Morgunblaðið - 03.02.2009, Síða 14
14 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 2009
FRÉTTASKÝRING
Eftir Sigtrygg Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Í UMRÆÐUM um Alþingi og lýðræðið að und-
anförnu hefur komið fram gagnrýni á það fyr-
irkomulag að ráðherrar sitji andspænis þing-
mönnum í sal Alþingis. Með þessu fyrirkomulagi
megi segja að ráðherrarnir séu hafnir yfir Alþingi.
Að sögn Helga Bernódussonar, skrifstofustjóra
Alþingis, var þetta fyrirkomulag tekið upp þegar
Hannes Hafstein varð fyrsti ráðherra Íslands
1904. Hannes tók sæti við hliðina á þingforseta
gegnt þingmönnum á þinginu 1905. Allar götur
síðan hafa ráðherrar setið við norðurhlið þingsal-
arins, gegnt þingmönnum.
Frá þessu fyrirkomulagi er ein undantekning,
að sögn Helga. Árið 1987 var þingmönnum fjölgað
úr 60 í 63. Jafnframt voru ný húsgögn keypt í
þingsalinn og ráðherrarnir fluttu sig um set á
fremsta bekk í þingsalnum. Þetta fyrirkomulag
var við lýði út kjörtímabilið. Frá og með haust-
þinginu 1991 var horfið til gamla fyrirkomulagsins
og ráðherrar fluttu sig að nýju að norðurhliðinni,
við hlið þingforsetans.
Að sögn Helga er þessi uppstilling klassísk í
evópskum þingum. Undantekning er norska þing-
ið, en norskir ráðherrar sitja á fremsta bekk eins
og tíðkaðist hér árið 1987 til 1991. Á færeyska
Lögþinginu er það fyrirkomulag að ráðherrar
sitja úti í horni.
Á Alþingi er hefð fyrir því að forsætisráð-
herrann situr næst forseta þingsins, honum á
hægri hönd. Algengast er að utanríkisráðherrann,
sem jafnframt hefur verið formaður annars
stjórnarflokksins, sitji við hlið forsætisráðherra.
Þá eru dæmi um að fjármálaráðherra sitji við hlið
forsætisráðherra en ef ekki, situr hann næst for-
setanum, honum á vinstri hlið. Uppröðun ráð-
herra fer að öðru leyti eftir ákveðnum reglum.
Fyrst ræður ráðherraldurinn og ef hann er jafn
ræður þingaldurinn. Og ef hann er jafn þá ræður
varamennska á þingi og loks lífaldur.
Það ræðst væntanlega ekki fyrr en í dag hvort
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra sest
við hlið Jóhönnu Sigurðardóttur eða í sæti Árna
M. Mathiesen. Það er í ákvörðunarvaldi Jóhönnu
Sigurðardóttur forsætisráðherra, hvar honum
verður skipað í sæti. Næstir í röðinni verða Össur
Skarphéðinsson og Kristján L. Möller og svo koll
af kolli.
Síðustu sætin fá utanþingsráðherrarnir Gylfi
Magnússon og Ragna Árnadóttir, því þau hafa
enga þingreynslu. Svo skemmtilega vill til að þau
eru bæði fædd árið 1966. Gylfi er aðeins eldri,
fæddur 11. júlí, og verður því ystur þeim megin
sem forsætisráðherrann situr. Ragna er fædd 3.
ágúst og verður því yst í hinni röðinni.
Á fundum ríkisstjórnarinnar situr forsætisráð-
herra í öndvegi en að öðru leyti er röðin sú sama
við ríkisstjórnarborðið og á Alþingi. Á fundi rík-
isráðs á Bessastöðum sl. sunnudag var ráðherrum
raðað upp samkvæmt þessari reglu. Þetta er sama
fyrirkomulag og gilti á fundi forseta Íslands og
ríkisstjórnar Geirs H. Haarde í ríkisráðunu sl.
gamlársdag. Um árabil þar áður gilti sú regla að
leiðtogar stjórnarflokkanna sátu við hlið forseta
Íslands en aðrir ráðherrar út frá þeim í starfs-
rófsröð.
Nær óbreytt í rúm 100 ár
Evrópsk hefð að ráð-
herrar sitji gegnt alþing-
ismönnum eins og hér
Morgunblaðið/Sverrir
Undantekningin Ráðherrar sátu á fremsta bekk á Alþingi 1987-1991. Þorsteinn Pálsson í ræðustól og
aðrir ráðherrar og þingmenn hlusta á mál hans. Í öftustu röð má m.a. þekkja Steingrím J. Sigfússon.
