Morgunblaðið - 26.02.2009, Side 17

Morgunblaðið - 26.02.2009, Side 17
Fréttir 17INNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2009              !    " # $  %  # &  #'     " (  ) * # #  %  * %   %  &  # +    ,  ") %  (  #   + ,# #- Dags. Fyrir hönd Moggakl úbbsins. .  ( / # $  % % / % &  ,   – meira fyrir áskrifendurFáðu þér áskrift á mbl.is/askrift eða í síma 569 1122 F í t o n / S Í A Til hamingju með vinninginn Vinningshafi Moggaklúbbsins í febrúar hlýtur þriggja daga ferð fyrir tvo til Búdapest mbl.is/moggaklubburinn UNA María Ósk- arsdóttir, formaður Freyju, félags framsóknarkvenna í Kópavogi, býður sig fram í 2. sæti á lista Framsóknar- flokksins í Suðvest- urkjördæmi. Una María er uppeldis- og menntunarfræðingur með BA-próf frá Háskóla Íslands og stundar nú meistaranám í lýð- heilsuvísindum við sama skóla. Una María býður sig fram í 2. sætið Samfylking og Vinstri hreyfingin grænt framboð hafa komið sér saman um að Alþingiskosningar fari fram laugardaginn 25. apríl næstkomandi. Morgunblaðið mun daglega birta fréttir sem tengjast framboðum, próf- kjörum, kosningafundum o.fl. Kosningar 2009 FRIÐRIK Atlason forstöðumaður á sambýli gefur kost á sér í 4. sæti í for- vali VG í Reykja- vík. Friðrik hefur lengi starfað að málefnum fatlaðra. Hann situr í Borg- armálaráði VGR og í stjórn SFR – Stéttarfélags í al- mannaþjónustu. Hann hefur m.a. unnið að verkefnum fyrir Fem- ínistafélag Íslands. Friðrik gefur kost á sér í 4. sæti VG Friðrik Atlason INGIGERÐUR Sæ- mundsdóttir gefur kost á sér í próf- kjör sjálfstæðis- manna í Suður- kjördæmi. Hún er verkefnastjóri Fé- lags foreldra og foreldraráða í grunnskólum Reykjanesbæjar og nemi í HÍ. Hún er ritari Sjálfstæð- isfélagsins Njarðvíkings síðan 2007. Ingigerður fram í Suðurkjördæmi Ingigerður Sæmundsdóttir BRYNDÍS Bjarn- arson býður sig fram í 2. sæti á lista Framsóknarflokks- ins í Suðvestur- kjördæmi. Hún sat m.a. í bæjarstjórn Mos- fellsbæjar 2002- 2006, er með BA gráðu í hagfræði, heimspeki og stjórnmálafræði frá Háskólanum á Bifröst og er nú í meistaranámi í menningarstjórnun. Bryndís sækist eftir 2. sætinu Bryndís Bjarnarson ÁRNI Páll Árna- son þingmaður sækist eftir að leiða lista Sam- fylkingar í Suð- vesturkjördæmi í komandi kosn- ingum. Árni hefur m.a. menntun í Evrópurétti og hefur kennt við HR frá 2004. Hann hefur m.a. setið í heilbrigðisnefnd, utanríkis- málanefnd og viðskiptanefnd Al- þingis og er nú formaður allsherj- arnefndar. Árni Páll sækist eftir endurkjöri Árni Páll Árnason STUTT Eftir Sigrúnu Lóu Svansdóttur meistaranema í markaðsfræðum og alþjóðaviðskiptum í HÍ Á Sólheimum í Grímsnesi hefur ný- lega risið 560 fermetra hús. Um það bil 85% af efni í húsið fengust gefins og 34 sjálfboðaliðar vinna við að reisa það. Húsið er eins konar hvíld- arheimili fyrir langveika og hefur verið nefnt Orlofssetur. Það verður opnað 1. maí með prompi og prakt. Líknar- og vinafélagið Bergmál stendur að byggingu hússins en fé- lagið hefur hingað til leigt gistiheim- ili að Sólheimum í Grímsnesi og boð- ið langveikum til vikudvalar að sumri, þeim að kostnaðarlausu. Kolbrún Karls- dóttir, formaður félagsins, segir hvatann að bygg- ingu hússins þann að aðsókn var orðin meiri en framboðið. Fólk sem hafði einu sinni komið til þeirra vildi koma aftur og í kjölfarið ákvað stjórn Bergmáls að ráðast í þetta risavaxna verkefni. „Þetta er okkar hugsjón og við viljum geta gefið fólki eitthvað þó það sé ekki nema ein vika af gleði og hamingju. Það gefur okkur öllum svo ótrúlega mikla lífsfyllingu að starfa við þetta. Þegar öllu er á botninn hvolft þá erum við ríkust allra.“ Kolbrún segir að Bergmál hafi unn- ið lengi með veiku fólki og hafi mjög skýra sýn á þarfir þess. Þess vegna sé meira lagt í þetta hús en flest önnur. Félagið byggir alla sína starfsemi á sjálfboðavinnu. „Við gerum nánast allt sem okkur dettur í hug en aðalfjáröfl- unin okkar er hins vegar jólakorta- sala.“ Meðal helstu styrktaraðila Bergmáls er Álfaborg sem gefur allt gólfefni í húsið, Húsasmiðjan og Bón- us. Hingað til hefur félagið aðeins getað tekið á móti fólki í tvær vikur að sumri, en með nýju húsi verður hægt að taka á móti fleiri gestum og hafa opið allan ársins hring. „Við höfum ekki þurft að neita neinum hingað til og ég hræðist ekki meiri eftirspurn með stærra húsi,“ segir Kolbrún. „Það kemur alltaf ár eftir þetta ár. Hins vegar eru allir sjálf- boðaliðar afskaplega vel þegnir, núna þegar boðið verður upp á þetta oftar og lengur þá gæti farið að vanta starfsfólk.“ Þeir sem hafa áhuga á að nýta sér þjónustu Bergmáls geta hringt í síma 587-5566. „Ein vika af gleði og hamingju“ Kolbrún Karlsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.