Morgunblaðið - 03.02.2009, Page 15

Morgunblaðið - 03.02.2009, Page 15
Fréttir 15VIÐSKIPTI | ATVINNULÍF MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 2009 Eftir Björgvin Guðmundsson og Þórð Snæ Júlíusson KAUPRÉTTUR starfsmanna Landsbankans var ekki framseldur til erlendra félaga og af honum voru greiddir skattar og lögbundin gjöld. Þetta segir Kristján Gunnar Valdi- marsson, fyrrverandi forstöðumaður skattasviðs Landsbankans. Í Morgunblaðinu undanfarna daga hefur verið fjallað um erlend félög sem áttu mikið af hlutabréfum í Landsbankanum. Þessi félög voru vistuð í löndum þar sem skattalög- gjöf er hagstæð fjárfestum. Tengilið- ur þeirra á Íslandi var í nokkrum til- vikum Kristján sjálfur. Hann segir að þessi lönd hafi verið valin vegna þess að ekki var heimilt að stofna svokallaða sjálfeignarsjóði hér á landi. Sjálfseignarsjóðirnir áttu félögin sem keyptu hlutabréf í Landsbankanum á móti kauprétti starfsmanna. Kaupin fjármagnaði ekki Landsbankinn sjálfur heldur þriðji aðili, eins og Kaupþing og Glitnir. Þetta fyrirkomulag tryggði að Landsbankinn var varinn fyrir hækkun á verði hlutabréfanna þang- að til starfsmaðurinn nýtti kauprétt- inn. Þegar að því kom keypti bank- inn hlutabréf af erlenda félaginu samkvæmt samningi og seldi starfs- manninum eins og lýst hefur verið í Morgunblaðinu. Kristján segir að kauprétturinn hafi verið skráður á nafn hvers starfsmanns og ekki hafi verið hægt að framselja réttinn til félags í hans eigu. Hann hafi skrifað minnisblað í bankanum um þá framkvæmd og ekki talið aðrar leiðir færar. Hagn- aður af samningnum, sem var mun- urinn á kaupréttargengi og mark- aðsgengi, var skattlagður sem tekjur. Starfsmenn greiddu því um 38% tekjuskatt af hagnaðinum og til viðbótar greiddi Landsbankinn lög- bundin tryggingargjöld. Kristján segir að árið 2007 hafi Fjármálaeftirlitinu verið gerð grein fyrir þessu fyrirkomulagi sem hafi verið viðhaft frá því bankinn var í meirihlutaeigu ríkisins. Þá hafi FME fengið allar tilkynningar um þá sem nýttu sér kauprétt. Greiddu skatt af kauprétti Morgunblaðið/Þorkell Kaupréttarsamningar Samningar um kauprétt voru til þriggja og fimm ára. FME fékk tilkynningu þegar starfsmenn nýttu sér kauprétt. Kaupréttarfyrirkomulag Landsbankans var kynnt Fjármálaeftirlitinu 2007 ● Hráolíuverð lækkaði í gær þegar verkfalli starfsmanna olíuhreins- unarstöðva var afstýrt í bili. Verð á hrá- olíu féll um 78 sent niður í 40,90 doll- ara fyrir tunnuna. 24.000 starfsmenn olíuhreinsunarstöðva samþykktu að fresta verkfalli og kjaraviðræður voru í kjölfarið framlengdar í sólarhring. Verkfall myndi hafa áhrif á 60 hreins- unarstöðvar. Valero, sem stærsta fyr- irtækið í Bandaríkjunum á þessu sviði, tilkynnti í gær að það hygðist loka ein- hverjum vinnustöðvum ef starfsmenn færu. Olíufyrirtækið BP PLC tilkynnti um slíkt hið sama. thorbjorn@mbl.is Olíuverð lækkaði                                       ÞETTA HELST ... ● HEILDARVIÐSKIPTI í Kauphöllinni á Íslandi námu um 10,7 milljörðum króna í gær. Það voru að mestu viðskipti með skuldabréf. Viðskipti með hlutabréf námu einungis um 25 milljónum. Úrvalsvísitalan lækkaði um 1,0%, í 895 stig. Mest lækkun varð á hlutabréf- um Straums-Burðaráss, eða um 3,6%. gretar@mbl.is Lækkun í Kauphöllinni ● EINKANEYSLA heldur áfram að dragast saman í Bandaríkjunum. Hún var 1% minni í desembermánuði síðastliðnum en í sama mánuði árið áður. Var það sjötti mánuðurinn í röð sem einkaneyslan dróst saman. Segir í frétt á fréttavef New York Times að almenningur jafnt sem fyr- irtæki hafi almennt dregið úr neyslu sinni en þess í stað aukið sparnað og lagt meira af tekjum sínum til hliðar. Ástæðan sé fyrst og fremst auknar áhyggjur af atvinnuleysi, nú þegar kreppan heldur áfram að dýpka. gretar@mbl.is Minni einkaneysla en aukinn sparnaður ● ÞRENGINGAR eru framundan fyrir áliðnaðinn í heiminum. Þetta er mat rússneska auðkýfingsins Olegs Deri- paska, auðugasta manns Rússlands og stærsta hluthafans í rússneska álfyr- irtækinu Rusal, sem er stærsti álfram- leiðandi í heimi. Frá þessu er greint í vefmiðlum erlendra fréttastofa. Bandaríska dagblaðið Wall Street Jo- urnal hefur eftir Deripaska, að svo geti farið að rússneska ríkið kaupi minni- hluta hlutafjár í Rusal til að hjálpa til við endurskipulagningu á skuldum fyr- irtækisins. Erfiðleikarnir séu miklir, mest vegna