Morgunblaðið - 27.03.2009, Blaðsíða 1
„FÁTT er […] mikilvægara um þessar mundir, sama hvaða flokki menn til-
heyra, sama í hvaða pólitísku hugsjón menn finna hugmyndum sínum far-
veg, en að rísa nú upp úr pólitískum skotgröfum og sameinast um þau mál
sem mestu skipta: Að tryggja hér til skamms tíma og langs öflugt atvinnu-
líf, blómlega búsetu og góð lífskjör,“ sagði Geir H. Haarde í setningarræðu
sinni á 38. landsfundi Sjálfstæðisflokksins í Laugardalshöll í gærkvöldi.
Geir fjallaði ítarlega um aðdraganda þess að bankarnir þrír, Landsbank-
inn, Glitnir og Kaupþing, hrundu í október í fyrra. Hann baðst afsökunar á
því að mistök hefðu verið gerð við einkavæðingu á bönkunum þar sem
dreifð eignaraðild hefði ekki verið tryggð. | 14
Baðst afsökunar á
mistökum við einkavæðingu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
F Ö S T U D A G U R 2 7. M A R S 2 0 0 9
STOFNAÐ 1913
84. tölublað
97. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
«MÚSÍKTILRAUNIR
42 SVEITIR REYNA
MEÐ SÉR Í ROKKINU
«GALLERÝ PRJÓNLES
SÁPA ÚR NAUTAMÖR
Á HARÐVIÐARBEÐI
!
"
#
Sérblað um
VinnuVélar og bíla
fylgir Morgunblaðinu í dag
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
LAGT er til í frumvarpi um breyt-
ingu á búvörulögum að afurða-
stöðvar verði sektaðar fyrir að
taka við mjólk frá framleiðendum
sem ekki hafa mjólkurkvóta og
bjóða til sölu á innanlandsmarkaði.
Sama á að gilda ef afurðastöð
markaðssetur mjólk á innanlands-
markaði umfram mjólkurkvóta
framleiðanda án samþykkis fram-
kvæmdanefndar búvörusamninga.
Lagt er til í frumvarpinu að sektin
verði 110 kr. á hvern mjólkurlítra.
Frumvarpið var samið í sjávar-
útvegs- og landbúnaðarráðuneyt-
inu, í samráði við verðlagsnefnd
búvöru, Bændasamtök Íslands og
Samtök afurðastöðva í mjólkuriðn-
aði.
Verður ekki að lögum nú
Atli Gíslason, formaður sjávar-
útvegs- og landbúnaðarnefndar Al-
þingis, segir að frumvarpið hafi
verið lagt til hliðar og verði ekki
að lögum á þessu þingi. „Það stóð
til að nefndin flytti þetta sjálf, en
samstaða náðist ekki um málið í
henni.“
Haraldur Benediktsson, formað-
ur Bændasamtakanna, telur að
með frumvarpinu sé verið að
skerpa á löggjöfinni og eyða rétt-
aróvissu með mjólk utan greiðslu-
marks, þ.e. utan kvóta. Fram-
kvæmdanefnd búvörusamninga
geti ákveðið að mjólk utan
greiðslumarks fari á innanlands-
markað. Nú eigi að eyða óvissu um
slíka mjólk sem nefndin hafi
ákveðið að nota ekki á innanlands-
markaði.
Ólafur M. Magnússon, fram-
kvæmdastjóri Mjólku, telur að
frumvarpinu hafi verið stefnt gegn
fyrirtækinu. „Það skýtur skökku
við að þeir sem ekki eru innan
greiðslumarks eða þiggja ríkis-
stuðning við sína framleiðslu skuli
ekki hafa jafnan aðgang að innan-
landsmarkaði og hinir sem þiggja
ríkisstuðning,“ sagði Ólafur. Hann
gagnrýnir fleiri atriði í frumvarp-
inu og segir þau vinna gegn starf-
semi Mjólku.
Sekt fyrir að selja mjólk
sem ekki er ríkisstyrkt
Ólafur Magnússon í Mjólku telur að
frumvarpi sé stefnt gegn fyrirtækinu
Réttaróvissu eytt | 4
SAMKVÆMT nýrri skoðanakönn-
un Gallup fyrir Morgunblaðið og
RÚV heldur Samfylkingin stöðu
sinni sem fylgismesti stjórnmála-
flokkur landsins. Vinstri grænir
bæta við sig tæpum tveimur pró-
sentustigum og eru því orðinn ann-
ar fylgismesti flokkurinn. Sjálf-
stæðisflokkurinn missir fylgi miðað
við síðustu könnun og er kominn í
þriðja sætið með 24,4% fylgi. Það
er minnsta fylgi sem flokkurinn
hefur mælst með frá því í nóv-
ember á síðasta ári. | 2
!
Samfylking-
in er stærst
Sjálfstæðisflokkur í 3. sæti í könnun Gallup
Morgunblaðið/Kristinn
Jón Þórisson Lán ríkisins til Saga
Capital og VBS eru umdeild.
Fjármálafyrirtækin Saga Capital
og VBS Fjárfestingarbanki mega
ekki greiða sér út arð nema þau
niðurgreiði höfuðstól lánsins og
stilli kaupaukum til starfsmanna í
hóf. Þá er þeim óheimilt að auka
fyrirgreiðslu til venslaðra aðila og
þurfa að innleiða leiðbeinandi regl-
ur sem takmarka útlánavöxt við
innlendan fjármögnunargrunn.
Afar ströng lánaskilyrði
VBS og SAGA Capital
Verðmæti
makríls meira en
þrefaldast í
manneld-
isvinnslu en
stærstur hluti
þess afla sem
veiddur hefur
verið hér hefur farið í bræðslu. Í
fyrra færði makríllinn þjóðarbúinu
um sex milljarða króna.
Erfitt er að eiga við makrílinn
þegar hann er í íslenskri lögsögu
þar sem hann er þá feitur, laus í sér
og þolir illa hnjask. »20
Dýrmætt væri fyrir þjóðar-
búið að fullvinna makríl
Samgönguráðuneytið þarf að
taka efnislega afstöðu til þess hvort
samkomulag Landsvirkjunar við
Flóahrepp, um gerð aðalskipulags
vegna Urriðafossvirkjunar, stand-
ist ákvæði skipulags- og bygging-
arlaga. Í nýju áliti Umboðsmanns
Alþingis kemur fram að ráðuneyti
hafi hvorki sinnt rannsóknarskyldu
sinni né reglum stjórnsýslulaga um
málshraða með fullnægjandi hætti í
kærumáli ábúenda. »6
Skoða hvort Landsvirkjun
hafi keypt skipulagið