Morgunblaðið - 03.02.2009, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 03.02.2009, Qupperneq 23
Minningar 23 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 2009 að voru böndin sem við bundumst í æsku sterk og áttum við ævinlega góðar stundir þá við hittumst. Við minnumst þín með djúpum söknuði og geymum í hjarta okkar minningar um blikið í blíðu brúnu augunum þín- um og bjarta brosið. Við biðjum almáttugan Guð að vaka yfir Ken, Gunnari Má, Söru Margréti, Viktoríu Lynn, Rúnari og Fríðu, Lúlla, Gunna, Særúnu og fjöl- skyldum þeirra. Þínar frænkur, Sigríður Jóhanna og Ásta María. Elsku Guðrún mín. Þegar ég skrifa þetta bréf til þín er ég að hugsa um stóru brúnu augun þín, ljósa hárið og fallega brosið sem ávallt lýsti upp andlitið þitt. Þegar ég skrifa þetta bréf er ég að hugsa um hvað gæti hjálpað fólkinu þínu til að takast á við þessa hræðilegu sorg. Þegar ég skrifa þetta bréf er ég að hugsa um Ken, Gunnar Má og litlu yndislegu stelpurnar þínar Söru og Viktoríu. Ég hugsa líka um mömmu þína og pabba, sem misstu litlu stúlkuna sína og þetta verður allt svo óbærilega sárt. Ég vildi að enginn af þeim hefði þurft að upplifa þetta. Hugsanir flæða og ég er að velta fyrir mér hvernig við eigum að ná sátt við til- veruna á ný. Eða munum við kannski ekki gera það? Hvað er það sem hef- ur alltaf komið til hjálpar á tímum sem þessum? Er það ekki kærleik- urinn, vonin og góðar minningar? Minningar um góða tíma og vonin um að allt fari vel. Von um að það birti á ný. Elsku Guðrún, ég er þakklát fyrir að hafa átt þig að, ég ber ómælda virðingu fyrir þér og því lífi sem þú lifðir. Þú fórst þínar eigin leiðir og fyrir þér var móðurhlutverkið það dýrmætasta og stærsta sem þú fékkst. Minningar um þig, dillandi hláturinn og glaðlega fasið munu ylja okkur um ókomin ár og minna okkur á að huga hvert að öðru fremur en að huga að öðrum lífsins gæðum. Það er líka það sem skiptir máli þegar öllu er á botninn hvolft. Að lifa lífinu sem góðar manneskjur og það gerðir þú svo sannarlega. Þúsund þakkir fyrir allt, Guðrún mín, ég bið að heilsa. Særún frænka. Það hefur dregið til tíðinda og skelfilegar fréttir berast um að góð vinkona hefur skyndilega fallið frá. Það spyrja sig allir, hvað hefur gerst og enginn vil trúa. Það er ekki sann- gjarnt að taka móður frá börnunum sínum, eiginmanni, fjölskyldu og vin- um. Þú varst einstök manneskja, alltaf í góðu skapi, með jákvætt hugarfar og stutt í hláturinn. Forgangsatriðin í lífi þínu voru alveg á hreinu og það vissu allir að það voru börnin, Gunn- ar Már, Sara og Viktoría og eigin- maðurinn Ken sem voru alltaf í há- sæti. Þín mest gæfa var að hitta Ken og alltaf varstu jafn ástfangin og þið áttuð yndisleg börn sem þú elskaðir svo mikið. Ég vil minnast þín og minnast góðra stunda sem við áttum saman. Við vorum vinkonur frá því að ég flutti í Garðahverfið og það voru góð- ir tímar. Samverustundirnar á Grænagarðinum voru ófáar. Nokkr- ar minningar koma upp í hugann og fá mig til að brosa en auðvitað eru þær margar. Þú varst alltaf með svo fallega ljóst hár en varst alveg til í að breyta til og fékkst mig til að lita það dökkt og út- koman var frekar út í grænt og það varð til þess að pabbi þinn sendi þig í strípur og við skemmtum okkur oft yfir