Morgunblaðið - 23.04.2009, Síða 28

Morgunblaðið - 23.04.2009, Síða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 2009 Óskar Magnússon. Ólafur Þ. Stephensen. Útgefandi: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal. Útlitsritstjóri: Árni Jörgensen. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Ríkisstjórn-arflokkarnir vilja hækka skatta til að komast hjá því að þurfa að ráð- ast í allan þann niðurskurð í ríkisfjármálunum, sem við blasir að er óhjá- kvæmilegur. Sjálfstæðisflokk- urinn hefur hins vegar hafnað skattahækkunum. For- ystumenn hans hafa nú útskýrt hvernig þeir hyggjast loka gat- inu í ríkisfjármálum. Það vilja þeir gera með því að lækka út- gjöld í mennta-, heilbrigðis- og velferðarmálum um 5% og önn- ur ríkisútgjöld um 10%. Tekjum í ríkissjóð vilja þeir hins vegar ná með því að byggja hvata til atvinnusköp- unar inn í skattkerfið, skapa skilyrði fyrir fjölgun starfa í einkageiranum og endurreisa þannig skattstofnana. Með því komi meiri tekjur í ríkissjóð, án skattahækkana. Í þessu felst viðurkenning á því hvar endurreisn íslenzks atvinnu- og efna- hagslífs mun eiga sér stað. Hin raun- verulegu verðmæti verða til í öflugum fyrirtækjum í einkageiranum, ekki í rík- isstofnunum. Með því að hækka skatta verður þrengt að möguleikum almennings og fyrirtækja til vinnu, neyzlu, fjárfestingar og verðmætasköpunar. Peningar verða teknir af einkageiranum og færðir inn í ríkisgeirann. Það er aðeins skammtíma- lausn. Það er engin leið að við- halda öflugu velferðarkerfi án þeirrar verðmætasköpunar og hagvaxtar, sem á sér stað í einkageiranum. Sjálfstæðismenn benda á að verði ekkert gert, m.a. í rík- isfjármálunum, muni Ísland ekki uppfylla skilyrði fyrir upptöku evrunnar. Það er gott að þeir vilja taka upp evruna. Næst kemur þá að finna trú- verðuga leið til þess. Velferðarkerfið þrífst á öflugum einkageira} Hvar á endurreisnin sér stað? Þ eir sem upplifðu verðbólgutíma á Íslandi muna eftir því að eitt helsta pólitíska ágreiningsefnið var hvort fella ætti gengið. Frétt- irnar gengu út á hvort líkur væri á gengisfellingu og þá hversu mikil hún ætti að verða. Síðan þegar búið var að fella gengi krónunnar tóku við fréttir um afleiðingar gengisfellingar. Allt var þetta mjög fyr- irsjáanlegt og hefðbundið. Samtök vinnuveit- enda sögðu að útflutningsatvinnuvegirnir gætu ekki þolað þetta háa gengi og for- ystumenn verkalýðshreyfingarinnar skömm- uðust yfir gengisfellingunni sem ekki gerði annað en að rýra kjör launþega. Fulltrúar vinstriflokkanna á þingi gagnrýndu jafnan gengisfellingar ríkisstjórnarinnar og sögðu sem rétt var, að með þessu væri verið að lækka laun fólks því að lægra gengi leiddi til hærri verðbólgu og þar með minni kaupmáttar. Þegar vinstristjórn var við völd í landinu var mikill þrýstingur á stjórnina að halda aftur af gengislækkun og dæmi voru um að stjórnir féllu vegna ágreinings um gengismálin. Eftir að þjóðarsáttarsamningar voru gerðir fyrir um 20 árum breyttist hin pólitíska umræða og segja má að orðið „gengisfelling“ hafi nánast horfið úr tungumálinu. En umræðan um krónuna hefur hins vegar verið haldið áfram að vera ofarlega á dagskrá stjórnmálamanna. Margir vilja henda krónunni en þó ekki allir. Sumir sjálf- stæðismenn vilja halda í hana og vinstri grænir eru al- mennt sammála um að óeðlilegt sé að kenna krónunni um ófarir okkar í efnahagsmálum. Nú tala stuðningsmenn íslensku krónunnar um að það sé kostur að vera með krónu því að með því að fella gengi hennar sé auðveldara að finna nýjan og heilbrigðari grundvöll fyrir at- vinnulífið. Gott og vel. Þetta eru að sjálfsögðu sömu rök og talsmenn gengisfellingar notuðu í gamla daga. En nú bregður svo við að það eru vinstrimennirnir í VG sem mæra kosti lágs gengis. Stundum finnst manni þeir hafa lesið yfir sig af ályktunum frá Vinnuveitenda- sambandi Íslands þegar þeir eru að tjá sig um kosti þess að fella gengið. Hver haldið þið t.d. að hafi mælt eftirfarandi orð í Kastljósi í vik- unni? „Við verðum að framleiða okkur út úr vandanum og það gerum við best með því lága gengi myntarinnar sem við búum við.