Morgunblaðið - 27.03.2009, Síða 6

Morgunblaðið - 27.03.2009, Síða 6
6 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. MARS 2009 Óskrifuð regla ASÍ  Gylfi segir viðtekna venju að starfsfólk í öruggum þingsætum hætti  Vigdís hafi ekki óskað eftir launalausu leyfi og verið hvött til að koma aftur Eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is ENGIN skrifuð regla er um það hjá Alþýðusambandi Ís- lands hvenær starfsmenn skuli hætta vegna stjórnmálaþátt- töku. Hins vegar er að sögn Gylfa Arnbjörnssonar, forseta ASÍ, sú venja að sé starfsfólk komið í öruggt þingsæti láti það af störfum. Á þeim grundvelli hafi hann rætt starfslok við Vigdísi Hauksdóttur lögfræðing, sem leiða mun Framsóknarflokk í Reykjavíkurkjördæmi suður. Hún hafi ekki óskað eftir launalausu leyfi, en það hafi aðrir starfsmenn ekki heldur gert. Gylfi segir skýran mun á því að vera á lista, eins og Magnús M. Norðdahl, lögmaður ASÍ, eða að leiða lista, eins og Vigdís. „Þegar þú leiðir lista þá ertu pólitískur forystumaður. Þú ert að verja þau málefni sem listinn er að berjast fyrir. Þú ert í leiðtogasæti.“ Gylfi segir ekki amast við því að starfsfólk taki þátt í prófkjörum. Magnús hafi t.a.m. óskað eftir launalausu leyfi síðast þegar hann tók þátt í próf- kjöri. Þá hafi hann ekki fengið brautargengi og málið því fallið niður. Sjálfur hafi Gylfi boðið sig fram í prófkjöri þegar hann var framkvæmda- stjóri ASÍ. „Þá var líka alveg klárt að ef ég næði öruggu sæti þá færi ég héðan út.“ Vigdís hafi verið hvött til að koma aftur ef hún næði ekki á þing, m.a. í samtali hennar við starfs- mannastjóra ASÍ. Launalaust leyfi hafi hins vegar aldrei komið til tals og því sé málið með ólíkindum. Gylfi Arnbjörnsson Eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is TAKA þarf efnislega afstöðu til þess í samgönguráðuneytinu hvort sam- komulag Landsvirkjunar við Flóa- hrepp, um gerð aðalskipulags vegna Urriðafossvirkjunar, standist ákvæði skipulags- og byggingarlaga. Með öðrum orðum, hvort Lands- virkjun hafi „keypt sér“ skipulag í Flóahreppi. Í nýju áliti Umboðs- manns Alþingis kemur fram að ráðu- neyti hafi hvorki sinnt rannsóknar- skyldu sinni né reglum stjórnsýslu- laga um málshraða með fullnægjandi hætti, í kærumáli ábúenda í Skálm- holti vegna samkomulagsins. Borgar fyrir skipulagsgerðina Ábúendurnir kærðu á síðasta ári og kröfðust þess að samkomulagið yrði ógilt eða lýst ólögmætt, enda felur það í sér að Landsvirkjun beri til dæmis allan kostnað af gerð deili- skipulags, endurbæti farsímakerfið á svæðinu, endurbyggi vegi, komi upp ferðamannaaðstöðu og veiti hreppnum 40 milljón króna ein- greiðslu sem sveitarstjórn sjái um að ráðstafa. Meginniðurstaða ráðuneytisins var að þótt efni samkomulagsins væri óvenjulegt félli það undir rétt sveitarstjórnar til að ráða sjálft mál- efnum sínum, samkvæmt 78. grein stjórnarskrárinnar. Í kjölfarið spurði umboðsmaður samgöngu- ráðuneytið hvort það teldi samkomu- lagið samrýmast reglum skipulags- og byggingarlaga um greiðslu kostn- aðar við gerð skipulags. Ráðuneytið svaraði því til að ekki hefði farið fram sérstök athugun á því, af þess hálfu. Þess utan sagði í samkomulag- inu að 40 milljón króna eingreiðslan skyldi „styðja við að landbúnaður og föst búseta verði styrkt og eftirsótt á svæðinu“. Taldi umboðsmaður því ekki útilokað að sveitarstjórnar- menn hefðu átt verulegra hagsmuna að gæta við ráðstöfun þessara fjár- muna. Skoði hvort Landsvirkjun hafi keypt sér skipulagið Skipulag Flóahrepps vegna Urriðafossvirkjunar í uppnámi Í HNOTSKURN »Skipulagsstofnun telur til-löguna uppfylla skipulags- og byggingarlög. »Skipulagið bíður einnigstaðfestingar umhverf- isráðherra en heimildir herma að tillagan hljóti líklega ekki náð fyrir augum ráðherra. BIRGIR Ármannsson hefur lagt fram á Alþingi fyrirspurn til Stein- gríms J. Sigfússonar