Morgunblaðið - 26.02.2009, Side 31
Minningar 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2009
sem kólfur loftið kljúfi
klárinn fer.
Og lund mín er svo létt,
eins og gæti eg gjörvallt lífið
geisað fram í einum sprett.
(Hannes Hafstein.)
Hinsta kveðja.
Hanna Valdís.
Eitt andartak stóð tíminn kyrr,
æddi síðan inn um glugga og dyr,
hreif burt vonir, reif upp rætur.
Einhvers staðar engill grætur.
Hvers vegna hér – menn spá og spyrja.
Spurningar flæða, hvar á að byrja?
Fólkið á þig kallar, Kristur,
kvölin nístir bræður og systur.
Tárin eru leið til að lækna undir
lífið er aðeins þessar stundir
Gangverk lífsins þau látlaust tifa
og við lærum með sorginni að lifa.
(Bubbi Morthens.)
Nú kveð ég þig, elsku frændi
minn, þó sárt það sé.
Þú munt alltaf verða í huga og
hjarta mér og mun minning þín
lifa í hesthúsunum alla tíð.
Þín frænka
Sif.
Laugardaginn 14. febrúar barst
mér sú fregn að kunningi minn og
samstarfsmaður til margra ára
væri látinn. Í bland við sorg og
söknuð blossaði upp reiði yfir
þessu óréttlæti almættisins þar
sem maður á besta aldri er hrifinn
burt frá fjölskyldu og vinum.
Garðar hóf störf í Blikksmiðj-
unni Vogi upp úr 1980 en kom síð-
an 1985 til starfa í Funa ehf. Kópa-
vogi, lauk þar sveinsprófi í
blikksmíði með ágætiseinkunn
enda listasmiður og starfaði þar
nær óslitið til ársins 2004 eða í nær
20 ár. Garðar bar ekki tilfinningar
sínar á torg og það tók tíma að
kynnast þessum hljóða manni sem
vann verk sín í hljóði og kærði sig
ekki um neitt ofurþakklæti eða
klapp að því loknu.
Frá árinu 1995 starfaði Garðar
sem aðstoðarverkstjóri og var einn
af lykilstarfsmönnum Funa og átti
stóran þátt í að laða viðskipavini að
fyrirtækinu með sinni hægu og lát-
lausu framkomu. Árið 2008 hóf
Garðar störf hjá Blikksmiðjunni
Vík í Kópavogi og þótti mönnum
þar mikill fengur að fá Garðar í sín-
ar raðir. Árið 1996 gekk Garðar í
gegnum mikla erfiðleika þegar
fyrri eiginkona hans og barnsmóð-
ir, Máney Kristjánsdóttir, lést og
stóð hann þá einn með tvö ung
börn, þau Rósu og Sigmund. Þrátt
fyrir það stóðst Garðar þessa raun
og náði að styðja og styrkja börn
sín tvö og búa þeim hlýlegt heimili.
Upp úr árinu 2001 hóf Garðar
sambúð með núverandi eiginkonu
sinni, Kristínu Ákadóttur, og ekki
fór á milli mála að Garðar hafði
fengið trú á lífið og tilveruna á ný
og aftur skein gleðiglampi úr aug-
um og styttra var í bros og glettni
sem var Garðari eðlileg í góðra
vina hópi. Garðar og Kristín
bjuggu sér heimili í Kópavogi og
eiga saman tvo börn, Hilmi Örn,
fimm ára, og Sylvíu Töru, fjögurra
ára.
Eitt helsta áhugamál Garðars
var hestamennska, sem hann hafði
stundað frá unga aldri, enda fædd-
ur og uppalinn í Dölunum þar sem
honum fannst sólin skína skærar
og náttúran hafði hinn eina sanna
ilm. Ef það er líf eftir þetta líf þar
sem almættið ræður ríkjum þá sé
ég Garðar vin minn í anda setja
undir sig hausinn þegar hann hittir
þá himnafeðga fyrsta sinni og ef-
laust hugsar hann þeim þegjandi
þörfina sem greip inn í tilveruna
með þessum hætti, því Garðar var
ekki búinn með það verk sem hafið
var hér á jörðu, hann var vanur að
klára það sem hann var byrjaður á.
Ég votta eiginkonu, börnum og
nánustu aðstandendum innilega
samúð og við vinir og félagar verð-
um að halda áfram að lifa með
minningu um góðan vin.
Kveðja,
Kolviður Helgason.
