Morgunblaðið - 26.02.2009, Qupperneq 18
18 FréttirERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2009
Stepp ehf Ármúla 32 Sími 533 5060 www.stepp.is stepp@stepp.is
G
ra
fí
k
a
2
0
0
9
GÓLFEFNI ÞEKKING ÞJÓNUSTA
TEPPI FYRIR GISTIHEIMILI
DANIEL Gross,
sem kunnur er
fyrir skrif sín um
efnahags- og pen-
ingamál, segir í
nýrri bók, „Dumb
Money“, að það
hafi ekki verið
mannvonska, sem
olli fjármála-
kreppunni, held-
ur heimska.
Gross segir, að hornsteinar
heimskunnar hafi verið fjórir: Í
fyrsta lagi sú trú, að vextir yrðu lágir
um ókomna tíð; í öðru lagi, að eignir
myndu halda áfram að hækka í verði;
í þriðja lagi, að lítil hætta væri á, að
lántakendur borguðu ekki af lánun-
um og í fjórða lagi, að markaðurinn
fyrir skuldabréf væri óendanlegur.
Gross nefnir mörg dæmi um
heimsku þeirra, sem betur hefðu átt
að vita, en Alan Greenspan, fyrrver-
andi seðlabankastjóra Bandaríkj-
anna, útnefnir hann sem æðstaprest
heimskunnar. svs@mbl.is
Kreppan
stafar af
heimsku
Æðstiprestur
heimskunnar?
Heilbrigð skynsemi
var látin lönd og leið
IVAN, sex ára gamall sonur Davids
Camerons, leiðtoga breska Íhalds-
flokksins, lést í gær en hann hafði
verið mikið fatlaður frá fæðingu.
Ivan þjáðist af krampalömun og
var alvarlega flogaveikur og því
þurfti hann að fá umönnun allan sól-
arhringinn. Hann veiktist í fyrrinótt
og lést í gærmorgun.
Gordon Brown forsætisráðherra
og William Hague, talsmaður
Íhaldsflokksins, vottuðu Cameron
og fjölskyldu hans samúð sína áður
en þingfundir hófust í gær. Þau hjón-
in, Cameron og Nancy, kona hans,
eiga tvö önnur börn, fimm ára gamla
dóttur og þriggja ára gamlan son.
Brown hefur einnig misst barn,
fyrsta barn sitt, stúlku, sem var að-
eins 10 daga gömul er hún lést 2002,
og síðan hefur annar sona hans
greinst með arfgengan sjúkdóm,
sem veldur lömun í öndunar- og
meltingarfærum. svs@mbl.is
Sonur Cam-
erons látinn
Eftir Svein Sigurðsson
svs@mbl.is
BARACK Obama, forseti Banda-
ríkjanna, sagði í ræðu sinni á þingi í
fyrrakvöld, að nú væri komið að
„skuldadögunum“, þjóðin þyrfti nú
að gera upp við græðgina og bruðlið,
sem leitt hefðu til efnahagshruns og
ófara fyrir land og lýð. Vegna þeirra
yrðu landsmenn allir að færa miklar
fórnir en hann hét því, að út úr þess-
um hremmingum myndu Bandaríkin
koma heilbrigðari og sterkari en
nokkru sinni fyrr. „Endurreisnin er
hafin, við munum komast yfir þenn-
an hjalla. Nú er tími til að láta hend-
ur standa fram úr ermum af festu og
skynsemi.“
„Á þessum tímamótum horfir öll
þjóðin til okkar, hún bíður þess að
við hefjumst handa, hún bíður þess
að við vísum veginn,“ sagði Obama
er hann gerði grein fyrir áætlunum
stjórnar sinnar. Hann sagði, að taka
yrði allt regluverk fjármálalífsins til
gagngerðrar endurskoðunar en
lagði um leið áherslu á, að ekki væri
víst, að björgunarpakkinn, 787 millj-
arðar dollara, dygði til að koma því á
lappirnar.
Snýst ekki um bankana, heldur
fólkið í landinu
Flestir þingmenn stóðu upp og
klöppuðu þegar Obama sagði, að
bankar og eigendur þeirra yrðu
gerðir fullábyrgir fyrir því fé, sem
bandarískir skattborgarar legðu
þeim til.
