Morgunblaðið - 26.02.2009, Síða 2
2 FréttirINNLLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2009
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is
Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþrótt-
ir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„FRAMAN af haustinu og fram yfir
áramót var markið sett á að fram-
lengja kjarasamningana þrátt fyrir
mikla verðbólgu. Það er hins vegar
ekkert launungarmál að efnahags-
hrunið og mjög háir vextir hafa
þrengt mjög verulega að fyrirtækj-
unum,“ segir Gylfi Arnbjörnsson,
forseti Alþýðusambands Íslands
(ASÍ), um tildrög þess að samtökin
sömdu um frestun kjarasamninga
fram í júní.
Þrátt fyrir frestun munu lág-
markslaun hækka í 157.000 kr. 1.
mars nk., auk þess sem önnur ákvæði
samninganna, m.a. lenging orlofs,
koma til framkvæmda.
Gylfi segir tvo kosti hafa verið uppi
eftir að Samtök atvinnulífsins (SA)
lýstu því yfir um miðjan janúar, fyrir
hönd sinna fyrirtækja, að þau treystu
sér ekki til að standa við kjarasamn-
ingana.
Höfðu um tvennt að velja
„Við stóðum þá frammi fyrir
tvennu, annars vegar að þrýsta fast á
efndir á samningunum og þar með að
framkalla uppsögn þeirra, eða þá
hitt, að setja af stað einhverja skoðun
á því með hvaða hætti við gætum
komið til móts við atvinnurekendur.
Við treystum okkur hins vegar ekki
til að gera það án þess að hafa rík-
isstjórn við borðið sem væri til í að
koma eitthvað að málunum. Framan
af höfðum við ríkisstjórn sem virtist
ekki geta tekið ákvarðanir, sem leiddi
til þess að hún féll.“
Hann bendir á að frestun samning-
anna gildi fram yfir kosningarnar.
„Að hluta til komum við til móts við
atvinnurekendur, að hluta til vinnum
við okkur tíma til að fá nýja ríkis-
stjórn að borðinu. Út úr þessu getur
orðið til þríhliða samstarf um að
vinna að þessum gríðarlega vanda
sem þjóðin stendur frammi fyrir […]
Það var yfirgnæfandi meirihluti sem
vildi fara þessa leið.“Vilhjálmur Eg-
ilsson, framkvæmdastjóri Samtaka
atvinnulífsins, segir að gott samstarf
hafi verið um þessa málalyktir.
„Við fórum fram á það við ASÍ að
fá meiri sveigjanleika. Alþýðusam-
bandið hefur komið til móts við þetta.
Niðurstaðan var sú að við myndum
fresta endurskoðun samninganna
fram í júní og glíma þá við málið.
Það má segja að við höfum verið
mjög mikið að tala saman alveg frá
því við skrifuðum upp á samninginn
17. febrúar í fyrra um framvindu
mála, sérstaklega í haust þegar fallið
varð í bönkunum. Við deilum um
margt sömu sýn á þróunina, sem
segja má að geri öll þessi samskipti
og viðræður auðveldari,“ segir Vil-
hjálmur, sem telur að ella hefðu
menn séð fram á launalækkanir.
Staðan mjög erfið
„Það liggur alveg fyrir að fyrirtæk-
in eru í mjög erfiðri stöðu. Ef við
hefðum látið þessar hækkanir ganga
fram nú er hætt við að það hefði kall-
að fram enn meira atvinnuleysi og að
einhverju leyti komið fram í hærra
verðlagi. Það væri bara ekki ráðlegt.
Í einhverjum tilvikum hefðu laun ver-
ið lækkuð á móti hækkunum.“
Samstaða um frestun
Handsal Þór Sigfússon, formaður SA, og Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ.
Kjarasamningar verða endurskoðaðir í júní Sátt um málið hjá SA og ASÍ
Framkvæmdastjóri SA segir að launahækkanir hefðu getað aukið atvinnuleysið
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
KRISTJÁN Loftsson, forstjóri Hvals hf., segir að
um 30 manns verði til sjós við hvalveiðar á vegum
fyrirtækisins í sumar og að reikna megi með að
um 170 manns verði við störf í landi.
Hann hafði ekki upplýsingar um hvernig störfin
í landi skiptust á milli hvalskurðar, verkunar og
annars en byggði þetta mat á reynslu sinni af hval-
veiðum. Fjöldinn, þ.e. 200 starfsmenn, eigi við um
fyrirtækið í fullum rekstri. Mat á fjölda starfs-
manna geti þó aldrei verið nákvæmt. Þetta muni
koma betur í ljós í maí. „Við erum ekki í gangi
nema kannski fimm mánuði á ári en svo þarf líka
að undirbúa starfsemina. Þú hleypur ekki bara
strax af stað,“ sagði Kristján. Aðspurður sagðist
Kristján ekki vita um hve mörg ársstörf væri að
tefla. „Það veit ég ekki. Ég hef ekki reiknað það
út.“ Þá væri ekki víst að hann þyrfti að auglýsa
eftir starfsfólki því margir hefðu hringt og spurst
fyrir um störf við hvalveiðarnar.
Gunnar Bergmann Jónsson, framkvæmdastjóri
Hrefnuveiðimanna ehf., telur að um 20-30 manns
muni vinna við veiðar og vinnslu á hrefnu í sumar.
Miðað við núverandi kvóta má veiða 100 hrefnur
en Gunnar vonast eftir kvóta upp á 200 dýr.
Miðað við 200 dýra kvóta gerir hann ráð fyrir
24-28 ársstörfum við hrefnuveiðar en um 16-20
ársstörfum ef kvótinn verður 100 dýr.
