Morgunblaðið - 23.04.2009, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 23.04.2009, Blaðsíða 49
Velvakandi 49 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 2009 Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand RÉTT HJÁ ÞÉR, ODDI... ÞESSI HUNDUR ER MJÖG ASNALEGUR ANSANS! ALLT ER VONLAUST! TIL HVERS? ÖLLUM ER SAMA! ÞETTA ER HRÆÐILEGT! HVAÐ ER EIGINLEGA AÐ ÞÉR? MÉR LÍÐUR ALLTAF ILLA ÞEGAR JÓLIN ERU BÚIN HANN SAGÐI AÐ ÉG VÆRI NÓGU HRAUSTUR TIL AÐ SLÁST VIÐ SKÓGARBJÖRN! HÆ, HELGA ! VEISTU HVAÐ LÆKNIRINN SAGÐI? ÉG GERI RÁÐ FYRIR ÞVÍ AÐ HANN HAFI ÁTT VIÐ UPP- STOPPAÐAN SKÓGARBJÖRN ÉG ÞOLI ÞAÐ EKKI ÞEGAR VINIR HANS FÁ AÐ GISTA ER ÞESSI GÍTAR- KENNSLA AÐ VERÐA BÚIN? KALLI, VIÐ VORUM AÐ BYRJA! ÞÚ ÁTT ALDREI EFTIR AÐ LÆRA AÐ SPILA Á GÍTAR EF ÞÚ ÆFIR ÞIG EKKI! ÞÚ ÁTT ALDREI EFTIR AÐ SPILA Í HLJÓMSVEITINNI MINNI... STOFNA ÞÍNA EIGIN HLJÓMSVEIT... OG VERÐA STEVIE RAY VAUGHAN ÞINNAR KYNSLÓÐAR AAGH! KANNSKI ÆTTUM VIÐ AÐ FINNA ALVÖRU GÍTARKENNARA HANDA KALLA ÉG ER MEÐ SLÆMAR FRÉTTIR HVAÐ GERÐIST? SPRENGDU ÞEIR ANNAN SENDIFERÐABÍL? NOKKRIR BLAÐASÖLUMENN HAFA HRINGT INN OG SAGT AÐ EINHVER FANTUR HAFI FENGIÐ ÞÁ TIL AÐ HÆTTA AÐ SELJA „DAILY BUGLE“ HÖFÐU ÞEIR SAMBAND VIÐ LÖGREGLUNA? NEI! ÞEIR ERU DAUÐHRÆDDIR VIÐ ÞENNAN FANT HVERNIG VIRKA LJÓSAPERUR? GALDRAR EN ÞÚ SAGÐIR ÞAÐ SAMA ÞEGAR ÉG SPURÐI UM RYK- SUGUNA! ÞETTA ERU ALLT GALDRAR ÞÚ VEIST BARA EKKI HVERNIG NEITT VIRKAR! FÍNT! EF ÞÚ VILT EKKI TRÚA PABBA ÞÍNUM, SEM VEIT MEIRA EN ÞÚ, ÞÁ MÁTTU ÞAÐ SJÁÐU! GALDRAR! ÞETTA ERU EKKI GALDRAR Fyrstu skref sum- arsins tekin með bæn í hjarta UNDANFARIN sex ár hafa hópar fólks hafið sumarið á því að ganga saman í bæn. Sumardagurinn fyrsti markar nýtt upphaf. Veturinn er að baki og sumarið hefur inn- reið sína, hikandi oft, en styrkist frá hinum fyrsta sumardegi. Hópar fólks sem játa kristna trú safnast saman fljótlega eftir sólarupprás og biðja saman á göngu í miðborginni sem og víðar á landinu. Fyrir nokkrum árum hófu þrír hópar bænastarfið, núna eru þeir þrjátíu og tveir gönguleggirnir sem farnir verða. Nánari upplýsingar um tíma- og staðsetningar er hægt að nálgast á veffanginu http://www.lindin.is/ Templates/ganga_1.htm Hvort sem þú kemst með eða ekki, þá taktu endilega þátt á þinn máta. Allar bænir í Jesú nafni og góður hugur skipta máli, svo skemmir ekki að hreyfa sig. Best er að láta þetta haldast í hendur alla daga sumarsins, góðan bæn- arhuga og hressilega hreyfingu. Þorvaldur Víðisson. Sama vanhæfa draslið og áður ÉG á mjög erfitt með að skilja hvers vegna ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttir virðist njóta svo mikils fylgis meðal Íslendinga. Hún er alveg jafn vanhæf, hug- myndalaus og óstarfhæf og gamla ríkisstjórn Geirs H. Haarde. Opnið augun og skoðið hvað er að gerast í landinu og lítið á staðhæfingar sem staðfesta að ríkisstjórn Vinstri grænna og Samfylkingar er sama drasl og hin fyrri, Sjálf- stæðisflokks og Samfylkingar. Á þessum 70/80 dögum sem voru mjög dýrmætir og skiptu miklu máli, hafa Vinstri græn og Sam- fylkingin brugðist okkur. Þeir sögðust ætla skapa 6.000 ný störf en á þessu tímabili misstu um 6.000 manns vinnu sína, stýrivextir Seðlabanka hafa aðeins lækkað um 1%, vaxtalækkun tafðist að óþarfa vegna aðgerða ríkisstjórnar Jó- hönnu, krónan heldur áfram að falla, spáð er að 40.000 manns muni missa heimili sín á næstunni og 3.000 fyrirtæki eru núna í hættu við að fara í þrot. Þessu virðast Vinstri græn og Samfylk- ingin ætla að bjarga með því að setja hærri skatta á fólk og fyr- irtæki eða eins og þau kusu að kalla það: ,,skjöld“. Þessi fáránlega ríkisstjórn virðist líka vera ósam- mála um mikilvæg mál sem verða að leysast núna en ekki seinna, þar má nefna ESB og Helguvíkurmálið eða gjaldmiðilinn. Þess má geta að á meðan ég skrifaði greinina sitja þingmenn og ræða það hvort gera eigi vændi refsivert. Af hverju eru