Morgunblaðið - 03.02.2009, Side 20

Morgunblaðið - 03.02.2009, Side 20
20 Umræðan MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 2009 Ný ríkisstjórn hefur tekið við völdum og er efnahagsstefna hennar – samkvæmt orðum forsætisráðherrans sl. sunnudag – grundvöll- uð á áætluninni, sem fyrri ríkisstjórn vann í samstarfi við Alþjóða- gjaldeyrissjóðinn (IMF). Fjár- málaráðherra þessarar ríkisstjórnar verður einn helsti tengiliður og sam- starfsmaður sjóðsins hér á landi þann tíma sem hann situr í embætti. Svo vill til að þar er á ferðinni sami stjórnmálamaður og fyrir örfáum mánuðum fór fremstur í baráttu Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs gegn samstarfinu við sjóð- inn. Þessi stjórnmálamaður, Stein- grímur J. Sigfússon, fór hvað eftir annað í þingræðum ófögrum orðum um Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og samkomulag íslenskra stjórnvalda við hann um fjárhagslegan stuðning. Hann varaði ákaflega við lántök- unni, sem samkomulagið gerir ráð fyrir, og taldi það vera „þungan bagga að bera fyrir ungar axlir komandi kynslóða og landsmenn alla“, svo notuð séu hans eigin orð. Lántak- an var slæm, en þó voru að hans mati verri þeir skilmálar, sem hann sagði felast í sam- komulaginu. Það voru að hans mati „ógn- arskilmálar“ og „þving- unarprógramm“, sem Íslendingar þyrftu að losna undan sem fyrst til að „endurheimta frelsi sitt á þessu sviði“. Taldi hann að í áætl- uninni birtist skýrt „harðlínunið- urskurðarstefna“ sjóðsins, sem væri „eyðileggjandi fyrir íslenskt velferð- arsamfélag til framtíðar“. Hét hann því að lokum að ef þingmenn Vinstri grænna fengju til þess aðstöðu væri það „forgangsatriði“ af þeirra hálfu að komast út úr þessu samkomulagi. Nú liggur fyrir stjórnarsáttmáli nýrrar ríkisstjórnar. Ekkert er þar að finna sem bendir til að Vinstri grænir hafi gert þetta mál að for- gangsatriði. Og þrátt fyrir tíða leka til fjölmiðla af stjórnarmynd- unarviðræðunum er ekkert sem bendir til þess að flokkurinn hafi gert svo mikið sem minnstu tilraun til að gera þetta að forgangsatriði. Á þessu eru bara tvær hugsanlegar skýringar. Önnur er sú að Stein- grími J. Sigfússyni og flokkssyst- kinum hans hafi snúist hugur í þessu máli og þau hafi áttað sig á nauðsyn samkomulagsins við Alþjóðagjald- eyrissjóðinn. Ef svo er væri heið- arlegast af Steingrími að koma hreint fram og játa það að hann hafi haft rangt fyrir sér í umræðum um málið í haust og að öll stóryrðin hafi verið á misskilningi byggð. Hin mögulega skýringin er sú að Stein- grímur og félagar hafi einfaldlega ákveðið að kyngja öllum fyrri yf- irlýsingum í þessu grundvallarmáli og hafi þannig fórnað eldheitum hugsjónum sínum fyrir ráðherra- stólana. Steingrímur J. og stóryrðin um IMF Birgir Ármannsson skrifar um stefnu nýrrar ríkisstjórnar varðandi Alþjóða- gjaldeyrissjóðinn » Svo vill til að þar er á ferðinni sami stjórn- málamaður og fyrir ör- fáum mánuðum fór fremstur í baráttu Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs gegn samstarfinu við sjóðinn. Birgir Ármannsson Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. MEIRIHLUTI bæj- arstjórnar á Álftanesi sem samanstendur af fulltrúum VG og Framsóknar birti lof- grein um sig í Mbl. 30. janúar sl. undir yf- irskriftinni „Rang- færslur