“ Þetta sagði enginn annar en Ragnar Arnalds, fyrrverandi formaður Alþýðu- bandalagsins, sem á árum áður gagnrýndi stjórnvöld harðlega fyrir að fella gengið og stuðla þannig að kjara- rýrnun launafólks. Nú segja hann og flokksbræður hans að það sé alveg frábært að eiga gömlu góðu krónuna því hægt sé að gengisfella hana og þá verði allt gott aftur. Hvað á fólk að segja sem nú er að taka á sig launalækk- un vegna gengisfellingar á sama tíma og lánin hækka upp úr öllu valdi? Er þetta sá stöðugleiki sem heimilin í land- inu eru að kalla eftir? Er þetta nýja Ísland? Eru menn sem hafna árinu 2007 bara að biðja um 1983 aftur? Egill Ólafsson Pistill Ánægja hjá VG með gengisfellingar Safna liði til að mót- mæla einkarekstri FRÉTTASKÝRING Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is H ann er vandfundinn sá safnamaður sem líst vel á áform Akranes- kaupstaðar og Hval- fjarðarsveitar um að einkavæða rekstur Byggðasafnsins í Görðum og Listasetursins Kirkju- hvols. Raunar hafa öll samtök safna- manna og safnamenn sem hafa tjáð sig um málið gagnrýnt samnings- drögin og vinnubrögð sveitarfélag- anna, þó sérstaklega að ekkert sam- ráð var haft við Safnaráð, menntamálaráðuneytið eða aðra safnamenn. Þá eru þeir andvígir því að rekstur byggðasafna sé færður til einkaaðila. Í fyrradag sendi Ríkisendurskoðun fyrirspurn til bæjarins út af fyr- irhugðum samningi auk þess sem málið er til skoðunar í mennta- málaráðuneytinu. Um 900 manns hafa skráð sig á Facebook-síðuna Björgum byggða- safninu og minnihlutinn á Akranesi boðar til bæjarmálafundar á mánu- dagskvöld til að ræða málið. Faglegar ástæður Í Morgunblaðinu í gær sagði Gísli S. Einarsson, bæjarstjóri á Akranesi, aðspurður um gagnrýni Margrétar Hallgrímsdóttur þjóðminjavarðar og Rakelar Halldórsdóttur, fram- kvæmdastjóra Safnaráðs á samning- inn, að „kengur“ væri milli þeirra og Adolfs Friðrikssonar, fram- kvæmdastjóra Vætta ehf., sem taka á við rekstri safnsins. Margrét og Rakel hafna því alfarið að um persónulegar deilur sé að ræða eins og megi ráða af orðum bæj- arstjórans. „Málið snýst ekki um per- sónulegan ágreining, málið snýst um að það er ekki við hæfi að einkavæða rekstur safns á þennan hátt, án nokk- urs samráðs við Safnaráð og mennta- málaráðuneytið. Þess vegna gerum við athugasemdir,“ sagði Margrét í samtali við Morgunblaðið í gær. Mar- grét líkt og fleiri safnamenn sem rætt var við segja undarlegt að skilja eigi bátakost safnsins frá rekstri byggða- safnsins, líkt og áform eru um og það sé algjörlega óljóst hver muni sjá um vörslu þeirra. Varðveisla bátanna væri flóknasta og erfiðasta verkefni safnsins. Margrét sagði að margt ylli henni áhyggjum í þessu máli, s.s. hvernig skráningu safngripa og varð- veislu yrði háttað, gerð sýninga og faglegt starf safnsins. Þá brjóti samn- ingurinn gegn alþjóðlegum siða- reglum safna (ICOM). Yfirlýsing um annað í samningsdrögunum sé fyr- irsláttur því það liggi fyrir að safnið verði rekið af einkafyrirtæki og það eitt og sér brjóti gegn siðareglum ICOM. Þar með geti safnið ekki feng- ið framlög úr safnasjóði og vænt- anlega ekki heldur úr ríkissjóði. „Þetta er menningararfur sem varðar alla þjóðina og það er ekki við hæfi að einkavæða slíkt,“ sagði Margrét. Það væri að auki athugavert að þetta væri gert án útboðs. Samningurinn um rekstur safnsins og listasetursins var ekki boðinn út og sagði Gísli S. Einarsson, bæj- arstjóri á Akranesi, að verkefnið væri ekki útboðsskylt. Hann hefði efa- semdir um að útboð hefði skilað betri samningi. Spurður um varðveislu bátanna sagði Gísli að þeir hefðu lengi legið undir skemmdum og það væri ætlun bæjarsins að koma þeim í varðveislu. Bærinn hefði hins