Morgunblaðið - 27.03.2009, Side 36
36 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. MARS 2009
Sudoku
Frumstig
1
7 4 9
2 7 6 3
4 1 6 9
7 1 3 5
6 8
8
5
8 7 4
2
7 5 4 6
6 7 8
1 7
2 8
3 7 9
6 8 1 2
7 3 9 1
4
7 8
8 1 4
6 3 9 2
3 2
1 5 7 6
7 3
9 5
6 1 8
3 4 5
7 3 2 6 5 4 9 1 8
6 9 4 1 7 8 5 3 2
8 1 5 2 9 3 6 7 4
5 6 7 9 1 2 8 4 3
9 4 8 3 6 7 1 2 5
1 2 3 4 8 5 7 6 9
3 8 9 7 4 1 2 5 6
4 7 6 5 2 9 3 8 1
2 5 1 8 3 6 4 9 7
8 5 7 9 3 4 2 1 6
4 1 9 2 6 7 8 5 3
2 3 6 5 1 8 4 9 7
5 4 8 3 9 6 7 2 1
3 7 1 8 2 5 9 6 4
9 6 2 4 7 1 5 3 8
7 2 3 6 8 9 1 4 5
1 9 5 7 4 3 6 8 2
6 8 4 1 5 2 3 7 9
3 1 5 4 6 9 7 2 8
6 2 9 1 8 7 5 3 4
8 7 4 2 3 5 9 6 1
5 6 7 8 2 1 4 9 3
2 4 3 9 5 6 1 8 7
9 8 1 7 4 3 2 5 6
1 3 6 5 9 4 8 7 2
4 5 8 6 7 2 3 1 9
7 9 2 3 1 8 6 4 5
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er föstudagur 27. mars, 86. dagur
ársins 2009
Orð dagsins: Vaknið því, þér vitið eigi,
hvaða dag Drottinn yðar kemur.
(Matth. 24, 42.)
Víkverjiskrifar
Víkverji heyrði á dögunum í út-varpinu samtal tveggja
kvenna um unglinga og bóklestur.
Þar kom m.a. fram að unglingar
lesa nú minna en áður og eru
hæglæsari; meðan meðalleshrað-
inn var áður 200 til 250 orð á mín-
útu er hann nú um 150 orð og
sjaldgæft að hann nái 200 orðum.
Unglingarnir eru orðnir betur læs-
ir á myndir en eru síður hand-
gengir söguþræði orðanna. Ein
meginástæða þessa er að bóklest-
ur er ekki viðurkennd tóm-
stundaiðja unglinga, nú eru það
íþróttir öllum stundum en einvera
í heimi bókanna er frekar talin til
leti og ómennsku en eitthvað ann-
að.
Þetta finnst Víkverja slæmar
fréttir. Hann var og er bókaormur
og vissi ekkert betra í æsku en að
hreiðra um sig með bók í hendi og
gefa sig ævintýrinu á vald. Bók-
heimurinn var ekki síður fjöl-
breyttur og lærdómsríkur en veru-
leikinn fyrir utan og oftast betri
og Víkverji var fróðari um menn
og málefni en félagar hans sem
höfðu eytt tímanum í annað en
bóklestur.
Enn eru bókabúðir í miklu
uppáhaldi hjá Víkverja. Þeim
fylgir kitlandi eftirvænting og ekk-
ert veit Víkverji skemmtilegra en
að handfjatla framandi bók, þefa
af henni og fletta henni, finna
fyrst reykinn af réttinum og
sökkva sér svo í söguheiminn og
vera umvafinn af söguþræði
orðanna. Þótt handbolti og fótbolti
séu skemmtilegar íþróttagreinar,
þá er bóklestur ekki síður mann-
bætandi tómstundaiðja og óskar
Víkverji þess öllum unglingum til
handa að þeim sé bókin töm sem
boltinn.
x x x
Í sjónvarpsfréttum í vikunni sáVíkverji Helgu Jónsdóttur
bæjarstjóra Fjarðabyggðar kynnta
sem bæjarstýru. Í augum Víkverja
er þetta fordild, sem betra er að
vera án. Víkverji minnist þess ekki
að ríkissjónvarpið hafi kynnt Elínu
Hirst sem fréttastýru meðan hún
gegndi stöðu fréttastjóra þar á
bæ. víkverji@mbl.is
Krossgáta
Lárétt | 1 soltinn, 8 fúl-
menni, 9 refs, 10 aðgæti,
11 rýma, 13 hreinir, 15
fælin, 18 nagla, 21 upp-
tök, 22 vaggi, 23 ávöxt-
ur, 24 tekur höndum.