vegna Mið- skóga 8 leiðréttar“. Í textanum er reynt að réttlæta meðferð mála er varða lóðina að Miðskógum 8 þar sem barátta ein- staklinga við stjórnvald hefur staðið í rúm þrjú ár. Greinin er birt í kjölfar atburða sem áttu sér stað í desember sl. en þá yfirheyrði rannsóknarlögreglan forseta bæjarstjórnar Álftaness vegna rógburðar og meiðyrða um lóðareigendur sem birt voru á vef sveitarfélagsins. Þessi aðför að lóð- areigendum er ein alvarlegasta sem stjórnvald hefur orðið uppvíst að hér á landi. Í framhaldi sagði forseti bæjarstjórnar af sér öllum embætt- isstörfum fyrir sveitarfélagið. Furðu vekur að enginn viðsnún- ingur hefur orðið í málinu eftir að þetta mál varð upplýst. Þeir sem eftir sitja í meirihlutanum stimpla sig nú rækilega inn sem aðilar að þessu alkunna siðleysismáli. Í útvarpsviðtali á RÚV þann 12. janúar sl. tjáði bæjarstjóri sig um málið. Viðtalið var hlaðið ósann- indum. Í grein Mbl. 30. jan s.l. held- ur meirihlutinn áfram á sömu braut. Eftirfarandi eru nokkrar af stað- reyndum málsins: Lóðin er þinglýst eignarlóð, 1490 fm og hefur verið á skipulagi frá 1981 og hefur allt hverfið byggst upp skv. því. Meirihlutinn dregur gildi skipulagsins í efa. Þó hefur meirihlutinn s.l. tvö ár unnið við að BREYTA GILDANDI SKIPU- LAGI, með það eitt fyrir augum að afmá út lóðarréttindin af skipulagi svæðisins. – Dómur Hæstaréttar frá apríl 2008, (no. 444/2007) staðfesti gildi skipulagsins og þar með réttindi lóðareig- enda, hið sama gerði Úrskurðarnefnd skipu- lags- og byggingamála sem fjallaði um málið 9. október sl. Nið- urstöður og úrskurðir æðsta valds í þessum málefnum eru að engu hafðir og Sigurður Magnússon bæj- arstjóri lætur hafa eft- ir sér í blaðafrétt 21. maí 2008, „Álftanes- bær ræður, ekki Hæstiréttur“. – Því er haldið fram í greininni að reynt hafi verið að finna lausn á málinu frá upphafi. Meirihlutinn hefur ekki á nokkru stigi málsins reynt að leysa málið af nokkurri al- vöru. Það vita allir sem komið hafa að málinu á ýmsum stigum, svo og flestir íbúar á nesinu. Í kjölfar meiðyrðamálsins voru lóðareig- endum boðnar aðrar lóðir í skiptum fyrir Miðskógalóðina. Við nánari at- hugun kom í ljós að þær lóðir eru í einkaeigu og ekki til ráðstöfunar fyrir sveitarfélagið. Eigendur um- ræddra lóða vissu ekkert um málið. – Bæjarstjóri hefur ítrekað látið hafa eftir sér í opinberri umfjöllun að lóðin og fjaran við hana séu frið- uð. Það er alrangt og það veit bæj- arstjóri manna best. Öll strand- lengjan frá Hafnarfirði og yfir í Kópavog er á náttúruminjaskrá. Hvað gengur manni í opinberri stöðu til með því að fara vísvitandi með slík ósannindi síendurtekið í viðtölum og greinum? Ráðandi aðilar í bæjarstjórn á Álftanesi eru kjörnir sem fulltrúar um hagsmuni fólksins í sveitarfé- laginu. Þau virðast ekki átta sig á staðreyndum málsins sem hlýtur að vekja íbúa og aðra til umhugsunar því málið allt varðar grundvallarlög og -reglur um eigur og réttindi al- mennings á Íslandi. Lóðareigendur hafa fundað með ráðuneytum samgöngu- og um- hverfismála. Þá hafa umboðsmaður Alþingis og forystumenn VG og Framsóknar verið upplýstir um málið. Undantekningarlaust vekja þessi vinnubrögð furðu. Engu að síður er málið í þeirri stöðu sem lýst hefur verið, sem gefur tilefni til efa- semda um gildi