Morgunblaðið - 26.02.2009, Page 6

Morgunblaðið - 26.02.2009, Page 6
6 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2009 Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is SAMNINGAR hafa tekist um að Þórsmörk ehf. eignist Árvakur hf., útgáfufélag Morgunblaðsins, með yfirtöku skulda og nýju hlutafé. Kaupverð er ekki gefið upp. Nýir eigendur taka við félaginu eftir nokkrar vikur. Þórsmörk ehf. er í eigu Óskars Magnússonar lögmanns og fjár- festis. Hluthafar með honum verða Gísli Baldur Garðarsson lögmaður og stjórnarformaður Olís, Guðbjörg Matthíasdóttir sem er með fjöl- skyldu sinni aðaleigandi Ísfélags Vestmannaeyja hf., Gunnar B. Dungal fyrrverandi aðaleigandi Pennans, Pétur H. Pálsson fram- kvæmdastjóri útgerðar- og fisk- vinnslufyrirtækisins Vísis hf. í Grindavík, Þorgeir Baldursson for- stjóri Kvosar sem er móðurfélag prentsmiðjunnar Odda og Þor- steinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja. Samningar um kaup nýrra hlut- hafa á Árvakri voru gerðir fyrir milligöngu Íslandsbanka. Fram kemur í tilkynningu bankans í gær að ráðgert er að dreifa eignaraðild að félaginu enn frekar með því að fleiri hluthafar gangi til liðs við það á síðari stigum. Samið við aðra kröfuhafa Boðað verður til hluthafafundar þar sem hlutafé fyrri eigenda verð- ur fært niður í núll og nýtt hlutafé gefið út sem hinir nýju eigendur munu kaupa. Á sama tíma verður gengið til samninga við stærstu kröfuhafa Árvakurs, fyrir utan Ís- landsbanka sem er aðili að samn- ingum um sölu fyrirtækisins, um lækkun krafna. Gefa samningsað- ilar sér fáeinar vikur til að ljúka þessu ferli. Unnið hefur verið að undirbún- ingi og sölu Árvakurs undanfarna mánuði en formlegt söluferli hefur staðið frá 27. janúar með auglýs- ingu fyrirtækjaráðgjafar Íslands- banka. Gengið var til samninga við Þórsmörk ehf. sem hæstbjóðanda. Í tilkynningu Íslandsbanka um samningana kemur fram að tilboð Þórsmerkur hafi verið 200 millj- ónum kr. hærra en næsthæsta til- boð sem var frá Palumbo holdings ehf. Kaupverð er ekki gefið upp. „Við erum að kaupa fyrirtækið á 200 milljónum meira en næstbjóðandi,“ var það eina sem Óskar Magnússon sagðist geta sagt um þetta. Sjö fjárfestar munu kaupa Árvakur hf. Nýir eigendur taka yfir skuldir og leggja til nýtt hlutafé Pétur H. Pálsson Þorsteinn Már Baldvinsson Gísli Baldur Garðarsson Guðbjörg Matthíasdóttir Þorgeir Baldursson Morgunblaðið/ Jim Smart Gunnar Dungal „MARKMIÐIÐ er fyrst og fremst það að reka góðan, traustan og trú- verðugan fjölmiðil sem Morgun- blaðið hefur verið og koma honum upp úr því fari sem hann hefur verið í að undanförnu,“ segir Óskar Magn- ússon, lögmaður og eigandi Þórs- merkur ehf., um tilgang hóps fjár- festa sem gert hefur samning við Íslandsbanka um kaup á nýju hlutafé í Árvakri, útgáfufélagi Morgunblaðsins. „Við teljum að það megi gera úr þessu góðan og arðvænlegan rekst- ur. Það er aðalmarkmið þeirra fjár- festa sem hafa komið til liðs við mig í þessu verkefni til þessa. Svo eru sjálfsagt mismunandi ástæður hjá hverjum og einum. Eflaust bera allir einhverjar tilfinningar til Morgun- blaðsins, hafa áhuga á þessu merka fyrirbæri í íslenskri fjölmiðlasögu og vilja af ýmsum ástæðum að það blað verði gefið út áfram. Grundvöll- urinn er samt sem áður viðskipta- legs eðlis,“ segir Óskar. Íhaldssöm þróun Árvakur hefur átt í fjárhagserf- iðleikum að undanförnu og hefur rekstrarkostnaður verið lækkaður, meðal annars með fækkun starfs- fólks. Spurður hvort gera þurfi miklar breytingar á rekstrinum seg- ist Óskar telja að lykillinn að því að rekstur fyrirtækisins verði arðvæn- legur sé ekki síst að viðhalda því sem til er. „Við væntum þess að Árvakur og það sem honum tilheyrir muni taka eðlilegri þróun, eins og hefur gerst í gegnum tíðina. Sú þróun hef- ur verið frekar íhaldssöm og ég held að það sé af hinu góða, ekki síst á tímum eins og núna.