Morgunblaðið - 26.02.2009, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 26.02.2009, Qupperneq 31
Minningar 31 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2009 sem kólfur loftið kljúfi klárinn fer. Og lund mín er svo létt, eins og gæti eg gjörvallt lífið geisað fram í einum sprett. (Hannes Hafstein.) Hinsta kveðja. Hanna Valdís. Eitt andartak stóð tíminn kyrr, æddi síðan inn um glugga og dyr, hreif burt vonir, reif upp rætur. Einhvers staðar engill grætur. Hvers vegna hér – menn spá og spyrja. Spurningar flæða, hvar á að byrja? Fólkið á þig kallar, Kristur, kvölin nístir bræður og systur. Tárin eru leið til að lækna undir lífið er aðeins þessar stundir Gangverk lífsins þau látlaust tifa og við lærum með sorginni að lifa. (Bubbi Morthens.) Nú kveð ég þig, elsku frændi minn, þó sárt það sé. Þú munt alltaf verða í huga og hjarta mér og mun minning þín lifa í hesthúsunum alla tíð. Þín frænka Sif. Laugardaginn 14. febrúar barst mér sú fregn að kunningi minn og samstarfsmaður til margra ára væri látinn. Í bland við sorg og söknuð blossaði upp reiði yfir þessu óréttlæti almættisins þar sem maður á besta aldri er hrifinn burt frá fjölskyldu og vinum. Garðar hóf störf í Blikksmiðj- unni Vogi upp úr 1980 en kom síð- an 1985 til starfa í Funa ehf. Kópa- vogi, lauk þar sveinsprófi í blikksmíði með ágætiseinkunn enda listasmiður og starfaði þar nær óslitið til ársins 2004 eða í nær 20 ár. Garðar bar ekki tilfinningar sínar á torg og það tók tíma að kynnast þessum hljóða manni sem vann verk sín í hljóði og kærði sig ekki um neitt ofurþakklæti eða klapp að því loknu. Frá árinu 1995 starfaði Garðar sem aðstoðarverkstjóri og var einn af lykilstarfsmönnum Funa og átti stóran þátt í að laða viðskipavini að fyrirtækinu með sinni hægu og lát- lausu framkomu. Árið 2008 hóf Garðar störf hjá Blikksmiðjunni Vík í Kópavogi og þótti mönnum þar mikill fengur að fá Garðar í sín- ar raðir. Árið 1996 gekk Garðar í gegnum mikla erfiðleika þegar fyrri eiginkona hans og barnsmóð- ir, Máney Kristjánsdóttir, lést og stóð hann þá einn með tvö ung börn, þau Rósu og Sigmund. Þrátt fyrir það stóðst Garðar þessa raun og náði að styðja og styrkja börn sín tvö og búa þeim hlýlegt heimili. Upp úr árinu 2001 hóf Garðar sambúð með núverandi eiginkonu sinni, Kristínu Ákadóttur, og ekki fór á milli mála að Garðar hafði fengið trú á lífið og tilveruna á ný og aftur skein gleðiglampi úr aug- um og styttra var í bros og glettni sem var Garðari eðlileg í góðra vina hópi. Garðar og Kristín bjuggu sér heimili í Kópavogi og eiga saman tvo börn, Hilmi Örn, fimm ára, og Sylvíu Töru, fjögurra ára. Eitt helsta áhugamál Garðars var hestamennska, sem hann hafði stundað frá unga aldri, enda fædd- ur og uppalinn í Dölunum þar sem honum fannst sólin skína skærar og náttúran hafði hinn eina sanna ilm. Ef það er líf eftir þetta líf þar sem almættið ræður ríkjum þá sé ég Garðar vin minn í anda setja undir sig hausinn þegar hann hittir þá himnafeðga fyrsta sinni og ef- laust hugsar hann þeim þegjandi þörfina sem greip inn í tilveruna með þessum hætti, því Garðar var ekki búinn með það verk sem hafið var hér á jörðu, hann var vanur að klára það sem hann var byrjaður á. Ég votta eiginkonu, börnum og nánustu aðstandendum innilega samúð og við vinir og