við bankana að leggja próf fyrir
lykilstarfsmenn sína. Það er nú
einnig í undirbúningi hjá Lands-
bankanum.
Þar munu framkvæmdastjórar
og lykilforstöðumenn taka prófið
en framkvæmd þess er enn í und-
irbúningi. Engin svör fengust hjá
Kaupþingi.
gag@mbl.is
Kanna hæfni starfsmanna