Þarf 30 til sjós og 170 í landi
Margir hafa hringt og spurst fyrir um störf við hvalveiðar í sumar
Gert ráð fyrir að um 20-30 manns starfi við hrefnuveiðar og vinnslu
Morgunblaðið/ÞÖK
ÞRÍTUG kona sem grunuð er um
milligöngu um vændi verður í
gæsluvarðhaldi til klukkan 16 á
morgun, þ.e. ef ekki verður farið
fram á framlengingu varðhaldsins.
Hún kærði gæsluvarðhaldsúrskurð
til Hæstaréttar en málinu var vísað
frá sökum annmarka á kærunni.
Í greinargerð lögreglustjóra segir
að lögreglu hafi borist upplýsingar
þess efnis að konan og unnusti henn-
ar ætluðu sér að flytja til landsins
mikið magn af fíkniefnum. Lögreglu
bárust svo upplýsingar um að unn-
ustinn hefði verið handtekinn á
Schiphol-flugvelli með fíkniefni.
Konan var handtekin við komuna til
landsins á föstudag fyrir viku.
Þá lá fyrir rökstuddur grunur lög-
reglu um að konan hefði lífsvið-
urværi sitt af vændi annarra og
stundaði mansal ungra kvenna hing-
að til lands í því skyni. Var gæslu-
varðhaldið samþykkt á þeim grunni.
andri@mbl.is
Grunur
um mansal
SIGRÍÐUR Á.
Andersen, fram-
bjóðandi í próf-
kjöri Sjálfstæðis-
flokksins í
Reykjavík, hefur
birt á heimasíðu
sinni www.sig-
ridurandersen.is
yfirlit yfir eignir
og skuldir heim-
ilis síns, en hún
er gift Glúmi Jóni Björnssyni efna-
fræðingi. „Við núverandi aðstæður
í efnahagsmálum þjóðarinnar og
vegna mikillar umræðu um fjár-
hagsleg tengsl og hagsmuni kjör-
inna fulltrúa þykir mér sjálfsagt að
upplýsa kjósendur í Reykjavík um
stöðu mína að þessu leyti um leið og
ég óska eftir umboði þeirra til
starfa á Alþingi,“ skrifar Sigríður í
yfirlýsingu um ákvörðun sína.
Hún kveðst virða rétt þeirra
frambjóðenda sem gera þetta ekki.
Birtir yfirlit
yfir fjármál
Sigríður Á
Andersen
AÐ meðaltali hafa um tveir útlend-
ingar á dag samband við utanrík-
isráðuneytið til að koma á framfæri
mótmælum gegn hvalveiðum. Flest-
ir senda tölvupóst en tiltölulega fáir
hringja, að sögn Urðar Gunnars-
dóttur upplýsingafulltrúa.
Frá áramótum hafa átta manns
komið á framfæri mótmælum við
sendiráð Íslands í London og einn
bættist við í síðustu viku. Sendiráðið
í Berlín hefur tekið á móti 14 mót-
mælum, þar af tvennum í síðustu
viku. Í liðinni viku höfðu fjórir sam-
band við sendiráð Íslands í Wash-
ington til að mótmæla hvalveiðum
og er heildarfjöldi mótmæla þar með
kominn upp í sex. Sjávarútvegsráðu-
neytinu hafa borist fjögur mótmæla-
bréf frá útlöndum og tvær stuðn-
ingsyfirlýsingar. runarp@mbl.is
Tveir mót-
mæla á dag
KÝRIN Örk á bænum Egg í Skaga-
firði var afurðahæsta kýrin á síðasta
ári, samkvæmt niðurstöðum úr
skýrsluhaldi nautgriparæktarfélag-
anna sem birtar voru í gærkvöldi.
Örk mjólkaði 12.851 kg á árinu.
Kýrin Hin á Hraunhálsi skilaði
heldur verðmeiri afurðum, eða 1001
kg verðefna, sem er Íslandsmet, á
meðan Örk skilaði 977 kg.
Mestu afurðir á einu búi voru hjá
Daníel Magnússyni á Akbraut í Holt-
um, 8159 kg að meðaltali á kú.
helgi@mbl.is
Örk er afurða-
hæsta kýrin
STARFSMENN banka og spari-
sjóða hér á landi eru ekki fleiri en
voru í lok árs 2004. Þetta segir Frið-
bert Traustason, framkvæmdastjóri
Samtaka starfsmanna fjármálafyr-
irtækja. Hann undrast að viðskipta-
ráðherra auki á óróann í ríkisbönk-
unum með því að segja þá of stóra
eða of marga. Atgervisflótti banka-
starfsmanna sé óumflýjanlegur und-
ir þessari umræðu.
„Liggi fólk stöðugt undir þessu
tali bíður það ekki eftir aðgerðum.
Það fer annað sé það í boði.“
Gylfi Magnússon viðskiptaráð-
herra sagði á þingi í fyrradag blasa
við að starfsmenn bankanna væru of
margir miðað við umsvifin. Banka-
stofnunum myndi fækka frá því sem
nú er, þó að engar ákvarðanir hafi
verið teknar.
„Við óskuðum eftir því við síðustu
ríkisstjórn að hún færi hægt í þessa
umræðu á meðan verið væri að
byggja bankana upp, því mikilvægt
væri að skapa ró,“ segir hann og
óskar þess að viðskiptaráðherra og
þingmenn sem svona tali kynni sér
fjölda starfsmanna bankanna nú og
fyrir útrás þeirra.
Friðbert bendir á að starfs-
mönnum banka og sparisjóða hafi
fækkað um 1.300 á árinu 2008 og það
sem af er árinu. gag@mbl.is
Fækkað um
1.300 í bönkum
Segir ummæli ráðherra auka á óróann