fjár- málaráðherra hver yrði tekjuauki ríkissjóðs ef hugmyndir fjár- málaráðherra um nýtt 3% viðbót- arskattþrep á allar tekjur ein- staklinga yfir 500 þúsund krónur næðu fram að ganga. Þá vill Birgir vita hver tekju- aukinn yrði ef þessu til viðbótar yrði komið á sérstöku 5% skatt- þrepi á allar tekjur einstaklinga yfir 700 þúsund krónur þannig að skattgreiðendur með slíkar tekjur þyrftu samanlagt að greiða 8% hærra tekjuskattshlutfall en al- mennt gerist. sisi@mbl.is Spyr ráðherra um tekjuauka Fyrstu áratugi Alþýðusambandsins var stjórn- málaþátttaka forystunnar sjálfsögð, enda Al- þýðuflokkurinn hluti af ASÍ 1916 til 1940. Eft- ir það dró úr stjórnmálahlutverkinu. Björn Jónsson var þó bæði forseti ASÍ og þingmað- ur á áttunda áratugnum. Snorri Jónsson tók sæti sem varamaður á þingi í nokkra daga og Ásmundur Stefánsson var varaþingmaður Al- þýðubandalagsins 1987-1991 og forseti ASÍ á sama tíma. Benedikt Davíðsson var ekki á þingi en Grétar Þorsteinsson var um tíma varaþingmaður Alþýðubandalagsins. Minni pólitík í seinni tíð AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111 HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt 27 ára gamlan karlmann, Sævar Sæv- arsson, í fimm ára fangelsi fyrir til- raun til manndráps. Maðurinn réðst að öðrum við Hverfisgötu í ágúst á sl. ári, stakk hann með hnífi í bakið og vinstri framhandlegg. Fórn- arlambið hlaut stungusár inn í brjósthol og inn í lungað með loft- brjósti og blæðingu í brjóstholi, og stungusár á vinstri framhandlegg fyrir neðan olnboga. Maðurinn játaði fyrir héraðsdómi að hafa stungið fórnarlambið en neitaði að um tilraun til manndráps hefði verið að ræða. Í niðurstöðu dómsins sagði að þurft hefði að beita nokkru afli til að hnífurinn gæti gengið inn í rönd lungans og mögu- lega hefði fórnarlambið getað látið lífið ef ekkert hafði verið að gert. Tilviljun ein hefði ráðið því að stung- an hitti manninn fyrir á þessum stað en ekki í stærri æðar í eða við lung- að. Hefði honum þá blætt út á mjög skömmum tíma. andri@mbl.is Dæmdur fyrir manndrápstilraun LÖGREGLAN á höfuðborg- arsvæðinu fann enn einn kanna- bisræktunarstað- inn aðfaranótt fimmtudags. Um tvö hundruð plöntur fundust í bakhúsi við Vest- urgötu í Reykjavík. Málið er til rannsóknar hjá fíkniefnadeild lög- reglu höfuðborgarsvæðisins og var einn maður yfirheyrður í gærdag. Honum var í kjölfarið sleppt. Um þriðjungur plantnanna, sem fundust í húsinu, var á lokastigi ræktunar. Lagt hefur verið hald á yfir 5.000 kannabisplöntur það sem af er ári og ræktun verið upprætt á á þriðja tug staða. Enn af kannabis BRJÁLAÐUR bylur var utandyra en skólabörn Grunnskólans í Grímsey voru samt himinsæl þegar þau syntu áheitasundið sitt sl. mið- vikudagskvöld. Áheitasund hefur verið fastur liður í skóla- starfinu síðastliðin 15 ár og krakkarnir eru alltaf jafnspenntir að komast að því hversu langa vegalengd þeir geta synt. Að þessu sinni lögðu átta börn af stað og skiluðu rúmum þremur kílómetrum. Í Grunnskólanum á litlu eyjunni við heimskautsbaug eru níu börn, en sá níundi neyddist til að fylgjast með af bakk- anum því hann gat ekki synt sökum meiðsla í hendi. Foreldrar og vinir hvöttu sitt fólk í lauginni. Strax að sundinu loknu buðu skólabörnin upp á pylsuhlaðborð í félagsheimilinu og mæting var ótrúlega góð miðað við veðurlag. Afrakstur áheitanna rennur svo í ferðasjóð barna í eldri deildinni, en þau fara alltaf í þriggja daga vor- ferðalag „til Íslands“. Kátir krakkar syntu áheitasund og buðu í hlaðborð Ljósmynd/Helga Mattína Skólabörn í Grímsey safna fyrir ferð „til Íslands“ ILVA Korputorgi. s: 522 4500 laugardaga 10-18 sunnudaga 12-18 mánudaga - föstudaga 11-19 www.ILVA.is einfaldlega betri kostur NÝTT NÝTT Summer. Kerti í leirskál. 490,-/stk. Mikið úrval af nýjum húsgögnum og gjafavöru.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.