Morgunblaðið - 26.02.2009, Síða 1
F I M M T U D A G U R 2 6. F E B R Ú A R 2 0 0 9
STOFNAÐ 1913
55. tölublað
97. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
Auglýsendur eru öruggir
um athygli einmitt í
Morgunblaðinu og mbl.is
78%
þjóðarinnar les
Morgunblaðið
og/eða mbl.is
daglega*
*annan hvorn miðilinn eða báða, skv.
fjölmiðlakönnun Capacent Gallup á
tímabilinu nóv.‘08 til jan.’09, allir
landsmenn 12 til 80 ára
ÍSLENSKI MARKAÐS-
DAGURINN Á MORGUN
BORGARLEIKHÚSIÐ
Milljarðamærin
snýr aftur
Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur
ben@mbl.is
NÝ LÖG um Seðlabankann gætu tekið
gildi á morgun, verði fyrirliggjandi
lagafrumvarp um breytingar á stjórn
hans samþykkt á Alþingi í dag. Við-
skiptanefnd þingsins samþykkti frum-
varpið um klukkan hálfátta í gærkvöld.
Lokaumræða um frumvarpið fer
fram í dag og býst Álfheiður Ingadóttir,
formaður viðskiptanefndar, við sam-
þykki þess í kjölfarið. „Efnislegri um-
ræðu er lokið svo ég á von á því að frum-
varpið verði samþykkt [í dag] en það er
þingsins að afgreiða það,“ segir hún.
Gangi það eftir taka lögin gildi daginn
eftir auglýsingu í Stjórnartíðindum en
hún gæti birst þar þegar í kvöld hafi
menn hraðar hendur við vinnslu máls-
ins.
Ein breyting var gerð á frumvarpinu
eftir að skýrsla Evrópusambandsins
um fjármálamarkaði barst í gær en
hennar hafði verið beðið frá því á mánu-
dag. Í breytingunni er kveðið á um
skyldu peningastefnunefndar til að gefa
út viðvaranir séu alvarleg hættumerki
til staðar sem ógni fjármálakerfinu.
Birgir Ármannsson þingmaður Sjálf-
stæðisflokks, sem situr í nefndinni, seg-
ist ekki búast við löngum umræðum um
málið á þinginu í dag, enda ræðutími
takmarkaður við þriðju umræðu. „Við
munum koma ákveðnum sjónarmiðum
á framfæri en það verður ekki um neitt
málþóf að ræða.“
Hann segist hafa fjölmargar athuga-
semdir við efnisatriði og málsmeðferð
frumvarpsins. „Þessi afgreiðsla við-
skiptanefndar var að mínu mati for-
kastanleg,“ segir hann.
Frumvarpið í gegn
Síðasta umræða um seðlabankafrumvarpið á dagskrá Alþingis í dag eftir af-
greiðslu viðskiptanefndar í gærkvöld Lögin gætu tekið gildi þegar á morgun
Aðalsalur nýja tónlistarhússins er að taka á sig mynd
Morgunblaðið/RAX
Musteri tónanna Í þessum sal í tónlistarhúsinu við Austurhöfn mun Sinfóníuhljómsveit Íslands spila og er salurinn að taka á sig mynd. Í salnum verða sæti
fyrir 1.800 manns, að sögn Sigurðar R. Ragnarssonar, framkvæmdastjóra Austurhafnarverkefnisins hjá ÍAV. Vinna er hafin við húsið að nýju | 16
VIÐSKIPTI
Kröfuhafar Glitnis eiga réttmæta
kröfu á að eignast hlut í Íslands-
banka (Nýja Glitni) að mati Árna
Tómassonar, formanns skilanefnd-
ar hans, séu þeir ósáttir við það
uppgjör sem þeim bjóðist.
Gætu eignast
banka við uppgjör
Gunnar Örn Kristjánsson lét síð-
degis í gær af starfi sem stjórn-
arformaður Nýja Kaupþings eftir
aðeins þrjá daga í starfi, en hann
var skipaður á mánudaginn var.
Hætti eftir þrjá
daga í starfi
Raunvirði hlutafjáreignar ríkisins í
nýju viðskiptabönkunum gæti verið
allt að helmingi lægra en nafnvirði
hennar. Endurfjármögnun bank-
anna mun kosta ríkið um 385 millj-
arða króna.
Hlutafé í bönk-
unum lítils virði
ÍMARK
Eftir Helga Bjarnason
og Þorbjörn Þórðarson
TEKIST hafa samningar um kaup
sjö fjárfesta undir forystu Óskars
Magnússonar á Árvakri hf., útgáfu-
félagi Morgunblaðsins. Eignast þeir
fyrirtækið með yfirtöku skulda og
kaupum á nýju hlutafé. Fjárfesta-
hópurinn átti hæsta tilboð í fyrirtæk-
ið.
„Við teljum að það megi gera úr
þessu góðan og arðvænlegan rekst-
ur. Það er aðalmarkmið þeirra fjár-
festa sem komið hafa til liðs við mig í
þessu verkefni til þessa,“ segir Ósk-
ar Magnússon.
Kaupin fara
fram undir
merkjum Þórs-
merkur ehf., fé-
lags í eigu Ósk-
ars. Með honum í
kaupunum eru
Gísli Baldur
Garðarsson
stjórnarformaður
Olís, Guðbjörg Matthíasdóttir
stjórnarmaður í Ísfélagi Vestmanna-
eyja, Gunnar B. Dungal fyrrverandi
forstjóri Pennans, Pétur H. Pálsson
framkvæmdastjóri Vísis í Grindavík,
Þorgeir Baldursson forstjóri Kvosar
og Þorsteinn Már Baldvinsson for-
stjóri Samherja. Óskar segir að hóp-
urinn vilji gjarnan fá fleiri fjárfesta
til liðs við sig, á síðari stigum.
Boðið var upp á að þeir sem skil-
uðu inn tilboðum gerðu það með og
án fyrirvara. Hópur Óskars nýtti sér
þennan möguleika og skilaði tveimur
tilboðum. Þau voru bæði hærri en til-
boð Steve Cosser að sögn Einars
Arnar Ólafsson forstöðumanns fyr-
irtækjaráðgjafar Íslandsbanka.
Nýir eigendur að Árvakri
„Teljum að gera megi úr þessu góðan og arðvænlegan rekstur“ Hópur Óskars
Magnússonar átti hæsta tilboð í söluferlinu, bæði með og án fyrirvara
Óskar Magnússon
Í HNOTSKURN
»Morgunblaðið kom fyrst út2. nóvember 1913. Stofn-
endur voru Vilhjálmur Finsen
og Ólafur Björnsson.
»Árvakur hf. var stofnsett-ur í Reykjavík árið 1919.
Félagið keypti Morgunblaðið
fljótlega eftir stofnun.
»Fréttavefurinn mbl.is varopnaður árið 1998.
Sjö fjárfestar kaupa | 6