Morgunblaðið - 27.03.2009, Qupperneq 38
38 MenningFRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. MARS 2009
BÓKAFORLAGIÐ Uppheimar
hefur stofnað nýjan bókaklúbb á
Netinu, Undirheima. Klúbburinn
krefst engra
skuldbindinga af
félögum sínum
og býður upp á
norrænar glæpa-
sögur á hag-
stæðum kjörum.
Um þessar
mundir og á
næstu vikum
koma eftirtaldar
bækur út hjá
Undirheimum: Land tækifæranna
eftir Ævar Örn Jósepsson, Þar
sem sólin skín eftir Lizu Marklund,
Rauðbrystingur eftir Jo Nesbø,
Óheillakrákan eftir Camillu Läck-
berg og Kallaðu mig prinsessu eft-
ir Söru Blædel.
Bækur eftir
Nesbø og Blædel
eru nú að koma
út í fyrsta sinn á
íslensku, en bæði
njóta þau gíf-
urlegra vinsælda
í heimalöndum
sínum, Noregi og
Danmörku, auk
þess sem bækur
þeirra eru gefn-
ar út víða um heim. Þess má geta
að Nesbø og Blædel eru bæði
væntanleg til Íslands nú í maí.
Bækur Ævars Arnar, Marklund
og Läckberg hafa notið mikilla og
vaxandi vinsælda undanfarin ár og
fengið afar lofsamlega dóma.
Sú nýbreytni fylgir Undir-
heimum, að þar býðst fólki að
kaupa væntanlegar bækur í forsölu
á tilboðsverði, allt að tveimur vik-
um áður en þær fara í almenna
sölu í verslunum, og fá bækurnar
sendar heim sér að kostn-
aðarlausu. Ennfremur bjóða Und-
irheimar áður útgefnar glæpasög-
ur sinna höfunda til sölu á
hagstæðu verði.
At í Und-
irheimum
Fimm glæpasögur
koma út á næstunni
HÚMOR og Amor, dag-
skrá menningarstofnana
Reykjavíkur, tekur sig
upp í Ljósmyndasafni
Reykjavíkur í Grófarhúsi
í hádeginu í dag. Í aðalsal
kynnir Jóna Þorvalds-
dóttir ljósmyndari verk
sín og gefur gestum innsýn í gerð hins sígilda
platínó-palladíum ljósmyndaprents. Einnig verð-
ur fram borinn ástardrykkur. Dagskráin stendur
milli kl. 12 og 13. Í frétt um viðburðinn segir að
verk Jónu Þorvaldsdóttur hafi nokkra sérstöðu í
ljósmyndaflórunni á Íslandi í dag, myndheimur
hennar sé draumkenndur, fullur af mýkt og róm-
antík. Jóna tekur myndir sínar á gamla blaðfilmu-
vél.
Ljósmyndun
Húmor og Amor í
Ljósmyndasafninu
Ein af myndum Jónu.
LISTAKONURNAR
Eva Signý Berger,
Katrín I. Jónsdóttir,
Rakel McMahon og
Una Björk Sigurð-
ardóttir starfa nú á
vettvangi sem þær
kalla Opið – til eru hræ, sem staðsettur er í Kling
& Bang. Kl. 20 í kvöld verður kveikt á hljóðnem-
anum á staðnum og hann hafður opinn fyrir texta-
flutning af hvaða tagi sem er. „Okkur langar að
skapa vettvang fyrir tilraunastarfsemi og sam-
runa á milli listgreina,“ segja listakonurnar og
spyrja ennfremur: „Langar þig að halda ræðu,
flytja erindi, leiklesa, stofna til umræðu eða
þegja? Lemja trommusett eða flytja ljóðgjörning?
Möguleikarnir eru opnir.“
Myndlist
Kveðið í vindvél
í Kling og Bang
KRISTJÁN Eiríksson, for-
maður Íslenska esperanto-
sambandsins, heimsækir í dag
klukkan 17 sýningarrýmið 101
Projects og fjallar um alþjóða-
tungumálið esperanto.
Kristján mun fjalla um hug-
myndir um hlutlaust alþjóða-
mál, gera grein fyrir upphafi
málsins og fjalla um stöðu
þess nú. Þá verður spjallað um
hvernig hugsjónir esperant-
ista eru nátengdar baráttu lítilla málsamfélaga
fyrir tungu sinni og menningu en sú umræða
tengist yfirstandandi sýningu Susan Hiller í sýn-
ingarrýminu. Spjallið er öllum opið og boðið
verður upp á kaffiveitingar.
