Morgunblaðið - 03.02.2009, Síða 12

Morgunblaðið - 03.02.2009, Síða 12
12 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 2009 Kynntu þér málið hjá sölumönnum Eirvíkur vi lb or ga @ ce nt ru m .is Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Baldursnes 6, Akureyri | Sími 588 0200 Íslenskt stjórnborð - Stórt hurðarop Íslenskar leiðbeiningar - 20 ára ending Miele þvottavélar hafa verið framleiddar í yfir hundrað ár. Miele þvottavélar eru framleiddar til að endast. Þvottavélar - verð frá kr. 154.995 Þurrkarar - verð frá kr. 129.995 TILBOÐ Sparðu með Miele Hamraborg 7, Kópavogi Sími 564 1451 www.modurast.is Erum með útsölu á barnafötum, brjóstagjafa- bolum og ýmsu fleiru. Lokadagar útsölunnar Góð tilboð á völdum vörum Eftir Skapta Hallgrímsson skapti@mbl.is GUNNLAUGUR Konráðsson hrefnuveiðimaður óttast að fiski- stofnar við Ísland hrynji ef hval- veiðar verða ekki leyfðar. Fjörutíu ár eru síðan hann fór að eltast við hrefnur fyrst og Gunnlaugur hefur því marga fjöruna sopið á þeim vett- vangi, þekkir hafið vel og segir ískyggilegt hve hval hefur fjölgað síðan hann fór fyrst á sjó. Skynsamt fólk geti ekki lokað augunum fyrir því hversu gríðarlega mikinn fisk hvalirnir éti. „Það væri þá alveg eins gott að setja bara hvalinn ofar okkur mönnunum,“ segir hann. „Ég trúi því ekki að ákvörðun sjávarútvegsráðherra frá því um daginn verði breytt. Einhverjir munu örugglega halda því fram að ekki sé hægt að taka mark á mér vegna þess við hvað ég hef starfað. Ég er hins vegar orðinn rúmlega sextugur og fer að hætta þessu þann- ig að málið er ekki svo einfalt. Mér ofbýður einfaldlega það sem ég sé,“ segir Gunnlaugur. Miklu, miklu meira … Vísindaveiðar á hrefnu voru síðast stundaðar hér við land sumarið 2007 og hann var einn þeirra sem kom að því á vegum Hafrannsóknastofn- unar. Þeim Gunnlaugi var bannað að tala við fjölmiðla þegar þetta var og ljósmyndurum og kvikmyndatöku- mönnum var ekki hleypt um borð. Nú segist hann hins vegar ekki geta orða bundist, eftir umræðuna sem spannst í kjölfar þess að starf- andi sjávarútvegsráðherra, gaf á dögunum út reglugerð sem heimilaði töluverðar veiðar á hrefnu og lang- reyði næstu fimm árin. Hvalir éta mikinn fisk og alveg gríðarlegt magn af loðnu, segir Gunnlaugur. „Það er algjört rugl, eins og haldið hefur verið fram, að hvalir éti lítið annað en svif,“ segir hann og varar ekki síst við hnúfubak. „Best væri að gera út 10-20 skip í heilt sumar og sökkva 10 þúsund dýrum en ég veit að það er ekki raunhæft og verður ekki gert, enda er hnúfubakurinn alfriðaður. Hann var í útrýmingarhættu um miðja síð- ustu öld en er það ekki lengur.“ Gunnlaugur segist reyndar óttast að það fari að verða of seint að veiða hval í einhverju magni til þess að stöðva þróunina. Hnúfubak fjölgar um 11% á ári hér við land, segir hann, sem sé langt umfram eðlilega tímgun. Hann komi líklega í stórum stíl annars staðar frá vegna skorts á æti. Hnúfubakur fari saman í flokkum en hrefnan sé hins vegar einfari við veiðar – hnúfubak- urinn ýti henni einfaldlega út af mat- arborðinu. Þegar vísindaveiðarnar hófust, sumarið 2003, urðu menn strax varir við að hrefnurnar voru meira og minna fullar af fiski; þorski, ýsu og ufsa. Svæsnustu dæmin voru fyrir vestan. „Hrefnan er tækifærissinni; ef hún fær ekki loðnu étur hún bara eitthvað annað.