Morgunblaðið - 03.02.2009, Side 16

Morgunblaðið - 03.02.2009, Side 16
16 FréttirERLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 2009 Stepp ehf Ármúla 32 Sími 533 5060 www.stepp.is stepp@stepp.is G ra fí k a 2 0 0 9 GÓLFEFNI ÞEKKING ÞJÓNUSTA TEPPI FYRIR HEIMILIÐ Eftir Svein Sigurðsson svs@mbl.is ÓTTAST er um afdrif barna og óbreyttra borgara í átök- unum á Sri Lanka en um 250.000 manns eru innlyksa á litlu svæði, sem skæruliðar tamíl-tígra ráða, og fá ekki að fara þaðan. Er fólkið eins og á milli steins og sleggju og verður ýmist fyrir kúlna- eða sprengjuhríð frá stjórn- arhermönnum eða skæruliðum. Daniel Toole, yfirmaður Unicef, Barnahjálpar Samein- uðu þjóðanna í Suður-Asíu, sagði, að tugþúsundir barna væru innilokuð á svæði skæruliða og vitað væri, að fjölda- mörg hefðu látið lífið og enn fleiri særst. Stjórnvöld skora á Tígrana Stjórnvöld á Sri Lanka hafa skorað á Tígrana að leyfa óbreyttum borgurum að forða sér burt en talsmenn skæruliða neita því og segja, að fólkið vilji ekki fara, að það telji sig öruggast undir vernd skæruliða. Louis Michel, sem fer með mannúðarmál í fram- kvæmdastjórn Evrópusambandsins, segir, að í uppsigl- ingu séu ólýsanlegar hörmungar á Sri Lanka og hefur hann skorað á stjórnvöld og skæruliða að eira óbreyttum borgurum og leyfa þeim og forða sér burt af átakasvæð- unum. Undir það taka talsmenn ýmissa hjálparstofnana og að sögn Rauða krossins eru öll matvæli uppurin. Að minnsta kosti níu manns létust og margir særðust er sprengikúlum var skotið á yfirfullt sjúkrahús á yf- irráðasvæði skæruliða. Sagði talsmaður stjórnarhersins, að hann hefði ekki ráðist á sjúkrahúsið enda beitti hann aðeins flugvélum í sókninni gegn skæruliðum og hefði vit- að nákvæmlega um legu sjúkrahússins. Sagði hann, að skæruliðar verðust hins vegar með stórskotaliðsvopnum og taldi líklegt, að þeir hefðu skotið á sjúkrahúsið í því skyni að sverta stjórnarherinn. Sri Lankastjórn skoraði í gær á óbreytta borgara að koma sér burt frá yfirráðasvæði skæruliða þar sem nú stæði yfir lokasóknin gegn þeim. Yrði ekkert af henni slegið og þess vegna væri ekki hægt ábyrgjast öryggi fólksins nema það forðaði sér sjálft. Börn milli tveggja elda Óbreyttir borgarar, allt að 250.000 manns, eru berskjaldaðir fyrir skothríð og sprengjuárásum í átökum stjórnarhersins og skæruliða á Sri Lanka Í HNOTSKURN » Tamílsku tígrarnirhófu vopnaða baráttu fyrir sjálfstæðu ríki í norð- austurhluta Sri Lanka árið 1972. Hefur hún kostað tug- þúsundir manna lífið. » Tígrarnir hafa beitthryðjuverkum og virt mannréttindi að vettugi og það hefur einnig átt við um stjórnarherinn. » Meirihluti íbúa á SriLanka er Sinhalesar, um 75%, en Tamílar um 15%. SNJÓNUM kyngdi niður í Vestur-Evrópu í gær og olli það miklum samgönguerfiðleikum víða, einkum í Bretlandi og Frakklandi. Raunar snjó- aði meira eða minna á öllu meginlandinu og al- veg suður til Marokkó. Ætla mætti, að myndin væri tekin í ein- hverjum bæ á norðurslóðum en hún var tekin í Suður-London en þar er nú 10 sm djúpur, jafn- fallinn snjór. Hefur ekki snjóað þar meira í 18 ár en þessi vetur er sá kaldasti í Bretlandi í 12 ár. Í gær var flugvöllum í landinu lokað vegna fann- komunnar og lestasamgöngur lágu víða niðri. Þá voru skólar lokaðir og almenningur var hvattur til að vera ekki á vegum úti á bíl nema brýna nauðsyn bæri til. Breska veðurstofan varaði í gær við enn meiri snjókomu og spáð var allt að átta sm snjódýpt á austanverðu Írlandi. Þar og víðar hefur mikið verið um árekstra og slys. Fannalög í Lundúnaborg AP TALIÐ er að um sextán blaðamenn hafi verið myrtir í Rússlandi á síðustu átta árum, þar af fjórir blaðamenn Novaja Gazeta, blaðs sem þekkt er fyrir rannsóknarblaða- mennsku og harða gagnrýni á spillingu í stjórnkerfinu, meint lögregluríki og mannréttindabrot í Tsjetsjeníu. Blaðamenn og ritstjórar Novaja Gazeta hafa farið á