✝ Ragnar Jón Magn-ússon fv. flug-
vélstjóri fæddist að
Laugahvoli í Reykja-
vík 15. júlí 1932. Hann
varð bráðkvaddur í
Reykjavík 7. febrúar
síðastliðinn. Foreldrar
hans voru Magnús
Stefánsson frá Heið-
arseli í Hróarstungu,
fv. dyravörður í
Stjórnarráði Íslands,
f. 30. apríl 1891, d. 25.
maí 1982 og Arnbjörg
Jónsdóttir frá Gils-
árteigi í Eiðaþingi húsmóðir, f. 14.
nóvember 1895, d. 1. maí 1980. Jón,
eins og hann var ævinlega kallaður,
var ókvæntur og barnlaus en systk-
ini hans eru: 1) Guðbjörg, f. 16. 4.
1923, gift Benedikt Thorarensen,
fv. framkvæmdastjóra í Þorláks-
höfn, f. 1. 2. 1926, d. 26. 1. 2008. 2)
Anna María, f. 17. 1. 1925, gift Hans
Danielsen, framkvæmdastjóra hjá
skipadeild SÍS, f. 15. 11. 1920, d. 16.
9. 1977. Synir þeirra eru Ragnar og
Magnús. 3) Stefán flugstjóri, f. 26. 8.
1926, er fórst í flugslysi 18. 3. 1963,
kvæntur Svövu M. Þórðardóttur, f.
24. 8. 1929, d. 13. 9. 2007. Börn
þeirra eru Magnús Örn, Halla og
Þorleifur, en áður átti Stefán dótt-
urina Sigríði.
Jón ólst upp að Laugahvoli í
Laugarásnum í Reykjavík og sleit
þar barnsskónum. Að
loknum gagnfræða-
skóla 1949 vann hann
hjá Loftleiðum við
hleðslu, hreingern-
ingar og flug-
afgreiðslu til vorsins
1952 en þá hóf hann
störf á Keflavík-
urflugvelli hjá banda-
ríska hernum sem
lærlingur í flug-
virkjun. Frá desember
1952-53 er Jón við
nám í flugvirkjun hjá
Cal Aero Tech. Insti-
tute í Kaliforníu í Bandaríkjunum.
Var síðan við frekara nám og störf í
flugvirkjun á Sola flugvellinum í
Stafangri í Noregi á árunum 1954-
58. Árið 1957 vann hann einnig um
tíma við tæknideildina á flugvell-
inum í Hamborg. Hóf síðan störf hjá
Loftleiðum 1958, fyrst sem flugvirki
og svo sem flugvélstjóri á árunum
1959-1965 og aftur frá 1969 og um
árabil. Vann svo síðustu starfsár sín
sem flugvirki hjá Flugleiðum þar til
hann fór á eftirlaun 1999. Hann
stofnaði og rak ásamt Stefáni bróð-
ur sínum og öðrum flugfélagið Flug-
sýn á árunum 1960-70. Á eftirlauna-
aldri var Jón einnig meðeigandi í
flugfélaginu Jórvík á meðan það var
við lýði.
Útför Jóns fer fram frá Fossvogs-
kapellu í dag kl. 15.
Í barnsminningunni er Jón
frændi hár og fallegur og oftast á
ferðinni, enda dvaldi hann til
lengri og skemmri tíma erlendis
við nám og störf. Hann var einn af
þeim sem flugið heillaði kornung-
an og um það snerist síðan líf
hans, störf og áhugamál.
Hann var flugvirki og flugvél-
stjóri, vann við stórar vélar og
smáar í lofti og legi, hér heima og
úti í hinum stóra heimi. Þegar
hann var kominn úr einkennisbún-
ingnum eftir flug, búinn að hvíla
sig svolítið og snúast fyrir og með
afa og ömmu fór hann gjarnan í
vinnugallann og í bílskúrinn á
Laugarásveginum, sem var fullur
af flugvélapörtum og varahlutum,
eða út á flugvöll í eitthvert flug-
skýlið. Flugið færði mikla reynslu
og skemmtilegar stundir en líka
sorgir og missi nákomins bróður
og margra vina og samstarfs-
manna. En hann og fleiri misstu
aldrei trúna á möguleikana og
tækifærin, þótt þau brygðust
stundum og hefðu því miður líka í
för með sér tjón og erfiðan eigna-
missi.
