Morgunblaðið - 26.02.2009, Side 19

Morgunblaðið - 26.02.2009, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2009 Þeir sem vilja leigja sér húsnæði eða bjóða eign til leigu geta nú einfaldlega farið á mbl.is. mbl.is/leiga verður miðstöð þeirra sem vilja skoða leigumarkaðinn, hvort heldur sem er fyrir atvinnuhúsnæði eða íbúðarhúsnæði. Þeir sem vilja bjóða eignir til leigu er hvattir til að nýta sér tilboð um að skrá eign sína til leigu á vefnum frítt fyrir 20. mars. – meira fyrir leigendur F í t o n / S Í A Nýjung á mbl.is fyrir leigjendur og þá sem vilja leigja eignir mbl.is/leiga Eftir Baldur Arnarson og Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur NÍU létust og 31 særðist alvarlega, þar af sex lífshættulega, þegar flug- vél með 127 farþega og sjö manna áhöfn brotlenti á Schip- hol-flugvelli í Amst- erdam í gærmorgun. Flugvélin, sem var af gerðinni Boeing 737-800, var í eigu tyrkneska flug- félagsins Turkish Airl- ines á leið frá Istanbúl. Þrír hinna látnu voru úr áhöfninni en ekki er ljóst hvers vegna óhapp- ið varð en skyggni mun hafa verið gott og fremur lygnt. Stélið brotnaði af „Nef flugvélarinnar sneri upp [...] stélið kom fyrst niður á jörðina og brotnaði svo af,“ sagði Tomas Fried- hoff, nemi sem var að hjóla í grennd- inni þegar slysið varð. „Nokkrum sekúndum eftir brotlendinguna byrj- aði fólk að yfirgefa vélina í gegnum afturhlutann,“ sagði Friedhoff. Tyrkneski samgöngumálaráðherr- ann Binali Yildirim segir það krafta- verki líkast að ekki skyldu fleiri láta lífið. „Það að vélin lenti á mjúku und- irlagi og að ekki kom upp eldur gerði það að verkum að mannfall varð ekki meira,“ sagði Yildirim. Sex flugbrautir eru á Schiphol- flugvelli og ein flugstöð. Árið 2007 áttu 47 milljónir farþega leið um flug- völlinn og er hann því sá fimmti stærsti í Evrópu. Reuters Aðstoð Hlúð að slösuðum farþega við brak tyrknesku flugvélarinnar. Margt á huldu um tildrög flugslyssins Á vettvangi Stélið brotnaði af flugvélinni. AP Níu fórust þegar vél brotlenti á Schiphol „Í kjölfar svona slyss fer rann- sókn af stað um leið og björgun er lok- ið og vett- vangur er tryggður. Það er byrjað að safna saman flugritagögn- um, samtölum áhafnar, vitnisburðum sjónarvotta og öðrum vettvangsgögnum. Það geta margir komið að rannsókn- inni,“ segir Þorkell Ágústsson, rannsóknarstjóri rannsókn- arnefndar flugslysa. Að sögn Þorkels geta meðal annars fulltrúar ríkis, framleið- enda loftfars og framleiðenda hreyfla komið að rannsókninni. Ætla megi að greining gagna taki að minnsta kosti nokkra mánuði. Hvað snertir möguleikann á því að flugvélin hafi misst afl vegna elds- neytisskorts segir Þorkell of snemmt um það að segja. Í slysum sem þessum sé allt skoðað. Ef takist að finna ein- hverjar úrbætur sem geti komið í veg fyrir að slysið endurtaki sig verði þeim umsvifalaust komið á framfæri. Jóhannes Bjarni Guðmundsson, flugmaður hjá Icelandair, segir óhætt að fullyrða að Schiphol- flugvöllurinn sé mjög góður og öruggur völlur. Ekki sé hægt að koma auga á neitt í uppbyggingu eða skipulagi flugvallarins sem skýrt geti slys af þessu tagi. Allt verði skoðað í rannsóknarferlinu Jóhannes Bjarni Guðmundsson Þorkell Ágústsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.