“ Fram kom á sínum tíma að eitt- hvað meira hefði verið af fiski í hrefnunni en haldið var „en sannleik- urinn er sá að það var miklu, miklu meira,“ segir Gunnlaugur. Reikna má með að hver hrefna éti 2-4% af eigin þyngd á hverjum degi og því meira sem sjórinn er kaldari. Hann gerir því ráð fyrir að hver og ein éti 200 til 400 kíló á dag. Hrefnurnar eru hér við land í sex til sjö mánuði á ári „og við veiðimenn vitum reyndar að sumar þeirra eru hér allt árið. Menn geta því ímyndað sér hve mikið þær éta. Hvað þá aðrar og miklu stærri tegundir.“ Hann segir að um 1980 hafi verið hending ef hnúfubakur sást á mið- unum „en sumarið 2007 sáum við stundum mörg hundruð á dag. Það var oft miklu meira af hnúfubak en hrefnu“. Þessi gamalreyndi sjóari segist hafa haft á orði við „strákana“ um borð fyrir nokkrum árum að þess væri ekki langt að bíða að lítið yrði eftir af loðnu. „Og hvað er nú að ger- ast? Faxaflóasvæðið virðist reyndar eitt mesta átusvæði í heiminum en staðan er allt önnur á austur- og norðursvæðinu.“ Loðnan er undirstaðan, segir hann. „Ef hvalurinn klárar hana hrynur annað á eftir. Það kann að hljóma eins og hvert annað rugl að einhver hætta sé á því en er það því miður ekki. Þess vegna er stór- hættulegt að banna hvalveiðar. Það er ekki hægt að horfa upp á það að hvalir éti mörg hundruð tonn af fiski á dag.“ Veiðar og skoðun fara saman „Auðvitað eigum við að nýta þessa auðlind, hvalina, á skynsamlegan hátt eins og aðrar og í góðri sam- vinnu við Hafró og aðra vís- indamenn.“ Gunnlaugur segist vilja vinna í sátt við hvalaskoðunarfólk enda geti veiðar og skoðun vel farið saman. „Við erum margbúnir að rétta hvalaskoðunarmönnum á Húsavík sáttarhönd og að ræða saman af skynsemi en þeir sparka alltaf í okk- ur,“ segir Gunnlaugur. Hann heldur því fram að hluti ástæðunnar sé sá að hvalaskoð- unarfyrirtæki njóti styrkja frá al- þjóðlegum hvalfriðunarsamtökum. „Þetta veit ég. Og styrkirnir fást ekki áfram ef þeir tala ekki op- inberlega gegn veiðum,“ segir Gunn- laugur. „Við viljum ekki skemma fyr- ir þeim. Það yrði mitt síðasta verk að veiða hval ef ég vissi af skoðunarbát nálægt. Hvalaskoðunarbátar hafa hins vegar elt okkur um allan sjó, bæði fyrir sunnan og vestan.“ Telur hvali geta eyðilagt fiskimiðin „Ekki hægt að horfa upp á hvali éta hundruð tonna á dag“ Ljósmynd/Gunnlaugur Konráðsson Góður afli! Hluti fisksins sem kom úr maga einnar hrefnunnar við vísindaveiðar Hafró sumarið 2007. Ljósmynd/Gunnlaugur Konráðsson Um borð Þessi hrefna er um átta metra löng. Mynd frá því sumarið 2007. Í HNOTSKURN »Gunnlaugur segir að sum-arið 2007 hafi verið svo mikið af hnúfubak víða á mið- unum að erfitt hafi verið að ná hrefnu. Þær voru styggar og svangar. „ Loðna var í maga einnar af hverjum 10 en þorskur og ýsa í hinum. Hlut- fallið ætti að vera öfugt ef allt væri með felldu,“ segir hann.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.