„Þetta snýst ekki um að hjálpa
bönkum. Þeir dagar eru liðnir. Þetta
snýst um að hjálpa fólkinu.“
Obama reyndi að blása löndum
sínum í brjóst kjark og bjartsýni og
boðaði framtíð þar sem áherslan
yrði á endurnýjanlega orku, á nýja
gerð bíla og á samfélag, sem tryggði
öllum eðlilegan aðgang að heilbrigð-
isþjónustu. Hann tók hins vegar
fram og lagði á það mikla áherslu, að
nú væru að renna upp þeir tímar, að
fólk yrði að fara að haga útgjöldum
sínum í samræmi við raunveruleg
efni og snúa baki við lönguninni eftir
skjótfengnum gróða.
„Við gleymdum að horfa lengra en
til næstu útborgunar, til næstu mán-
aða, til næstu kosninga,“ sagði
Obama.
Ekki verður lengur reynt að
leyna stríðskostnaðinum
Obama hefur sett sér það mark að
minnka fjárlagahallann um helming
á næstu fjórum árum og í ræðu sinni
sagði hann, að nú þegar væri búið að
eyrnamerkja útgjöld upp á 2.000
milljarða dollara, sem unnt væri að
spara næsta áratuginn.
„Við munum uppræta alla þá
samninga, sem gerðir voru án út-
boðs og hafa kostað okkur milljarða
dollara í Írak; við munum endur-
skoða útgjöldin til hermála og hætta
að ausa fé í kalda-stríðs-vopnakerfi,
sem við notum ekki,“ sagði Obama,
sem mun leggja fram sín fyrstu fjár-
lög í dag. Þá sagði hann, að ekki yrði
lengur reynt að leyna stríðskostn-
aðinum í Írak og Afganistan með því
að halda honum utan fjárlaga.
Nýir tímar í utanríkismálum
Utanríkismálin voru ekki mjög
fyrirferðarmikil í ræðu Obama en
hann boðaði samt nýja tíma í sam-
skiptum Bandaríkanna og umheims-
ins. Kvaðst hann mundu vinna að
friði í Mið-Austurlöndum og berjast
gegn öfgaöflum.
„Við getum ekki staðist ekki allar
ógnir einir og umheimurinn getur
það ekki án okkar.“
„Endurreisnin hafin“
Reuters
Nýir tímar Barack Obama er hann greindi frá stefnumálum stjórnar sinnar
og sagði, að upp úr þrengingunum myndu Bandaríkin rísa öflugri en fyrr.
Obama sagði í ræðu sinni til þings og þjóðar að dagar græðgi og bruðls væru liðnir,
þjóðin þyrfti að færa fórnir sem gerðu hana heilbrigðari og sterkari en fyrr
Í HNOTSKURN
» Obama hvatti Bandaríkja-þing til að setja lög til að
takmarka útblástur gróður-
húsalofttegunda.
» Hann hét því einnig aðdraga úr niðurgreiðslum í
landbúnaði en þær hafa helst
staðið í vegi fyrir samningum
á vettvangi Heimsviðskipta-
stofnunarinnar.
» Ekki verður horfið frástuðningi við bílaiðnaðinn
en hann verður að umskapa.
Kína minnkaði um helming og
bílaútflutningur um tvo þriðju.
Sem dæmi um það má nefna, að
útflutningur Nissan-bíla hefur
minnkað um 54%. Á síðasta fjórð-
ungi liðins árs var efnahags-
samdrátturinn 12,7% á árs-
grundvelli.
Ástandið í öðrum Suðaustur-
Asíuríkjum er einnig slæmt. Í
Hong Kong og Singapúr, sem eru
að mestu leyti komin upp á út-
flutning, er mikill samdráttur og
iðnframleiðsla á Taívan var
43,11% minni í janúar en fyrir ári.
svs@mbl.is
KREPPAN í Suðaustur-Asíu
harðnar með degi hverjum og
margt bendir til, að Japan,
stærsta hagkerfið í þessum heims-
hluta, muni fara einna verst út úr
henni. Það sýnir sig nú, að því
háðari sem ríki eru útflutningi,
þeim mun viðkvæmari eru þau
fyrir minni eftirspurn.