En flugið var ekki eina áhuga-
mál Jóns. Hann var grúskari og
áhugamaður um ættfræði og þjóð-
legan fróðleik. Þeim áhuga deildi
hann með föður sínum og afa mín-
um og hélt áfram vinnu hans við
að safna upplýsingum m.a. um ætt
okkar og uppruna. Þeim miðlaði
hann og fylgdist vel með ættmenn-
um nær og fjær. Frá ömmu tók
hann líka í arf þekkingu og áhuga
á náttúrunni t.d. á jurtum og
lækningamætti þeirra.
Vinátta Jóns og foreldra hans
var einkennandi fyrir hann og um-
hyggja hans og umönnun þegar
aldurinn færðist yfir var einstök
og verður aldrei fullþökkuð. Þess-
arar umhyggju fengu systur hans
og við fleiri úr fjölskyldunni einnig
að njóta. Í minni fjölskyldu var t.d.
jólapakkanna frá Jóni frænda allt-
af beðið með eftirvæntingu þegar
börnin voru yngri. Það var gjarn-
an hringt af flugvellinum á Ak-
ureyri á aðfangadagsmorgun og
sagt að þar biði pakki, stundum
náðu þeir ekki fyrr en milli jóla og
nýárs en það var allt í lagi. Úr
pökkunum komu spennandi hlutir
– leikföng, nýjasta tækni og föt frá
Ameríku eða framandi hlutir frá
Asíu eða öðrum stöðum sem leið
hafði legið um.
Á 75 ára afmælinu kom hann í
heimsókn norður og við létum
verða af því að fara í ferð út í
Fjörður, þangað hafði hann rakið
búsetu konu úr ættinni og lesið
síðan um þessa eyðibyggð sem
hann langaði að koma í og sjá með
eigin augum. Þessi ferð varð
skemmtileg og eftirminnileg fyrir
hann og okkur.
Síðustu árin bjó Jón á Vest-
urgötunni, naut þess að vera í
tengslum við miðborgina og lífið
þar, hafði mikla ánægju af sam-
verustundum gamalla vina og sam-
starfsmanna, fór fótgangandi
flestra sinna ferða, stundaði sund,
borðaði með skemmtilegum fé-
lögum, fór á spænskunámskeið,
byrjaði að syngja í kór, lærði á
tölvu og tölvupóst, setti saman
minningabrot úr ferðum til fram-
andi landa og minntist þar látinna
félaga. Hann sótti ýmsa menning-
arviðburði og mætti líka á flesta
mótmælafundina sem haldnir voru
á Austurvelli í vetur. Heima hlust-
aði hann á tónlist af gömlu plöt-
unum sínum og grúskaði áfram.
Við Erlingur og krakkarnir okk-
ar minnumst Jóns með hlýju og
þökkum góða samfylgd.
Sigríður Stefánsdóttir.
Í huga fimm ára drengs voru
flugvélar merkilegt fyrirbæri.
Ekki síður var spennandi að eiga
frænda sem vann um borð í slíku
farartæki og sá um það að hreyflar
þess snérust snurðulaust. Jón
frændi flaug til framandi landa og
kom heim með sögur af ferðum
sínum og sýn á aðra menningar-
heima. Oft kom hann færandi
hendi með pakka til að gleðja lít-
inn dreng. Eitt sinn kom hann með
stóran kassa og í honum leyndist
furðu nákvæm eftirlíking af alvöru
flugvél. Þegar henni var rennt eft-
ir stofugólfinu snérust fjórir
hreyflar svo hvein í. Eftir nokkra
daga þoldi vélin þó ekki álagið í
leik snáðans og hreyflarnir hættu
að snúast. Þá var heppilegt að
geta farið með hana í viðgerð til
frænda sem skrúfaði hana sundur
og tengdi saman lausa gorma svo
vélin varð aftur flughæf.
Í mörg ár var það hluti af tilver-
unni að fylgjast með flugferðum
Jóns frænda og því sem á daga
hans dreif. Hann var jafnan léttur
í lund og sá oft skoplegu hliðarnar
á tilverunni. Hann hafði mikinn
áhuga á tónlist og gott tóneyra.
Dag einn kom hann úr flugferð
með forláta grammófónplötu og af
henni glumdi grípandi tónlist.
Þetta voru fyrstu kynni mín af
Bítlunum. Áður hafði Jón veitt
mér innsýn í heim jazzins og tón-
list snillinga eins og Louis Arms-
trong, Ellu Fitzgerald, Fats Wall-
er og fleiri. Frá ferðum sínum átti
hann sjálfur ljúfar minningar frá
því að hafa heyrt og séð marga
þekktustu jazztónlistarmenn sam-
tímans spila.
