Morgunblaðið - 26.02.2009, Side 16

Morgunblaðið - 26.02.2009, Side 16
16 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2009 Morgunblaðið/RAX Kaffistofa á pöllum Kaffistofan í tónlistarhúsinu verður á fjórðu hæðinni. Þaðan verður hægt að ganga með bollana sína yfir á palla og sitja þar og njóta útsýnisins yfir miðbæinn. Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur ingibjorg@mbl.is ÞRÍR af sex byggingakrönum við tónlistarhúsið við Austurhöfn eru þegar komnir í gang þótt vinnan, sem fór í gang á ný síðastliðinn laug- ardag, fari hægt af stað. Ekki stendur til að unnið verði um helgar þótt byrjað hafi verið á laug- ardegi, að því er Sigurður R. Ragn- arsson, framkvæmdastjóri Austur- hafnarverkefnis Íslenskra aðalverk- taka, greinir frá. „Það var einhver málamyndavinna hér á laugardaginn. Við vildum byrja á laugardegi til lukku en ekki mánu- degi til mæðu. Það verður ekki al- menna reglan að unnið verði um helgar,“ segir Sigurður. Á milli 50 og 60 manns hafa þegar hafið störf á svæðinu og gert er ráð fyrir því að um 100 manns bætist við á næstu 10 dögum. Áætlað er að í vor verði starfsmennirnir um 300 á staðnum. Þeir sem þegar eru komnir til vinnu voru flestir við störf á svæðinu áður. „Þegar himnarnir byrjuðu að hrynja yfir Ísland og umheiminn vorum við 220. Síðan var hægt á verkinu fram að jólum en þá voru eftir um 130. Margir erlendu starfs- mannanna eru farnir af landi brott,“ segir Sigurður. Ákveðið var að hefja framkvæmd- ir þótt ekki hafi verið gengið form- lega frá fjármögnun. „Við vonum að það verði þá og þegar. Það er bara formsatriði að ljúka því. Það biðu margir í óvissu og við vildum létta henni af. Við töldum það ekki áhættu að byrja en auðvitað er þetta ekki búið fyrr en það er búið en það er líka áhætta að vera stopp,“ bendir Sigurður á. Alls er um 50 prósentum af heild- arverkefninu lokið, að sögn Sigurð- ar. Kranarnir eru komnir í gang  Vinna við tónlistarhúsið við Austurhöfn hafin  Áætlað er að starfsmenn á svæðinu verði um 300 Morgunblaðið/RAX Óvissunni eytt Starfsmenn eru komnir til vinnu á ný og það er að vonum létt yfir þeim. Framkvæmdir við tónlistarhúsið höfðu legið niðri frá jólum. Í HNOTSKURN »Menntamálaráðherra ogborgarstjórinn í Reykjavík undirrituðu í síðustu viku viljayfirlýsingu um fram- kvæmdir við tónlistarhús og ráðstefnumiðstöð við Austur- höfnina. Stefnt er að því að taka húsið í notkun vorið 2011. »Kostnaður við að ljúkabyggingunni er 13,3 millj- arðar króna. Um 600 störf skapast vegna verksins, þar af 200 til 300 á verkstað. Eftir Andra Karl andri@mbl.is ÞINGFESTING í máli því sem nefnt hefur verið skattahluti Baugsmálsins var eftir hádegið í gær í Héraðsdómi Reykjavíkur. Þinghaldið var stutt og laggott. Lögð var fram krafa sak- borninga um frávísun málsins og frestun til ritunar greinargerðar. Frestunin var samþykkt og heldur málið áfram 13. mars nk. Málið er sem kunnugt er höfðað á hendur Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, Kristínu systur hans, Tryggva Jóns- syni, Baugi Group og fjölskyldu- og fjárfestingafélaginu Gaumi. Sakborn- ingar voru allir mættir fyrir dómara en ekki kom til þess að þau tækju af- stöðu til sakarefnisins. Sakarefnið er meiriháttar brot gegn skattalögum á árunum 1998 til 2002. Málinu svipar til máls ákæru- valdsins á hendur athafnamanninum Jóni Ólafssyni en því var vísað frá héraðsdómi á þeim forsendum að búið væri að gera honum refsingu. Taldi dómurinn að álag á vantalda skatt- stofna yrði talið refsing í skilningi samningsviðauka við mannréttinda- sáttmála Evrópu. Mál Jóns hefur ekki enn verið tekið fyrir efnislega hjá Hæstarétti og óvíst að svo verði. Fordæmi fyrir hendi? Rannsókn á bókhaldi og skattskil- um Baugs hófst í nóvember 2003 og fékk Baugur afhenta endurálagningu frá ríkisskattstjóra fyrir árin 1998 til 2002 hinn 31. desember 2004. Baugur greiddi 142 milljónir króna í janúar 2005 vegna þessa. Jón Ásgeir og Kristín kærðu rann- sókn málsins en höfðu ekki erindi sem erfiði. Dómarar bæði í héraði og Hæstarétti töldu kæruna of seint fram komna þar sem rannsókn máls- ins var lokið og dómsmeðferð að hefj- ast. Var málum þeirra því vísað frá. Við þingfestingu málsins í gær var sett fram frávísunarkrafa. Við næsta þinghald verður svo lögð fram grein- argerð þar sem krafan er tíunduð. Gera má ráð fyrir að í henni verði vís- að til málsins á hendur Jóni Ólafssyni og einnig til þess hversu málið hefur dregist. Þá verður að teljast líklegt að einnig verði tekist á um hæfi Helga Magnúsar Gunnarssonar, saksókn- ara efnahagsbrota. Enn eitt Baugs- málið er því rétt að hefjast. Tekist verður á um frávísun Þingfesting skattahluta Baugsmálsins fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Saman á ný Gestur Jónsson og Jakob R. Möller, verjendur Jóns Ásgeirs og Tryggva, vinna saman í skattahluta Baugsmálins líkt og öðru hlutum. ÚTFLUTNINGSVERÐMÆTI gull- depluafurða er nú orðið um 800 milljónir króna að mati Stefáns Friðrikssonar, aðstoðarfram- kvæmdastjóra Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum, að því er fram kemur á heimasíðu LÍÚ. Stefán tel- ur að reikna megi með 25-26 þús- und krónum fyrir tonnið af út- fluttum afurðum en fiskurinn er unninn í mjöl og lýsi. Alls voru í gær um 31.600 tonn af gulldeplu komin á land. Tæpum helmingi aflans hefur verið landað í Eyjum, en talsverðu hefur einnig verið landað á Akranesi, í Keflavík og á Eskifirði. Síðustu daga hafa sjö skip verið að gulldepluveiðum um 130 mílur suður af Eyjum; Huginn, Guð- mundur, Kap, Hoffell, Birtingur, Ásgrímur Halldórsson og Jóna Eð- valds. Eftir leiðindabrælu lagaðist veður eftir hádegi í gær og köstuðu skipin þá á mjög góðar lóðningar. Þær upplýsingar fengust um borð í Hugin að lóðningarnar hefðu verið sterkar og jafnvel sterkari en í Grindavíkurdýpi í síðasta mánuði. 800 milljónir fyrir gulldeplu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.