þessari minningu. Þú varst ung þegar þú áttir Gunn- ar Má og þegar ég var í skólaleikfimi í Fjölbraut og við fórum út að hlaupa, þá hljóp ég heim til þín, til að vera með þér og rétt áður en tímanum lauk þá hljóp ég til baka. Það er ansi eftirminnilegt þegar við fórum í verbúð til Vestmanna- eyja, ætluðum að taka vertíðina og auðvitað skemmta okkur. Við náðum að skemmta okkur en gróðinn var nú ekki mikill. Allar sváfum við í einu rúmi, ég, þú og Helga Birna en hlóg- um okkur í svefn á kvöldin og reynd- ar í vinnunni alla daga. Núna síðustu ár þá höfum við ekki hist mikið en ég var þó svo lánsöm að hitta þig alltaf í saumaklúbbnum og eiga með þér góðar stundir þar. Núna ert þú farin, ég sakna þín mikið en reyni að ylja mér við góðar minningar. Ég kveiki á kerti, hugsa til fjölskyldu þinnar og sendi þeim hlýju og styrk. Ást og virðing, Erla Jóhannsdóttir. Elsku vinkona mín, ég trúi ekki að þú sért farin frá okkur. Þegar ég sest niður til að skrifa þetta er vika síðan þú kvaddir en mér finnst heil eilífð síðan ég sá þig síðast og ég skil bara ekki hvað lífið er ósanngjarnt og af hverju þú þurftir að kveðja okkur svona snemma. Við erum búnar að vera vinkonur svo lengi og það er svo skrítið að hugsa til þess að geta ekki komið til þín í kaffi og spjallað og hlegið með þér eins og við gerðum oft í viku, eða bara tekið upp tólið og hringt í þig. En ég hugga mig við all- ar minningarnar sem ég á um þig og ég hugsa til allra góðu stundanna okkar gegnum árin og hvað við bröll- uðum mikið saman, eins og þegar þú hringdir frá Ameríku og sagðist vera að fara að giftast Ken, þá fannst mér alveg ómögulegt að vera ekki með þér á þeirri stundu og flaug út og kom þér á óvart, og þú varst svo hissa að þú trúðir ekki eigin augum og við hlógum alla ferðina. Þú varst einstök vinkona sem ég gat alltaf leitað til og þú varst alltaf til í að hlusta. Þú hugs- aðir svo vel um börnin þín og Ken og þau voru þér allt enda varst þú alltaf með þau í forgang og sjálfa þig síð- ast. Og þið eigið svo fallegt og hlýlegt heimili og þangað var alltaf svo gott að koma og heimsækja ykkur Ken og krakkana. Þið voruð svo ástfangin og höfðum við vinkonurnar oft orð á því að þið væruð alltaf eins og ástfangnir unglingar enda voruð þið hjón sem gerðuð allt saman og voruð ekki bara hjón heldur bestu vinir. Það eru erfiðir tímar framundan hjá Ken og börnunum þínum og fjöl- skyldunni þinni allri, en ég veit að við sem elskum þig munum öll styðja þau eftir bestu getu á þessum erfiðu tímum. Elsku Ken, Gunnar Már, Sara Margrét og Viktoría, megi guð geyma ykkur og styrkja í ykkar miklu sorg. Elsku besta Guðrún mín, ég kveð þig með trega en þú ert ljóslifandi í hjarta mínu og ég mun alltaf vera með mynd af þér í huganum brosandi eins og þú varst alltaf. Þín vinkona alltaf Ásta Guðný.  Fleiri minningargreinar um Guð- rúnu Björk Rúnarsdóttur Freder- ick bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, ÓSKAR G. GUÐJÓNSSON, Háaleitisbraut 14, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi miðvikudaginn 28. janúar. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 5. febrúar kl. 13.00. Guðbjörg Vallý Magnúsdóttir, Ragnar Óskarsson, Jóhanna Njálsdóttir, Guðjón Grétar Óskarsson, Inga Grímsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Útför elskulegs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, JAKOBS BJÖRGVINS ÞORSTEINSSONAR, Sléttuvegi 13, Reykjavík, fer fram frá Bústaðakirkju miðvikudaginn 4. febrúar kl. 11.00. Þóra Jakobsdóttir, Friðrik Sveinn Kristinsson, Þorsteinn Þröstur Jakobsson, Guðrún Óðinsdóttir, Óskar Matthías Jakobsson, Angela Jakobsson, Halldór Jakobsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir fyrir stuðning og hlýju við fráfall og útför eiginmanns míns og föður okkar, FRIÐRIKS BÖÐVARSSONAR, Stóra-Ósi. Bestu kveðjur og óskir, Þórunn Guðfinna Sveinsdóttir, Böðvar, Guðmundur Grétar og Sveinn Óli Friðrikssynir. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts sonar míns, HAFLIÐA JÓNSSONAR. Sérstakar þakkir fær starfsfólk á Sambýlinu að Sólbrekku 28 og dvalarheimilinu Hvammi á Húsavík fyrir einstaka umhyggju sem það sýndi Hafliða fyrr og síðar. Fyrir hönd aðstandenda, Jón Sigurðsson frá Arnarvatni. ✝ Ástkær eiginkona mín og vinur, móðir okkar, dóttir, systir og mágkona, GUÐRÚN BJÖRK RÚNARSDÓTTIR FREDERICK, Hátúni 37, Keflavík, varð bráðkvödd á heimili sínu föstudaginn 23. janúar. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju í dag, þriðjudaginn 3. febrúar kl. 14.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir. Kenneth W. Frederick, Gunnar Már Vilbertsson, Sara Margrét Frederick, Viktoria Lynn Frederick, Fríða Felixdóttir, Rúnar Lúðvíksson, Lúðvík Rúnarsson, Iðunn Ingólfsdóttir, Gunnar Felix Rúnarsson, Arna Hrönn Sigurðardóttir, Særún Ása Rúnarsdóttir, Jónas Þór Jónasson og aðrir aðstandendur. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, sonur og bróðir, ÓLAFUR EIÐUR ÓLAFSSON, Ásbúð 23, Garðabæ, verður jarðsunginn frá Langholtskirkju, fimmtu- daginn 5. febrúar kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabba- meinsfélag Íslands. Líney Björk Ívarsdóttir, Bjarki Ólafsson, Eva Hrund Ólafsdóttir, Valgerður Dröfn Ólafsdóttir, Valgerður Eiðsdóttir, Ólafur Þorgrímsson, Hulda Ólafsdóttir, Þorgrímur Ólafsson, Birgir Ólafsson, Davíð Kristjánsson. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, STEINDÓRA SIGURÐARDÓTTIR, Fagrahjalla 4, Vopnafirði, sem lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri föstudaginn 30. janúar, verður jarðsungin frá Vopnafjarðarkirkju laugardaginn 7. febrúar kl. 14.00. Steinunn Gunnarsdóttir, Helgi Jörgensson, Guðný Sveinsdóttir, Hjálmar Björgólfsson, Sigurður Sveinsson, Karin Bach, Steindór Sveinsson, Emma Tryggvadóttir, Ingólfur Sveinsson, Kristbjörg Hilmarsdóttir, Erla Sveinsdóttir, Gunnlaugur Einarsson, Sveinn Sveinsson, Rattana Chinnabut, Harpa Sveinsdóttir, Sigmundur K. Magnússon, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN MÝRDAL, Bogahlíð 26, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni sunnudaginn 1. febrúar. Sigurveig G. Mýrdal, Sigurjón Mýrdal, María Sophusdóttir, Garðar Mýrdal, Ingibjörg Ósk Kjartansdóttir, Jón Agnar Mýrdal, Vivian Hansen, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær systir okkar, GUÐRÍÐUR SVEINSDÓTTIR, Kleppsvegi 120, Reykjavík, lést þriðjudaginn 27. janúar. Útför hennar verður gerð frá Kálfatjarnarkirkju fimmtudaginn 5. febrúar kl. 14.00. Systkini hinnar látnu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.