Morgunblaðið - 27.03.2009, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 27.03.2009, Blaðsíða 12
12 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. MARS 2009 Eftir Andra Karl andri@mbl.is MIKIÐ tjón varð í eldsvoða sem kom upp í báta- smiðjunni Sólplasti í Sandgerði á miðvikudags- kvöld. Þrátt fyrir að slökkvistarf hafi gengið vel er ljóst að tjónið hleypur á tugum milljóna króna. Talið er fullvíst að eldurinn hafi komið upp í línubátnum Oddi á Nesi. Hann var í báta- smiðjunni til viðgerðar en eldur kom upp í stýrihúsi bátsins 17. febrúar sl. „Þetta er orðið frekar leiðinlegt,“ segir út- gerðarmaðurinn Freyr Steinar Gunnlaugsson og eigandi Odds á Nesi. Hann hafði vonast til að fá bátinn afhentan í gærdag og ætlaði að sjó- setja hann að nýju í dag. Í stað þess þurfti Freyr Steinar að horfa upp á bát sinni stór- skemmdan í annað skipti á fimm vikum. Hann sagði tilfinninguna afar slæma. Freyr Steinar gerir út frá Siglufirði en bát- urinn hefur verið í Sandgerði frá því í haust. Í febrúar kom upp eldur í stýrishúsi bátsins og talið er að kviknað hafi í út frá fjöltengi. Eld- urinn var töluverður og skemmdir miklar. Slökkvilið var hins vegar fljótt á vettvang og bjargaði því sem bjargað varð. Ekki er vitað um upptök eldsins á mið- vikudagskvöld og er málið í rannsókn. Freyr hafði ekki fengið að fara um borð í gærdag en sagðist telja að báturinn væri ónýtur af útlitinu að utan að dæma. Báturinn er sá fimmti sem Freyr Steinar eignast en hann er aðeins 25 ára gamall. Spurð- ur hvort ekki styttist í þann sjötta sagðist Freyr ætla að sjá hvernig færi með Odd á Nesi, s.s. hvort viðgerð borgaði sig. Ljósmynd/Reynir Sveinsson Bruni Báturinn er illa farinn eftir eldsvoðann á miðvikudagskvöld. Fimm vikur á milli eldsvoða  Freyr S. Gunnlaugsson óttast að bátur sinn, Oddur á Nesi, sé gerónýtur  Bátinn átti að sjósetja í dag en viðgerð á honum vegna bruna var að ljúka EKKI hefur verið rætt innan þing- flokka Sjálfstæðisflokks og Sam- fylkingar um hvernig staðið verði að birtingu fjárhagsupplýsinga þingmanna flokkanna í samræmi við nýjar reglur forsætisnefndar Alþingis, sem samþykktar voru í síðustu viku og taka gildi 1. maí. Allir flokkarnir studdu regl- urnar. Í þeim er mælst til þess að þingmenn birti upplýsingar um fjármál sín en ekki kemur til refs- inga fari þingmenn ekki eftir þeim. Framsóknarflokkur og Vinstri græn birta upplýsingar á heimasíðu um fjárhagsleg tengsl þingmanna. Arnbjörg Sveinsdóttir og Lúðvík Bergsveinsson, formenn þingflokka Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar, segja málið ekki hafa verið rætt innan þingflokkanna. Arnbjörg segir þó ekki ólíklegt að upplýsing- arnar verði birtar fyrir kosningar. Grétar Mar Jónsson, formaður þingflokks Frjálslynda flokksins, segir ekkert því til fyrirstöðu að birta upplýsingarnar. ben@mbl.is Hafa ekki rætt birtingu upplýsinga GLACIER Partn- ers, orkufyrir- tæki Magnúsar Bjarnasonar og fleiri fyrrum starfsmanna Glitnis í Banda- ríkjunum, hafa sameinast Pritchard Capi- tal Partners, sem er fjárfestingabanki á sviði jarðhita og sjávarútvegs. Frá þessum sam- runa var nýverið greint í banda- rískum fjölmiðlum. Engar upp- hæðir voru nefndar en haft eftir eiganda Pritchard að mikil tæki- færi séu í nýtingu jarðhitans. Sameinast orkubanka Magnús Bjarnason Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is GEYSIR Green Energy (GGE) er þátttakandi í nokkrum jarð- hitaverkefnum í Bandaríkjunum með fyrirtækinu Ram Power Inc., sem sérhæfir sig í verkefnaþróun á sviði jarðvarma. Um er að ræða virkjanir í Kaliforníu og Nevada sem samtals eru yfir 200 MW að stærð. GGE keypti fyrr í vet- ur 37% hlut í Ram Power fyrir um tíu milljónir dollara, jafnvirði um 1.100 