Morgunblaðið - 26.02.2009, Side 15

Morgunblaðið - 26.02.2009, Side 15
Fréttir 15INNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2009 Morgunblaðið/Þorkell Enga farsíma Miðlarar eiga að skjalfesta samskipti sín við viðskiptavini. að öll samskipti væru skrásett. Það hafi bara ekki alltaf verið tæknilega mögulegt auk þess sem eitthvert hlutfall viðskiptavina hafi helst aldr- ei viljað tala í hljóðritaða síma, af ótilgreindum ástæðum. Reglurnar voru því strangar en eftirfylgnin við þær oft slök. Eftir stendur að Davíð tók ekki skýrt fram hvort hann átti við verðbréfaviðskipti, lánafyrir- greiðslu eða eitthvað annað. Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari vegna bankahrunsins, segir að viðtalið við Davíð hafi ekki gefið tilefni til frumkvæðis af hálfu síns embættis, en að hann hvetji Davíð til að koma á framfæri við sig öllum upplýsingum sem geti leitt til ákæru. Um sérmeðferð við einka- hlutafélög innan gömlu bankanna segir Ólafur að hafi fyrrnefnd endur- skoðendateymi skilanefndanna fundið eitthvað misjafnt í rekstri þeirra komi það inn á hans borð. JÓN Baldvin Hannibalsson hefur tilkynnt þátttöku sína í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík. Í til- kynningu frá honum segir að hann sækist eftir einu af átta efstu sætum á listanum en hann tiltekur ekki sér- stakt sæti, í trausti þess að boðaðar breytingar á kosningalögum, er fela í sér rétt kjósenda til per- sónukjörs, nái fram að ganga. Þannig segir Jón að væntanlegir alþingismenn öðlist ótvírætt umboð kjós- enda. Jón Baldvin var for- maður Alþýðuflokksins frá 1984 til 1996 og sat á þingi fyrir flokkinn frá 1982 til 1998 eða þar til hann tók við stöðu sendiherra Íslands í Washington í Bandaríkj- unum. Ellefu ár eru því síð- an Jón Baldvin hafði bein afskipti af stjórnmálum síð- ast. ben@mbl.is Í pólitík á ný eftir 11 ára hlé Eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is ATVINNULAUSIR eru nú á sautjánda þúsund, eða 16.155 sam- kvæmt vef Vinnumálastofnunar í gær. Þar af eru um 20% í hlutastörf- um á móti atvinnuleysisbótum. Ef miðað er við að fjöldi fullra stöðu- ígilda á atvinnuleysisskrá sé um 14.500 er atvinnuleysi nú í kringum 8%. Gylfi Arnbjörnsson, forseti Al- þýðusambands Íslands, segir að þótt eitthvað geti hægt á fjölgun atvinnu- lausra um þessi mánaðamót óttist hann að enn eigi eftir að bætast tvö til fjögur þúsund manns á skrána. ASÍ hefur spáð 9,5% meðaltals- atvinnuleysi á þessu ári. „Þess vegna er mjög mikilvægt að lækka vextina. Þeir eru svo hrika- lega háir að það getur enginn staðið undir þeim,“ segir Gylfi. Þeir magni upp bæði vanda fyrirtækjanna og heimilanna. Í aðdraganda mánaðamótanna segir Jón Steindór Valdimarsson, framkvæmdastóri Samtaka iðnaðar- ins, að ekki sé von á mikilli bylgju úr iðngreinunum inn á atvinnuleys- isskrá. Hann segist ekki trúa öðru en að nú nálgist menn lágmarkið í byggingageiranum. Erfiðara sé að spá fyrir um hvað gerist í öðrum iðn- aði. Ljósir punktar séu í því að geng- ishrunið hafi auðveldað sumum framleiðendum lífið og að eftirspurn hafi ekki minnkað heldur aukist eftir vörum sumra fyrirtækja. Hins vegar kvartar Jón Steindór yfir háum vöxtum. Þau fyrirtæki sem enn séu ekki í erfiðleikum lendi í þeim ef vextir lækka ekki. Nálgumst lág- markið í bygg- ingageiranum 16.155 voru á atvinnuleysisskrá í gær Morgunblaðið/Golli Íslenskt efnahagslíf - áskoranir og tækifæri Straumur fjárfestingabanki stendur að morgunfundi laugardaginn 28. febrúar kl. 10:00- 12:00 í Iðnó. Á fundinum verða ræddar helstu áskoranir og tækifæri Íslands í náinni framtíð. Waltraud Schelkle, sem er meðal færustu sérfræðinga á sviði efnahags- og peningamálastefnu Evrópusambandsins, mun fjalla um aðlögunarferli ríkja að stefnu sambandsins og kosti og galla aðildar. Vilhjálmur Egilsson kynnir nauðsynlegar aðgerðir til endurreisnar atvinnulífsins að mati Samtaka atvinnulífsins. Sveinn Hjörtur Hjartarsson fjallar um hagsmuni íslensks sjávarútvegs í tengslum við Evrópusambandsaðild og að lokum mun Arnór Sighvatsson fara yfir peningastefnu á óvissutímum. Raffaella Tenconi, aðalhagfræðingur og greinandi Straums mun stýra fundinum sem lýkur með pallborðsumræðum. Laugardagur 28. febrúar 2009 - Iðnó Nauðsynlegar aðgerðir til endurreisnar atvinnulífsins Dr. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri, Samtök atvinnulífsins Kostir og gallar aðildar Efnahags- og myntbandalags Evrópu (EMU) Dr. Waltraud Schelke, dósent, Hagfræðideild Evrópumiðstöðvar London School of Economics ESB og sjávarútvegurinn Sveinn Hjörtur Hjartarsson, aðalhagfræðingur, LÍÚ Peningastefna á tímum óvissra gjaldeyrishafta Arnór Sighvatsson, aðalhagfræðingur Seðlabanka Íslands Pallborðsumræður og fyrirspurnir Fundarstjóri er Raffaella Tenconi, aðalhagfræðingur Straums. 10:00 10:20 10:40 11:00 11:20 Fundurinn fer fram á ensku og er engin aðgangseyrir. Skráning fer fram í síma 585-6600 eða með tölvupósti á receptionreykjavik@straumur.com NÁMSSTYRKIR Veittir verða styrkir í fjórum flokkum: 3 styrkir til framhaldsskóla- og iðnnáms, 150.000 kr. 3 styrkir til háskólanáms (BA/BS/BEd), 300.000 kr. 4 styrkir til framhaldsnáms á háskólastigi, 350.000 kr. 3 styrkir til listnáms, 350.000 kr. 30. SÆkTU UM FYRIR: mars 2009 E N N E M M / S ÍA / N M 3 6 7 6 0 umsóknarblað má finna á landsbankinn.is HÆSTIRÉTTUR hefur vísað frá máli manns sem kærði gæsluvarð- haldsúrskurð. Í dóminum segir að bókað hafi verið á dómþingi héraðs- dóms að maðurinn kærði úrskurðinn til Hæstaréttar, en ekki hefði verið bókað í hvaða skyni kært væri. Var því ekki komist hjá því að vísa mál- inu frá. Maðurinn situr í gæsluvarð- haldi til klukkan 16 á morgun. Í greinargerð lögreglustjóra kem- ur fram að maðurinn hefur átt aðild að ólöglegum innheimtum – hand- rukkunum – og frelsissviptingum. Segir að maðurinn hafi haft ávinning af handrukkun. andri@mbl.is Kæru vísað frá dómi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.