Lóðrétt | 2 heimild, 3
missa marks, 4 eftirrit, 5
þoli, 6 höfuðblæja, 7
skordýr, 12 nöldur, 14
þjóta, 15 móðguð, 16
gretta sig, 17 hvalur, 18
vísa, 19 furða sig á, 20
brátt.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 sekur, 4 bylta, 7 járns, 8 ólykt, 9 tíð, 11 reit, 13
ótta, 14 unaðs, 15 vörð, 17 agns, 20 bik, 22 kuðla, 23 líð-
um, 24 aurum, 25 rjóma.
Lóðrétt: 1 skjór, 2 korði, 3 rúst, 4 blóð, 5 leyft, 6 aftra,
10 ílaði, 12 tuð, 13 ósa, 15 vökva, 16 roðar, 18 geðró, 19
semja, 20 barm, 21 klór.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. Rc3 d6 4. d4
cxd4 5. Rxd4 e5 6. Rf3 Be6 7. Rg5
Rf6 8. Rxe6 fxe6 9. Bc4 Dd7 10. Be3
Hc8 11. Bb3 Be7 12. Df3 Ra5 13. Ba4
Rc6 14. O-O-O O-O 15. Dh3 Kh8 16.
Hhf1 a6 17. f4 exf4 18. Hxf4 Dc7 19.
Dxe6 b5 20. Bb3 Ra5 21. Kb1 Hfe8
22. Bd4 Rxb3 23. Dxb3 Db7 24. Df7
Dc6
Staðan kom upp í blindskák á
Amber-mótinu sem lauk fyrir
skömmu í Nice í Frakklandi. Rússinn
Vladimir Kramnik (2.759) hafði hvítt
gegn Azeranum Teimour Radjabov
(2.761). 25. Bxf6 Bxf6 26. Hxf6! og
svartur gafst upp enda fátt til varna
eftir t.d. 26…gxf6 27. Dxf6+ Kg8 28.
Hd3.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Rjómalega.
Norður
♠D10953
♥Á9
♦D632
♣54
Vestur Austur
♠KG82 ♠Á764
♥D10642 ♥G87
♦108 ♦974
♣92 ♣DG8
Suður
♠–
♥K53
♦ÁKG5
♣ÁK10763
Suður spilar 7♦ doblaða.
Ralph Katz, liðsforinginn í sig-
ursveit Vanderbilt-keppninnar, mátti
þakka fyrir leguna í spili dagsins,
sem er frá úrslitaleiknum við John
Diamond og félaga á sunnudaginn.
Katz og makker hans, George Ja-
cobs, renndu sér alla leið í 7♦. Katz
vakti á Standard-laufi og sýndi svo
sterka opnun með tveggja-tígla vend-
ingu við spaðasvari norðurs. Jacobs
studdi tígulinn og þegar Katz komst
að því síðar að makker átti ♥Á og
♦D stökk hann glaðbeittur í 7♦. Ge-
off Hampson í austur hafði grun um
einhvern misskilning í sögnum og do-
blaði út á spaðaásinn. Útspilið var
spaði og Katz trompaði ásinn. Samn-
ingurinn hrynur til grunna ef annar
lágliturinn liggur 4-1, en legan gat
ekki betri verið og þrettán slagir
reyndust auðteknir.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þú ert við stjórnvölinn, sem er
gott, því þú ert sú eina sem veist hvað er á
seyði. Skoðun þín er eins og laglína sem
skapar spennu við lagið sem við syngjum.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þótt þú eigir bágt með að skilja hug-
myndir vinar þíns er engin ástæða til þess
að leggja vináttuna á ís. Leyfðu öðrum að
deila ánægjunni með þér.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Tilhneiging þín til þess að
dreyma dagdrauma verður þér til happs.
Hlustaðu á hlutlausan athuganda í stað
ættingja sem hefur staðnað fortíð-
arviðhorf til þín.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Láttu ekki værðina ná svo sterk-
um tökum á þér að þú hafir ekki dug í þér
til að vinna þau verk sem þarf að vinna.