Mikil halli er nú á viðskiptum
Japana við útlönd, ólíkt því, sem
verið hefur, en útflutningur í jan-
úar var hvorki meira né minna en
45,7% minni en í sama mánuði fyr-
ir ári. Útflutningur til Bandaríkj-
anna, Evrópusambandsríkja og
Útflutningsríkin verða illa
fyrir barðinu á kreppunni
Viðbrögð við ræðu Baracks Obama
Bandaríkjaforseta hafa verið mjög
góð í bandarískum fjölmiðlum og
urðu sumir til að líkja honum við
Franklin D. Roosevelt og þá for-
ystu, sem hann veitti Bandaríkja-
mönnum í kreppunni miklu.
„Síðan Roosevelt flutti sína fyrstu
ræðu til þjóðarinnar átta dögum
eftir að hann tók við embætti hef-
ur Bandaríkjamenn aldrei hungrað
jafnmikið eftir forystu í efnahags-
málunum. Frá því á dögum Roose-
velts höfum við ekki heyrt um aðra
efnahagsáætlun djarfari og metn-
aðarfyllri, stefnu, sem er líkleg til
að umbylta bandarískum kapítal-
isma,“ sagði í The Washington
Post. Í leiðara The New York Times
sagði, að Obama hefði gert hvort-
tveggja, að glæða vonir þjóðar-
innar án þess þó að gera lítið út
erfiðleikunum.
Margir þingmenn repúblikana, til
dæmis John McCain, keppinautur
Obama í forsetakosningunum,
hrósuðu ræðunni og hún hafði góð
áhrif í kauphöllum um allan heim.
Hækkaði gengi hlutabréfa alls
staðar.
Mjög góð viðbrögð við ræðu Obama
„ÞETTA er mjög neyðarlegt. Þeir
reyna að gefa okkur ráð eins og
„þetta færi þér örugglega betur en
hitt,“ en okkur finnst það ekki sið-
samlegt,“ segir sádísk kona sem
kaupir sér einungis undirföt utan
heimalandsins Sádí-Arabíu. Ástæð-
an er sú að í undirfataverslunum
landsins eru bara karlar við af-
greiðslustörf.
Það er jafnvel undarlegra sé það
sett í samhengi við strangar reglur
sádí-arabískra yfirvalda um sam-
skipti kynjanna. Einhleypum körl-
um og konum er m.a. bannað að
vera einum saman séu þau ekki
skyld.
Karlarnir líka vandræðalegir
„Þetta eru viðkvæmir líkams-
hlutar kvenna,“ segir Reem Asaad
sem stendur fyrir herferð á Fés-
bókinni þar sem sádískar konur eru
hvattar til að sniðganga nær-
fataverslanir.
Karlkyns afgreiðslumönnum til
varnar skal þó taka fram að mörg-
um þeirra þykir fyrirkomulagið
líka óþægilegt. „Þeir verða að sigla
meðalveginn, vinna vinnuna sína
sem afgreiðslumenn en gæta sín um
leið á því að haga sér siðsamlega,“
segir Asaad í viðtali við BBC.
Hún segir að konur megi sam-
kvæmt lögum starfa í slíkum versl-
unum. Fyrir fjórum árum hafi verið
sett lög sem leyfi konum að af-
greiða í verslunum er selji varning
einungis ætlaðan konum. Lögin
hafa þó ekki verið innleidd með við-
eigandi hætti og er það talið vera til
að vernda störf karla. Auk þess hafi
valdamiklir múslimaklerkar lands-
ins sitt að segja með rótgróin við-
horf um að konur skuli fyrst og
fremst sinna heimilinu.
Asaad og félagar hennar í barátt-
unni hafa nú ákveðið að sniðganga
klerka jafnt sem yfirvöld og beita
búðirnar sjálfar þrýstingi. „Neyt-
endur hafa síðasta orðið. Við
ákveðum hvað við kaupum eða ekki
og þar er veiki bletturinn – í pyngj-
unni,“ segir Asaad. jmv@mbl.is
Karla út úr nærfatabúðum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Burt! Sádískar konur vilja ekki lengur þiggja ráð karla við undirfatakaup.
Sádi-arabískar
konur í herferð