Morgunblaðið - 26.02.2009, Blaðsíða 8
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2009
UM helgina stendur Hundarækt-
arfélag Íslands fyrir hundasýningu
í Reiðhöllinni í Víðidal. Fleiri en
800 hundar af yfir 90 hundakynjum
verða dæmdir á sýningunni.
Dómar hefjast kl. 9:00 báða dag-
ana og standa fram eftir degi.
Fimm dómarar frá fimm löndum,
Bretlandi, Hollandi, Írlandi, Sviss
og Svíþjóð munu dæma keppnina.
Úrslit á sunnudegi hefjast kl. 14:00
og kemur þá í ljós hvaða hundar
bera af að mati dómara.
Spennandi Sá besti á síðustu sýn-
ingu ásamt eiganda.
Hundasýning
„Á undanförnum árum hafa grunn-
skólar í sveitarfélaginu Árborg
unnið að því markmiði að útrýma
einelti og nýtt til þess m.a. aðferð
Olweusar gegn einelti,“ segir í yf-
irlýsingu til Morgunblaðsins frá
fræðsluyfirvöldum í Árborg. Morg-
unblaðið hefur undanfarna daga
fjallað um eineltismál í skólum
sveitarfélagsins. Fræðsluyfirvöld í
Árborg segjast leggja mikla
áherslu á að stöðugt sé unnið að því
að koma í veg fyrir einelti innan
grunnskólanna með viðurkenndum
leiðum og að góð samvinna sé milli
skólans og ráðgjafa Olweusar-
verkefnisins á Íslandi.
„Ofbeldi og einelti er því miður
til staðar í íslensku samfélagi og er
Selfoss þar ekki undan skilinn,“
segir í yfirlýsingunni. „Á hverjum
tíma á það að vera samfélagslegt
verkefni hvar sem menn búa að út-
rýma ofbeldi og einelti.“
Segir í yfirlýsingunni að mikið
hafi áunnist í þessum efnum á und-
anförnum árum með góðri vinnu
innan skólanna í Árborg.
„Fræðsluyfirvöld sveitarfé-
lagsins tjá sig ekki að öðru leyti en
hér að framan greinir varðandi
skrif Morgunblaðsins miðvikudag-
inn 24. febrúar,“ segir í yfirlýsing-
unni.
Reynt að koma í
veg fyrir einelti
FJÁRHÆÐIR styrkja og uppbóta
vegna bifreiðakaupa hreyfihamlaðs
fólks hækka um 20% og ýmis skil-
yrði fyrir styrkjum verða rýmkuð
samkvæmt nýrri reglugerð sem
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir
félags- og tryggingamálaráðherra
hefur kynnt fulltrúum Ör-
yrkjabandalags Íslands og Sjálfs-
bjargar. Styrkir til hreyfihamlaðra
vegna bifreiða hafa ekki hækkað
síðastliðin níu ár.
Hækka um 20%
SAGA skipa-
smíða Mars-
ellíusar Bern-
harðssonar er
rakin í máli og
myndum á sýn-
ingu í Safnahús-
inu á Ísafirði.
Farið er yfir
skipasmíðar
Marsellíusar og
einskorðast sýn-
ingin við nýsmíðar hans á tíma-
bilinu 1936 til 1977. Fjöldi vegg-
spjalda með ljósmyndum prýðir
sýninguna og vitnað er í blaða-
greinar frá þessum árum er tengj-
ast skipasmíðinni. Kristján G. Jó-
hannsson stendur fyrir sýningunni
sem verður opin fram undir páska.
Unnt er að skoða veggspjöldin á vef
safnanna: safn.isafjordur.is/.
Rakin saga skipa-
smíða Marsellíusar
Marsellíus
Bernharðsson
STUTT
FIMMTA árið í röð lesa alþingismenn og ráðherrar úr
Passíusálmunum í Grafarvogskirkju alla virka daga
föstunnar. Hver lestur hefst kl. 18 og tengist stuttri
helgistund í kirkjunni, sem tekur um fimmtán mínútur.