þess hve eftirspurn í heim- inum hefur dregist mikið saman. gretar@mbl.is Erfið staða í áliðnaði FRAMKVÆMDASTJÓRN Evrópu- sambandsins vill nýjar reglur sem myndu skylda ESB- og EES-ríki til þess að afhenda upplýsingar um reikninga í eigu skattgreiðenda í öðrum ríkjum. Framkvæmdastjórnin segir að slíkar reglur myndu hafa áhrif á bankaleynd í Belgíu, Lúxemborg og Austurríki, en aðeins hjá út- lendingum sem séu að reyna að komast hjá því að greiða skatta í heimalandinu. Framkvæmda- stjórnin segir að á hverju ári séu vangoldnir skattar í ESB-ríkjum allt að 250 milljarðar evra sam- tals. Breskir skattgreiðendur þurfa að bera þungann af margra millj- arða punda holu í ríkisfjármálum þar sem mörg hundruð stærstu fyrirtækin í landinu beita flóknum aðferðum til að takmarka það sem þau greiða í skatta. Breska dagblaðið Guardian fór yfir reikninga stærstu fyrirtækja Bretlands og komst að því að mörg þeirra beita háþróuðum að- ferðum til að forðast skatt- greiðslur sem hefur leitt af sér holskeflu af fullkomlega löglegum leiðum til að sniðganga skatta. Ekki er vitað með vissu hvað þetta eru háar fjárhæðir samanlagt sem breska ríkið fer á mis við. Guardi- an segir að upphæðin geti verið einhvers staðar á bilinu 3,7 til 13 milljarðar punda. Samkvæmt op- inberri tölfræði breska ríkisskatt- stjórans greiddu 60% af 700 stærstu fyrirtækjum Breta minna en 10 milljónir punda í skatta árið 2006 og 30% þeirra greiddu ekk- ert. thorbjorn@mbl.is Heiðarlegir skattgreið- endur borga brúsann Eftir Grétar Júníus Guðmundsson gretar@mbl.is HIN nýja ríkisstjórn Jóhönnu Sig- urðardóttur áformar að breyta fyr- irkomulagi peningamálastjórnunar hér á landi umtalsvert frá því sem verið hefur. Með því að fækka seðla- bankastjórum úr þremur í einn og koma á fót sérstöku peningastefnu- ráði, til að fara með ákvarðanir um beitingu stjórntækja Seðlabankans, er verið að færa fyrirkomulag pen- ingamálastjórnunar nær því sem til að mynda er á Bretlandi. Þar er fyr- irkomulagið með þessum hætti, þ.e. einn aðalseðlabankastjóri og pen- ingastefnuráð. Í verkefnaskrá ríkisstjórnarinnar er ekki tilgreint hvernig útfærslan á peningastefnuráðinu verður. Þá hef- ur ekki verið tilkynnt hvernig skip- að verður í ráðið. Níu manna ráð Englandsbanka Í peningastefnuráði (MPC) Eng- landsbanka eiga sæti níu manns. Þeir eru bankastjórinn, tveir að- stoðarbankastjórar, aðalhagfræð- ingur bankans og einn fram- kvæmdastjóri og fjórir utanaðkomandi nefndarmenn, sem fjármálaráðherrann tilnefnir. Þessir fjórir nefndarmenn eru ekki fulltrú- ar ákveðinna hópa þjóðfélagsins. Þeir eru alla jafna valdir með hlið- sjón af því að þeir séu hlutlausir sér- fræðingar á sviði hagfræði, oft starf- andi fræðimenn við háskóla. Markmiðið er að þessir aðilar skapi ráðinu sérfræðiþekkingu til viðbótar við þá þekkingu sem fulltrúar bank- ans í því búa yfir. Peningastefnuráð- ið ákveður stýrivexti bankans með hliðsjón af því að verðbólgumarkmið hans náist fram. Ekki verður annað séð en að pen- ingastefnuráð Englandsbanka hafi almennt notið trausts og að niður- stöður þess þyki alla jafna trúverð- ugar. Ráð með sérfræðingum  Peningastefnuráð Seðlabankans á að fara með ákvarðanir um beitingu stjórn- tækja bankans  Góð reynsla þykir af slíku ráði til að mynda við Englandsbanka Í HNOTSKURN » Peningastefnuráð Eng-landsbanka er skipað sérfræðingum á sviði hag- fræði og peningamála- stefnu. » Ráðið fundar mán-aðarlega og tekur þá ákvörðun um stýrivexti bankans. » Við seðlabanka Banda-ríkjanna er einnig pen- ingastefnuráð sem hefur það hlutverk að hafa yfir- umsjón með stefnu bankans. ● Finnska dagblaðið Helsingin Sanomat segir farsímarisann Nokia hafa hótað að flytja höfuðstöðvar sínar og verksmiðjur frá Finnlandi ef finnska löggjafarþingið samþykkir ekki löggjöf sem heimilar fyr- irtækjum að skoða tölvupóst starfs- manna. Þessu hafnar fyrirtækið. Nokia segir að frétt dagblaðsins sé full af rangfærslum og byggð á misskiln- ingi. Matti Vanhanen ,forsætisráðherra Finnlands, hefur einnig hafnað því að fyrirtækið hafi þrýst á þingmenn að breyta löggjöfinni en Nokia telur að raf- ræn vöktun tölvupósts sé mikilvægt úrræði til að sporna gegn iðnaðar- njósnum. 16.000 manns starfa hjá Nokia í Finnlandi. thorbjorn@mbl.is Segir Nokia hafa hótað að flytja frá Finnlandi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.