“ Nýir eigendur taka ekki strax við fyrirtækinu. Óskar segir að fyrst þurfi að ljúka ársuppgjöri og boða til hluthafafundar þar sem hlutafé verði væntanlega fært niður og síð- an aukið aftur. Þetta ferli geti tekið nokkrar vikur. „Á sama tíma er ætl- unin að láta reyna á samninga við aðra kröfuhafa heldur en þá sem núna hefur verið samið við um lækkun krafna. Fyrr er ekki hægt að ganga frá eigendaskipt- um og taka við fyrirtækinu. Ég vænti þess ein- dregið að þetta ferli gangi greið- lega,“ segir Óskar. Sex fjárfestar standa að kaup- unum með Óskari en fram kom í gær að ráðgert er að fleiri hluthafar komi til liðs við félagið. Óskar segir að þeir sex fjárfestar sem kynntir hafi verið til leiks með honum í gær standi að kaupunum. „Við höfum gefið til kynna að við viljum gjarnan fá fleiri. Það hafa aðrir gefið sig fram og lýst áhuga. Þó þeir séu ekki með á þessu stigi málsins kann það að vera að með nánari kynningu og þegar þessum áfanga er náð, að fleiri komi með. Það er opið.“ Félag með mjög dreifða eignarað- ild, Almenningur ehf., var meðal bjóðenda í Árvakur. Spurður hvort til greina komi að opna félagið svo mikið, lýsir Óskar þeirri afstöðu sinni að ekki sé ráðlegt að Árvakur verði að svo stöddu hlutafélag í eigu mörg hundruð eða þúsund ein- staklinga úr hópi almennings á Ís- landi. „Það er einfaldlega vegna þess að þarna hafa verið miklir erf- iðleikar. Ég tel að þeir sem nú taka væntanlega við þurfi að ná tökum á því sem þeir eru að fara að fást við, þannig að þeir standi í báða fætur, áður en farið er að hugleiða það að bjóða almennum borgurum hér að- ild að Árvakri. Almenningur hefur orðið fyrir miklum búsifjum á und- anförnum mánuðum vegna hluta- bréfakaupa og ég treysti mér ekki til þess að fara í fararbroddi fyrir því að þeir fjárfesti í hlutabréfum, hvorki í Árvakri né annars staðar að svo stöddu.“ helgi@mbl.is Markmiðið að reka góðan og traustan fjölmiðil Kaupin á viðskiptalegum grundvelli Óskar Magnússon Eftir Þorbjörn Þórðarson thorbjorn@mbl.is „VIÐ héldum þessu í mjög þröngum hópi innan bankans, það voru fjórir starfsmenn fyrirtækjaráðgjafar sem sáu um ferlið og þrír starfsmenn sem voru viðstaddir opnun tilboða,“ segir Einar Örn Ólafsson, forstöðumaður fyrirtækjaráðgjafar Íslandsbanka, en Þórsmörk, eignarhaldsfélag Óskars Magnússonar og félaga var með hæsta tilboðið í Árvakur. Bæði tilboð Óskars hærri Óskar og félagar skiluðu tilboðum með og án fyrirvara og þau voru bæði hærri heldur en tilboð Steve Cosser. „Það var boðið upp á að menn skiluðu fyrirvaralausu tilboði sem var í raun- inni staðlað tilboð og síðan var boðið upp á að skila tilboði með fyrirvara sem fól í sér ákveðna hindrun sem bankinn þurfti að taka afstöðu til. En það kemur aldrei til skoðunar því bæði tilboð Þórsmerkur voru hærri,“ segir Einar. Cosser nýtti sér ekki til- boð með fyrirvara og var 200 milljóna króna munur á tilboðum án fyrirvara. „Það er ekki rétt að ég hafi sagt honum að hann væri með hæsta fyrirvara- lausa tilboðið,“ segir Einar að- spurður um þær yfirlýsingar Cos- sers að hann hefði fengið upplýsing- ar frá bankanum um að hann væri með hæsta tilboðið. Einar segir að eftir opnun tilboða hafi verið athugað