Morgunblaðið - 23.04.2009, Page 1
Gleðilegt sumar
Morgunblaðið/Kristinn
F I M M T U D A G U R 2 3. A P R Í L 2 0 0 9
STOFNAÐ 1913
108. tölublað
97. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
Veldu létt
... og mundu eftir
ostur.is
ostinum
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
0
7
-2
3
8
8
Sérblað um
atvinnulíf
á suðurlandi
fylgir Viðskiptablaði
Morgunblaðinu í dag
«EITTSINNSKÁTI – ÁVALLTSKÁTI
SKÁTAR ÁBERANDI Á
SUMARDAGINN FYRSTA
«SJÚKLEGASÆTUR
ER ZAC EFRON
NÆSTA KYNTÁKN?
Framkvæmdastjóri Lands-
sambands smábátasjómanna gagn-
rýnir fjárfestingar Gildis lífeyr-
issjóðs í vogunarsjóðum.
Varaformaður sjóðsins ver fjárfest-
ingarnar og segir þær löglegar.
VIÐSKIPTI
Gagnrýna fjár-
festingar Gildis
Seðlabanki Evrópu situr uppi með
85 milljarða króna af ríkistryggð-
um skuldabréfum. Skuldabréfin
voru meðal þeirra eigna sem
Landsbankinn lagði að veði fyrir
lánum í evrum frá Seðlabanka Evr-
ópu í gegnum Lúxemborg.
Situr uppi með
milljarða vegna LÍ
FORSÆTISRÁÐHERRA skrifaði í
gær formönnum stjórnmálaflokk-
anna bréf þar sem lögð er til endur-
skoðun á lögum um fjármál stjórn-
málaflokkanna. Ríkisendurskoðun
fari yfir fjármál flokkanna, samtaka
á þeirra vegum og frambjóðenda í
prófkjörum frá því áður en lögin
tóku gildi. Bréfið hefur ekki borist
formönnunum og fæst efni þess ekki
upplýst að öðru leyti.
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætis-
ráðherra, lýsti í viðtali við Zetuna á
mbl. is á dögunum vilja til þess að
Ríkisendurskoðun skoðaði sér-
staklega tímabilið frá árinu 2000 til
2006, þegar nýju lögin tóku gildi.
Formenn allra flokka sem eiga full-
trúa á þingi lýstu vilja til þess að
Ríkisendurskoðun skoðaði málið.
Guðlaugur Þór Þórðarson, alþing-
ismaður Sjálfstæðisflokksins, sagði í
kjördæmaþætti í Sjónvarpinu í gær-
kvöldi að styrkir FL Group og
Baugs hefðu ekki þótt háir miðað við
það umhverfi sem þá var. Hann
sagðist hafa fengið styrki frá 40 að-
ilum í prófkjörsbaráttunni 2006. „Ég
hef farið eftir öllum þeim reglum,
sem um prófkjör fjalla,“ sagði Guð-
laugur. Hann hefði aldrei hyglað
neinu fyrirtæki og myndi ekki gera.
Össur Skarphéðinsson iðn-
aðarráðherra lýsti þeirri skoðun
sinni í sama þætti að kostnaður
vegna prófkjörsbaráttu hefði farið
úr böndunum.
Ógn við lýðræðið
„Í mínum huga er það ógn við lýð-
ræðið og lýðræðislega skipan þegar
sá möguleiki er nýttur að þeir sem
eru fjársterkir og eiga hagsmuna að
gæta, geti haft óeðlileg áhrif með því
beinlínis að kaupa sér stuðning
stjórnmálaflokka með styrkjum,“
segir Sigurður Kristinsson, dósent
við Háskólann á Akureyri.
Vill breytingar á lög-
um um fjármál flokka
Í HNOTSKURN
»Guðlaugur Þór Þórðarson(D) og Steinunn Valdís
Óskarsdóttir (S) fengu 2 millj-
ónir frá FL Group og 2 millj-
ónir frá Baugi vegna próf-
kjörsbaráttu 2006.
»Björn Ingi Hrafnsson (B)fékk 2 milljónir frá Baugi.
Fyrirtækið styrkti amk. 18
frambjóðendur 2006, að því er
fram kemur á vef DV.
Ógn við lýðræðið? | 14
Baugur og FL-Group styrktu prófkjörsbaráttu um milljónir
RÓÐURINN
hjá fyrir-
tækjum hér á
landi hefur
þyngst mjög
að und-
anförnu, ef
miðað er við
upplýsingar
frá Creditinfo
um greiðslu-
hegðun fyr-
irtækjanna og
upplýsingar
þeim tengdar.
Samkvæmt mælingum Credit-
info er fjöldi fyrirtækja sem telj-
ast í mestri áhættu nú um fjórfalt
meiri en fyrir bankahrunið. Þá
voru 2.612 fyrirtæki í þremur
mestu áhættuflokkum Creditinfo
en í dag telst fjöldinn vera
10.242.
Greiðsluþrot er mest í bygging-
arstarfsemi. | Viðskipti
Fjórfalt
fleiri í vanda
Fyrirtæki í auknum
mæli í erfiðleikum