félagar verð- um að halda áfram að lifa með minningu um góðan vin. Kveðja, Kolviður Helgason. ✝ Ragnar Jón Magn-ússon fv. flug- vélstjóri fæddist að Laugahvoli í Reykja- vík 15. júlí 1932. Hann varð bráðkvaddur í Reykjavík 7. febrúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru Magnús Stefánsson frá Heið- arseli í Hróarstungu, fv. dyravörður í Stjórnarráði Íslands, f. 30. apríl 1891, d. 25. maí 1982 og Arnbjörg Jónsdóttir frá Gils- árteigi í Eiðaþingi húsmóðir, f. 14. nóvember 1895, d. 1. maí 1980. Jón, eins og hann var ævinlega kallaður, var ókvæntur og barnlaus en systk- ini hans eru: 1) Guðbjörg, f. 16. 4. 1923, gift Benedikt Thorarensen, fv. framkvæmdastjóra í Þorláks- höfn, f. 1. 2. 1926, d. 26. 1. 2008. 2) Anna María, f. 17. 1. 1925, gift Hans Danielsen, framkvæmdastjóra hjá skipadeild SÍS, f. 15. 11. 1920, d. 16. 9. 1977. Synir þeirra eru Ragnar og Magnús. 3) Stefán flugstjóri, f. 26. 8. 1926, er fórst í flugslysi 18. 3. 1963, kvæntur Svövu M. Þórðardóttur, f. 24. 8. 1929, d. 13. 9. 2007. Börn þeirra eru Magnús Örn, Halla og Þorleifur, en áður átti Stefán dótt- urina Sigríði. Jón ólst upp að Laugahvoli í Laugarásnum í Reykjavík og sleit þar barnsskónum. Að loknum gagnfræða- skóla 1949 vann hann hjá Loftleiðum við hleðslu, hreingern- ingar og flug- afgreiðslu til vorsins 1952 en þá hóf hann störf á Keflavík- urflugvelli hjá banda- ríska hernum sem lærlingur í flug- virkjun. Frá desember 1952-53 er Jón við nám í flugvirkjun hjá Cal Aero Tech. Insti- tute í Kaliforníu í Bandaríkjunum. Var síðan við frekara nám og störf í flugvirkjun á Sola flugvellinum í Stafangri í Noregi á árunum 1954- 58. Árið 1957 vann hann einnig um tíma við tæknideildina á flugvell- inum í Hamborg. Hóf síðan störf hjá Loftleiðum 1958, fyrst sem flugvirki og svo sem flugvélstjóri á árunum 1959-1965 og aftur frá 1969 og um árabil. Vann svo síðustu starfsár sín sem flugvirki hjá Flugleiðum þar til hann fór á eftirlaun 1999. Hann stofnaði og rak ásamt Stefáni bróð- ur sínum og öðrum flugfélagið Flug- sýn á árunum 1960-70. Á eftirlauna- aldri var Jón einnig meðeigandi í flugfélaginu Jórvík á meðan það var við lýði. Útför Jóns fer fram frá Fossvogs- kapellu í dag kl. 15. Í barnsminningunni er Jón frændi hár og fallegur og oftast á ferðinni, enda dvaldi hann til lengri og skemmri tíma erlendis við nám og störf. Hann var einn af þeim sem flugið heillaði kornung- an og um það snerist síðan líf hans, störf og áhugamál. Hann var flugvirki og flugvél- stjóri, vann við stórar vélar og smáar í lofti og legi, hér heima og úti í hinum stóra heimi. Þegar hann var kominn úr einkennisbún- ingnum eftir flug, búinn að hvíla sig svolítið og snúast fyrir og með afa og ömmu fór hann gjarnan í vinnugallann og í bílskúrinn á Laugarásveginum, sem var fullur af flugvélapörtum og varahlutum, eða út á flugvöll í eitthvert flug- skýlið. Flugið færði mikla reynslu og skemmtilegar stundir en líka sorgir og missi nákomins bróður og margra vina og samstarfs- manna. En hann og fleiri misstu aldrei trúna á möguleikana og tækifærin, þótt þau brygðust stundum og hefðu því miður líka í för með sér tjón og erfiðan eigna- missi. En flugið var ekki eina áhuga- mál Jóns. Hann var grúskari og áhugamaður um ættfræði og þjóð- legan fróðleik. Þeim áhuga deildi hann