Morgunblaðið - 03.02.2009, Síða 21

Morgunblaðið - 03.02.2009, Síða 21
Minningar 21 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 2009 ✝ Andrés Guð-jónsson, fyrrver- andi skólameistari Vélskóla Íslands, Má- natúni 2, Reykjavík fæddist í Hafnarfirði 13. júní 1921 og ólst þar upp. Hann lést 22. janúar á Landakoti. Foreldrar hans voru Guðjón Þorkels- son, f. 12.7. 1893 í Hafnarfirði, d. 13.5. 1958, og k.h., Guð- jónsína Andrésdóttir, f. 22.8. 1893 í Hafn- arfirði, d. 9.12. 1963. Systkini Andrésar voru Guðrún Þ. Guðjónsdóttir f. 24.2. 1925, d. 4.7. 1990, og Guðmundur Halldór Guð- jónsson, f. 22.3. 1929, d. 26.4. 2005, var kvæntur Sigríði Björnsdóttir, f. 22.10. 1930. Andrés kvæntist 9.12. 1950, Ellen Margrethe Guðjónsson, f. 20.2. 1925, í Lumby Fjóni, hjúkrunarfræðingi, hún er dóttir Jens Ludvik Jensen, f. 8.5. 1894, d. 2.7. 1997, bónda í Dan- mörku, og k.h. Anna Jensen hús- freyju, f. 12.3. 1902, d. 12.3. 1983. Synir Andrésar og Ellenar Margr- ethe eru 1) Jens Andrésson, f. 9.4. 1952 og eru börn hans Óskar, Ívar og Ellen Margrethe. Kona hans er Kristín Þorsteinsdóttir og dóttir Verksmiðjustjóri hjá Síldar- og fiskimjölsverksmiðjunni að Kletti frá 1950-53. Starfaði sem tækni- fræðingur á teiknistofu Vélsmiðj- unnar Héðins í Reykjavík frá 1953- 55. Andrés var kennari við mót- ornámskeið Fiskifélags Íslands og kenndi mótorfræði við Bréfaskóla SÍS og ASÍ frá 1961 og þar til að slíkt kennsluform var lagt niður. Kennari við Vélskóla Íslands frá 1955-71. Skólastjóri og skólameist- ari Vélskólanns frá 1971-91. Hann var skipaður í nefnd 1978 til að endurskoða lög um atvinnuréttindi vélfræðinga, vélstjóra og vélavarða á íslenskum skipum. Ný lög um at- vinnuréttindi tóku síðan gildi í des- ember 1984. Andrés var eftirlitsmaður hval- veiðiskipa Hvals hf. og yfirvélstjóri á þeim í viðlögum. Var meðdómari í sjórétti sem og skipaskoð- unarmaður fyrir American Bureau of Shipping 1967-81. Andrés var meðal stofnenda Skátafélags Hafn- arfjarða 1937 og formaður Iðn- fræðingafélags Íslands 1955-56. Er riddari hinnar íslensku fálkaorðu frá 1992 og félagi í Oddfellow frá 1954. Andrés skrifaði nokkrar kennslubækur, m.a. Olíubókina og Mótorfræði fyrir vélstjóra. Náms- bækurnar voru notaðar til kennslu við vélstjóranám í mörg ár. Andrés verður jarðsunginn frá Grensáskirkju í dag og hefst at- höfnin kl. 15. þeirra Anna Kristín, fóstursonur Jón Þ. Sigurðsson. 2) Ívar Andrésson, f. 11.11. 1954, d. 8.8. 1977, son- ur hans er Andrés. 3) Grímur Andrésson, f. 27.8. 1955, kona hans er María Friðriks- dóttir, þeirra börn Rósa og Friðrik. Andrés lærði renni- smíði í Vélsmiðju Hafnarfjarðar og tók sveinspróf í renni- smíði 1942. Vélstjóra- próf 1944 og rafmagnsdeildarpróf frá sama skóla 1945. Lauk æðsta vélstjóraprófi frá Köbenhavns Maskinmesterskole 1949 og varð tæknifræðingur frá Odense Mask- inbygnings teknikum 1950. Kynnti sér meðferð og notkun vatns fyrir gufukatla í Newcastle á Englandi. Sótti námskeið hjá Shell í London í meðferð á smurolíum og efnagrein- ingu þeirra. Fór reglulega í kynnis- og námsferðir til að afla sér auk- innar þekkingar á menntun vél- stjóra og vélfræðinga, aðallega til Norðurlandanna. Andrés var kyndari og vélstjóri á síldveiðibátum og togurum. Þá var hann vélstjóri í síldarverksmiðjunni