Morgunblaðið - 27.03.2009, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 27.03.2009, Blaðsíða 32
32 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. MARS 2009 ✝ Kristján ValbergGuðbjörnsson fæddist í Reykjavík 12. desember 1947. Hann lést á líkn- ardeild Landspítalans í Kópavogi 16. mars 2009. Hann var sonur hjónanna, 15. maí 1943, Guðbjörns Guð- mundssonar húsa- smíðameistara frá Böðmóðsstöðum í Laugardal, f. 16. júní 1920, d. 29. janúar 1999, og Þóru Krist- jánsdóttir húsmóður frá Einholti í Biskupstungum, f. 17. september 1923. Þau skildu. Systkini Kristjáns eru: Arnbjörg Edda, f. 4. mars 1943, gift Grími Valdimarssyni, f. 16. júní 1943, Hafdís Karólína, f. 30. nóv- ember 1946, gift Kristjáni Gíslasyni, f. 14. ágúst 1944, Guðmundur, f. 24. júní 1949, Sólrún, f. 1. maí 1951, Ás- gerður, f. 9. febrúar 1955, og Ar- inbjörn, f. 23. maí 1957. Hálfsystur 1997, Arnar, f. 31. júlí 1998, og Agnes Björk, f. 18. ágúst 2000. 3) Lena Margrét, f. 15. mars 1973. Synir hennar og fyrrverandi sam- býlismanns, Baldvins Gíslasonar, f. 7. maí 1969, eru Viktor, f. 28. júlí 1994, og Eyþór Darri, f. 21. ágúst 1998. Seinni kona Kristjáns, 12. des- ember 1987, er Kristín Guðmunds- dóttir, f. í Reykjavík 12. nóvember 1943. Þau skildu. Foreldrar hennar eru hjónin Guðmundur Sam- úelsson, f. 15. maí 1921, og Mál- fríður Þorleifsdóttir, f. 22. nóv- ember 1921. Dætur Kristínar eru Anna Lára, f. 4. júlí 1961, Andrea Kristín, f. 4. júlí 1966, og Alma, f. 6. janúar 1975. Kristján lærði smíðar hjá föður sínum. Hann lauk prófi sem tré- smiður frá Iðnskólanum í Reykja- vík en bætti við sig meistararétt- indum í sama fagi síðar. Kristján vann lengst af í nánu samstarfi við föður sinn. Hann var afbragðs fag- maður, farsæll í starfi, útsjón- arsamur og eftirsóttur. Um nokk- urra ára bil vann Kristján við uppbyggingu og framkvæmdir á Bláfjallasvæðinu. Útför Kristjáns verður gerð frá Laugarneskirkju í dag, 27. mars, og hefst athöfnin klukkan 15. Kristjáns, samfeðra, eru Jóhanna, f. 16. maí 1963, gift Eggerti Snorra Guðmunds- syni, f. 1. janúar 1961, og Þuríður, f. 21. jan- úar 1968, gift Torfa Markússyni, f. 6. maí 1965. Kristján var tví- kvæntur. Fyrri kona hans, 17. júní 1968, er Unnur Björk Gísla- dóttir, f. í Reykjavík 29. nóvember 1948. Þau skildu. Foreldrar hennar eru hjónin Gísli Oddsson, f. 5. september 1912, d. 1987, og Lára Sæmundsdóttir húsmóðir, f. 28. september 1913. Börn Kristjáns og Unnar eru: 1) Gísli Valberg, f. í Reykjavík 10. febrúar 1968; 2) Þóra Björk, f. 28. júlí 1969. Maki 18. sept- ember 1993 Brynjar Hermannsson, f. 17. júní 1962. Börn þeirra eru Andri, f. 4. júní 1997, d. 7. júní 1997, Bárður, f. 4. júní 1997, d. 11. júní Elsku pabbi minn og afi. Síðustu vikuna í lífi þínu áttum við saman sem mér finnst mjög dýrmætt. Það var gott að geta verið hjá þér og þegið nærveru þína. Meðan ég dvaldi hjá þér á líknardeildinni rifj- uðust upp fyrir mér allar góðu minningarnar sem ég á með þér. Þótt svo að ég hafi ekki búið hjá þér eftir að þið mamma skilduð hafði ég alltaf aðgang að þér og mátti koma til þín þegar ég vildi, sem og ég gerði oft. Ég man hvað þú varst alltaf glað- ur og fagnandi þegar við hittumst. Það var líka alltaf