Morgunblaðið - 03.02.2009, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 03.02.2009, Qupperneq 32
32 MenningFÓLK MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 2009 Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is HILDUR Ingveldardóttir Guðna- dóttir, tónsmiður og sellóleikari, er búinn að vera á haus í verkefnum undanfarin ár út um allar trissur með hinum og þessum og er orðin vel kynnt í alþjóðlegu samfélagi framsækinna tónlistarmanna. „Það er búið að vera rosalega mikið að gera undanfarið,“ segir hún í símanum frá Berlín þar sem hún er nú búsett. „Sem er gott. En ég er líka mjög glöð yfir því að sjá fyrir endann á þessari plötu minni.“ Nútímaleg vinnsla Þrjú ár eru nú liðin síðan að fyrsta sólóplata hennar, mount A, kom út en þar notaðist hún við listamannsnafnið lost in hildurness. Á plötunni nýju, sem út kemur í mars, notast hún hins vegar við eig- ið nafn. Hún segir plötuna meira pælda en þetta fyrsta verk sitt og platan hafi verið unnin á löngum tíma meðfram öðrum verkefnum. Útgefandi er Touch, virt og stönd- ug útgáfa í flokki nútímatónlistar og gaf m.a. út Jóhann Jóhannsson á erlendri grundu. „Plötuna vinn ég einmitt með Jó- hanni Jóhannssyni, Skúla Sverr- issyni og svo föður mínum, Guðna Franzsyni. Þetta er alvöru lið!,“ segir hún og hlær sínum innilega hlátri. „Það var afar nútímaleg vinnsla á þessu þar sem Jói sendi mér sína parta frá Kaupmannahöfn en Skúli vann sína hins vegar í New Or- leans.“ Í fíling Hildur segist vera að gíra sig upp í að fylgja plötunni eftir með tónleikum og hugur hennar standi til þess að leggja meiri þunga á sólóferilinn. Kraftar hennar í önnur verkefni eru þá enn sem áður eft- irsóttir og Hildur segist bjartsýn á árið. „Já, ég barasta í rosa góðum fíl- ing verð ég að segja. Það er ým- islegt spennandi framundan, ég er að fara að vinna orgelverk fyrir dómkirkjuna í Riga þar sem Elín Hansdóttir vinkona mín verður þar einnig með ljósainnsetningu. Þetta er í maí. Þá er ég að vinna með Halldóri Úlfarssyni í dórafóninum svokallaða, hljóðfæri sem er hálf- gert selló og hálfgert drunhljóðfæri („drone“). Svo er ég að vinna með múm, og að vasast í einhverri kvik- myndatónlist. Það er nóg við að vera!“. Týnd í tónlist  Hildur Guðnadóttir gefur út aðra sólóplötu sína á Touch  Segir „alvöru lið“ hafa unnið með sér  Kemst vart í að sinna sólóferli vegna verkefnagnóttar Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson Virk Hildur Guðnadóttir hefur í nógu að snúast. Ný sólóplata er væntanleg í mars. Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is „VIÐ erum einmitt að vinna í henni, og það er alveg komin mynd á þessa plötu. Hún er mjög skemmtileg,“ segir Arnar Guðjónsson, forsprakki hljómsveitarinnar Leaves og upp- tökustjóri sem vinnur nú að upp- tökum á fyrstu sólóplötu Bjarna Lárusar Hall, sem er trúlega þekkt- ari sem Baddi í Jeff Who? „Hann semur náttúrlega hluta af lögunum hjá Jeff Who? þannig að auðvitað er þetta eitthvað líkt. En við erum samt að fara með þetta í aðrar áttir,“ segir Arnar þegar hann er spurður hvort tónlistin minni á það sem heyrst hefur frá Jeff Who? Aðspurður segir hann vinnu við plöt- una langt komna, en hann viti þó ekki hvenær hún komi út. Hvað næstu plötu Leaves varðar segir Arnar mjög stutt í hana, en platan hefur verið lengi í bígerð. „Platan er tilbúin, við erum bara að vinna í útlitinu og að undirbúa kynningu á henni. Ég vonast til þess að hún komi svo út á næstu tveimur til þremur mánuðum, hún þarf helst að gera það,“ segir Arnar, en platan hefur hlotið nafnið We Are Shadows og verður hún sú fyrsta sem sveitin sendir frá sér síðan 2005. Annars hefur Arnar vakið tölu- verða athygli á öðrum vettvangi að undanförnu, en hann útsetti og söng