Morgunblaðið - 27.03.2009, Síða 26

Morgunblaðið - 27.03.2009, Síða 26
26 Umræðan MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. MARS 2009 Í FYRRAHAUST greip forstjóri Umhverfisstofnunar (UST) til þeirr- ar vanhugsuðu ákvörðunar, án sam- ráðs við hagsmunasamtök, að leggja veiðistjórnunarsvið UST niður. Það hafði séð um útgáfu veiðikorta og rekstur Veiðikortasjóðs, stjórnun hreindýraveiða, refaveiða og eyð- ingu minks. Þá sá sviðið um nám- skeið vegna veiðikorta og síðar skotvopnanámskeið og ýmsa fræðslu tengda skotveiðum. Stofnað var nýtt svið, nátt- úruauðlindasvið, til að annast jafn ólíka málaflokka og eyðingu minks, erfðabreyttar lífverur, veiðistjórnun og rekstur friðlýstra svæða. Þessari skipulagsbreytingu hefur fylgt að þjónusta UST við íslenska skot- veiðimenn hefur versnað svo að ekki verður lengur við það unað. Stjórn Skotveiðifélags Íslands (Skotvís) skrifaði umhverfisráðherra 25. nóvember 2007 og lýsti áhyggj- um af því að leggja ætti veiðistjórn- unarsviðið niður. Svar barst 8. jan- úar 2008 undirritað af umhverfisráðherra og ráðuneyt- isstjóra. Ráðuneytið tók ekki undir varnaðarorð Skotvís en skrifaði m.a.: ,,Að mati umhverfisráðuneyt- isins eru verkefni fv. veiðistjórn- unarsviðs þ.e. umsjón með verndun, friðun og veiðum villtra dýra í sam- ræmi við samnefnd lög nr. 64/1994 vistuð með eðlilegum hætti hjá Umhverfisstofnun og telur ráðuneytið ekki ástæðu til að ætla að umræddar breytingar á starfsskipulagi Um- hverfisstofnunar verði til að veikja á nokkurn hátt stjórnsýslu Veiði- stjórnunar. Vænta má að betri heildarsýn ná- ist yfir málaflokkinn með þessu fyr- irkomulagi. Umsýsla málefna skotveiða og veiðistjórnun hefur ekki sama vægi innan UST eftir að veiðistjórn- unarsvið var lagt niður. Aðal- ástæðan fyrir þeim ógöngum sem málefni skotveiðimanna eru komin í innan stofnunarinnar er þó áhuga- leysi yfirstjórnar UST á mála- flokknum, þekkingarleysi og metn- aðarleysi. Lög og reglur sem UST sér um að semja eða gefa umsögn um á þessu sviði eru illa unnin vegna þekkingarleysis og skorts á samvinnu við hagsmunasamtök. Helstu verkefni náttúru- auðlindasviðs eru á sviði nátt- úruverndar. Þegar hagsmunir frið- unar og nýtingar rekast á er afgreiðsla UST nánast ávallt sú að friðun er tekin fram yfir nýtingu. Dæmi um það er friðun Guðlaug- stungna norðan Hofsjökuls. Skotveið- ar á svæðinu voru bannaðar þó svo að íslenski heiðagæsa- stofninn sé hvað sterkastur stofn veiðidýra hér á landi. Ekki var leitað álits Skotveiðifélags Ís- lands á þessari makalausu ákvörðun. Klúður á klúður ofan Hreindýrastofninn hefur verið í örum vexti og mikil ásókn í veiði- leyfin. Í fyrra var kvótinn 1.333 dýr og fengu mun færri veiðileyfi en sóttu um. Hins vegar eru hrein- dýraleiðsögumenn aðeins 80 talsins. Námskeið fyrir nýja leiðsögumenn hafa ekki verið haldin síðan árið 2001. Þá var veiðikvótinn meira en helmingi minni en nú. Það er því mikil þörf á að fjölga leiðsögumönn- um. Lög um störf, nám og hæfn- iskröfur fyrir hreindýraleið- sögumenn hafa verið afar ófullkomin. Þegar fyrsta nám- skeiðið fyrir leiðsögumenn með hreindýraveiðum var haldið árið 1998 var gerð krafa um að