gaman hjá okkur, þú gast setið tímunum saman og spilað við mig eða teflt. Ófáar voru sumarbústaðaferðirnar okkar aust- ur á Böðmóðsstaði þar sem margt var brallað. Ég man vel eftir gæsa- veiðunum, þegar þú skaust gæsirn- ar og ég hljóp þær uppi og dró þær á eftir mér heim. Þú varst alltaf mjög yfirvegaður og rólegheit í kringum þig, þannig að mér leið vel hjá þér og það var þægilegt að vera í kringum þig, sama hvort við vorum að bralla eitt- hvað saman eða ég að fylgjast með þér vinna. Margt fékk ég að læra af þér, sérstaklega þegar þú varst að smíða af mikilli fagmennsku og vandvirkni, enda voru hæfileikar þínir mikils metnir á meðal fólks. Alltaf varstu svo montinn og stoltur af mér, sama hvert við komum þá fékk ég að finna það. Ég man hve stoltur þú varst þegar ég flutti hingað norður til að fara í nám, því þú hafðir mikinn metnað fyrir mína hönd. Viktor og Eyþór Darri eiga margar góðar minningar með afa úr sumarbústaðnum, sérstaklega þeg- ar var verið að smíða handa þeim dýrgripi að þeirra mati. Það sem ég nefni hér er bara lítið brot af þeim minningum af þér sem búa innra með mér og ég mun alltaf varðveita. Það er erfitt að hafa þurft að kveðja þig svo ungan að árum en minn- ingin um þig lifir. Elsku pabbi minn og afi, við kveðjum þig nú í hinsta sinn og vonum að þér líði vel á nýj- um stað. Þín dóttir og afastrákar, Lena, Viktor og Eyþór Darri. Kiddi kom inn í líf mitt eins og þruma úr heiðskíru lofti þegar ég var 11 ára, en þá kynntust hann og móðir mín. Ég get ekki sagt að ég hafi verið himinlifandi yfir þessu til að byrja með en skjótt skipast veð- ur í lofti og hann reyndist mér hinn besti uppeldisfaðir. Upp frá því höf- um við fylgst að í gegnum súrt og sætt. Í minningunni einkennast bernskuárin með Kidda af ferðum á Böðmóðsstaði þar sem við eyddum gífurlegum tíma í að reisa sumar- húsið. Óneitanlega minnist maður þess hve mikið við spiluðum, unn- um, unnum meira, borðuðum franskar í dós, dóum nær úr hita í plasthúsinu og lifðum seinna í sátt og samlyndi í litlu rými í baðhúsinu. Og svo hrossakjötið sem var algjör nýlenda fyrir mig, Guði sé lof fyrir uppstúf. Um áratug síðar slitu mamma og Kiddi samvistum en okkar samband þróaðist æ meira út í vináttu. Ég hvarf af landi brott í nokkur ár en við héldum sambandi allan þann tíma. Eftir að við fluttum aftur til Ís- lands, fyrir tæpum 5 árum, fékk Kiddi nýtt hlutverk á heimilinu. Hann fékk titilinn Kiddi afi sem ég held að hann hafi verið mjög stoltur af. Það sama má segja um dætur okkar, þær hafa alltaf verið mjög ánægðar með afa sinn. Elsku Kiddi minn. Söknuðurinn er sár. Tilhugsunin um að þú sért ekki lengur hjá okkur er svo undarleg og einhvern veginn tóm. En svona er lífsins gangur og það er ekki hægt að segja annað en að þessir síðustu mánuðir hafi ein- kennst af miklum kjarki og æðru- leysi auk óhemju bjartsýni. Umræð- ur okkar um lífið, tilveruna, fjölskylduna og dauðann á þessu tímabili tel ég að hafi styrkt sam- band okkar enn frekar. Þú hefur alltaf verið í kallfæri og alltaf til staðar, sama hvað á hefur bjátað. Það var svo sem ekki við öðru að búast þegar um er að ræða mann blíðleika, vináttu, trausts, vinnusemi, dugnaðar, og svo mætti lengi