Morgunblaðið - 03.02.2009, Síða 17

Morgunblaðið - 03.02.2009, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 2009 Jón B. Stefánsson, sem býr á Nes-inu og í Breiðdal, orti vísu um stjórnarmyndunarviðræðurnar: Þau eru jafnan söm við sig, sæl með hugsun verga. Í sjónhending þau minna mig á Mjallhvít́ og sjö dverga. Jóhanna Sigurðardóttir sagði forðum: „Minn tími mun koma.“ Það rifjaðist upp fyrir Friðriki Steingrímssyni í Mývatnssveit: Framsókn er státin og stendur hér vörð á Steingrím nú runnin er víma, jagið að baki og jóðsóttin hörð Jóhanna er komin á tíma. Rúnar Kristjánsson á Skaga- strönd var spurður hvort hann styddi Jóhönnu: Víst er nú í vitund minni vafi hvort ég styð hana. En ef hún líkist ömmu sinni er ég sáttur við hana! Jóna Guðmundsdóttir segist binda vonir við Jóhönnu Sigurð- ardóttur á limrublogginu: Það er gáleysi að vera með gáska, við gæta’ okkar þurfum í háska. Nú Jóhönnu styðjum og Steingrím við biðjum um að stilla sig fram yfir páska. VÍSNAHORN pebl@mbl.is Af Jóhönnu og dvergum Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur annaei@mbl.is Áföstudagskvöldum mætaSesselja Traustadóttir ogKjartan Guðnason meðbörn sín í TBR-húsið í Laugardal og spila badminton. Fjöl- skyldan er samsett og eru þau, þegar mest er, sex á vellinum. Badmin- tonleiknum getur því fylgt mikið líf og fjör eins og gefur að skilja. „Við erum ekki góð,“ segir Sess- elja. „Við ætlum ekki að keppa í vor, ekki næsta vetur og ekki heldur þar næsta vetur – nema kannski innan fjölskyldunnar. Þetta er hins vegar mjög gaman og getur tekið virkilega vel á.“ Hún segir hugmyndina að baki badmintontímunum eiga rætur í því að Sólrún (13 ára) og Hugrún (11 ára) hættu nýlega í þeim íþróttum sem þær höfðu stundað. Ásgeir (18 ára) og Gréta Sóley (12 ára) eru hins vegar enn á fullu í handbolta, körfubolta og frjálsum íþróttum. „Það ýtti undir þessa ákvörðun og það verður að segjast að þetta er góð íþrótt fyrir svona blandaðan hóp. Aldurinn skipt- ir ekki sama máli hér og hann myndi t.d. gera í hand- eða fótbolta. Þetta er svo líka góður tími fyrir okkur fjölskylduna að vera saman því það verður að segjast eins og er að það er ekkert auðvelt að ná öllum þessum hópi saman. Þannig náum við til dæmis sjaldnast öll að setjast að kvöldmatarborðinu á sama tíma.“ Hjólað í sumarnóttinni Fjölskyldan lætur sér þó ekki bad- mintonið duga því þau hjóla líka tölu- vert. Sjálf hjólar Sesselja, sem kennir við Álftamýrarskóla, ýmist eða geng- ur í vinnu og lætur hún vetrarfærðina ekki stoppa sig, heldur skiptir þá ein- faldlega yfir á nagla. „Það eru svo mikil lífsgæði fólgin í því að vera í göngu- og hjólafæri við vinnustaðinn,“ segir hún, „og það var mikil hamingjustund á dögunum þeg- ar við létum farga hinum bílnum. Þetta byrjaði annars allt með Hjól- að í vinnuna-átakinu fyrir þremur ár- um. Ég tók þátt í því og hjólaði sam- fellt í þrjár vikur. Að þeim tíma loknum var hins vegar ekkert inni í myndinni að hætta.“ Krakkarnir eru líka dugleg að ferðast um á hjóli, þó að þau hjóli óneitanlega minna yfir veturinn. Það skipti þó vissulega máli hve mið- svæðis fjölskyldan býr, rétt við Laug- ardalinn. „Krakkarnir hafa notið þess að upplifa það hversu mikið frelsi felst í því að ferðast um á hjóli og hafa uppgötvað hvað þetta eru almennt ótrúlega stuttar vegalengdir sem við erum að fara. Mér finnst við vera mjög heppin hvað þeim finnst þetta sjálfsagður ferðamáti og eru lítið betlin á skutl.“ Þau séu sömuleiðis dugleg að nýta sér strætó sem stoppi beint fyrir framan heimilið. Hún segir hjólreiðarnar líka hafa hentað vel þegar þau Kjartan voru að setja saman sína blönduðu fjölskyldu. „Í hjólreiðunum felst bæði nærvera og samvera, en þó ekkert meiri en maður sjálfur kýs. Það eru líka allir glaðir á hjóli og þó að maður sé e.t.v. eitthvað óhress þá verður maður bara samt glaður eftir smástund.“ Þau hafa líka farið í hjólaferð utan landsteinanna. Hjóluðu þá frá Passau í Þýskalandi til Vínarborgar í Aust- urríki. Þau eru hins vegar enn að leita fyrir sér með góðar hjólaleiðir hér á landi. „Það er erfitt að hjóla frá Reykjavík,“ segir Sesselja. „Bílar aka svo hratt eftir þjóðveginum og á hann vantar axlirnar.“ Illfært sé þannig frá höfuðstaðnum til Hveragerðis, sem og upp fyrir Kjalarnes. Þau hafa þó ekki látið það stoppa sig og fóru t.d. í ferðalag um landið með fjölskylduna á tveimur bílum svo hjólin kæmust fyrir. Ekkert mál sé nefnilega að hjóla með krökkum við góðar aðstæður og var m.a. hjólað í Húsafelli og Kaldadal. „Þá vorum við að hjóla svolítið á nóttunni því það er vel hægt að nota birtuna í júlí. Það eru líka meiri stillur á nóttunni og þetta var býsna magnað en óneit- anlega líka svolítið kalt.“ ÞÆR Sólrún og Gréta Sóley hafa gaman af badmintonæf- ingunum með fjölskyldunni. „Við ákváðum að prufa þetta,“ segir Sólrún, sem áður æfði sund. Þær æfingar voru hins vegar orðnar of tímafrekar. „Við æfðum sex daga vikunnar og það átti að fara að fjölga æf- ingatímunum úr tveimur upp í þrjá tíma á dag,“ segir hún. Þær segja badmintonið reyna vel á og fjölskyldan njóti þess að spila saman án þess að um keppni sé að ræða. Því sé hins vegar ekki að neita að keppnisskap leynist í fjöl- skyldumeðlimum. „Aðallega þó í mömmu,“ segir Gréta Sól- ey og hlær. Oftast er hún að koma beint af frjálsíþrótta- æfingu. „Þannig að ég er alveg úrvinda þegar badmintoninu er lokið.“ Gaman að spila saman Morgunblaðið/Ómar Fjölskyldusport Badminton er góð hreyfing fyrir fjölskylduna að mati þeirra Kjartans Guðnasonar og Sesselju Traustadóttur og barna þeirra Ásgeirs, Hugrúnar og Grétu Sóleyjar. Á myndina vantar Sólrúnu. „Það hjóla allir í fjölskyldunni“ Sesselja og fjölskylda taka þátt í Lífshlaupinu, landskeppni í hreyf- ingu, sem ÍSÍ stendur fyrir og hefst 4. febrúar nk. www.lifshlaupid.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.