Morgunblaðið - 27.03.2009, Side 31
menntum ásamt Inga Sævari og
Þuru á heimsþing JC-hreyfingarinn-
ar í Berlín.
Nú er vinur okkar farinn í hinstu
ferðina og viljum við þakka honum
fyrir samstarfið og vináttuna gegnum
árin. Þuru og fjölskyldu vottum við
samúð okkar.
F.h. félaga úr JC Görðum,
Helga Jakobs.
Kæri Ingi Sævar. Ég minnist þín
með miklum hlýhug og er þakklátur
að hafa kynnst þér og ykkur hjón-
unum báðum. Þið tókuð mér strax
opnum örmum frá fyrstu stundu
er við Ómar sonur ykkar kynnt-
umst er við stunduðum nám saman.
Til eru margar ógleymanlegar minn-
ingar.
Eru mér þær minnisstæðastar
stundirnar sem við strákarnir áttum
með þér í bílskúrnum við Marar-
grund. Þar var hlegið og haft gaman
og gátum við strákarnir verið þar alla
daga og fannst þér einnig gaman að
hafa okkur.
Í dag kveð ég þig, Ingi Sævar og
þakka þér fyrir allt sem þú gerðir fyr-
ir mig.
Guð geymi þig.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
(V.Briem.)
Guðni Rúnar Logason.
Í æskuminningum mínum er það
samhentur hópur áhyggjulausra
drengja sem alast upp saman í
Garðabænum á meðan foreldrarnir
basla við að koma þaki yfir barnahóp-
inn. Þetta voru ár ævintýra, áhyggju-
leysis, nýrra uppgötvana og ekki
hvað síst forspilið að ævarandi vin-
áttu. Ingi Sævar og Þuríður fluttu
með börnin sín í Garðabæinn um það
leyti sem vinahópur minn hafði vaxið
upp fyrir lágvaxna garðrunnana. Ég
eignaðist nýjan vin og það var því án
allra formála að ég kynntist föður
hans.
Á meðan feður okkar hinna drengj-
anna óku um á hefðbundnum bifreið-
um var ekkert hefðbundið við þá bíla
sem Ingi ók á um götur bæjarins.
Breið dekk, öflugar vélar og angan af
vindlareyk er órjúfanlegur hluti
þeirra æskuminninga. Ingi var fag-
maður gamla skólans, einstaklingur
sem hafði kennt sér sjálfur þá iðn
sem hann stundaði, sjálfmenntaður,
handverksmaður af guðs náð!
Mér er það minnisstætt þegar
hann aðstoðaði okkur æskufélagana
við að gera draumfarir okkar að veru-
leika. Það er óhætt að segja að það
hafi verið hægara sagt en gert að
hrinda draumnum í framkvæmd þar
sem tveir þriðju hlutar auralausra
hugmyndasmiðanna stunduðu nám í
Bandaríkjunum á þessum tíma. Nið-
urstaðan varð sú að ég legði til hand-
verkið til lagfæringa á eldri hraðbát
sem síðar var seldur og hagnaðurinn
notaður til að fjármagna draum okk-
ar. Ingi tók það hlutverk að sér að
sinna samningagerð og einnig lagði
hann mér til verkfæri til starfans. Í
óþolinmæði minni fannst mér samn-
ingagerðin taka handverksmanninn
lengri tíma en efni stóðu til og fór ég
því óbeðinn að blanda mér í við-
kvæma samningsstöðuna. Ingi var
snöggur að átta sig á því að maðkur
var kominn í mjölið og lét mig heyra
það svo hressilega að meitluð og vel
valin orð hans óma enn í hugskoti
mínu. Eftir að hafa móttekið hár-
beitta yfirhalningu aðalsamninga-
mannsins hlógum við báðir dátt að
öllu saman.
