Morgunblaðið - 26.02.2009, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 26.02.2009, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2009 ÖLLUM landsmönnum verður tryggt háhraðanet fyrir árslok 2010, en Fjar- skiptasjóður og Síminn undirrituðu í gær samning þess efnis. Um er að ræða tæplega 1.800 heimili og verða þau fyrstu tengd innan mánaðar. Samningurinn er til fimm ára og tekur gildi 1. mars 2009. Samnings- fjárhæðin er 606 milljónir króna og í samningnum felst að Fjarskiptasjóð- ur veitir Símanum fjárstyrk til upp- byggingar á háhraðanetkerfi og há- hraðanetþjónustu sem nær til staða sem ekki hafa aðgang að slíkri þjón- ustu. Þjónustan mun ná til heimila þar sem einn eða fleiri einstaklingar eru með lögheimili og hafa þar jafn- framt heilsársbúsetu og einnig til húsnæðis þar sem lögaðili er með at- vinnustarfsemi allt árið. Vinna við uppbygginguna hefst strax og geta fyrstu heimilin nýtt sér netþjónustu Símans við lok mars- mánaðar. Áætlað er að tengingu þessara tæplega 1.800 staða ljúki við lok næsta árs. Þau heimili sem þiggja þjónustuna munu hafa kost á 2Mb/s tengingu en það er margfaldur hraði miðað við þann hraða sem nú er í boði á þessum stöðum. Samhliða þessari uppbyggingu mun Síminn byggja upp 3G farsímasamband á þessum svæðum. Upphaflegt umfang verkefnisins var um 1.100 staðir. Umfangið hefur aukist um tæplega 700 staði þar sem markaðsáform nokkurra aðila gengu ekki eftir. Auglýst var eftir áformum markaðsaðila á þessum viðbótarstöð- um sem reyndust engin vera. Samn- ingurinn nær því í dag til allra staða á landinu sem, að uppfylltum búsetu- skilyrðum, eiga ekki kost á háhraða- nettengingu á markaðslegum for- sendum. Með þessum samningi hafa sam- gönguráðuneytið og fjarskiptasjóður komið í framkvæmd öllum helstu verkefnum gildandi fjarskipta- áætlunar 2005-2010 sem eru:  Að allir landsmenn, sem þess óska, hafi aðgang að háhraðanettenging- um.  GSM-farsímaþjónusta verði að- gengileg á þjóðvegi 1, öðrum helstu stofnvegum og á helstu ferðamanna- stöðum.  Að dreifing sjónvarpsdagskrár Ríkisútvarpsins, auk hljóðvarps Rás- ar 1 og Rásar 2, til sjómanna á miðum við landið og til strjálbýlli svæða verði stafræn um gervihnött. Sjá nánar á slóðinni: www.fjarskiptasjodur.is. Háhraðanet lagt til allra landsmanna  Fjarskiptasjóður og Síminn undirrita samning til fimm ára  Háhraðanet tryggt öllum landsmönnum fyrir árslok 2010 Undirritun Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Símans, Kristján L. Möller sam- gönguráðherra og Gunnar Svavarsson, formaður stjórnar Fjarskiptasjóðs. Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is BJARNI Benediktsson, alþing- ismaður og frambjóðandi til for- mennsku í Sjálfstæðisflokknum, kveðst ekki fráhverfur hugmyndum Framsóknarflokksins um að allar húsnæðisskuldir og skuldir fyr- irtækja verði færðar niður um 20%. „Ég held að það sé staðreynd að aðgerðir sem stjórnvöld hafa gripið til í vetur og birtast í frumvörpum sem eru núna til meðferðar í þing- inum muni ekki duga til að koma nægilega til móts við vanda heimila og atvinnulífsins. Ég tel að það þurfi að taka stærri og meira afgerandi skref og mér finnst að afskriftir skulda eigi að koma fyllilega til greina í því samhengi,“ sagði hann í samtali við Morgunblaðið í gær. Þarf ekki að auka útgjöld Bjarni sagði að ef það væri rétt, líkt og rætt hefði verið um, að eigna- söfn gömlu bankanna verði færð í nýju bankana með gríðarlegum af- skriftum, þá væri búið að draga upp þá mynd að viðskiptavinir bankanna væru í og myndu verða í gríð- arlegum vandræðum. Það svigrúm sem bankarnir hefðu vegna þess að þeir keyptu eignasöfnin á nið- ursettu verði, væri það svigrúm sem hugmyndin um niðurfellingu skuldanna gengi m.a. út á að nýta. „Það er út af fyrir sig alveg rétt að þetta þurfi ekki að leiða til útgjalda [fyrir ríkið]. Þvert á móti má halda því fram að með því að bankarnir gangi fram af fullri hörku og láti reyna á innheimtu alls eignasafns- ins þá muni það á endanum valda ríkinu mun meira tjóni.