gamla Egó-lagið „Móðir“ sem hljóm- ar í netvara-auglýsingu Símans. „Já, það virðast allir vera mjög sáttir við þetta, allavega fólkið í kringum mig,“ segir Arnar sem tók ekki allt lagið upp, og eru því litlar líkur á að það verði gefið út í heild sinni. Arnar Guðjónsson tekur upp sólóplötu Badda í Jeff Who? Morgunblaðið/Golli Nóg að gera Arnar hefur mörg járn í eldinum um þessar mundir. Ný plata frá Leaves væntanleg á allra næstu mánuðum  Emilíana Torrini hóf sinn Evr- óputúr í Belgíu í gær en framundan hjá tónlistarkonunni eru fjölmargir tónleikar í 18 Evrópuborgum. Í mars heldur Emilíana svo vestur um haf og leikur í Los Angeles, New York og San Francisco. Með í för verður m.a. tónlistarmaðurinn Sigtryggur Baldursson. Emilíana túrar um Evrópu og Bandaríkin Fólk Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is TÍÐARANDINN er með slíkum hætti að Blúshá- tíðin í Reykjavík hefur örugglega aldrei átt jafn mikið erindi. Hátíðin verður haldin dagana 4. til 9. apríl og segir vígreifur Halldór Bragason að hátíðin verði nú öflugri en nokkru sinni. „Hún hefur aldrei staðið jafn lengi og nú. Verður frá laugardegi og fram á skírdag. Við byrjum með sérstökum blúsdegi á laugardeg- inum þar sem slegið verður upp einslags götuhá- tíð á Skólavörðustígnum, í Bankastrætinu og á fleiri stöðum.“ Dóri viðurkennir að auðvitað standi hann og samstarfsmenn engu að síður frammi fyrir erfiðu árferði í þessum efnum. „Við erum í viðræðum við nokkra erlenda gesti og vonandi sjá sem flestir sér fært að koma. Fólk hefur skilning á ástandinu og menn eru al- veg reiðubúnir að herða beltin til að komast hingað. Hátíðin er orðin sæmilega þekkt í al- þjóðlega blúsheiminum og hefur verið spyrjast út hin síðustu ár. Ég get hins vegar staðfest að Nordic Allstars-bandið mun að vanda troða upp.“ Þetta verður í 6. skipti sem hátíðin fer fram og hvetur Dóri sem flesta til að sækja um að fá að spila. Unga sem gamla, þekkta sem óþekkta eins og hann orðar það en grasrótin hefur verið vökvuð duglega á hátíðinni frá upphafi. Um- sóknarfrestur rennur út 15. febrúar næstkom- andi. Nánari upplýsingar eru á www.blues.is. Dóri segir á blúsinn bætandi Morgunblaðið/Kristinn Vinur „Blúsinn er eins og hjartslátturinn,“ segir Halldór Bragason hjá Blúshátíð Reykjavíkur.  Um 30 manns á vegum breska raunveruleikaþáttarins Britain’s Next Top Model voru við tökur á at- riði fyrir þáttinn í Bláa lóninu í gær. Þar tók Hugrún Ragnarsson, Huggy, myndir af keppendunum í þættinum og mun myndatakan hafa gengið mjög vel. Ekki spillti veðrið, en blíðan lék við fyrirsæturnar og tökufólkið í lóninu, sem vöktu ann- ars mikla athygli viðstaddra. Um- sjónarmaður þáttanna, breska of- urfyrirsætan Lisa Snowdon, kom hins vegar ekki til landsins vegna upptökunnar. Búist er við að þátt- urinn verði sýndur í Bretlandi í apríl. Veðrið lék við fyrir- sæturnar í Bláa lóninu  Heimildarmynd Friðriks Þórs Friðrikssonar Sólskinsdrengur ernú samkvæmt samantekt SMÁÍS orðin mest sótta íslenska heimild- armyndin. Tæplega 12 þúsund manns hafa séð myndina og tekjur af henni nema um 11 milljónum. Enn má búast við því að sú upphæð hækki því tæplega 400 sáu myndina um helgina. Mest sótt af heimildarmyndum Hildur hefur m.a. unnið með Ani- mal Collective, Jamie Lidell og An- gel (Pan Sonic). Árið 2007 vann hún svo með Throbbing Gristle, hinni gríðarlega áhrifamiklu sveit sem ruddi „industrial“-tónlistinni braut. Hildur útsetti og stjórnaði kór sem sveitin notaði í tónvinnslu fyrir sígilda mynd Dereks Jarm- ans, In the Shadow of the Sun og var afraksturinn m.a. fluttur í Tate- safninu í London. Throbbing Gristle Brautryðjendur Félagarnir í Throbbing Gristle eru enn að.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.