Á samdráttarskeiði í flugrekstri
hérlendis störfuðu Jón og nokkrir
Íslendingar árið 1980 fyrir tyrk-
neskt flugfélag í Istanbúl og bauð
hann mér að heimsækja sig.
Dvaldi ég í góðu yfirlæti hjá hon-
um í tíu daga. Jón var árrisull,
spratt á fætur, hitaði kaffi, skund-
aði út í nærliggjandi bakarí og
kom að vörmu spori til baka með
glóðvolgt bakkelsi sem við snædd-
um í morgunsólinni. Saman skoð-
uðum við borgina og menningararf
hennar og reyndist þetta ógleym-
anleg ferð.
Upp úr 1956 byggðu foreldrar
mínir, afi, amma og Jón þríbýlis-
hús á lóð gamla Laugahvols við
Laugarásveg. Þarna bjuggu þrjár
kynslóðir í mikilli samheldni öll
mín uppvaxtarár. Þegar afi og
amma tóku að reskjast annaðist
Jón þau af mikilli ósérhlífni og
væntumþykju. Hann var barngóð-
ur og þegar ég sjáfur eignaðist
börn fylgdist hann af áhuga og
umhyggju með því er þau þrosk-
uðust og uxu úr grasi.
Brennandi áhugi Jóns á flug-
málum færði honum á lífsleiðinni
mikla ánægju en einnig sorg og
fjárhagsvandræði. Hann fór ásamt
öðrum oftar en einu sinni út í flug-
rekstur er ekki reyndist alltaf
gæfuríkur. Í þeim erfiðleikum
sýndi Jón oft mikið æðruleysi og
þegar sem mest á móti blés brá
hann stundum fyrir sig húmornum
til að halda sjó. Eftir erfið ár sem
reyndu mjög á hann var ánægju-
legt að sjá að undanfarið var hann
aftur farinn að gleðjast yfir tilver-
unni, var virkur í félagslífi með
vinum sínum og söng í kór sér til
ánægju.
Kallið kom skjótt en ekki alveg
óvænt, hann hafði í nokkur ár átt
við heilsubrest að stríða. Ég kveð
Jón frænda minn og mun varðveita
þær góðu minningar sem ég á um
hann.
Ragnar Danielsen.
Ragnar Jón
Magnússon
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og
bróðir,
HILMAR ÁRNI RAGNARSSON,
verður jarðsunginn frá Fíladelfíu, Hátúni 2
föstudaginn 27. febrúar kl. 11.00.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en
þeim sem vilja minnast hans er bent á
fjölskyldusjóð, 525-14-401020 kt. 250155-7519.
Guðrún Langfeldt,
Ragnar Viktor Hilmarsson, Hallfríður Snorradóttir,
Vilhjálmur Árni Hilmarsson,
Jóhannes Ívar Hilmarsson,
Dórothea Ruth Hilmarsdóttir,
Elísabet Olga Hilmarsdóttir,
Hilmar Elis Ragnarsson,
Guðni Kolbeinsson, Lilja Bergsteinsdóttir,
Ingveldur Ragnarsdóttir, Guðmundur Theodórsson,
Stefanía Beutel, Bernd Beutel,
Sigurður Ragnarsson, Júlíana Grigorova.
✝
Okkar innilegustu þakkir til þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs föður,
tengdaföður, afa og langafa,
SNÆBJARNAR ÁRMANNS BJÖRNSSONAR
fyrrverandi bónda á Nolli,
Grenilundi,
Grenivík.
Kærar þakkir færum við starfsfólki Grenilundar á
Grenivík.
Björn Snæbjörnsson, Magga Kristín Björnsdóttir,
Sigurbjörg Snæbjörnsdóttir,
Stefán Sigurður Snæbjörnsson, Súsanna Poulsen,
Kristinn Snæbjörnsson, Kristín Sigurbjörg Jóhannsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Okkar ástkæra
MARGRÉT GUÐMUNDSDÓTTIR
fyrrverandi matráðskona,
Arahólum 4,
Reykjavík,
sem andaðist á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ
miðvikudaginn 18. febrúar, verður jarðsungin frá
Fella- og Hólakirkju föstudaginn 27. febrúar
kl. 13.00.
Ingibjörg Sigvaldadóttir,
Þórunn Magnúsdóttir,
Kristján Gissurarson.