Á þessum tíma gerðust undur og
stórmerki í mínu lífi þar sem ég varð
faðir í fyrsta sinn en það kom ekki í
veg fyrir það að ég ætti mína verk-
fundi með Inga í bílskúrnum hans í
Marargrundinni. Mér var eitt sinn
brugðið þegar Ingi sagði mér frá sín-
um draumi. Hans draumar voru ekki
efnislegir, heldur voru þeir föðurlegir
og fullir af væntumþykju. Draumur
hans fannst mér reyndar svo sjálf-
sagður að ég ungur maðurinn botnaði
ekki til fulls í þeim gæðum sem í hon-
um voru fólgin. Draumur Inga Sæv-
ars var einfaldlega sá að fá tækifæri
til að bæta sjálfan sig og sjá afkom-
endur sína vaxa úr grasi! Þarna sann-
færðist ég um að undir skráp hins
bóngóða handverksmanns var dreng-
ur góður en síðan eru liðin 24 ár og
enn ylja ég mér við þetta samtal okk-
ar og fyrir það vil ég þakka Inga Sæv-
ari af heilum hug. Um leið og ég færi
eiginkonu hans, börnum og barna-
börnum mínar innilegustu samúðar-
kveðjur vil ég þakka Inga Sævari
kærlega fyrir góð kynni, vinsemd og
skemmtilegar samverustundir.
Þorsteinn Geirsson og fjölskylda.
Minningar 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. MARS 2009
✝ Guðfinna SigrúnÓlafsdóttir, hús-
móðir og versl-
unarkona, áður til
heimilis í Rauða-
gerði 52 í Reykjavík,
fæddist í torfbænum
að Stóra Knarr-
arnesi á Vatnsleysu-
strönd 2. júlí 1918.
Hún lést á Hrafnistu
í Víðinesi 17. mars
2009, 90 ára að aldri.
Foreldrar hennar
voru Þuríður Guð-
mundsdóttir hús-
móðir, f. 17. 4. 1891, d. 25.2. 1974
og Ólafur Pétursson, bóndi og sjó-
maður, f. 28.6. 1884, d. 11.10.
1964, búsett frá árinu 1913 að
Stóra Knarrarnesi. Systkini Guð-
finnu eru: Guðmundur, látinn,
Guðrún, látin, Ellert, látinn, Guð-
mundur Viggó, látinn, Hrefna,
Margrét, Ólafur, látinn, Guð-
bergur, Bjarney, Áslaug, Eyjólfur
og Klara, látin.
Guðfinna giftist 12.10. 1940
Guðmundi Ingvari Ágústssyni,
kaupmanni í Reykjavík, f. 13.3.
1917, d. 26.3. 1978. Hann var son-
ur Ágústs Fr. Guðmundssonar,
skósmíðameistara í Reykjavík, f.
24.5. 1891, d. 27.5.
1962 og Maíendínu
Guðlaugar Kristjáns-
dóttur, húsmóður, f.
11.5. 1891, d. 12.4.
1972. Börn þeirra
eru: 1) Maja Þuríður,
f. 1.5. 1941, börn
hennar eru: Björn
Ingi, hann á Berg-
svein, f. 19.12. 2005,
Bjarni Pétur, börn
hans eru: Hafliði Þór,
f. 11.11. 1991, Bene-
dikt, f. 7.12. 2003 og
Snædísi, f. 22.6. 2008.
Yngst er María Rún, dóttir hennar
Kristín Rós, f. 19.6. 2005. 2) Sigrún
Hrefna, f. 29.4. 1947, dætur henn-
ar eru Guðfinna Sif, synir hennar
Kjartan Freyr, f. 9.10. 1992 og
Arnþór Ingvi, f. 15.6. 1995. Hrefna
Sigríður Briem, börn hennarÁsdís
Karen, f. 1.9. 1990 og Þór Daníel,
f. 25.11. 1996. Yngst er Guðbjörg
Forberg, f. 15.9. 1977. 3) Ólöf Haf-
dís, f. 17.12. 1949, d. 12.10. 2003.
4) Kristján Arnfjörð, f. 30.10. 1951.
Börn hans eru: Guðmundur Ingvar
Arnfjörð, dóttir hans Katrín Björg,
f. 13.11. 2008, Díana Guðlaug Arn-
fjörð, börn hennar eru: Kristófer
Hólmþór, f. 22.6. 1996, Indíana Ýr,
f. 15.7. 2000 og Patrekur Tristan,
f. 26.8. 2006, Sylvía Arnfjörð, börn
hennar eru: Sebastían, f. 26.4.
