Morgunblaðið - 23.04.2009, Blaðsíða 10
10 Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 2009
Það má heita fastur liður að réttfyrir kosningar sýna Vinstri
grænir sitt rétta andlit og þá byrjar
að hrynja af þeim fylgið.
Í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gærsagðist Kolbrún Halldórsdóttir
umhverfisráðherra vera alfarið á
móti olíuleit á Drekasvæðinu.
„Þetta er svona óðagotsaðgerð í
mínum huga,
sem farið var í,
og algerlega,
eins og ég segi,
að vanbúnu
máli,“ sagði Kol-
brún.
Ráðherranntelur Ísland
„engan veginn í
stakk búið til að
gerast olíuríki“. Reisa þurfi landið
við á nýjan leik „og þá er það ekki í
mínum huga með því að fyrstu
ákvarðanirnar séu svona stórar og
groddalegar eins og olíuvinnsla á
Drekasvæðinu óneitanlega er“.
Olíuleit er að sögn Kolbrúnar íandstöðu við hugmyndafræði
vinstri grænna. Aukinheldur gangi
hún gegn alþjóðlegum samningum.
„Er þetta eitthvað sem samrýmist
þeim skuldbindingum sem við erum
þegar búin að undirgangast í um-
hverfismálum? Og þar staldra ég
við. Mitt svar við þeirri spurningu
er nei,“ segir Kolbrún.
Umhverfisráðherrann er aldeilisekki af baki dottinn. Ekki má
nota vatnsorku eða jarðhita til að
byggja upp atvinnu. Og nú má ekki
heldur nota hugsanlegar olíulindir.
Hvaða auðlindir má þjóðin nýta?
Í gærkvöldi sendi VG út yfirlýs-ingu, þar sem ummælum ráð-
herra flokksins í ríkisstjórninni var
afneitað.
Er nokkur ástæða til að afneitasínu rétta andliti?
Kolbrún
Halldórsdóttir
Rétta andlitinu afneitað
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands
Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður
Reykjavík 8 skýjað Lúxemborg 15 heiðskírt Algarve 22 heiðskírt
Bolungarvík 2 rigning Brussel 16 léttskýjað Madríd 23 heiðskírt
Akureyri 5 rigning Dublin 14 skýjað Barcelona 19 léttskýjað
Egilsstaðir 6 rigning Glasgow 13 skýjað Mallorca 22 heiðskírt
Kirkjubæjarkl. 8 rigning London 19 heiðskírt Róm 20 léttskýjað
Nuuk -3 alskýjað París 19 heiðskírt Aþena 16 léttskýjað
Þórshöfn 8 skýjað Amsterdam 12 léttskýjað Winnipeg 6 skýjað
Ósló 14 heiðskírt Hamborg 7 skúrir Montreal 12 skýjað
Kaupmannahöfn 12 skýjað Berlín 10 léttskýjað New York 13 heiðskírt
Stokkhólmur 9 skýjað Vín 21 léttskýjað Chicago 13 léttskýjað
Helsinki 7 heiðskírt Moskva 5 léttskýjað Orlando 24 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
HALLDÓR STAKSTEINAR
VEÐUR
23. apríl Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 5.09 3,5 11.22 0,4 17.29 3,7 23.42 0,4 5:27 21:27
ÍSAFJÖRÐUR 1.12 0,3 7.06 1,8 13.29 0,1 19.30 1,9 5:19 21:44
SIGLUFJÖRÐUR 3.06 0,2 9.17 1,1 15.29 0,1 21.43 1,1 5:02 21:27
DJÚPIVOGUR 2.24 1,9 8.27 0,5 14.40 2,0 20.53 0,4 4:53 20:59
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
Á föstudag
Norðan 13-18 m/s á V-verðu
landinu, en annars mun hæg-
ari. Slydda eða snjókoma ámeð
köflum N- og A-lands, en ann-
ars stöku él. Hiti 0 til 5 stig, en
3 til 8 stig SA-til.
Á laugardag
Norðaustan 8-13 m/s og dálítil
él, en bjart SV-til. Vaxandi suð-
austanátt með slyddu SV-lands
um kvöldið. Hiti 0 til 5 stig.
Á sunnudag, mánudag og
þriðjudag
Útlit fyrir eindregna austanátt
og fremur svalt veður. Dálítil
væta S- og A-lands, en annars
þurrt að kalla.
VEÐRIÐ NÆSTU DAGA
SPÁ KL. 12.00 Í DAG
Austan 8-13 metrar á sekúndu
og rigning með köflum sunnan
til og norðaustan 13-15 m/s og
slydduél á Vestfjörðum. Annars
stöku skúrir. Hvessir heldur í
kvöld. Hiti 0 til 8 stig, svalast á
Vestfjörðum.
SKIPULAGSRÁÐ Reykjavíkur-
borgar samþykkti samhljóða í gær
tillögu Júlíusar Vífils Ingvarssonar,
formanns ráðsins, um að endurskoða
deiliskipulag Víðidals.
Í tillögunni segir að mikilvægt sé
að sátt ríki um skipulag og uppbygg-
ingu í nágrenni Elliðaánna. Árnar
séu stórkostleg náttúruperla í miðri
höfuðborg og að því leyti einstakar á
heimsvísu. Verndun lífríkis og nátt-
úru séu forsendur alls skipulags
svæðis sem umlykur árnar.
Stangaveiðifélag Reykjavíkur hef-
ur gagnrýnt harðlega skipulagið sem
samþykkt var fyrr á árinu. Með til-
lögu skipulagsráðs er verið að bregð-
ast við þessari gagnrýni. Formaður
skipulagsráðs hefur átt fundi með
embættismönnum, formanni Hesta-
mannafélagsins Fáks, framkvæmda-
stjóra og formanni Stangaveiðifélags
Reykjavíkur og veiðimálastjóra
ásamt sérfræðingum Veiðimála-
stofnunar. Skipulagið verður lagt að
nýju fyrir ráðið.
Samþykkt að endurskoða
deiliskipulag Víðidals
STARFSMENN Kópavogsbæjar
verða á ferðinni í lok apríl og byrj-
un maí við að hreinsa garðaúrgang
sem eigendur lóða og landssvæða
setja utan við lóðarmörk sín. Eins
og fram hefur komið mun Reykja-
víkurborg ekki bjóða borgarbúum
upp á þessa þjónustu í ár.
Þjónustan er veitt í íbúðahverf-
um Kópavogsbæjar frá 27. apríl
næstkomandi til og með 8. maí.
Lóðarhafar þurfa sjálfir að fjar-
lægja lausan jarðveg og rusl af
byggingarlóðum, s.s. timbur og
málma. Sama á við um spilliefni
sem á að skila til endurvinnslu-
stöðvar, að því er segir í frétta-
tilkynningu.
Kópavogsbær hreinsar
garðaúrgang í vor
Morgunblaðið/Golli