með föður sínum og afa mín- um og hélt áfram vinnu hans við að safna upplýsingum m.a. um ætt okkar og uppruna. Þeim miðlaði hann og fylgdist vel með ættmenn- um nær og fjær. Frá ömmu tók hann líka í arf þekkingu og áhuga á náttúrunni t.d. á jurtum og lækningamætti þeirra. Vinátta Jóns og foreldra hans var einkennandi fyrir hann og um- hyggja hans og umönnun þegar aldurinn færðist yfir var einstök og verður aldrei fullþökkuð. Þess- arar umhyggju fengu systur hans og við fleiri úr fjölskyldunni einnig að njóta. Í minni fjölskyldu var t.d. jólapakkanna frá Jóni frænda allt- af beðið með eftirvæntingu þegar börnin voru yngri. Það var gjarn- an hringt af flugvellinum á Ak- ureyri á aðfangadagsmorgun og sagt að þar biði pakki, stundum náðu þeir ekki fyrr en milli jóla og nýárs en það var allt í lagi. Úr pökkunum komu spennandi hlutir – leikföng, nýjasta tækni og föt frá Ameríku eða framandi hlutir frá Asíu eða öðrum stöðum sem leið hafði legið um. Á 75 ára afmælinu kom hann í heimsókn norður og við létum verða af því að fara í ferð út í Fjörður, þangað hafði hann rakið búsetu konu úr ættinni og lesið síðan um þessa eyðibyggð sem hann langaði að koma í og sjá með eigin augum. Þessi ferð varð skemmtileg og eftirminnileg fyrir hann og okkur. Síðustu árin bjó Jón á Vest- urgötunni, naut þess að vera í tengslum við miðborgina og lífið þar, hafði mikla ánægju af sam- verustundum gamalla vina og sam- starfsmanna, fór fótgangandi flestra sinna ferða, stundaði sund, borðaði með skemmtilegum fé- lögum, fór á spænskunámskeið, byrjaði að syngja í kór, lærði á tölvu og tölvupóst, setti saman minningabrot úr ferðum til fram- andi landa og minntist þar látinna félaga. Hann sótti ýmsa menning- arviðburði og mætti líka á flesta mótmælafundina sem haldnir voru á Austurvelli í vetur. Heima hlust- aði hann á tónlist af gömlu plöt- unum sínum og grúskaði áfram. Við Erlingur og krakkarnir okk- ar minnumst Jóns með hlýju og þökkum góða samfylgd. Sigríður Stefánsdóttir. Í huga fimm ára drengs voru flugvélar merkilegt fyrirbæri. Ekki síður var spennandi að eiga frænda sem vann um borð í slíku farartæki og sá um það að hreyflar þess snérust snurðulaust. Jón frændi flaug til framandi landa og kom heim með sögur af ferðum sínum og sýn á aðra menningar- heima. Oft kom hann færandi hendi með pakka til að gleðja lít- inn dreng. Eitt sinn kom hann með stóran kassa og í honum leyndist furðu nákvæm eftirlíking af alvöru flugvél. Þegar henni var rennt eft- ir stofugólfinu snérust fjórir hreyflar svo hvein í. Eftir nokkra daga þoldi vélin þó ekki álagið í leik snáðans og hreyflarnir hættu að snúast. Þá var heppilegt að geta farið með hana í viðgerð til frænda sem skrúfaði hana sundur og tengdi saman lausa gorma svo vélin varð aftur flughæf. Í mörg ár var það hluti af tilver- unni að fylgjast með flugferðum Jóns frænda og því sem á daga hans dreif. Hann var jafnan léttur í lund og sá oft skoplegu hliðarnar á tilverunni. Hann hafði mikinn áhuga á tónlist og gott tóneyra. Dag einn kom hann úr flugferð með forláta grammófónplötu og af henni glumdi grípandi tónlist. Þetta voru fyrstu kynni mín af Bítlunum. Áður hafði Jón veitt mér innsýn í heim jazzins og tón- list snillinga eins og Louis Arms- trong, Ellu Fitzgerald, Fats Wall- er og fleiri. Frá