Morgunblaðið - 26.02.2009, Síða 40
40 MenningFÓLK
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2009
Fólk
BANDARÍSKA hljómsveitin Brian Jonestown
Massacre, sem rekin hefur verið með síbreyttri
mannaskipan af hinum litríka tónlistarmanni
Anton Newcombe, hljóðritar nú nýtt efni í Sýr-
landi. Newcombe hefur nokkrum sinnum komið
hingað til lands eftir að hann vingaðist við liðs-
menn Singapore Sling. Hann virðist hrifinn af
ungu íslensku tónlistarfólki því á síðustu breið-
skífu sinni leitaði hann einmitt á náðir liðsmanna
Jakobínarínu og Singapore Sling til þess að leika
tónlist sína. Um helgina gerði hann svo boð eftir
Baldvini Frey Þorsteinssyni, ungum gítarleikara
rokksveitarinnar Lightspeed Legend, en nafn
sveitar hans er lýsandi þar sem hann er sagður
geta leikið á gítar sinn á ljóshraða. Pilturinn var
fenginn sérstaklega til þess að leika gítarsóló í
einu lagi Brian Jonestown Massacre sem hann
afgreiddi á augabragði.
„Aron upptökustjóri hringdi í mig og bað mig
að mæta,“ segir Baldvin, sem segist ekkert hafa
orðið var við þá stjörnutakta sem gerðu Anton
frægan í heimildarmyndinni Dig sem gerð var
um sveit hans og Dandys Warhols. „Þetta var
mjög frjálst, hann rápaði inn og út úr klefanum,
brosti og reyndi að lýsa því hvað ég ætti að gera.
Sagði mér hvaða nótum ég ætti að halda lengur
og svoleiðis. Þetta tók eina kvöldstund og ég lék
nokkrar tökur yfir lagið.“
Hljómsveit Baldvins leitar nú að söngvara.
Áhugasömum er bent á að hlusta á lögin ósungin
á myspace.com/lightspeedlegend.
biggi@mbl.is
Anton Newcombe leitar á náðir gítarhetju
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gítarhetja Baldvin Freyr er sagður skjótari en
skugginn að spila gítarsólóin.
Þórhallur Gunnarsson, ritstjóri
Kastljóss, viðurkenndi í viðtali við
DV að hann hefði gert mistök í inn-
gangi að viðtalinu sem Sigmar Guð-
mundsson tók við Davíð Oddsson
seðlabankastjóra í fyrrakvöld. Þór-
hallur sagði þá að Davíð hefði þrá-
faldlega neitað að yfirgefa Seðla-
bankann en þetta leiðrétti Davíð í
viðtalinu og sagðist aðeins hafa
gert það einu sinni í bréfi til Jó-
hönnu Sigurðardóttur forsætisráð-
herra.
Þórhallur gerðist þarna sekur
um nokkuð sem æ oftar sést í fjöl-
miðlum á Íslandi þar sem atburðir
og hlutir eru ýktir úr hófi fram,
væntanlega með það í huga að auka
áhuga fólks á efninu. Þessi tilhneig-
ing á upptök sín í auglýsingaiðn-
aðinum eins og svo margt annað og
er hvað algengust í kvikmyndaaug-
lýsingum nú til dags þar sem kvik-
myndir og leikarar eru mærð án
þess að nokkur innstæða sé fyrir of-
lofinu.
Nærtækasta dæmið er auglýsing
sem nú gengur í sjónvarpinu þar
sem nýjasta kvikmynd Clints
Eastwoods, Gran Torino, er sögð
margverðlaunuð.
Myndin hefur hlotið ein verðlaun.
Þau fékk Eastwood fyrir leik í aðal-
hlutverki af hendi Landssambands
kvikmyndagagnrýnenda í Banda-
ríkjunum.
Þegar meira verður
að einhverju minna!
Fyrsta tölublað nýs tímarits an-
arkista á Íslandi er komið út. Tíma-
ritið kallast Svartur Svanur og eins
og segir í fréttatilkynningu sem að-
standendur tímaritsins sendu til
vefritsins Nei hefur það verið gam-
all draumur anarkista á Íslandi að
standa að útgáfu tímarits sem þessa
en ekki orðið af því fyrr en nú.
Oft hefur verið gert grín að
þeirri mótsögn sem felst í því að an-
arkistar bindist samtökum en nú
bíður aðstandendum tímaritsins
jafnvel enn stærra vandamál. Munu
anarkískir blaðamenn tímaritsins
lúta valdi ritstjórans?
Anarkistar ráðast í
tímaritaútgáfu
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
PETE Rock er einn af sigldustu
hipphopp-listamönnum Austur-
strandarrappsins og líka einn sá
fjölhæfasti, jafnvígur á rappið,
endurhljóðblandanir, upp-
tökutækni og skífuþeytingar. Hann
lék mikilvæga rullu í þróun djass-
rappsins ásamt m.a. A Tribe Cal-
led Quest og Gang Starr og með-
fram öllu þessu hefur hann keyrt
sólóferil en nýjasta platan, NY’s fi-
nest, kom út í fyrra.
Á mínar keðjur og
mína hringa
Á plötunni koma við sögu margir
góðrapparar frá heimaborg Rocks,
New York, m.a. nokkrir meðlimir
úr Wu-Tang Clan. Rock segir
blaðamanni að það séu sosum hæg
heimatökin í þeim efnum.