á Djúpuvík, síðast sumarið 1956. Elsku afi, það eru merkileg tíma- mót, stórir menn stíga fram í sviðs- ljósið á meðan aðrir fara. Afi minn, þú varst vitur og hóg- vær, alveg yndislega góður með endalausar sögur um Hafnarfjörð- inn. Ég gleymi aldrei þegar þú hjálp- aðir mér eitt sinn að smíða lykla. Þegar ég kom til þess að sækja þá vildirðu útskýra af hverju þú hafðir valið grænt gúmmí á lykilinn en ekki rautt eins og þú ætlaðir þér. Rautt táknar ást, en grænt táknar traust og þú sagðir þetta svo hátíðlega að halda mætti að ég væri einn af nem- endunum þínum að útskrifast. Svo tókstu þéttingsfast í höndina á mér, settir hina höndina á öxlina mína svona til þess að leggja áherslu á þetta traust sem þú syndir mér. Ég var þá sextán ára og þetta var mér gífurlega mikils virði. Þú varst alltaf með á nótunum, Last mikið, blöð og bækur. Alltaf há- degisfréttir í útvarpinu þegar ég kom í mat. Það vantaði aldrei um- ræðuefnið í kringum þig. Þegar ég var að flytja til London fræddi þú mig um einn Bretann. Um Lord Sandwich sem þurfti að flýta sér að borða og setti mat á milli tveggja brauðsneiða sem þar af leiðandi skírði fyrirbærið samloku. Já, stund- um voru þetta gagnslausar upplýs- ingar. Og þó, hver og einn verður að meta það. Þú vissir svo margt og þekktir marga. Sýndir ættartölum mikinn áhuga. Já, eða nánast hvaða tali sem var. Ef það var verið að tala um einn- hvern sérstakan mann, var dregið fram eitthvert tal og þeim manni flett upp. Eða það kom einhver fram í sjónvarpinu eða það var verið að fletta blöðunum. Þú gast alltaf fund- ið skyldleikann. „Þetta er frændi þinn“ var oft sagt. Ef umræddur maður var ekkert sérlega viðkunn- anlegur var svarið „Nei, þetta er frændi þinn!“ Elsku besti afi, ég mun sakna þín sárlega. Stundirnar við matarborðið þegar við amma vorum að ræða mál- efni. Það gat verulega hitnað í kol- unum. Hvernig þú, glettinn á svip, gast dregið annað augað í pung eins og þú værir að segja: „Ég veit hvað þú meinar, en best er að sleppa því að ræða þetta frekar“. Enda snerust þín lífsgildi meira um sátt, samlyndi og samkomulag. Að láta í minni pok- ann gat verið sigur í sjálfu sér. Ég vissi þegar ég kvaddi þig í byrjun janúar á leið minni til Frakk- lands í skóla að það væri í síðasta sinn sem ég myndi sjá þig. Það var mjög sárt en ég veit að það er bara á veraldlegu sviðinu, getur maður sagt. Þú varst sammála því að það er meira milli himins og jarðar en það sem maðurinn getur gert sér grein fyrir og þú munt alltaf eiga sérstað í hjarta mínu og hvenær sem ég vil get ég átt samræður við þig um öll heimsins mál, eins og við áttum svo oft. Ég sendi allri minni fjölskyldu ást- arkveðjur og þá sérstaklega Ömmu Ellen. Ég er með þér í anda, alltaf. Nornir þrjár skáru þráð en eftir standa spor þín í sálinni minni. Ellen Margrethe. Í dag verður elskulegur Andrés afi minn kvaddur í hinsta sinn. Ótal minningar fljúga í gegnum hugann enda var afi einn af þeim sem létu sig flestallt varða, þó sérstaklega allt sem tengdist bátum og vélum. Tím- inn sem ég eyddi með Andrési afa og ömmu Ellen er mér afar dýrmætur. Ef eitthvað var um að vera í mínu lífi, gott eða slæmt, voru amma og afi með þeim fyrstu á svæðið. Mér er það sérstaklega minnis- stætt þegar ég var hjá Styrktar- félagi