“ Bjarni tók fram að menn yrðu að sýna ákveðna varkárni í málinu og óvíst væri að 20% væri rétt tala. „En menn verða fyrst að staldra við þá staðreynd að ef það er verið að tala um allt að 50% niðurfærslu á kröfunum, hvaða mynd er verið að draga upp af stöðu íslensks atvinnulífs? Það er einhver dekksta mynd sem hefur verið dregin upp í nokkurri krísu sem dunið hefur yfir lönd og við höfum verið að skoða til samanburðar. Þetta er meiri kreppa í atvinnustarfseminni en dæmi eru um. Og til að bregðast við því dugir ekki að lengja í lánum og fresta aðfarargerðum,“ sagði hann. Það væri mjög óábyrgt að ýta þessari hugmynd út af borðinu nema menn hefðu aðrar útfærslur sem væru líklegar til að taka á vand- anum með sama hætti. Bjargar ekki þeim skuldugustu Í þeim hugmyndum sem Fram- sóknarflokkurinn kynnti var fjallað um að það gæti verið álitamál að þeir sem skuldi mikið fái hærri upp- hæð fellda niður, að niðurfærsla gagnaðist þeim best sem skulda mest. Bjarni sagði að það væri alveg klárt að niðurfærslan sem um væri rætt myndi ekki duga til að bjarga þeim sem eru verst settir. Þeir sem væru skuldlausir yrðu að spyrja sig hvort þeim litist á umhverfið ef inn- heimtur bankanna myndu ganga af 40% af atvinnulífinu dauðu. Að sjálf- sögðu væru engar hugmyndir galla- lausar. Hann hefði hitt forsvars- menn fyrirtækja sem skulduðu lítið eða ekkert en þeir hefðu sagt að ef ekki yrði tekið í taumana og hjólum atvinnulífsins komið í gang á nýjan leik myndu fyrirtæki einnig fara á hausinn, jafnvel á einu ári. „Það hafa öll fyrirtæki hagsmuni af því að hjól atvinnulífsins stöðvist ekki og við erum í stórhættu á að það ger- ist.“ Ekki fráhverfur niðurfærslu skulda Bjarni Benediktsson Hætta á að hjól atvinnulífsins stöðvist FINNUR Árna-son, forstjóri Haga, segir að Gylfi Magnússon viðskiptaráð- herra verði að út- skýra betur hvað hann átti við þeg- ar hann sagði á Alþingi á þriðju- dag að Íslend- ingar hefðu um margt búið við óeðli- lega skipan mála hvað varðaði samkeppni í verslun og fleiri grein- um. Samþjöppun í verslunarrekstri væri ekki meiri hér en t.d. í Dan- mörku og Noregi og raunar minni en í Svíþjóð. Gylfi sagði einnig að ef greiða þyrfti úr málum eignarhaldsfélaga í verslunarrekstri yrðu þau ekki end- urreist í fyrri mynd heldur seld í smærri einingum og þar af leiðandi yrði meira svigrúm til samkeppni. Finnur sagði ummæli Gylfa dap- urleg. Tilefnið hefði verið umræða sem Ásta Möller átti frumkvæði að um stöðu verslunarinnar en mik- ilvægi hennar hefði lítill gaumur verið gefinn. Það hefði komið fram að ráðherrann hefði engar lausnir en í staðinn fullyrt ýmislegt sem hann yrði að skýra betur, t.d. hvað hann ætti við með að tala um óeðli- lega skipan mála í samkeppni. Skip- an mála væri sambærileg og í ná- grannalöndunum. Dapurlegt fyrir starfsfólk „Í öðru lagi talaði hann um illa stödd félög. Ég get bara talað fyrir Haga sem er eina félagið á þessum mark- aði sem er skráð á markað og birtir afkomutölur opinberlega. Ég tel Haga ekki standa illa þannig að ég tel óeðlilegt að hann taki þessa at- vinnugrein í heild og segi að hún standi illa,“ bætti Finnur við. Þá væru ummælin dapurleg fyrir verslunarfólk, ekki síst þar sem um- ræðan á Alþingi hefði átt að snúast um leiðir til að vernda störf. „Þetta er dónaskapur við íslenska verslun.“ runarp@mbl.is Dónaskapur við íslenska verslun Finnur Árnason Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Fax 595 1001 Akureyri sími: 461 1099 • www.heimsferdir.is E N N E M M / S IA • N M 3 70 15 B irt m eð fy rir va ra um p re nt vi llu r. H ei m sf er ð ir ás ki lja sé r ré tt til le ið ré tt in g a á sl ík u. A th .a ð ve rð g et ur b re ys t án fy rir va ra . Ævintýri og ógleymanlegar minningar! SÉRFERÐIR GLÆSILEGAR Sérferðir Heimsferða í sumar hafa fengið frábærar viðtökur eins og fyrri ár, enda hefur framboðið sjaldan verið glæsilegra. Sæ- tin eru óðum að fyllast í margar ferðanna, en þó eru enn sæti laus í fjölmargar spennandi ferðir sem bjóða ævintýri, upplifanir og ógleymanlegar minningar. Tryggðu þér strax sæti í frábæra sérferð! Gardavatn 27. júlí - 3. ágúst Rapallo – Ítalska rivíeran 15.-22. júní Tyrkland Sól – saga – menning 12.-26. september Töfrar Andalúsíu 26. apríl - 3. maí Náttúruperla í Austurríki 13.-20. ágúst Í hjarta Toskana 24.-31. ágúst Alpaævintýri í Seefeld 9.-16. júlí Ævintýri í Marrakesh – Marokkó 22.-30. september GÖNGUFERIR Spánn – Valenciahéraðið 16.-23. maí Ítalía – Cinque Terre 30. maí • 24. ágúst Ítalía – Chiantihérað 1.-8. júní Spánn – Pýreneafjöllin 12.-18. september SIGLINGAR Gersemar Miðjarðarhafsins 27. júni - 11. júlí. Töfrar Miðjarðarhafsins 5.-12. júní • 18.-25. september Vikusiglingar frá Kaupmannahöfn • Norsku firðirnir • Eystrasaltið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.