Gleymdu ekki að áhyggjur eru eins og
ruggustóll sem hreyfist en fer hvergi.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú ert þessi trausti og öruggi náungi
sem óhætt er að fela verkefni. Enginn er
fullkominn og heimurinn ferst ekki þótt
eitthvað þurfi að sitja á hakanum.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú munt eiga áhugaverðar sam-
ræður við systkini þín og vini í dag. En
best fer á því að sumir hlutir verði aldrei
skýrðir því ekkert líf er án leyndardóma.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þú munt hugsanlega kaupa eitthvað
sem kemur á óvart í dag. Líklega er þetta
einstakt tækifæri, því eitt er alveg nóg.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Nú er rétti tíminn til að sækj-
ast eftir því sem þú vilt í vinnunni. Líttu
fyrst í eigin barm áður en þú hefur uppi
kröfur á hendur öðrum.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Það gæti komið upp óánægja
innan heimilisins eða fjölskyldunnar í
dag. Reyndu að klára það sem þú hefur
tekið að þér.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú hefur hundrað hugmyndir
um hvað á að gerast næst. Þegar þið getið
sýnt hvort öðru hversu mikið þið þarfnist
hvors annars, verður lífið auðveldara.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Nú er rétti tíminn til þess að
fitja upp á einhverju nýju, hvort heldur er
í einkamálum eða atvinnu. Aðeins þannig
getur þú reiknað með því að félagar þínir
séu samstarfsfúsir.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þótt nútíminn sé nærtækastur er
viturlegt að horfa fram á veginn um leið
og hollt er að hyggja að fortíðinni.
Stjörnuspá
27. mars 1918
Stjórnarráðið auglýsti að
eina og sömu stafsetningu
skyldi nota í skólum, skóla-
bókum og öðrum bókum sem
landssjóður gæfi út eða
styrkti. Þá var meðal annars
ákveðið að rita skyldi je í
stað é og s í stað z. Því var
breytt rúmum áratug síðar.
27. mars 1943
Varðskipið Sæbjörg stóð
breska togarann War Grey
að ólöglegum veiðum við
Stafnes. Togarinn sigldi
áleiðis til Englands með
stýrimann Sæbjargar og
stöðvaði ekki fyrr en varð-
skipið Ægir hafði elt togar-
ann uppi og skotið þrjátíu
skotum að honum. Farið var
með togarann til Reykjavík-
ur.
Skagafjarðarskjálftinn. Mik-
ill jarðskjálfti, um 7 stig,
fannst víða um land um kl.
23.15. Upptökin voru norður
af mynni Skagafjarðar. Hús
léku á reiðiskjálfi, fólk varð
óttaslegið og sumir héldu sig
utandyra alla nóttina.
27. mars 1967
Snjóflóð féll úr Bjólfi á Seyð-
isfirði á síldarverksmiðju
Hafsíldar. Fimmtán hundruð
fermetra geymsluhús lagðist
saman.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
Þorleifur
Pálmi Jónsson,
fyrrum lög-
regluþjónn, frá
Geithóli í Hrúta-
firði verður ní-
ræður á morgun,
laugardaginn 28.
mars. Hann tek-
ur á móti gestum
í sal Hrafnistu í Reykjavík, (að-
albyggingu) 4. hæð, milli kl. 13 og
16 á afmælisdaginn.
90 ára
„ÉG ætla að eyða afmælisdeginum með fjölskyld-
unni,“ segir Jón Gíslason bóndi sem verður fimm-
tugur í dag. „Ég verð að heiman og mun ekki
halda veislu í þetta skiptið heldur ætla ég að láta
mig hverfa,“ bætir hann við. Spurður um eft-
irminnilegasta afmælisdaginn segir Jón að hann
verði að nefna tvo. „Sá fyrri var árið 1991, en þá
var sonur okkar, Valur, skírður á afmælisdaginn
minn. Það var svo fjórtán árum seinna, eða árið
2005, sem hann var fermdur sama dag.“
Fertugsafmælið er honum einnig minnisstætt
fyrir þær sakir að þá hélt hann veislu. „Þetta var
nú ósköp hefðbundið fyrir vini og kunningja en heilmikil veisla sem
ég hélt hérna heima,“ segir Jón.
Jón býr á Stóra-Búrfelli ásamt konu sinni og sonum en Jón á þrjá
syni og einn fósturson. Þau hjónin stunda sauðfjárrækt auk þess sem
þau eru með mjólkurframleiðslu upp á 120.000 lítra á ári.
Þegar Jón er spurður um áhugamál segir hann að hann hafi gaman
af að ferðast. Hins vegar fer mikill tími í búskapinn og er vinnan því
einnig áhugamál sem og félagsmál. „Ég væri nú ekki hérna nema það
væri einhver áhugi fyrir því.“
Jón Gíslason, bóndi á Stóra-Búrfelli, 50 ára
Verður með fjölskyldunni
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is