Sætið sem forsætisráðherrarnir Þorsteinn Páls-
son og Steingrímur Hermannsson sátu í á ár-
unum 1987 til 1991, er enn kallað í gamni for-
sætisráðherrasætið. Umrætt sæti er númer 13.
„Þegar dregnar eru kúlur um sætin er sagt
við viðkomandi, jæja nú ert þú forsætisráð-
herra,“ segir Helgi Bernódusson. Síðast var
þetta sagt við Jón Bjarnason, þingmann Vinstri
grænna, þegar hann dró þetta sæti við upphaf
þings síðastliðið haust. Sætið er í innstu skeif-
unni og næst sæti forsætisráðherra.
Jón Bjarnason hefur áður setið í þessu sæti,
á aukaþinginu 2003. Af öðrum þingmönnum
sem setið hafa í sæti 13 undanfarin ár má
nefna Katrínu Júlíusdóttur, Gunnar Svavarsson,
Ingibjörgu Sólrúnu Gísla-
dóttur, Kristján L. Möller,
Birgi Ármannsson, Sólveigu
Pétursdóttur og Ástu R. Jó-
hannesdóttur. Því má segja
að það gefi nokkrar vonir
um ráðherradóm að draga
sæti númer 13!
Ráðherrum í ríkisstjórn
fækkar um tvo og verður því
aðeins rýmra um þá en fyrri
ríkisstjórn. Ráðherrar, sem nú hverfa úr stjórn-
inni, fara í laus sæti úti í sal. Ekki hefur verið
ákveðið hvaða sæti þeir fá, en ekki er ólíklegt
að dregið verði um það.
Jón Bjarnason situr í sæti „forsætisráðherra“
Jón Bjarnason
GUÐBJARTUR Hannesson, þing-
maður Samfylkingarinnar og 2.
þingmaður Norðvesturkjördæmis,
mun taka við embætti forseta Al-
þingis af Sturlu Böðvarssyni á
fyrsta fundi Alþingis eftir stjórn-
arskiptin.
Við upphaf núverandi kjör-
tímabils, sem hófst 2007, var sú
breyting gerð að forseti Alþingis
var kjörinn út kjörtímabilið. Áður
gilti sú regla að forsetinn var kjör-
inn við upphaf hvers þings.
Meirihluti þingmanna þarf að
óska eftir nýrri kosningu
Í 6. grein þingskapa segir að
kosning forseta, fastanefnda og al-
þjóðanefnda þingsins gildi fyrir allt
kjörtímabilið. Þingið getur þó kosið
að nýju í embætti forseta og nefnd-
ir ef fyrir liggur beiðni meirihluta
þingmanna þar um og fellur þá hin
fyrri kosning úr gildi. Núverandi
stjórnarflokkar, Samfylking og
Vinstri grænir, hafa ekki meiri-
hluta á Alþingi og munu því a.m.k.
þurfa liðsinni Framsóknarflokksins
til þess að óska eftir kjöri á nýjum
forseta.
„Þetta er krefjandi verkefni, sér-
staklega af því að við erum með
minnihluta í stjórn. Það reynir
meira á samninga nú en oft áður.
Ég hlakka til að glíma við þetta,“
segir Guðbjartur Hannesson, þing-
maður Samfylkingarinnar í Norð-
vesturkjördæmi og verðandi forseti
Alþingis, í samtali við mbl.is.
Guðbjartur segist taka við góðu
búi að mörgu leyti í sambandi við
stjórn þingsins þegar hann tekur
við embættinu af Sturlu Böðv-
arssyni, 1. þingmanni Norðvest-
urkjördæmis.
„En nú reynir á því umhverfið er
annað og það gerir öðruvísi kröfur
þannig að það er mjög spennandi.
Verkefni okkar hlýtur náttúrlega
að vera það að þingið fari að vinna
meira að málum sameiginlega. Það
er óskandi að menn leggist á eitt
við að leysa úr málum, það er verk-
efni okkar og vonandi eiga nú allir
flokkar það markmið að ná fram
úrbótum, bæði fyrir fyrirtæki og
heimili. Það er okkar stóra verkefni
að koma málum þannig fyrir að við
komum til móts við kröfurnar um
aukið lýðræði og breytingar. Ég er
frekar bjartsýnn og ég held að það
megi treysta á það að menn standi
saman og falli ekki í þá freistni að
fara að flytja kosningabaráttuna
inn í þingið,“ sagði Guðbjartur
Hannesson.