þeir hefðu góða þekkingu á því veiði- svæði sem þeir myndu starfa á. Sama krafa var gerð 2001. Vegna meinbugs í lögunum kom í ljós að ekki var hægt að standa við þessa kröfu. Því geta leiðsögumennirnir nú fylgt veiðimönnum á hvaða svæði sem er, jafnvel þótt þeir hafi aldrei komið þangað áður. UST tók að sér að halda skotvopnanámskeið og hefur fengið ágætlega greitt fyrir. Í tæpt ár, eða frá 2007-2008, var ekki hægt að halda slík námskeið því í ljós kom að vafi lék á því hvort innheimta mætti námskeiðsgjald af þátttak- endum. Þótt dómsmálaráðuneytið ætti þar nokkra sök hefði UST átt að beita sér fyrir því að þetta klúð- ur yrði lagfært svo ekki þyrftu að líða fleiri mánuðir svo að ekki væri hægt að halda skotvopnanámskeið. Annað dæmi um andvaraleysi UST er götuskráning fjórhjóla. Ár- ið 2002 voru samþykkt lög og bann- að að fara til skotveiða á vélsleða, fjór- eða sexhjóli. Þegar heimilað var að götuskrá fjórhjól kom í ljós að þau höfðu sömu stöðu í lögunum og bifreiðar. Þannig var leyfilegt að ferðast með vopn á vegum og slóð- um á götuskráðu fjórhjóli. Þarna brást UST eftirlitshlutverki sínu. Um síðustu áramót hækkaði gjald fyrir veiðikort úr 2.280 kr. í 3.500 kr. Þar eð þjónusta UST við íslenska skotveiðimenn er jafn slæm og raun ber vitni á þessi hækkun engan rétt á sér. Á árs- fundi UST 4. apríl 2007 sagði for- stjóri stofnunarinnar, Kristín Lind Árnadóttir, að mikið stefnumót- unarstarf hefði verið unnið þetta ár- ið. Þrjátíu félagasamtökum hefði verið boðið að koma að þessari vinnu. Skotveiðifélagi Íslands var hins vegar ekki boðið að taka þátt í þessu stefnumótunarstarfi. Það er varla tilviljun – eða hvað? Þess má geta að tekjur stofnunarinnar frá skotveiðimönnum verða líklega um 160 milljónir nú í ár. Að lokum skal tekið fram að Skotvís hefur átt ágætt samstarf við starfsfólk UST á Akureyri og á Egilsstöðum. Við þetta ágæta fólk er ekki að sakast. Starfsskilyrði þess eru hins vegar ekki öfunds- verð, en það er önnur saga. F.h. stjórnar Skotveiðifélags Íslands. Sigmar B. Hauksson gagnrýnir Umhverfisstofnun Sigmar B. Hauksson » Lög og reglur sem UST sér um að semja eða gefa umsögn um á þessu sviði eru illa unnin vegna þekking- arleysis og skorts á samvinnu við hags- munasamtök. Höfundur er formaður Skotveiðifélags Íslands. Umhverfisstofnun í slæmum málum – enn og aftur TILSKIPUN Al- þjóðagjaldeyrissjóðs- ins (AGS) að hækka skyldi stýrivexti úr 12- 18% er fyrir atvinnu- lífið áþreifanlegasta aðgerðin eftir banka- hrun og ekki til góðs. Það var kristaltært að þessi gjörningur og verðtrygging íbúð- arlána leiddi heimili og fyrirtæki inn í eitt allsherjar svarthol væri haldið áfram á þeirri braut. Í byrjun nóv- ember spurði ég þau Ingibjörgu og Geir í Morgunblaðsgrein: Hvort væri betra 1) að allt færi á hausinn og í ríkisrekstur eða 2) að lækka stýrivexti í 3% og taka af verð- tryggingu? Nú 90 dögum síðar eru stýrivextir enn 18% og verðtryggingin fryst. Afleiðingar hafa komið ljós. Marg- ir hafa misst húsnæði sitt og fjöldi fyrirtækja gjaldþrota. Spáð er að 3.500 fyrirtæki fari á hausinn 2009. Þá missa fleiri vinnuna, en von- andi ekki allt sitt. Fryst- ing verðtryggingar