telja. Jón Ágúst, Kolbrún, Karen og Katrín senda þér sínar einlægustu kveðjur. Takk fyrir að vera hluti af lífi okkar. Þín Alma. Kristján Valberg Guðbjörnsson, eða Kiddi eins og við kölluðum hann, var þriðji í röðinni af sjö systkinunum sem ólust upp á Hof- teig 20 í Laugarneshverfi. Leik- vangur bernskunnar var Hofteig- urinn, kirkjutúnið og svæðið umhverfis Laugarnesskólann. Gömlu sundlaugarnar voru heim- sóttar dag hvern. Frelsið var ótak- markað og bílaumferð nánast engin. Kristján bar nafn móðurföður síns, Kristjáns Þorsteinssonar, bónda í Einholti, Biskupstungum. Þar var hann alla tíð aufúsugestur og þar dvaldi hann í góðu atlæti ömmu, Arnbjargar Jónsdóttur, sem orðin var ekkja en bjó myndarbúi ásamt börnum sínum sem enn voru heima. Arnbjörg amma hefði orðið 109 ára þann 16. mars sl. á dán- ardegi bróður okkar. Henni hefur án efa þótt tími til kominn að taka drenginn með í ferð til æðri og bjartari heima. Frá sumrinu 1950 dvaldi Kiddi lungann úr sumrinu með fjölskyld- unni í sumarbústað sem pabbi og mamma reistu á landi Böðmóðs- staða í Laugardal þaðan sem pabbi var ættaður. Amma Karólína Árna- dóttir og afi Guðmundur Njálsson voru þá enn á lífi. Árin liðu. Skilnaður foreldranna frá stórum barnahóp var óumflýj- anlegur, en hann setti mark á bernsku og unglingsárin. Við lærð- um að bretta upp ermar og ganga heil til vinnu. Síðar meir reisti Kiddi sér hús í næsta nágrenni við sum- arhús bernskunnar, hús sem hann nefndi Vin. Kiddi byggði líka smíða- verkstæði sem búið var vélakosti af bestu gerð. Kiddi var smiður af Guðs náð, fagmaður mikill og úrlausnagóður. Oft var haft á orði að Kiddi virtist ekki hreyfast þegar hann gekk að starfi en afköstin voru ótrúleg og handbragðið óaðfinnanlegt. Öll störf voru skipulega unnin og fumlaus, hvergi var feilhögg. Að verklokum var gluggum og hurðum staflað og að stundu liðinni var vinnusvæðið tandurhreint og fínt. Kiddi var mikið náttúrubarn, átti jafnan góða bíla og ferðaðist mikið hérlendis sem erlendis. Börnin hans eiga margar góðar minningar frá þeim ferðum. Kiddi var hávaxinn og mikill á velli. Hann naut þess að gleðjast með góðum. Hann átti til að vera seinheppinn hrakfallabálkur en bar gæfu til að taka hlutunum létt og segja skemmtisögur af óförum sín- um með glettnissvip sem náði til augnanna. Hann lofaði okkur hinum að hlæja með sér þegar rifjaðar voru upp sögur af því þegar kvikn- aði í grillmatnum, báturinn rann frá bryggju og maðurinn með, mýsnar sem bjuggu í gólfteppinu o.fl. mætti nefna. Við Kiddi vorum nágrannar alla tíð. Við hjónin byggðum í Fossvog- inum, það gerðu Kiddi og Unnur líka og bjuggu börnum sínum þrem- ur gott heimili. Við hjónin byggðum síðar í Seljahverfinu. Það gerðu Kiddi og Unnur líka En leiðir þeirra hjóna skildi og árin liðu. Kiddi byggði húsið sitt í Laugar- dalnum og við hjónin eignuðumst gamla sumarhúsið sem faðir okkar byggði. Kristjáns Valbergs bróður míns er sárt saknað, en við eigum minn- ingar margar og góðar sem við þökkum fyrir. Móðir okkar fylgir syni sínum hinsta spölinn. Henni sem og börnum, tengdabörnum og barnabörnum sendum við dýpstu samúðarkveðjur og biðjum ykkur öllum Guðs blessunar. Arnbjörg Edda og Grímur. Meira: mbl.is/minningar