vegar aðeins efni á að taka kútter Sigurfara í sundur og koma honum í trausta geymslu, lengra kæmist bærinn ekki að sinni. Morgunblaðið/Sigurður Elvar Hver sigrar? Samningurinn verður afgreiddur úr bæjarstjórn á þriðjudag. Ástand eða staðsetning kútters Sigurfara breytist ekkert við það. Samkvæmt drögum að samningi Akraneskaupstaðar og Hvalfjarð- arsveitar við Vætti um rekstur Byggðasafnsins að Görðum og Listasetursins Kirkjuhvoli ætlar Akranes að borga Vættum rétt um 30 milljónir króna á ári til að reka byggðasafnið. Sú upphæð fylgir vísitölu neysluverðs. Samkvæmt upplýsingum frá skrifstofu Akraneskaupstaðar lagði bærinn safninu til tæplega 26 millj- ónir á árinu 2008. Við þá fjárhæð bætist rekstrarhalli og að teknu til- liti til hans eru upphæðirnar sam- bærilegar, að sögn Gísla S. Ein- arssonar. Gísli segir að fjárhagslegur ávinningur af samn- ingnum felist í því að störfum fjölgi um 4-7 og að starfið verði mun öfl- ugra en hingað til. Í samningnum er kveðið á um að forvarsla og viðhald sýningargripa sé á kostnað sveitarfélaganna. EKKI SPARN- AÐUR ›› Það hlutfallkjósenda,sem hyggj- ast skila auðu í kosningunum á laugardag, er til marks um djúp- stæða óánægju. Samkvæmt skoð- anakönnun Capacent Gallup ætla 8,4% kjósenda að skila auðu atkvæði. Til samanburðar skiluðu 1,4% auðu eða ógildu at- kvæði í kosningunum 2007. Atkvæði er ekki léttvægt fyr- irbæri. Lýðræðið byggist á því að hver einstaklingur hafi sína rödd, sín áhrif. Þessum áhrifum kemur hann á framfæri með at- kvæði sínu. Það er ekki lítið mál þegar stjórnmálahreyfing fer fram á að fá atkvæði kjósenda. Með því er hið pólitíska afl að biðja um umboð og um leið að gefa fyrirheit um að það muni gæta hagsmuna kjósandans – ekki sérhagsmuna, heldur hagsmuna almennings. Að þessu sinni fara at- kvæðaveiðar stjórnmálaflokk- anna fram við mjög sérstakar aðstæður. Þrír af þessum flokk- um voru við völd þegar banka- hrunið átti sér stað og/eða í að- draganda þess. Engum blöðum er um það að fletta að þeir, sem réðu ferðinni í bönkunum, bera fyrst og fremst ábyrgð á hruninu, en engu að síður brást hin pólitíska forusta hlutverki sínu, annars vegar með því að fyrirbyggja ekki stórhættu- legan vöxt fjármálakerfisins og hins vegar með því að taka ekki í taumana þegar stjórn- málamönnunum átti að vera ljóst að komið var í óefni. Nú vilja þeir flokkar, sem sváfu á verðinum þegar kerfið hrundi, að kjós- endur greiði þeim atkvæði eins og það sé sjálfsagt að þeir eigi það skilið. Þeir ganga ekki fram af auðmýkt þegar þeir biðja um að umboðið verði end- urnýjað. Þeir biðja ekki náð- arsamlegast um annað tæki- færi, heldur fara í sömu stellingar og þeir voru í fyrir hrun eins og ekkert hafi í skor- ist. Karpið fer fram með sama hætti eins og sást við þinglok; þegar þörf er á samstöðu þvert á flokkslínur komast flokkarnir ekki upp úr sandkassanum og kenna síðan hver öðrum um hvernig fór. Hið háa hlutfall kjósenda, sem hafa í hyggju að skila auðu, sýnir að ákveðinn trún- aðarbrestur hefur orðið milli al- mennings og stjórnmálamanna á Íslandi og það er ekki útilokað að fleiri kjósendum sé skapi næst að gera slíkt hið sama, en geti það ekki vegna tilhugs- unarinnar um að þá kasti þeir atkvæði sínu á glæ. Upplýs- ingar um hegðun framsóknar-, sjálfstæðis-, og samfylking- armanna í flokksfjármálum hjálpa ekki til við að endurreisa trúnaðinn og eftir síðustu frétt- um að dæma um framlög fjár- málastofnana til einstakra stjórnmálamanna eru ekki öll kurl komin til grafar í þeim efn- um. Stjórnmálamenn verða að átta sig á því að þeir geta ekki að þessu sinni beðið kjósendur um atkvæði þeirra eins og sjálf- sagt sé að þeir eigi það skilið. Þeir þurfa að vinna fyrir traust- inu. Nú fara þeir sem fóru með völdin fram á atkvæði kjós- enda eins og sjálf- sagt sé að þeir eigi það skilið } Auðmýkt og atkvæði

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.