er ósómi. Hún er óbreytt og kemur tvíefld úr frystinum um leið og hægt verður að ganga að Jóni og Gunnu. Væri mæling verðtryggingar rétt í þeirri verð- hjöðnun, sem nú gengur yfir ætti hún að vera negatíf. Höfuðstóll lána ætti að lækka og ofgreiddar verð- bætur ættu að hluta til að greiðast til baka. Fyrri stjórn talaði mikið um að bjarga heimilum og fyrirtækjum, en mestur tími fór í að tala um krónuna og ESB. Ýmsir virtust ekki sjá neina aðra lausn en þá að ESB drægi okk- ur upp úr drullupollinum. Lands- fundir voru tímasettir til að ræða inn- göngu í ESB, sem virtist aðalatriðið eða var það kannski bara smjörklípa til að draga athyglina frá aðgerða- leysinu. Sigurður Oddsson skrifar um vexti og verðtryggingu Sigurður Oddsson Höfundur er verkfræðingur. Hvenær koma áþreifanlegar aðgerðir til góðs? Nú er komin ný stjórn. Aðal- áherslan er lögð á að koma skikki á Seðlabankann og búið að semja frum- varp og ný lög um hann. Á þingi er þráttað um miklar kröfur, sem gerðar eru um menntun bankastjórans. All- strangar miðað við að nú hefur jarð- fræðingur tekið við af fyrverandi fjár- málaráðherra, sem var dýralæknir og forsætisráðherra fyrrverandi flug- freyja. Að mínu mati skiptir mennt- unin ekki öllu máli séu heilasellurnar í lagi. Þannig var það læknir í Noregi sem skoðað heimsíðu Seðlabankans og skildi betur en þeir sem áttu að fylgjast með og tóku há laun fyrir. Út frá þeim upplýsingum – sem lækn- irinn aflaði sér í frístundum – hefði hann aldrei fjárfest í íslenskum hluta- bréfum líkt og lífeyrissjóðirnir gerðu og töpuðu 20-30% af sjóðunum. Til hvers annars að eyða öllum þessum tíma í seðlabankann. Er það ekki hvort sem er AGS, sem stjórnar. Hvernig væri að setja bankastjórann á frost og ræða við AGS um leyfi til að lækka stýrivextina? Nýr fjármála- ráðherra hefur sagt að það sé bara vel hægt að tala við þessa voðalegu menn. Svo þarf að semja við krónu- bréfabraskarana. Næsta víst er, að þeir flýta sér ekkert að samninga- borðinu á meðan stýrivextir eru 18% í boði Jóns og Gunnu. Nú spyr ég ykk- ur, Jóhönnu og Steingrím. Hvenær fáum við að sjá eitthvað áþreifanlegra en frystingu verðtryggingar, fyr- irfram úttekt úr séreignalífeyrissjóði og lengingu lána með veði í „eigin“ húsnæði til allt að 80 ára? Ætlið þið að beita almennri skynsemi á verðtrygg- inguna og lækka stýrivextina til sam- ræmis við það sem er hjá þróuðum þjóðum? Eða ætlið þið kannski bara að ýta þessu á undan ykkur næstu 80 dagana og þar með fram yfir kosning- ar? Það skyldi þó ekki vera að Seðla- bankinn sé enn ein smjörklípan til að draga athyglina frá ráðleysinu. » Það skyldi þó ekki vera að Seðlabank- inn sé enn ein smjörk- lípan til að draga athygl- ina frá ráðleysinu. GUNNAR Ágúst Gunnarsson sendir mér tóninn í Mbl. 13. mars sl., vegna svar- greinar minnar við skrifum hans um vega- mál í Mýrdal. Sýnist mér á öllum þeim pirr- ingi sem þar skín í gegn, að hér fari að sannast gamla orðtækið að sérhver verði sannleikanum sárreiðastur. Gunnar gerir mikið úr áliti sérfræð- inga en lítið úr okkur heimamönnum, eins og áður. Ekki undarlegt að mað- urinn sé löngu búinn að forða sér frá okkur sveitavarginum