1999 og Díana Dís, f. 6.1. 2007. Ól-
ína Kristjana Arnfjörð, Sesselja
Ósk Arnfjörð og Arnar Gauti Arn-
fjörð. 5) I. Linda, f. 1.4. 1956. Börn
hennar eru: H. Maíendína, börn
hennar, Aníta Ósk, f. 23.11. 1999
og Skarphéðinn Darri, f. 6.12.
2004, Eyþór Ingi og Óli Pétur.
Guðfinna ólst upp hjá foreldrum
sínum á Stóra Knarrarnesi á
Vatnsleysuströnd. Þar sem börnin
voru mörg kom það í hlut eldri
systkinanna að taka þátt í heimilis-
störfum þegar þau höfðu aldur til.
Guðfinna fór í nám við húsmæðra-
skóla Árnýjar Filipusdóttur í Ölf-
usinu. Auk uppeldis- og heim-
ilisstarfa stundaði Guðfinna
ráðskonustörf. Hún tók virkan
þátt í verslunarstörfum ásamt eig-
inmanni sínum, en þau ráku sölu-
turn við strætisvagnabiðstöð við
Bústaðaveg frá árinu 1961 ásamt
börnum og eftir að Guðmundur
lést árið 1978 hélt Guðfinna áfram
rekstri ásamt dóttur sinni eða til
ársins 1987.
Útför Guðfinnu fer fram frá Bú-
staðakirkju í dag, 27. mars, og
hefst athöfnin klukkan 13.
Ástkær amma mín og nafna er fall-
in frá. Ég á henni margt að þakka þar
sem hún gekk mér í móðurstað frá
unga aldri. Minningarnar hrannast
upp á þessum tímamótum, minningar
um ömmu og afa, en hann lést árið
1978 þegar ég var aðeins 12 ára göm-
ul. Það var líkt og lífsneistinn dofnaði
innra með ömmu þegar afi dó. Áfram
hélt hún þrátt fyrir mótlæti með sínu
æðruleysi. Lífið var ekki alltaf dans á
rósum.
Henni fannst alltaf gaman að koma
á æskustöðvar sínar og voru ófáir bíl-
túrar farnir um helgar á Vatnsleysu-
ströndina, í Vogana og í Keflavík þar
sem hún gat notið þess að vera í sveit-
inni sinni og á meðal systkina sinna
en mikill samgangur var á milli
þeirra. Ömmu fannst gaman að spila
vist og var yfirleitt tekið í spilin þegar
systkinin hittust. Amma tók aldrei
bílpróf og háði það henni í að komast
á milli staða en hún fékk alltaf ein-
hvern með sér eða fékk að vera sam-
ferða systrunum sem bjuggu í bæn-
um. Hún var alltaf létt á fæti og
fannst gaman að ganga um í sveitinni
sinni, sérstaklega á haustin þegar
berjatínslan hófst. Hún var alla tíð
heilsuhraust þrátt fyrir ótæpilegar
reykingar og ekki beinlínis heilsu-
samlegt líferni á seinni árum. Hún
var glaðlynd, nægjusöm og góð kona.
Hún var söngelsk, raulaði oft með
þegar hún vann verkin sín. Ég minn-
ist þess sem barn hvernig hún vafði
sængina utan um mig þannig að það
var eins og hún héldi utan um mig á
meðan ég var að sofna. Áður hafi hún
farið með bænirnar með mér og alla
tíð bað hún guð að vera með mér.
Hún var ekki kirkjurækin en þótti
alltaf vænt um kirkjurnar sínar, bæði
Kálfatjarnarkirkju og Bústaðakirkju.
Amma var mikil húsmóðir í sér
eins og konur í þá daga voru aldar
upp við að sinna því hlutverki vel.
Hún var hannyrðakona og saumaði
föt á fjölskyldumeðlimi. Það var
keypt í kistuna á haustin, búin til
kæfa, sultur, saft, bakað og pönnu-
kökurnar hennar ömmu voru alltaf
þunnar og góðar. Þvotturinn hennar
var alltaf sléttur og fínn og best
fannst henni að láta hann hanga úti
og láta vindinn um að þurrka. Annað
áhugamál ömmu og sérstaklega eftir
að afi dó, var að fara í bingó. Ömmu
fannst einnig gaman að fara í sólar-
landaferðir og fór hún í nokkrar slík-
ar. Auk þess sem hún og afi fóru til
Maju dóttur sinnar og Halla þegar
þau bjuggu í Lúxemborg.