Hugvísindi
Hugmynd um hlut-
laust alþjóðamál
Kristján
Eiríksson
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„Á SÍÐUSTU árum hafa orðið
ákveðin hvörf í leikhúsinu hvað það
varðar að það leikhús sem við þekkj-
um hvað best, „módern“ leikhús með
leikrænum átökum og söguþræði, er
kannski ekki að víkja, en það er að
verða til rúm fyrir svolítið nýja
strauma sem bjóða upp á annars kon-
ar frásagnarmáta sem er ekki fyr-
irfram læstur í ákveðnu ferðalagi
persóna í gegnum atburðarás,“ segir
Jón Atli Jónasson. Hann er einn með-
lima Mindgroup-hópsins sem stend-
ur að leikverkinu Þú ert hér sem
frumsýnt verður á Nýja sviði Borg-
arleikhússins í kvöld. Um óhefð-
bundið leikverk er að ræða en það
tekur á aðstæðum í íslensku þjóð-
félagi í kjölfar bankahrunsins. Vinna
við verkið hófst því ekki fyrr en í nóv-
ember sem telst afar stuttur með-
göngutími fyrir leikverk. Ástæða
þessa stutta undirbúningstíma er sú
að aðstandendur sýningarinnar og
listrænir stjórnendur Borgarleik-
hússins vildu bregðast hratt við
ástandinu í þjóðfélaginu og láta leik-
húsið svara þeirri umræðu sem væri í
samfélaginu. Að sögn Jóns Atla kom
stuttur vinnslutími ekki að sök enda
er vinnan við uppsetninguna óvenju-
leg. Aðstandendur eru aðeins þrír, en
auk Jóns Atla eru í hópnum þeir Jón
Páll Eyjólfsson og Hallur Ingólfsson.
Þeir hafa alla þræði í höndum sér, svo
sem leikstjórn, handrit og leik. List-
rænt frelsi þeirra þriggja er því mik-
ið.
Að nálgast ástandið
„Mín kenning er sú að hið póst-
móderníska leikhús hafi að mestu
leyti orðið til af því að hið hefðbundna
leikhús er hætt að svara þeim spurn-
ingum sem vakna í okkar samfélagi í
dag á fullnægjandi hátt. Auðvitað get
ég sett Shakespeare upp og sagt að
hann fjalli um ástandið í dag en svo
get ég líka sest niður og ávarpað það
með beinni hætti,“ segir Jón Atli sem
vill þó ekki endilega meina að um
hreina og klára ádeilu sé að ræða.
„Við nálgumst bara ástandið og
þessi sýning verður til upp úr því
samfélagi sem við lifum í og til-
heyrum. Ég held að það sé mjög auð-
velt að finna einhverja heilaga vand-
lætingu og mæta bara með allar
byssur hlaðnar í leikhúsið. Ég veit
ekki hvort það er málið, heldur frek-
ar að það sem hafi talað til okkar sé
það sem mætti kalla sviðsetningu at-
burðanna undangengna mánuði.“
Peningar slökkva díalóg
Jón Atli segir að í vissum skilningi
sé komið að skuldadögum hvað varð-
ar listir og menningu á Íslandi, sér-
staklega þegar litið sé til góðærisins.
Þetta sé endurspeglað í Þú ert hér.
„Það er mjög auðvelt að segja að góð-
ærið hafi verið tími sem eingöngu
auðmenn upplifðu. En það er svo
langt frá því. En það sem ég held að
skilgreini ástandið er að peningar
slökkva allan díalóg. Það er engin
orðræða ef það eru peningar, það eru
engin rök ef það eru peningar. Sem
dæmi má nefna að fyrir nokkrum ár-
um kom út bók sem hét Kynlífs-
biblían. Auðvitað settu margir spurn-
ingarmerki við að spyrða saman
kynlífsstellingar og Biblíuna. En svo
þegar maður spurði út í þetta var
réttlætingin sú að þetta seldist vel.
Þá þurfti ekkert að ræða það meira.