ferðum sínum átti hann sjálfur ljúfar minningar frá því að hafa heyrt og séð marga þekktustu jazztónlistarmenn sam- tímans spila. Á samdráttarskeiði í flugrekstri hérlendis störfuðu Jón og nokkrir Íslendingar árið 1980 fyrir tyrk- neskt flugfélag í Istanbúl og bauð hann mér að heimsækja sig. Dvaldi ég í góðu yfirlæti hjá hon- um í tíu daga. Jón var árrisull, spratt á fætur, hitaði kaffi, skund- aði út í nærliggjandi bakarí og kom að vörmu spori til baka með glóðvolgt bakkelsi sem við snædd- um í morgunsólinni. Saman skoð- uðum við borgina og menningararf hennar og reyndist þetta ógleym- anleg ferð. Upp úr 1956 byggðu foreldrar mínir, afi, amma og Jón þríbýlis- hús á lóð gamla Laugahvols við Laugarásveg. Þarna bjuggu þrjár kynslóðir í mikilli samheldni öll mín uppvaxtarár. Þegar afi og amma tóku að reskjast annaðist Jón þau af mikilli ósérhlífni og væntumþykju. Hann var barngóð- ur og þegar ég sjáfur eignaðist börn fylgdist hann af áhuga og umhyggju með því er þau þrosk- uðust og uxu úr grasi. Brennandi áhugi Jóns á flug- málum færði honum á lífsleiðinni mikla ánægju en einnig sorg og fjárhagsvandræði. Hann fór ásamt öðrum oftar en einu sinni út í flug- rekstur er ekki reyndist alltaf gæfuríkur. Í þeim erfiðleikum sýndi Jón oft mikið æðruleysi og þegar sem mest á móti blés brá hann stundum fyrir sig húmornum til að halda sjó. Eftir erfið ár sem reyndu mjög á hann var ánægju- legt að sjá að undanfarið var hann aftur farinn að gleðjast yfir tilver- unni, var virkur í félagslífi með vinum sínum og söng í kór sér til ánægju. Kallið kom skjótt en ekki alveg óvænt, hann hafði í nokkur ár átt við heilsubrest að stríða. Ég kveð Jón frænda minn og mun varðveita þær góðu minningar sem ég á um hann. Ragnar Danielsen. Ragnar Jón Magnússon ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og bróðir, HILMAR ÁRNI RAGNARSSON, verður jarðsunginn frá Fíladelfíu, Hátúni 2 föstudaginn 27. febrúar kl. 11.00. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á fjölskyldusjóð, 525-14-401020 kt. 250155-7519. Guðrún Langfeldt, Ragnar Viktor Hilmarsson, Hallfríður Snorradóttir, Vilhjálmur Árni Hilmarsson, Jóhannes Ívar Hilmarsson, Dórothea Ruth Hilmarsdóttir, Elísabet Olga Hilmarsdóttir, Hilmar Elis Ragnarsson, Guðni Kolbeinsson, Lilja Bergsteinsdóttir, Ingveldur Ragnarsdóttir, Guðmundur Theodórsson, Stefanía Beutel, Bernd Beutel, Sigurður Ragnarsson, Júlíana Grigorova. ✝ Okkar innilegustu þakkir til þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs föður, tengdaföður, afa og langafa, SNÆBJARNAR ÁRMANNS BJÖRNSSONAR fyrrverandi bónda á Nolli, Grenilundi, Grenivík. Kærar þakkir færum við starfsfólki Grenilundar á Grenivík. Björn Snæbjörnsson, Magga Kristín Björnsdóttir, Sigurbjörg Snæbjörnsdóttir, Stefán Sigurður Snæbjörnsson, Súsanna Poulsen, Kristinn Snæbjörnsson, Kristín Sigurbjörg Jóhannsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Okkar ástkæra MARGRÉT GUÐMUNDSDÓTTIR fyrrverandi matráðskona, Arahólum 4, Reykjavík, sem andaðist á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ miðvikudaginn 18. febrúar, verður jarðsungin frá Fella- og Hólakirkju föstudaginn 27. febrúar kl. 13.00. Ingibjörg Sigvaldadóttir, Þórunn Magnúsdóttir, Kristján Gissurarson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.