sjálfsvarnarnámskeið og nokkrir þeirra nota dulnefni. Að minnsta kosti einn þeirra hefur fengið lífvörð vegna morð- hótana. Einn eigenda blaðsins, Alexander Lebedev, auð- kýfingur og fyrrverandi þingmaður, hefur lagt til að yf- irvöld heimili rússneskum blaðamönnum að bera byssur til að geta varið sig. Skiptar skoðanir eru meðal blaðamanna Novaja Gazeta um þessa tillögu en aðalritstjórinn Dmítrí Múratov er hlynntur henni. „Annaðhvort verjum við okkur eða byrjum að skrifa um náttúruna og fugla, allt sem er jákvætt,“ segir Múratov. „Við myndum þá hætta að skrifa um öryggis- stofnanirnar, spillinguna, fasismann.“ Margir starfsmanna blaðsins telja að hreyfingar þjóð- ernissinna eða „fasista“ hafi staðið fyrir morðunum með stuðningi eða aðstoð lögreglu- og leyniþjónustumanna. Síðasta morðið var framið 19. janúar þegar Anastasía Babúrova, 25 ára blaðakona, var skotin til bana á götu ná- lægt Kreml þegar hún var þar á göngu með lögfræðingi sem hefur varið marga Tsjetsjena, umhverfisverndarsinna og baráttumenn mannréttinda. Þekktasti blaðamaðurinn sem ráðinn hefur verið af dögum er Anna Politkovskaja, sem var myrt fyrir utan heimili sitt í Moskvu árið 2006. Hún hafði meðal annars skrifað um mannréttindabrot yf- irvalda í Tsjetsjeníu. bogi@mbl.is Vilja að rússneskir blaða- menn fái að bera vopn AP Í skugga morða Dmítrí Múratov, ritstjóri Novaja Ga- zeta (t.h.), á morgunfundi með blaðamönnum sínum. ÁKÖF og tillits- laus eftirsókn fullorðins fólks eftir velgengni er nú það sem einna helst ógnar vel- ferð breskra barna. Segir svo í nýrri skýrslu um æskuárin og líðan barna í Bretlandi. Í skýrslunni, sem 11 sérfræðing- ar unnu, segir, að eigingjörn ein- staklingshyggja sé komin út í öfgar. Afleiðing hennar sé meðal annars upplausn heimila, siðlaus auglýs- ingamennska, allt of mikil sam- keppni í skólum og allt of mikill launamunur í samfélaginu. Af þess- um sökum sé hlutskipti barna verra nú en áður og ekki að undra þótt sálræn vandamál ungs fólks aukist ár frá ári. Einn höfunda skýrslunnar, Row- an Williams, erkibiskup af Kant- araborg, segir, að svo virðist sem fólk sé hætt að skilja hverjar hinar raunverulegu þarfir barnsins séu. Skýrsluhöfundar leggja áherslu á, að niðurstöðurnar séu studdar traustum tölum en samt er líklegt, að einhverjir verði til að mótmæla þeim. Þeir segja til dæmis, að þrisvar sinnum fleiri börn, sem búa hjá öðru foreldranna eða stjúpföður eða -móður, eigi í erfiðleikum en þau, sem búa hjá báðum foreldrum sínum. svs@mbl.is Ungdóm- urinn út undan Eru þau fyrir full- orðna fólkinu? Passar ekki inn í sam- keppnissamfélagið ÁTTATÍU og átta manns fórust þeg- ar Boeing-737 frá rússneska flug- félaginu Aeroflot hrapaði í Úralfjöll- um í september síðastliðnum. Var í fyrstu talið, að vélarbilun hefði vald- ið slysinu en nú er niðurstaðan kom- in og hún er þessi: Flugstjórinn var drukkinn. Rannsóknarnefnd flugslysa í Rússlandi segir, að meginástæðan fyrir slysinu hafi verið sú, að flug- stjórinn, Rodion Medvedev, hafi ver- ið ófær um að stjórna flugvél vegna ölvunar. Fannst áfengi í líkama hans og auk þess mátti vel heyra það á mæli hans á upptökum. svs@mbl.is Flugstjórinn var fullur MUAMMAR Gaddafi, leiðtogi Líbýu, var kjörinn formaður Afríkusambandsins á leiðtogafundi þess í Eþíópíu í gær og kvaðst ætla að beita sér fyrir stofnun „Bandaríkja Afríku“ þrátt fyrir andstöðu ráðamanna í mörgum löndum álfunnar. Fyrir fundinn hafði Gaddafi hótað því að hætta að nota olíuauð Líbýu til að fjárfesta í Afríku ef hugmyndir hans um samruna Afríkuríkja yrðu ekki að veruleika. Líbýa er þriðji mesti olíu- framleiðandi álfunnar á eftir Nígeríu og Angóla. Gaddafi vill meðal annars að öll Afríkuríki taki upp sameiginlegan gjaldmiðil og stofni afrískan her. bogi@mbl.is Gaddafi leiðtogi Afríku Gaddafi á leiðtogafundi Afríkusambandsins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.