og áhrifamátt stjórnsýslulaga. Ekki virðast til nein úrræði fyrir almenna borgara sem eru fórn- arlömb slíkrar valdníðslu og spill- ingar. Það er með ólíkindum að á mestu umrótstímum í íslensku þjóð- félagi þegar almenningur leggur þunga áherslu á heilindi og sann- girni í allri stjórnsýslu, skuli meiri- hluti bæjarstjórnar á Álftanesi eyða kröftum sínum og fjármunum íbúa á nesinu í ofsóknir gegn ein- staklingum. Það sem hér fer fram er ekkert annað en einbeitt tilraun til eignaupptöku. Íslenskt samfélag líður ekki að fólk í áhrifastöðum gangi svo freklega á réttindi og eig- ur almennings í þágu eiginhags- muna og vegna pólitískra sýnd- arleikja. Bæjarfulltrúar meirihlutans skýla sér á bak við opinber embætti og sjóði og eigur skattgreiðenda. Þau eru fullkomlega umboðslaus í þeim verkum og munu sæta ábyrgð vegna þess. Íbúum á nesinu ber ekki að gjalda fyrir, enda fyrir löngu orðið ljóst að vinnubrögð meirihlutans eru þvert á vilja fólks- ins sem þau sitja í umboði fyrir. Lóðareigendur skora á fulltrúa meirihlutans á Álftanesi að leysa málið varðandi byggingarlóðina að Miðskógum 8 með því að gefa út byggingarleyfi tafarlaust eeða að sveitarfélagið kaupi lóðina á sann- gjörnu verði og greiði auk þess all- an þann kostnað sem lóðareigendur hafa sannanlega orðið fyrir vegna fráleitra vinnubragða meirihlutans. Að öðrum kosti sjá lóðareigendur sér ekki annað fært en að hefja skaðabótamál gegn sveitarfélaginu og þeim einstaklingum sem í for- svari eru. Álftanes – Stjórnsýsla á skjön við lög og reglur samfélagsins Hlédís Sveinsdóttir svarar grein meiri- hluta bæjarstjórnar Álftaness um Mið- skóga 8 » Grein bæjarfulltrú- anna er full af ósannindum og þarf leiðréttinga við. Hlédís Sveinsdóttir Höfundur er arkitekt og lóðareigandi að Miðskógum 8 á Álftanesi. ENGUM dylst að ótrúleg gerjun hefur verið í þjóðfélaginu á undanförnum vikum og mánuðum. Und- irrótin er án efa hinn eindregni vilji fólks til að losa um hin heljarsterku tök sem gömlu flokksfélögin hafa á öllu þjóðlífinu. Þau tök má aftur rekja til þess kosningafyr- irkomulags, sem gerir „flokkseig- endum“ og fjármagnseigendum unnt að hafa áhrif á hverjir velj- ast til setu á framboðslistum, ekki síst til þess í hvaða sætum á lista hver einstaklingur lendir, það er að segja til prófkjörs. Þekkt er, eða a.m.k. ganga sögur um, að fjársterkir einstaklingar verji ótöldu fjármagni í áróður fyrir ákveðna menn til setu í „öruggum“ sætum á listum hvers flokks. Líkur benda til að mikið sé um slíkt við hin hefðbundnu prófkjör, sem viðgengist hafa til þessa. En er unnt að koma í veg fyrir þau heljartök sem flokks- og fjár- magnseigendur hafa á röðun manna á framboðslista? Ekki hef ég beinlínis séð eða heyrt ýjað að slíku í ræðu eða riti. Ef að líkum lætur standa nú kosningar fyrir dyrum áður en langt um líður. Hvernig væri að taka upp nýja siði við þær nú að vori? Er þá hugmynd mín sú að hver stjórnmálasamtök eða fram- boð velji tiltekinn fjölda manna á lista, segjum fjórum sinnum fleiri en kjósa á í hverju kjördæmi fyr- ir sig. Þeim yrði síðan raðað á listann í stafrófsröð (eða með slembiröðun fyrirfram) en síðan merktu kjósendur sjálfir við þann frambjóðanda sem þeir vilja hafa í 1. sæti, 2. sæti o.s.frv., þar til náð hefði verið þeim fjölda sem