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra reið á vaðið
í gær, á fyrsta degi föstu.
Morgunblaðið/Ómar
Steingrímur las fyrsta sálminn
VIÐSKIPTARÁÐUNEYTIÐ bar í
gær til baka ummæli sem höfð voru
eftir Gylfa Magnússyni viðskiptaráð-
herra á vef Financial Times í gær um
að ríkisstjórn Íslands hefði hætt við
að höfða mál gegn bresku ríkis-
stjórninni fyrir Mannréttindadóm-
stól Evrópu vegna þess að Bretar
beittu hryðjuverkalögum gegn ís-
lenskum bönkum í október.
Í tilkynningu frá ráðuneytinu
sagði að engin breyting hefði orðið á
fyrirhuguðum stuðningi ríkisstjórn-
arinnar við hugsanlega málshöfðun
skilanefnda Kaupþings og Lands-
bankans á hendur breska ríkinu.
Fyrri ríkisstjórn hefði ákveðið, að
fengnu sérfræðiáliti um að engar lík-
ur væru á að íslenska ríkinu yrðu
dæmdar bætur, að höfða ekki mál
gegn Bretum fyrir breskum dóm-
stólum. Verið væri að kanna aðra
möguleika til málshöfðunar, m.a.
fyrir Mannréttindadómstóli Evrópu.
Engin
breyting
á afstöðu
Bera til baka ummæli
ráðherrans í FT
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
TEKIST var á um það fyrir héraðsdómi í gær-
morgun hvort lögmenn olíufélaganna ESSO
(Kers), Olís og Skeljungs fái að dómkveða mats-
menn til að vinna nýja undirmatsbeiðni í máli fé-
laganna gegn Samkeppniseftirlitinu. Eftir nokk-
urt karp var málið lagt í hendur dómara sem skilar
úrskurði í næstu viku.
Áður en til málflutnings vegna kröfunnar kom
var karpað um dómkvadda matsmenn sem vinna
eiga yfirmatsbeiðni að kröfu verjenda olíufélag-
anna. Málsaðilar gátu aðeins komið sér saman um
einn matsmanna, Ólaf Ísleifsson hagfræðing, en
lögmenn félaganna voru ekki á eitt sáttir um hina
tvo, þ.e. Gunnar Haraldsson og Katrínu Ólafsdótt-
ur hagfræðinga. Bókuðu verjendur að þeir teldu
Gunnar og Katrínu vanhæf til að sinna störfunum
þar sem þau hefðu tjáð sig um olíufélögin í annarri
matsgerð.
Undirmatsbeiðnin sem lögmenn olíufélaganna
fara fram á lýtur að ávinningi félaganna vegna
meints samráðs þeirra. Heimir Örn Herbertsson,
lögmaður Samkeppniseftirlitsins, fór fram á að
kröfunni yrði synjað, m.a. þar sem ítarleg gögn
um málefnið liggi fyrir í málinu og sönnunarfærsl-
an væri þarflaus.
Verjendurnir töldu hana hins vegar þarfa og
kæmi til vegna gagnaöflunar Samkeppniseftirlits-
ins. Töldu þeir eðlilegt að olíufélögin fengju tæki-
færi til að svara fyrir sig.
Ekki samstaða um matsmenn
Lögmenn olíufélaganna telja tvo af þremur dómkvöddum matsmönnum vanhæfa
Lögmaður Samkeppniseftirlitsins vill að kröfu um undirmat verði hafnað
Í HNOTSKURN
»Samkeppniseftirlitið komst að þeirriniðurstöðu í október 2004 að olíufélögin
þrjú hefðu gerst sek um verðsamráð á ár-
unum 1993 til 2001.
»Enn er tekist á um upphaflega málið.Það er að olíufélögin fara fram á að
ákvörðun Samkeppniseftirlitsins verði
hnekkt.
»Málið hefur staðið frá hausti 2005 ogekki sér enn fyrir endann á því.