„Maður á greiða inni hjá fjöl-
mörgum og þess vegna getur mað-
ur leyft sér að raða í kringum sig
draumasamstarfsmönnum þegar
maður leggur í sólóplöturnar. Það
er frábært að búa að því.“
Rock viðurkennir að hann muni
tímana tvenna í hipphopp-
menningu Bandaríkjanna, einkum
Austurstrandarinnar. Þróunin hafi
verið frá fremur einföldu, hörðu
rappi yfir í markaðsvænt gling-
urrapp og hann hafi ekkert farið
varhluta af því sjálfur.
„Ég á mínar keðjur og mína
hringa,“ segir hann og hlær. „Þetta
fylgir starfseminni mætti segja.“
Rígur er eyðileggjandi
Aðspurður hvort hann hafi aldrei
langað til að einbeita sér að einum
þætti í hipphoppinu, frekar en að
vera með puttana í svona mörgum,
segir hann að sér hafi aldrei dottið
slíkt í hug.
„Svona er mín aðkoma að þessu,
svo einfalt er það. Þetta er það
sem ég geri. Einhvern veginn
greip ég í það sem mér bauðst á
sínum tíma og finnst einn þáttur
ekkert meira „spennandi“ en ann-
ar, þannig séð. En allt snýst þetta
á endanum um að skapa tónlist.“
Með svona mann á línunni er
ekki annað hægt en að dúndra á
hann klassískri djúpsjávarspurn-
ingu, þ.e. spyrja hann um muninn
og togstreituna á milli Austur- og
Vesturstrandarrappsins. Rock ger-
ir lítið úr slíku, og segir þetta fjöl-
miðlaspuna fyrst og fremst.
(Hlær) „Þetta kemur aðallega
frá mönnum eins og þér! Góð tón-
list er góð tónlist. Þegar ég var í
útvarpinu í gamla daga spilaði ég
aðallega rapp frá Vesturströnd-
inni! Sérstaklega Dr. Dre. Mín
regla var einföld; ef platan var góð
var hún spiluð, ef ekki … nú þá
ekki. Svona rígur er eyðandi fyrst
og fremst. Þetta eyðileggur
skemmtunina. Ég meina, fólk hef-
ur dáið út af þessu. Hversu mikið
vit er í því?“
Afmælisveisla Kronik fer fram á
Club 101 næsta laugardag, en miða
má nálgast í gegnum midi.is.
Mikils háttar maður
Goðsögnin Pete Rock kemur fram á fimmtán ára afmæli hipphopp-þáttarins
Kronik Hinir frónversku Forgotten Lores, Dj Intro og Dj B-ruff hita upp
Goðsögn Pete Rock hefur sett mark sitt rækilega á hipphoppið og hefur
m.a. verið gerður ódauðlegur af graff-listamönnum.
Eftir Birgi Örn Steinarsson
biggi@mbl.is
UNDANFARNAR tvær vikur hafa
sex útskriftarnemendur úr LHÍ, auk
tveggja gestanemenda frá Valand í
Gautaborg, dvalið á Seyðisfirði til
þess að verða fyrir áhrifum frá fólki
og umhverfi bæjarins. Á morgun
verður svo opnuð sýning á þeim
listaverkum sem orðið hafa til með-
an á dvölinni hefur staðið en hún
hefur hlotið nafngiftina löngu
(Listaháskólaseyðisfjarðarbókabúð-
arvinnustofulykla)-Kippuhringur.
„Sýningin er í kjölfar námskeiðs
sem þessir listnemar hafa sótt hér,
en þetta er samvinnuverkefni milli
LHÍ og Dieter Roth-akademíunn-
ar,“ útskýrir Þórunn Eymunds-
dóttir, framkvæmdastjóri Skaftfells,
þar sem sýningin verður opnuð kl.
16.
Hópurinn hefur búið saman allan
tímann og fengið að kynnast vinnu-
stofum og því listafólki sem er á
staðnum. Hópurinn mætti al-
gjörlega óundirbúinn og öll verkin á
sýningunni eru unnin á Seyðisfirði.
„Hughrifin sem þau verða fyrir hér
á staðnum verða mjög mikill hluti af
verkum þeirra. Þau eru mörg að
vinna með eitthvað sem þau upplifðu
hér á staðnum, hvort sem það teng-
ist fólki sem þau hafa kynnst hér eða
gömlum þjóðsögum, náttúrunni eða
bara húsum bæjarins. Bærinn er
rauði þráðurinn í verkum þeirra.“
Listamennirnir ungu eru Bergdís
Hörn Guðvarðardóttir, Erla Silfa
Hordvik Þorgrímsdóttir, Haraldur
Sigmundsson, Kolbrún Ýr Ein-
arsdóttir, Malina Cailean, Marie Lo-
uise Andersson, Steven Ladouceur
og Una Baldvinsdóttir.
Listnemar verða fyrir
hughrifum á Seyðisfirði
Unglist á Seyðisfirði Hópurinn er orðinn mjög samheldinn.
Ungir listnemar opna samsýningu á Seyðisfirði á morgun
Pete Rock hefur unnið með
fjölda stórstjarna í hipphoppi
og hefur lagt til margháttaða
krafta. Hann stýrði m.a. upp-
töku á Run DMC, Nas, House of
Pain, Busta Rhymes og DJ Jazzy
Jeff & The Fresh Prince. Þá hef-
ur hann endurhljóðblandað fyrir
Mary J Blige, Public Enemy og
Black Eyed Peas. Hann vann ná-
ið að sólóferli Rakim, upptök-
ustýrði taktkjaftinum Rahzel og
tók meira að segja upp plötu
með reggígoðsögninni Jimmy
Cliff. Svo eitthvað sé nefnt …
Unnið með öllum