þau ekki að ræða hvernig eigi að koma til hjálpar öllum þessum at- vinnulausu, þessum sem eru að missa heimilin? Göngum hreint til kosninga og hrækjum í kjörseðl- ana. Endum vanhæfa tímabilið, það hefur varað nógu lengi. Útrýmum þess- um spilltu flokkum Samfylkingunni, Vinstri grænum, Sjálfstæðisflokknum, Framsóknarflokknum og Frjálslynda flokkn- um, fáum burt allt þetta samseka land- ráðsfólk á þinginu, við þurfum glænýtt fólk sem ræður við verk- efnin en málið er að við fólkið sem viljum komast að fáum ekki að bjóða okkur fram nema vera flokks- bundin. Íslendingur. Hnípin þjóð í vanda ÞAÐ er ekki nema von að við séum hnípin þjóð í vanda þegar horft er á fulltrúa þjóðarinnar, al- þingismenn, bulla og hrópa hver á annan orð á borðið, landráð og mútur, í stuttu máli haga sér á þingi eins og krakkar í ólátabekk. Það er ekki nema von að fari um almúgann ónotahrollur yfir að verða að borga „hæstvirtum“ laun – há laun – og aðstoðamönnum (til hvers?) há laun einnig, Það hefur verið talað um að ekki mætti hafa of mörg börn í bekk ef kennsla ætti að nýtast. Ekki þarf nema að benda á þingmannafjöldann til að sanna það. Það væri kannski minna um ólæti og frammíköll ef þeir væru helmingi færri. Án gríns: Okkar fámenna þjóð hefur ekkert að gera við 63 þingmenn. Var kosið um að þeir mættu ráða sér aðstoðarmenn á okkar kostn- að? Hugsanlegur kjósandi. Í forundran ÞIÐ sjálfstæðismenn eruð allir út í eitt með valdagræðgi. Nú sendið þið fokk-merki til þjóðarinnar í sambandi við að auka lýðræði þjóðar gagnvart alþingi, þið eru að verða ykkur til skammar með þessu málþófi. Þið eruð búnir að sýna alþjóð hvað í ykkur býr, þið megið ekki til þess hugsa að þessi nýja stjórn eigi að huga vel að allri þeirri eyðileggingu sem þið eruð búnir að valda með ykkar stjórn í átján ár. Virðingarfyllst, Kristjana Vagnsdóttir. ESB HJÖRLEIFUR Guttormsson sagði við lok landsþings VG að VG ætl- uðu ekki að láta Samfylkinguna kúga sig í Evrópumálum. Ég spyr; hverjir eru að kúga hverja? Sam- fylkingin vill sækja um aðild, semja, og bera það svo undir fólkið í landinu. Er þetta kúgun að mati Hjörleifs ? Er Ísland kannski bara fyrir kvótaeigendur í sjávarútvegi og landbúnaði? Af hverju ekki að gera okkur klár fyrir inngöngu og upptöku evru ef meirihluti Íslend- inga hallast að því eftir samninga og telur það besta kostinn? Jón Helgi Guðmundsson.   Svarað í síma 5691100 frá 10–12 velvakandi@mbl.is Félagsstarfeldriborgara Aflagrandi 40 | Lokað í dag. Fé- lagsmiðstöðin er opin virka daga frá kl. 9-16.30. Félag kennara á eftirlaunum | EKKÓ- kórinn æfir í KHÍ kl. 16.30-18.30. Nýj- ar raddir velkomnar. Félagsstarf Gerðubergi | Starfsemi fellur niður í dag, sumard. fyrsta. Starfsfólk sendur hugheilar óskir um gleðilegt sumar, með þakklæti fyrir veturinn. Á morgun kl. 9-16.30 vinnu- stofur opnar. Furugerði 1, félagsstarf | Á föstudag kl. 14.15, koma Aðalheiður og Anna Sigga og stjórna fjöldasöng fram að kaffi kl. 15. Hraunsel | Lokað sumardaginn fyrsta. Skoðið vef félagsins: www.febh.is. Korpúlfar, Grafarvogi | Sundleikfimi kl. 9.30 á morgun í Grafarvogslaug. Listasmiðjan, gleriðnaður og tréskurð- ur á morgun á Korpúlfsstöðum kl. 13- 16. Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Sögu- stund, spjall og léttar æfingar með Sigurrós kl. 9.45, handverks- og bóka- stofa opin kl. 13, boccia kvennaklúbb- ur kl. 13. Hárgreiðslustofa, s. 862- 7097, fótaaðgerðastofa s. 552-7522. Vesturgata 7 | Handavinna kl. 9.15- 15.30, kóræfing kl. 13.30, leikfimi kl. 13, tölvukennsla. Hárgreiðsla og fóta- aðgerðir kl. 9-16. Vitatorg, félagsmiðstöð | Bókband. postulínsmálun kl. 9, morgunstund kl. 9.30, boccia kl. 10, framh.saga kl. 12.30, handavinnustofan opin með leiðsögn, spilað kl. 13, stóladans kl. 13.15, félagsmiðstöðin er öllum opin. Uppl. í síma 411-9450.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.