Þegar Sólrún tilkynnti mér lát Kristjáns bróður síns seint á mánu- dagskvöldi fyrir rúmri viku kom það ekki á óvart að kallið væri kom- ið. Það var fyrirséð í hvað stefndi. Baráttan við illvígan sjúkdóm var á enda en fregnin snerti viðkvæman streng og ósjálfrátt fór hugurinn til baka, áratugirnir hafa hlaðist upp og margs að minnast með góðum dreng og vini. Við Kiddi kynntumst fyrst þegar við hófum nám við Iðnskólann í Reykjavík vorið 1965. Hann sem trésmíðanemi en ég í rafvirkjun. Á þeim tíma var öllum iðngreinum blandað saman í fyrstu bekkjum skólans. Nánari samskipti og vin- átta hófst þegar leiðir mínar og systur hans lágu saman. Sólrún kynnti mig fyrir stóra bróður og þá styrktust vináttuböndin. Í þá daga voru tímarnir aðrir, lán voru ekki auðfengin og ungt fólk sem var að koma sér þaki yfir höfuðið vann af kappi og byggði sjálft. Skiptivinna iðnaðarmanna var tíð og unnið hörðum höndum á kvöldin og um helgar. Verkkunnátta og lagni Kidda gerði hann að eftirsóttum smið. Vinnan lék í höndum hans og gott var að leita í smiðju hans með útfærslu og hvernig hentugast væri að leysa málin. Oft gat tekið smá tíma að koma sér af stað en þegar verkið hófst var eins og Kiddi hefði ekkert fyrir því, verkið var úthugs- að frá upphafi til enda. Ég naut krafta hans þegar við Sólrún byggð- um okkur hús í Stekkjarseli svo til í sömu götu og Kiddi reisti sér hús. Kiddi átti þar ófá handtök og oft var glatt á hjalla og veittist honum ávallt létt að vinna, hvert handtak hnitmiðað og ekki neinir feilar. Samskipti okkar Kidda hafa ekki síst verið í sveitinni á Böðmóðs- stöðum. Fyrst í sumarbústað föður hans og seinna í hans eigin húsi sem hann reisti ásamt verkstæði í hlaðinu á Böðmóðsstöðum. Oft lá leiðin til Kidda að biðja hann um smá viðvik á verkstæðinu sem reyndist honum létt enda vélakost- ur góður og öll aðstaða til fyrir- myndar. Samskipti fjölskyldna okk- ar hafa í gegnum árin verið góð og mikil og margs að minnast. Kiddi var hrókur alls fagnaðar á gleði- stundum og oft spilað á skemmt- arann og sungið fram eftir nóttu. Veislur í mat og drykk hafa verið ófáar, sennilega á maður ekki eftir að setjast að góðum mat öðruvísi en að minnast mágs míns fyrrverandi. Kiddi hefur alltaf verið stór þátt- ur í lífi barna minna og minnast þau Kidda sem frændans góða sem allt- af var á flottum stórum bílum, sterkur og stór og gat gert allt sem viðkom smíðum. Þegar Kiddi greindist með krabbamein í höfði í lok ágúst síðastliðins tók hann ör- lögum sínum með mikilli karl- mennsku og æðruleysi. Vonin um bata var samt sem áður til staðar en hún brást. Lífið heldur áfram en stórt skarð hefur orðið og erfitt að hugsa sér framtíðina án Kidda, góðs drengs sem söknuður er að. Eftir situr þakklæti fyrir samferðina öll þessi ár og góðan vinskap. Öllum aðstandendum, móður hans Þóru, systkinum, börnum, tengdasyni og barnabörnum sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðj- ur. Hvíl í friði, kæri vinur. Ólafur Sigurðsson. Í dag kveðjum við góðan vin, Kidda eða Kidda meistara eins og ég kallaði hann. Kidda kynntist ég 1987 þegar ég byrjaði að vinna hjá honum sem ungur drengur, þá ný- kominn til Reykjavíkur frá Stykk- ishólmi. Kiddi reyndist