Morgunblaðið - 26.02.2009, Síða 20
20 Daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2009
Það er alltaf jafngaman á öskudag-
inn á Akureyri. Þrátt fyrir heldur
leiðinlegt veður í gær; vind, kulda og
smávegis snjókomu, flykktust
krakkarnir út í bítið.
Oddur Helgi Halldórsson og hans
menn í Blikkrás hafa árum saman
tekið vel á móti öskudagsliðum. Þar
sinnir enginn hefðbundinni vinnu
fyrir hádegi; starfsmennirnir eru all-
ir í öskudagsbúningum, hlýða á þá
sem koma og gefa einkunn.
Þetta er tuttugasta árið sem Oddur
og félagar í Blikkrás standa fyrir
söngkeppni. Frammistaða hvers liðs
er samviskusamlega skráð og bestu
þrjú liðin fá pítsuveislu í verðlaun en
fyrir sönginn fékk hvert lið harðfisk
að launum. Skítt með pítsuna en ég
grét það í fyrsta skipti í gær að
kunna ekki að syngja.
Okkur norðanmönnum gengur bæri-
lega í handboltanum. Meist-
araflokkur Akureyrar byrjaði vel í
haust en síðan hallaði aðeins undan
fæti, en við eigum tvö lið í bikarúr-
slitum á sunnudaginn í Laugardals-
höll. Þór mætir ÍR í 3. flokki og Ak-
ureyri glímir við HK í 2. flokki.
Óskar Þór Halldórsson blaðamaður
hefur verið ráðinn verkefnastjóri
Landsmóts UMFÍ á Akureyri næsta
sumar. Hann á að stýra undirbún-
ingi og framkvæmd Landsmótsins
ásamt Ómari Braga Stefánssyni,
framkvæmdastjóra mótsins, og
landsmótsnefnd, sem í eru fulltrúar
UFA, UMSE, UMFÍ og Akureyr-
arbæjar.
Góð aðsókn hefur verið á sýningu
óþekktra ljósmynda á Minjasafninu
á Akureyri, sem opnuð var nýlega.
Ástæða er til þess að hvetja sem
flesta til að kíkja á sýninguna og
leggja safninu lið um leið, því allar
upplýsingar – t.d. um nöfn þeirra
sem á myndunum eru – eru vel
þegnar.
Hátt í 200 gestir, bæjarbúar og
áhugasamir ferðalangar á leið um
vetrarríkið Akureyri, hafa lagt hönd
á plóginn og komið er nafn á mjög
margar myndir á sýningunni í
Minjasafninu. „En betur má ef duga
skal því enn vantar þó nokkuð mörg
nöfn á ferðalanga á hópmyndum þó
vissulega sé búið að bera kennsl á
nokkra þeirra,“ segir í tilkynningu
frá safninu.
Vetrarfrí er hafið í grunnskólum hér
á Akureyri og í Reykjavík og börnin
njóta því vonandi lífsins ásamt for-
eldrum sínum af því tilefni næstu
daga. Gert er ráð fyrir því að fjöldi
fólks leggi leið sína hingað norður í
fríinu, skelli sér á skíði og andi að
sér hinu ómengaða, norðlenska lofti,
prófi jafnvel að keyra hægt …
Vonandi haga allir sér vel næstu
daga. Heimamenn vita þó að ef þeir
gera eitthvað af sér þurfa þeir lík-
lega ekki að hafa miklar áhyggjur.
Mikið verður af aðkomumönnum í
höfuðborg hins hvíta og hreina norð-
urs og þeim er alltaf kennt um allt.
Heimamenn og gestir fá tækifæri til
þess að upplifa sögulega stund á
laugardagskvöldið. Þá kemur Gunn-
ar Þórðarson fram einn síns liðs í
fyrsta skipti á 45 ára ferli. Sam-
koman verður í menningarhúsinu
Græna hattinum. Nema hvar.
Dagskráin með Gunnari nefnist
Söngbókin og sögurnar. Hann syng-
ur altso eigin lög og segir sögurnar á
bak við þau.
Rúmlega 150 manns sóttu kynningu
á tillögum að nýju deiliskipulagi fyr-
ir miðbæinn á Amtsbókasafninu um
síðustu helgi. Ég hvet alla sem vett-
lingi geta valdið til að kíkja á tillög-
urnar.