og setjast að innan um betur menntað fólk á Reykjavíkursvæðinu. Sannleikurinn varðandi ágreining okkar við sérfræðing Siglingastofn- unar er sá, að við heimamenn viljum fara í að stöðva landbrotið strax. Teljum óviðunandi að fá sjóinn nær byggðinni, bæði vegna hættu á sjó- gangi en ekki síður sandfoki sem oft hefur valdið miklu tjóni á húsum þeim sem standa næst sjónum. Þetta er ekki spurning um verkfræðileg rök, aðeins um hvort kostnaðurinn, sem auðvitað er umtalsverður, kem- ur nú eða eftir örfá ár. Bendi líka á að þetta er alveg samhljóða áliti sveitarstjórnar Mýrdalshrepps sbr. fundargerð frá 26. feb. sl. Um veginn sunnan þorpsins vil ég segja þetta: Ef ófært er að halda þarna við vegi gildir væntanlega það sama um íþróttamannvirki, sundlaug og önnur hús sem næst standa. Ég veit ekki annað en þetta eigi að verja og þá gildir einu þó væntanlegur vegur njóti góðs af framkvæmdinni líka. Núverandi veg er auðvitað hægt að endurbæta eitthvað en kostirnir við jarðgöng og veg um láglendið eru yfirgnæfandi. Kostnaður við göng verður að sjálfsögðu meiri í byrjun en samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni lítur þetta út fyrir að verða arðsamt verkefni. Þarna er verið að tala um ca. tveggja km stytt- ingu á hringveginum en vegna rangra upplýsinga sem ég hafði fengið talaði ég um fjóra í fyrri grein minni. Það er ekki rétt og biðst ég velvirðingar á því. Þá hefur GÁG það eftir „staðkunn- ugum mönnum“ að veg- urinn fari jafnvel yfir land hátt í þrjátíu jarða. En ekki innan við tuttugu eins og mér hefur talist til. Þetta kann að líta illa út í aug- um þeirra sem ekki þekkja til en þegar litið er til þess að umrætt land er allt margskipt í litlar skákir er hver jörð að meðaltali aðeins að fórna u.þ.b. 370-500 m lands fyrir þessa veglínu eftir því hvor talan er notuð. Sannleikurinn er sá að aðeins einn jarðeigandi verður fyrir umtals- verðum óþægindum af þessari veg- línu. Þá er enn og aftur reynt að koma óorði á okkur, sem viljum vinna að umferðaröryggi og bættum samgöngum, með því að við séum hinir verstu landníðingar. Nátt- úruvernd er mér hugleikin og öllum ljóst að þar verður að stíga varlega til jarðar en öll ofsatrú á þeim vett- vangi vinnur gegn góðum málstað. Síðan er vitað að margir sem skreyta sig með því að vera miklir nátt- úruverndarsinnar eru aðeins að nota það í eiginhagsmunaskyni, þegar þeim sjálfum hentar. Að síðustu vil ég þakka Gunnari Á., fyrir að opna augu mín fyrir því hvað ég er mikill þungavigtarmaður í þessu og þá væntanlega öðrum málum hér. Jafn- vel sá hann ástæðu til þess að vara þingmenn kjördæmisins við að eiga við mig orðastað. Þetta er nokkuð sem ég hafði ekki áttað mig á fyrr, en hitt þykist ég skynja að mínar skoð- anir á þessu fara saman við mikinn meirihluta fólks í Mýrdal. Meira um vegamál og sjóvarnir í Vík Þórir N. Kjart- ansson fjallar um vegstæði og skipu- lagsmál í Mýrdal »Náttúruvernd er mér hugleikin og öll- um ljóst að þar verður að stíga varlega til jarð- ar en öll ofsatrú á þeim vettvangi vinnur gegn góðum málstað. Þórir N. Kjartansson Höfundur er framkvæmdastjóri.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.