Þannig að öll rök voru tekin úr sam-
bandi. Og í því sambandi er svo und-
arlegt þegar maður heyrir fólk láta út
úr sér hluti eins og að það hafi ekki
verið hugmyndafræðin sem klikkaði,
heldur fólkið.“
Aðspurður segir Jón Atli þá félaga
ekki endilega vilja umbreyta leik-
húsforminu þótt þeir fari óhefð-
bundnar leiðir í Þú ert hér. „Við vilj-
um bara að það sé pláss fyrir allt. Ég
hef ekkert út á leikhússtjóra að setja
sem velur saman Þú ert hér, Rústað
og Sound Of Music. Það sem gerist í
kreppu er að þá verða þessi óhlut-
bundnu verðmæti svo mikilvæg, eins
og menning og listir. Það er það sem
er svo frábært við þetta Borgarleik-
húss-ævintýri, að fólk flykkist í leik-
húsið. Það hlýtur að vera bæði já-
kvætt og eftirsóknarvert.“
Mindgroup-hópurinn frumsýnir hið mjög svo óhefðbundna leikverk Þú ert hér
Spurningunum svarað
Þú ert hér „Auðvitað get ég sett Shakespeare upp og sagt að hann fjalli um
ástandið í dag, en svo get ég líka sest niður og ávarpað það með beinni
hætti,“ segir Jón Atli Jónasson, einn höfunda leikverksins Þú ert hér.
Eftir Gunnhildi Steinarsdóttur
nema í mastersnámi í blaða- og fréttamennsku
KÚLAN er framlag Listasafns Íslands til hönn-
unardaga Hönnunarmiðstöðvar Íslands 2009.
Kúlan, húsgagnaverslun við Skólavörðustíg, var
stofnuð 1962. Nafn hennar var dregið af forláta
kúlu eftir Gunnar Malmberg sem var sett sam-
an úr tannhjólum gamallar klukku. Helstu
hvatamenn að stofnun hennar voru Dieter Roth
og Magnús Pálsson, en í versluninni voru seldir
og framleiddir munir eftir þá ásamt öðrum
hönnuðum. Þeir unnu mikið með óheflaða furu
en voru í uppreisn gegn tekköldinni sem var als-
ráðandi upp úr miðri síðustu öld.
Sigríður Melrós Ólafsdóttir, deildarstjóri
sýningardeildar Listasafns Íslands, segir að
hugmyndafræði hönnuðanna hafi verið einfald-
leikinn og að kaupendur gætu sett sjálfir saman
húsgögnin. Þessi hugmyndafræði hafi í raun
birst áratugum seinna í húsgögnum IKEA.
Hönnunin féll þó ekki í kramið hjá samtímanum
og verslunin var opin í einungis þrjá mánuði.
„Húsgögnin líta hins vegar nútímalega út og
standast mjög vel tímans tönn. Maður mundi
gjarnan vilja eiga þau“ bætir hún við.
Aðstandendur sýningarinnar hafi grafið upp
ýmislegt sem var til sölu í Kúlunni en einnig er
varpað á skjá ljósmyndum sem varpa góði ljósi
á verslunina. Sýningin stendur til 29. mars.
Kúlan féll ekki í kramið hjá samtímanum
Hugmyndafræði húsgagnahönnunar Dieter Roth
og félaga birtist síðar í húsgögnum IKEA
Morgunblaðið/Heiddi
Kúluverk Munir sem seldir voru í Kúlunni eru nú sýndir í kaffistofu Listasafns Íslands.
Í ljósi umfjöllunarefnisins þótti
listamönnunum ekki við hæfi að
eyða miklum fjármunum í ytri um-
gjörð sýningarinnar. Því var farin
ákveðin endurvinnsluleið við fram-
leiðslu leikmyndar og annarra
þátta. Umgjörðin er búin til úr
gömlum leikmyndum, gömlum
búningum og svo framvegis.
„Þannig verður viss samhljómur í
aðferðinni og umfjöllunarefninu.
Okkur fannst okkur ekki stætt á að
eyða miklum peningum í þetta,“
segir Jón Atli. Þá má geta þess að
leikskrárnar eru í raun gamlir
bæklingar frá bönkunum.
Endurvinnsla vel við hæfi
Við fórum mjög oft
austur á firði, þar
var mjög sérstakt griðland
Þursanna. 42
»
Í BANDARÍKJUNUM er þess nú
beðið að nýtt verk eftir Pulitzerverð-
launatónskáldið John Adams verði
frumflutt. Verkið er óperu-óratoría,
sem höfundur kallar Blómstrandi tré.
Frumflutningur verður á Mostly
Mozart-hátíðinni í Lincoln Center 13.
ágúst. Indónesískur danshópur tekur
þátt í flutningnum auk amerískra
listamanna; Peter Sellars stjórnar.
Nýr Adams