Að síðustu er rétt, vegna þess hve
margir utanbæjarmenn verða hér í
höfuðstað Norðurlands um helgina,
að hvetja heimamenn til þess að
radda vel framburðinn þannig að
þeir skeri sig úr; fá sér kók í bauk,
prumpa í stampinn og drekka
mjólllk.
AKUREYRI
Skapti Hallgrímsson
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Skýr skilaboð Þessi starfsmaður Blikkrásar tók upp starfsaðferðir mót-
mælenda en var þó meðmæltur því gestirnir þendu raddböndin.
úr bæjarlífinu
Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur
annaei@mbl.is
O
kkar markmið er að ná heild-
stæðri skrá yfir þátt Norður-
landanna í baráttunni gegn að-
skilnaðarstefnunni í suðurhluta
Afríku. Til þessa hefur hins veg-
ar vantað allar upplýsingar um Ísland,“ segir
Proscovia Svärd, verkefnisstjóri hjá Nordiska
Afrikainstitutet í Svíþjóð.
Svärd, sem hefur dvalið hér á landi und-
anfarna daga, segir fyrstu heimsókn sína í
október í fyrra ekki hafa bent til þess að um
auðugan garð yrði að gresja. Stutt dvöl í
Þjóðarbókhlöðunni leiddi ekki til stórra
funda. „En svo kom í ljós að maður varð að
þekkja betur til íslenskra fjölmiðla og hvaða
stjórnmálastraumum þeir fylgdu til að vita
hvar átti að leita,“ segir Svärd og kveður
vinstrisinnuð blöð hafa sýnt baráttunni gegn
aðskilnaðarstefnunni meiri áhuga en þau
hægrisinnuðu.
Mikil virkni
Með aðstoð fólks á borð við Jónínu Ein-
arsdóttur, prófessor í mannfræði við Háskóla
Íslands, og Margréti Einarsdóttur, verkefn-
isstjóra hjá Þróunarsamvinnustofnun, hafi
henni gengið mun betur að safna upplýs-
ingum en leit út í fyrstu. „Við viljum vita hvað
var að gerast í þessum málum á Íslandi, hvort
einhver mótmæli hafi átt sér stað og hvort
einhver gögn um baráttu Íslendinga gegn að-
skilnaðarstefnunni sé enn að finna.“
Hún segir marga hafa reynst hjálplegir og
viðtölin sem hún hafi átt við fólk frá því í
október í fyrra bendi til þess að slík gögn eigi
að leynast á landinu, þau hafi hins vegar e.t.v.
ekki ratað inn í atriðisorðaskrár skjalasafna
og það geri leitina óneitanlega erfiðari.
Nordiska Afrikainstitutet gegnir, auk rann-
sóknanna sem á vegum þess eru unnar, hlut-
verki skjala- og skráningarmiðstöðvar. Stofn-
unin vill því hafa sem ítarlegastar upplýsingar
um hvar rannaskendur og aðrir áhugasamir
geti leitað gagna á Norðurlöndunum.
Meðal þeirra sem Svärd hefur rætt við hér
á landi eru einstaklingar sem voru virkir í
baráttunni gegn aðskilnaðarstefnunni. „Það
var í raun mikið að gerast hér, til að mynda
meðal stúdenta, og ég tel gott fyrir þá sem
ungir eru í dag að sjá hvernig unga fólkið þá
tók þátt í baráttunni þrátt fyrir íhaldssemi
stjórnvalda.“
Stúdentar virkir í baráttunni
gegn aðskilnaðarstefnunni
Íslenskir fjölmiðlar sýndu bar-
áttunni gegn aðskilnaðarstefn-
unni í suðurhluta Afríku mis-
mikinn áhuga á sínum tíma,
allt eftir því hvaða stjórnmála-
straumum þeir fylgdu.
Þeir sem búa yfir upplýsingum um baráttu Ís-
lendinga gegn aðskilnaðarstefnunni geta
haft samband við Svärd á netfanginu prosco-
via.svart@nai.uu.se eða leitað sér frekari
upplýsinga á vefnum www.nai.uu.se. Mótmæli Viðskiptum Citibank í Bandaríkj-
unum við stjórnvöld í Suður-Afríku mótmælt.
Aðskilnaður Stoppistöð fyrir blökkumenn,
Asíubúa og aðra litaða.
Morgunblaðið/Heiddi
Proscovia Svärd Vill vita hversu virkir Íslendingar voru í baráttunni gegn aðskilnaðarstefnunni í suðurhluta Afríku á sínum tíma.