góður læri- meistari, sem bar fullt traust til okkar ungu strákanna. Unnið var við hin ýmsu verkefni í Reykjavík og Bláfjöllum. Bláfjöll voru í miklu uppáhaldi hjá honum og okkur. Honum þótti gaman að heyra og segja sögur af einhverju skoplegu, sem oft voru um hann. Mig langar að láta eina flakka. Þegar ég byrjaði að vinna hjá honum 1987 átti hann forláta Cort- inu-bíl sem var svo ryðgaður að bíl- stjórasætið var að detta á götuna, en því var reddað með því að stífa það með timbri í aftursætið. Þegar Staðarsel fékk verðlaun fyrir feg- urstu götu Reykjavíkur, var hann vinsamlegast beðinn að fjarlægja bílinn af götunni á meðan á verð- launaafhendingu stóð sem hann og gerði og hafði gaman af. Kiddi reyndist góður vinur. Sem dæmi fengum við að vera í kjall- aranum í Staðarselinu hjá honum og Kristínu með eldri dóttur okkar fyrsta árið okkar í Reykjavík. Þegar frí gafst fór Kiddi í sumarbústaðinn á Böðmóðsstöðum, þar sem honum þótti alltaf gott að vera. Þar átti hann flott verkstæði þar sem hann setti saman glugga og hurðir. Þang- að var alltaf mjög gaman og gott að koma í heimsókn, ég tala nú ekki um þegar maður kom á matartíma og fékk eitthvað þjóðlegt í kropp- inn, eins og t.d. íslenska kjötsúpu og saltað hrossakjöt sem var í miklu uppáhaldi hjá honum. Kiddi veiktist 16. ágúst í fyrra, en þrátt fyrir erfið veikindi bar hann sig mjög vel allan tímann, sem er mjög lýsandi fyrir hann. Að lokum viljum við þakka allar góðu stund- irnar og skemtilega hláturinn sem þú hefur gefið okkur öll þessi ár. Elsku Gísli, Þóra, Lena og aðrir aðstandendur. Okkar innilegustu samúðarkveðjur. Megi minning Kidda lifa. Hafþór Helgi og Guðrún. Vinur minn, Kristján Guðbjörns- son, er látinn eftir stutta en snarpa viðureign við manninn með ljáinn sem engu eirir ef því er að skipta. Við Kiddi vorum vinir hátt í 30 ár og aldrei bar skugga á þá vináttu. Kynni okkar hófust þegar ég réði mig í vinnu hjá föður hans, Guðbirni Guðmundssyni byggingameistara, sem þá hafði mörg járn í eldinum. Ósjaldan kom það fyrir að faðir hans sendi okkur tvo saman í ein- hver verkefni og betri félaga en hann var varla hægt að fá. Hann var góður fagmaður sem hægt var að treysta. Seinna þegar hann hafði komið sér upp sumarhúsi ásamt trésmíða- verkstæði á afar fallegum stað á föðurarfleið sinni á Böðmóðsstöðum fórum við hjónin oft í heimsókn til hans og voru þá alltaf fagnaðar- fundir. Ég sakna Kidda vinar míns og bið honum blessunar í nýjum heim- kynnum. Ég sendi móður hans, börnum og systkinum innilegar samúðarkveðj- ur. Siguróli Jóhannsson. Kristján Valberg Guðbjörnsson ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang- amma og langalangamma, EVA PÉTURSDÓTTIR, dvalarheimilinu Hulduhlíð, Eskifirði, sem andaðist laugardaginn 21. mars, verður jarðsungin frá Eskifjarðarkirkju laugardaginn 28. mars kl. 14.00. Aðalsteinn Valdimarsson, Elinborg Þorsteinsdóttir, Pétur Valdimarsson, Fjóla Gunnarsdóttir, Albert Valdimarsson, Svanhildur Þórisdóttir, Auður Valdimarsdóttir, Guðjón V. Björnsson, Ástdís Valdimarsdóttir, Guðni Helgason, Hildur Valdimarsdóttir, Tove Engebretsen, Sólveig Valdimarsdóttir, Bjarni Pétursson, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.