milljóna króna. Í Nevada eru þrjú verkefni; í Weepah, Pearl Hot Springs og Del- cer Butte. Hver þessara jarð- varmavirkjana er með aflþörf upp á um 30 MW. Í Kaliforníu hefur fé- lagið nokkur verkefni í Imperial Valley og er um þessar mundir að ljúka orkusölusamningi vegna 50- 100 MW jarðhitaverkefnis þar vestra. Áður hjá Ormat Davíð Stefánsson, forstöðumaður viðskiptaþróunar hjá Geysir Green, segir að Ram Power hafi á að skipa einu reyndasta teymi manna í Bandaríkjunum í jarðhitaþróun. Starfsfólk félagsins var áður meðal stjórnenda eins stærsta jarðhitafyr- irtækis heims, Ormat, sem er skráð á Nasdaq-hlutabréfamarkaðnum. „Þeir ákváðu að ganga til sam- starfs við Íslendinga á þessu sviði þar sem við komum með þekkingu í beislun jarðhitans. Þeir koma inn með mikilvæg viðskiptasambönd og þekkingu á jarðhitamarkaðnum í Bandaríkjunum,“ segir Davíð. Forstjóri Ram Power Inc., Hezy Ram, sem á stóran hlut í félaginu, segist í samtali við Morgunblaðið vera ánægður með samstarfið við Geysir Green Energy. Skiljanlega hafi fyrirtækið líkt og mörg önnur á Íslandi orðið fyrir áhrifum af bankahruninu en vonandi takist að halda áfram farsælu samstarfi og Íslendingar haldi áfram ótrauðir í orkuútrásinni. „Bandaríkin hafa verið í forystu á heimsvísu í nýtingu jarðvarma og fátt sem mun breyta því á næstu ár- um. Obama forseti hefur lagt mikla áherslu á nýtingu endurnýjanlegrar orku. Þeir sem ætla að hasla sér völl á þessu sviði verða að koma sér fyrir í Bandaríkjunum og þess vegna er það eðlilegt að Geysir Green Energy vilji starfa hér,“ seg- ir Ram en Barack Obama hefur sett sér það markmið að 10% raforku komi frá endurnýjanlegum orku- gjöfum árið 2012 og hlutfallið verði komið í 25% fyrir árið 2025. Glitnir ruddi veginn Hezy Ram telur engan vafa leika á því að starfsmenn Glitnis banka í Bandaríkjunum hafi rutt veginn fyrir Íslendinga og fjölmarga aðra sem hafa viljað fjárfesta í jarð- varmaverkefnum. Ram segir verkefnin, sem GGE hefur tekið þátt í með hans fyr- irtæki, ganga samkvæmt áætlun og framkvæmdir hafnar á nokkrum stöðum. Í stórum jarð- varmaverk- efnum vestra Hezy Ram Jarðhiti Gríðarlegur jarðhiti er í Kaliforníu og borar sjást víða. Hverjir eiga Geysir Green Energy? Félagið er að stærstum hluta í eigu Atorku, sem á 41%, og 40% eru í eigu Glacier Renewable Energy Fund, sjóðs á vegum Íslandsbanka o.fl, áður Glitn- is. VGK Invest á 9% en það félag er í eigu Mannvits. Sjö manns sitja í stjórn GGE, stjórnarformaður er Ólafur Jó- hann Ólafsson. Hverjir stofnuðu fyrirtækið? Geysir Green Energy tók til starfa í byrjun árs 2007. Stofnendur voru FL Group, Glitnir og VGK-Hönnun, nú Mannvit. Stofnfé nam sjö milljörðum króna. Meðal dóttur- og hlutdeild- arfélaga eru HS Orka, HS Veitur, Jarð- boranir, Enex, Enex Kína, Exorka, Ram Power og Western GeoPower. S&S KVEIKT var á friðarsúlu Yoko Ono í Viðey frá 19. til 25. mars í tilefni vor- jafndægra. Að sögn Guðlaugar Elísabetar Ólafsdóttur, verkefnisstjóra í Viðey, kom fjöldi gesta út í eyna en þessa daga var boðið upp á kvöldsigl- ingar þangað. Erlendir ferðamenn voru þar fyrirferðarmiklir en síðasta kvöldið komu um 400 manns í Viðey. Boðið var upp á sérstakar leið- söguferðir að friðarsúlunni en Guðlaug Elísabet segir það engu líkt að standa við mannvirkið þegar kveikt er á ljósi friðarins. Það er einnig til- komumikið að sjá til friðarsúlunnar úr landi, líkt og blasti við áhuga- ljósmyndaranum Hjalta Árnasyni sem tók myndina eitt kvöldið. bjb@mbl.is Ljósmynd/Hjalti Árnason Friðarsúlan skein skært á vorjafndægrum í Viðey Tunguhálsi 10, 110 Reykjavík Sími: 544 5466 www.kemi.is ... vorið er komið Smurolíur á öll mótorhjól fáðu ráðgjöf við val á olíu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.