Margs er að minnast úr Rauða-
gerðinu, þarna lifði saman stór fjöl-
skylda, heimsóknir vina og ættingja,
veislurnar sem voru haldnar, sjoppan
og margt fleira. Seinni árin í Mark-
landinu og síðar uppi í Arahólum.
Elsku amma, þig langaði aldrei að
fara á dvalarheimili fyrir aldraða en
það kom að því að þú gast ekki verið
ein. Ég tel að þú hafir átt góð þrjú ár
á Hrafnistu, Víðinesi, þar sem var
hugsað vel um þig. Starfsfólkið fær
bestu þakkir fyrir góða umönnun. Ég
þakka fyrir öll árin sem þú varst til
staðar fyrir okkur systurnar, þú
varst okkar klettur. Kjartan og
strákarnir minnast góðra stunda með
þér. Það er með söknuði og trega sem
ég rita þessar línur til þín, elsku
amma mín.
Ég kveð þig með þinni eigin
kveðju; „vertu sæl“.
Guðfinna Sif Sveinbjörnsdóttir.
Guðfinna Sigrún Ólafsdóttir
✝
Móðursystir okkar,
STEINUNN BJARNÝ KRISTJÁNSDÓTTIR,
sem lést á Heilbrigðisstofnuninni á Siglufirði
fimmtudaginn 12. mars, verður jarðsungin frá
Siglufjarðarkirkju laugardaginn 28. mars kl. 14.30.
Systrabörn og aðrir aðstandendur.
✝
KRISTINN GUÐMUNDSSON,
Þvottá í Álftafirði,
verður jarðsunginn frá Djúpavogskirkju laugar-
daginn 28. mars kl. 14.00.
Unnur Guttormsdóttir,
Smári Kristinsson, Kolbrún Kjartansdóttir,
Hanna Kristinsdóttir, Björn Jónsson,
Kári Alfreðsson,
Guðmundur Kristinsson,Hafdís Gunnarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Bróðir okkar, mágur og frændi,
BENEDIKT S. BENEDIKZ,
andaðist í Birmingham Englandi miðvikudaginn 25. mars.
John Benedikz,
Þórarinn Benedikz
og fjölskyldur.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
vegna andláts og útfarar elskulegrar móður minnar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
FRIÐDÓRU GÍSLADÓTTUR
frá Arnarnesi í Dýrafirði,
Bólstaðarhlíð 45.
Sérstakar þakkir færum við Ólafi Samúelssyni
lækni og hjúkrunarfólki líknardeildar Landspítala
Landakoti fyrir hlýhug og elskulegheit sem þið sýnduð henni og okkur
fjölskyldunni.
Birna Haukdal, Magnús Jóhann Óskarsson,
Garðar Magnússon, Helle Magnússon,
Katrín Magnúsdóttir, Þórólfur Sigurðsson,
Friðdóra Magnúsdóttir, Rafn Magnús Jónsson
og langömmubörnin.
✝
Ástkær fósturfaðir minn, bróðir okkar og vinur,
GUÐMUNDUR HALLDÓR BENEDIKTSSON,
Hellisbraut 14,
Reykhólum,
andaðist á Landspítalanum í Fossvogi þriðjudaginn 24. mars.
Aðalheiður Björk Indriðadóttir,
Guðrún Benediktsdóttir og fjölskylda,
Ingibjörg Benediktsdóttir og fjölskylda,
Dóróthea Sigvaldadóttir.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
ÞÓRDÍS HANSEN,
Mosabarði 6,
Hafnarfirði,
lést á Hrafnistu í Hafnarfirði sunnudaginn 22. mars.
Henni verður sungin sálumessa frá St. Jósefskirkju
í Hafnarfirði þriðjudaginn 31. mars kl. 13.00.
Ólafur Árni Torfason, Helena Högnadóttir,
Jón Marías Torfason, Viktoría Sigurðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.