hvort tilboðin væru ekki fyllilega samanburðarhæf. „Auk þess var ekki hundrað prósent búið að ganga frá öllum endum. Vaxtastig lána Árvakurs var klárt en það eru alls kyns ákvæði í lánasamningum Árvakurs og við þurftum að ganga úr skugga um að það væri gagnkvæmur skilningur milli tilboðsgjafanna og Ís- landsbanka á þessum ákvæðum,“ segir Einar. Myntkörfulán sem er veðtryggt í prentsmiðju Árvakurs er það lán sem hefur vegið þyngst í rekstrarerfiðleikum félagsins. Að- spurður um fjárhæð lánsins segist Einar ekki hafa nákvæma fjárhæð á stöðu þess í dag. „En það er nokkuð hærra en félagið þolir.“ Ekki sérstök bakgrunnsathugun Aðspurður hvort farið hefði verið í sérstaka bakgrunnsathugun á þeim sem buðu í félagið til að kanna hvort þeir væru í samstarfi við einhverja sem ekki voru tilgreindir í tilboðun- um sjálfum, segir Einar svo ekki vera. Tilboðsgjafar hefðu þurft að sýna fram á greiðslugetu og fjárhags- legan styrk og að staðfesta með und- irritun sinni að þeir, og aðeins þeir, stæðu á bak við tilboðin. Að sögn Einars munu nýir kaup- endur kanna hvort ekki fáist ásætt- anleg niðurstaða í málefnum þeirra sem eiga veðlausar kröfur á Árvakur. „Það er einkum Landsbankinn og að- stæður bjóða ekki upp á annað en hann fái ekki nema að mjög litlu leyti greitt upp í veðlausar kröfur sínar,“ segir Einar. Þegar Morgunblaðið náði tali af Steve Cosser í gærkvöldi sagðist hann ekki vilja tjá sig um málið að svo stöddu. Bæði tilboð Óskars og félaga voru hærri Gefinn var kostur á tilboðum með og án fyrirvara Einar Örn Ólafsson „SÚ niðurstaða, sem er fengin í málið, er jákvæð fyrir miðla Árvak- urs, Morgunblaðið og mbl.is. Óvissu um reksturinn er eytt og öflugir fjárfestar komnir að félaginu,“ segir Ólafur Þ. Stephensen, ritstjóri Morgunblaðsins. „Samsetning þess hóps, sem stendur að Þórsmörk ehf., er ekki ósvipuð því eignarhaldi sem Morg- unblaðið hefur lengst af búið við; þar er á ferð tiltölulega breiður og fjölbreyttur hópur stöndugra fjár- festa. Það er að mínu mati jákvætt að þessi hópur hyggst fá enn fleiri eig- endur að félaginu. Dreift eignarhald er æskilegast fyrir fjölmiðlafyrir- tæki eins og Árvakur. Ég geng út frá því að eins og fyrri eigendur í áranna rás muni hinn nýi eig- endahópur standa þétt við bakið á ritstjórn Morgunblaðsins og tryggja sjálfstæði hennar í hví- vetna,“ segir Ólafur. Niðurstaðan fagnaðarefni „Það er fagnaðarefni fyrir starfs- menn og áskrifendur Morgunblaðs- ins og mbl.is að búið sé að eyða óvissu um framtíð félagsins,“ segir Einar Sigurðsson, forstjóri Árvak- urs hf. „Starfsfólk fyrirtækisins hef- ur í vetur barist fyrir Morgunblaðið og mbl.is og haft sigur í tvennum skilningi. Við höfum sýnt svo ekki verður um villst að þessir miðlar skiptu máli í umfjöllun um eitthvert örlagaríkasta tímabil Íslandssög- unnar. Við höfum líka sýnt að þær fórnir sem starfsfólk hér hefur fært með aukinni vinnu, fækkun starfa og lækkun launa, hafa átt umtals- verðan hlut í að fyrirtækið er nú í rekstrarfæru standi við erfiðustu aðstæður sem sést hafa á fjölmiðla- markaðnum,“ segir Einar. Hann segir að verkefnið hafi ver- ið unnið hratt og örugglega og sölu- ferlinu stjórnað af festu af hálfu Ís- landsbanka. „Ég tel að þetta söluferli geti orðið fyrirmynd að endurskipulagningu annarra fyrir- tækja af hálfu bankanna. Ég vil þakka Íslandsbanka fyrir traust samstarf í þessu máli,“ segir Einar Sigurðsson. Öflugir fjárfestar komnir að félaginu Einar Sigurðsson Ólafur Stephensen

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.