lamaðra og fatlaðra í æfingum. Þá voru amma og afi dugleg að fylgj- ast með og hvetja mig áfram. Afi minnti mig oft á það að ég gæti vel orðið vélstjóri ef ég fengi nægan styrk í fæturna. Seinna meir, þegar ég byrjaði að æfa sund, voru amma og afi einnig tíðir gestir á sundmót- unum sem ég tók þátt í og veittu mér alltaf mikla hvatningu á mótum og í því að ná betri árangri í íþróttinni. Þegar afi var á Landakoti síðustu mánuði ævinnar kom hann reglulega heim í heimsókn. Í janúar á þessu ári synti ég á Nýársmóti fatlaðra og af því tilefni kom ég í mynd í sjónvarp- inu. Þegar afi heyrði það ákvað hann að gefast ekki upp og sat uppi þrátt fyrir takmarkað úthald til þess. Já, hann afi minn var sko hörkukarl sem mun seint líða mér úr minni. Afi, ég vil þakka þér fyrir allar góðu stund- irnar og stuðninginn í gegnum tíð- ina. Anna Kristín Jensdóttir. Elsku afi minn. Það voru ófáir fimmtudagarnir í Hvassaleitinu sem við sátum og borðuðum kjúkling á mínum yngri árum, við kölluðum þetta fasta liði eins og venjulega. Í Hvassaleitinu lærði ég líka að tefla og var fátt skemmtilegra en að tefla við þig. Alltaf hafðir þú tíma til að tefla við afastrákinn eða segja honum sögur frá uppvaxtarárunum í Hafnarfirði eða af sjónum. Mikið var ég þakklátur fyrir að litli drengurinn minn fékk einnig að kynnast þér með reglulegum heim- sóknum í Mánatúnið. Þangað var gott að koma, drekka kaffi og spjalla við þig um heima og geima. Svo vor- uð þið Bjarmi Fannar líka miklir lúdóspilarar og alltaf sá afi til þess að verðlaun væru til staðar. Þegar við Bjarmi Fannar ræddum saman um að langafi Andrés væri nú farinn Guðs varð sá litli leiður en huggaði sig þó við og sagði að nú geti afi kennt Guði lúdó. Elsku amma mín, þinn missir er mikill en ég veit að þú átt margar góðar minningar um ykkar fallega samband. Umönnun þín í veikindum hans var einstök og lýsandi fyrir sam- heldni ykkar og virðingu ykkar við hvort annað. Okkar dýpstu samúðarkveðjur til þín, amma mín, og fjölskyldunnar allrar. Óskar, Björg Ýr og Bjarmi Fannar. Sagt er að snemma beygist krók- urinn. Andrés var fæddur og uppal- inn í Hafnarfirði, sem þá var mikill útgerðar- og togarabær. Faðir hans var vélstjóri og náinn frændi hans rak vörubílaútgerð. Forvitinn og námfús drengurinn drakk í sig um- ræður um tæknimál, og því lá beint við að Andrés færi í vélvirkjanám og síðar í Vélskóla Íslands. Þaðan lauk hann vélstjóraprófi og síðan raf- magnsdeildarprófi. Að þessu námi loknu fór Andrés til Danmerkur þar sem hann lauk bæði æðsta stigi vél- stjóraprófs og tæknifræðiprófi frá Tækniskólanum í Óðinsvéum. Það var þó ekki aðeins tækniþekking sem Andrés flutti með sér frá Dan- mörku og heim, honum fylgdi einnig lífsförunautur, ung hjúkrunarkona að nafni Ellen Margrethe. Fyrstu kynni mín af Andrési má rekja aftur til ársins 1960 þegar ég hóf nám við Vélskólann í Reykjavík. Andrés kenndi okkur bekkjarfélög- unum meðal annars eimvélafræði, burðarþolsfræði, vélateikningu, olíu- og ketilvatnsrannsóknir. Ég minnist góðs kennara sem hafði lag á að jarð- binda kennsluna og glæða hana lífi með því að flétta inn skemmtilegum reynslusögum. Þetta var fyrir tíma myndvarpa- og tölvutækni, kennslu- tæki voru fábrotin og því mikilvæg- ara en ella að kennari væri slíkum