listann skipa. Með þessu móti eru áhrif annarra en kjósend- anna sjálfra lágmörk- uð. Að vísu myndu flokkar eða samtök um framboð velja fólk til setu á viðkomandi lista en ekki hafa áhrif á það í hvaða sæti hver lend- ir. Þetta fyrirkomulag myndi einn- ig koma í veg fyrir að aðrir en þeir sem kjósa viðkomandi lista hefðu áhrif á skipan hans eða röð- un. Mótbára gegn þessu yrði án efa erfiðleikar við talningu atkvæða að kosningum loknum en með þeirri fullkomnu tölvutækni sem tiltæk er yrði án efa hægt að hanna kjörseðla á þann hátt að auðvelt ætti að vera að ná réttum úrslitum á tiltölulega skömmum tíma. Mér er að vísu ljóst að svo rót- tæk breyting sem hér er stungið upp á um kosningafyrirkomulag myndi kosta breytingu á kosn- ingalögum og kæmi þá til kasta sitjandi Alþingis til að svo mætti verða. Er þessum hugleiðingum flotað nú áður en til verulegs kosn- ingaundirbúnings kemur. Losum um flokksböndin Björn Her- mannsson skrifar í tilefni af komandi kosningum Björn Hermannsson »Ef að líkum lætur standa nú kosningar fyrir dyrum áður en langt um líður. Hvernig væri að taka upp nýja siði við þær nú að vori? Höfundur er lögfræðingur. Í MARS árið 2007 voru sett ný vegalög sem tóku gildi 1. jan- úar 2008. Með sam- þykkt laganna ákvað Alþingi töluverðar breytingar á flokkun vega. Eitt af því sem breyttist var að nú fækkar þjóðvegum í þéttbýli eða eins og segir í lög- unum: „til stofnvega teljast einnig umferðarmestu vegir sem tengja saman sveitarfélög á höfuðborg- arsvæðinu“ og „þar sem stofnveg- ur endar í þéttbýli skal hann ná að fyrstu þvergötu sem tilheyrir gatnakerfi þéttbýlisins og enda þar.“ Samkvæmt vegalögunum ber svo Vegagerðinni að sjá „um gerð vegaskrár, sem er skrá yfir þjóð- vegi“ og var hún gefin út og birt á vef Vegagerðarinnar í desember síðastliðnum. Framkvæmda- og eignaráð Reykjavíkurborgar átelur þessi vinnubrögð Vegagerðarinnar, skv. nýlegri frétt á Mbl.is. Samkvæmt fréttinni telur „skrifstofustjóri hjá borginni að gangi hugmyndir Vegagerðarinnar eftir gæti árleg- ur kostnaður borgarinnar aukist um tugi milljóna“. Hér er hlut- unum snúið á haus því Vegagerðin gaf út vegaskrá samkvæmt lögum og hefur ekki velt neinum kostnaði yfir á sveitarfélögin. Um er að ræða ákvörðun Al- þingis sem ákvað þessa skipan mála. Meðan ekki hefur ver- ið samið um hvernig þessir vegir verði færðir í umsjá sveitar- félaganna helst ástandið óbreytt. Vegagerðin sinnir áfram þeim vegum sem hún hefur hingað til sinnt. Önnur breyt- ing sem varð með nýj- um lögum er sú að nýr flokkur, héraðsvegir, kemur í stað safnvega og hluta landsvega sem áður var. Héraðsvegir eru um 1000 km lengri en safnvegirnir voru, þar sem hluti tengivega færist nú í þann flokk. Héraðsvegir voru ekki færðir yfir til sveitarfélaga eins og sumir virðast halda, hins vegar er vegagerðinni „heimilt að fela sveit- arfélagi veghald héraðsvega innan sveitarfélagsins, óski viðkomandi sveitarfélag eftir því.“ Vegaskrá í kjölfar nýrra vegalaga G. Pétur Matthías- son segir frá breyt- ingum á lögum um flokkun vega G. Pétur Matthíasson »Hér er hlutunum snúið á haus því Vegagerðin gaf út vega- skrá samkvæmt lögum og hefur ekki velt nein- um kostnaði yfir á sveit- arfélögin. Höfundur er upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.