Guðbjartur Hannesson er á
fimmtugasta og níunda aldursári,
fæddur 3. júní 1950. Hann var fyrst
kjörinn á Alþingi vorið 2007. Hann
hefur síðan verið formaður félags-
og tryggingamálanefndar og á að
auki sæti í fjárlaganefnd og
menntamálanefnd. Þá er hann
fulltrúi í Íslandsdeild Vestnorræna
ráðsins. Guðbjartur er kvæntur
Sigrúnu Ásmundsdóttur og eiga
þau tvær dætur.
Guðbjartur er Akurnesingur og
var lengi grunnskólakennari þar í
bæ. Þá var hann skólastjóri
Grundaskóla á Akranesi 1981 til
2007. Hann sat í bæjarstjórn Akra-
ness 1986-1998. sisi@mbl.is
Nýr forseti Alþingis segir að mörg
krefjandi verkefni bíði þingsins
Morgunblaðið/Frikki
Í þingsal Guðbjartur, t.v., situr við hlið Ágústs Ólafs Ágústssonar.
Hann mun á næsta þingfundi setjast í stól forseta Alþingis.
86 umsóknir bár-
ust um styrk úr
sjóðnum „A.P.
Møllers Fond for
islandske stud-
erende i Dan-
mark“. 60 stúd-
entum verður
veittur styrkur á
næstunni.
Í mörg ár hafa íslenskir stúd-
entar í háskólanámi í Danmörku
fengið styrki úr þessum sjóði.
Dansk-Islandsk Samfund hefur
unnið úr umsóknum og aðstoðað við
styrkveitinguna. Í ár var ráðstöf-
unarupphæðin hækkuð um helming
vegna fjármálaástandsins á Íslandi
og nam einni milljón danskra
króna, segir m.a. í tilkynningu.
Íslenskir stúdentar
í Danmörku fá styrk
SAUTJÁN skip hafa fengið leyfi til
tilraunaveiða á gulldeplu og gilda
leyfin frá 1. febrúar til 15. febrúar
2009. Skulu tilraunaveiðarnar fara
fram undir eftirliti Hafrann-
sóknastofnunar og skal starfs-
maður hennar eða Fiskistofu vera
um borð í hverju skipi á meðan á
veiðunum stendur, að því marki
sem stofnanirnar telja nauðsynlegt.
Leyfi til tilraunaveiða á gull-
deplu eru meðal annars bundin
þeim skilyrðum að þær séu stund-
aðar á dýpi sem er meira en 200
metrar og að bolfiskur sé að-
greindur frá öðrum afla við dæl-
ingu úr veiðarfæri í lestar skipsins.
aij@mbl.is
17 skip með leyfi
í hálfan mánuð
UMHVERFISSTOFNUN barst til-
kynning frá Vaktstöð siglinga að-
faranótt 24. janúar síðastliðinn þess
efnis að flutningaskipið Atlantic
Navigator hefði óskað leyfis að
leita vars í Garðsjó. Um borð í skip-
inu voru gámar með geislavirkum
úrgangi.
Óskað var eftir áliti Umhverf-
isstofnunar á beiðni skipsins. Þar
sem spáð var 13-20 metrum á sek-
úndu á leið skipsins féllst Umhverf-
isstofnun á að skipið leitaði vars
með það fyrir augum að lágmarka
hættu. Niðurstaða Umhverfisstofn-
unar var um þetta einstaka tilfelli
og byggðist á upplýsingum um þá
stöðu sem upp var komin þegar leit-
að var álits.
Leyft að leita vars
DR. JAMES A. Thurber, stjórn-
málafræðiprófessor og for-
stöðumaður Center for Con-
gressional and Presidential Studies
við American University í Wash-
ington DC, heldur fyrirlestur á veg-
um Alþjóðamálastofnunar Háskóla
Íslands og sendiráðs Bandaríkj-
anna á morgun, 4. febrúar, kl. 12.15
í stofu 201 í Odda.
Thurber mun fjalla um nýjan for-
seta Bandaríkjanna, Barack
Obama, og hvers megi vænta af
honum og bandaríska þinginu.
Barack Obama
og væntingarnar
STUTT