kostum búinn. Þegar ég hóf kennslu við Vélskóla Íslands haustið 1969 lágu leiðir okk- ar Andrésar saman á nýjan leik. Þá var gott að leita til reynds vélfræði- kennara og þiggja hans ráð. Síðar varð Andrés skólameistari Vélskól- ans og starfaði ég undir hans stjórn þar til árið 1991 er hann hætti störf- um. Á þessu tímabili mótaðist náin vinátta milli fjölskyldu minnar, Andrésar og hans góðu eiginkonu, sem lifir mann sinn. Andrés var mildur stjórnandi sem gaf kennurum skólans frelsi til að móta kennsluað- ferðir og byggja upp tækjakost í verklegum greinum eftir því sem efni og aðstæður leyfðu. Ég átti því láni að fagna að fara í nokkur ferðalög til útlanda með Andrési vegna ráðstefnuhalds og mála sem tengdust skólastarfinu. Hann var einstaklega skemmtilegur ferðafélagi, góður sögumaður og með sérstæða kímnigáfu. Flestar sögurnar tengdust skólamálum, tækni og vélstjórn og leyndi sér því ekki að þetta voru hans áhugamál. Það er gæfa að fá að lifa og starfa að þeim málefnum sem áhuginn beinist að. Það er líka mikil gæfa að eiga góðan og traustan lífsförunaut. Á báðum þessum sviðum var Andrés gæfumaður. Við hjónin erum þakklát fyrir að hafa átt Andrés og Ellen sem vini og samferðarmenn og í minningunni eru öll þau samskipti umlukt gleði og birtu. Við sendum þér Ellen og fjöl- skyldu þinni samúðarkveðjur og Guðs blessun. Við leiðarlok er góðum dreng, sem vann vélstjóramenntuninni vel, þökkuð samfylgdin. Blessuð sé minning Andrésar Guðjónssonar. Björgvin Þór Jóhannsson, fyrrverandi skólameistari Vélskóla Íslands. Andrés Guðjónsson  Fleiri minningargreinar um Andr- és Guðjónsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.                          ✝ Elskuleg dóttir mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐNÝ ALBERTA HAMMER frá Brekkum í Holtum, Lækjarbraut 2, Rauðalæk, sem lést þriðjudaginn 27. janúar á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Lundi, verður jarðsungin frá Árbæjarkirkju í Holtum miðvikudaginn 4. febrúar kl. 14.00. Herdís Albertsdóttir, Kristjana Sigurðardóttir, Gunnlaugur Gunnlaugsson, Herdís R. Þorgeirsdóttir, Davíð B. Sigurðsson, Sigríður S. Jónasdóttir, Ragnheiður Jónasdóttir, Sigurður Jónasson, Ásdís G. Jónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang- amma og langalangamma, HULDA STEFÁNSDÓTTIR, lést á Sjúkrahúsi Siglufjarðar laugardaginn 31. janúar. Útförin fer fram frá Siglufjarðarkirkju laugardaginn 7. febrúar kl. 14.00. Hrafnhildur Stefánsdóttir, Birgir Björnsson, Álfhildur Stefánsdóttir, Marteinn Haraldsson, Stefán Páll Stefánsson, Ingibjörg Oddsdóttir, Guðrún Stefánsdóttir, Theodór Júlíusson, Hilmar Jón Stefánsson, Sigríður Þórarinsdóttir, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐLAUG SÆMUNDSDÓTTIR frá Stóru-Mörk, Vestur-Eyjafjöllum, síðast til heimilis Skúlagötu 20, Reykjavík, andaðist á hjúkrunarheimilinu á Vífilsstöðum föstudaginn 30. janúar. Útförin fer fram frá Seljakirkju mánudaginn 9. febrúar kl. 13.00. Þórarinn Jens Óskarsson, Gunnar Þórarinsson, Steinunn Sighvatsdóttir, Ágúst Þórarinsson, Sigríður Hanna Jóhannesdóttir, Sæmundur Þórarinsson, Kristjana Daníelsdóttir, Katrín Þórarinsdóttir, Haukur Ingason, Sigrún Þórarinsdóttir, Stefán Bjarnason, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.