Morgunblaðið - 23.04.2009, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 23.04.2009, Blaðsíða 20
20 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 2009 Aðalfundur 2009 Aðalfundur Tryggingamiðstöðvarinnar hf. verður haldinn fimmtudaginn 30. apríl kl. 9 í húsakynnum félagsins, Síðumúla 24, Reykjavík. Dagskrá: 1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins á síðastliðnu starfsári. 2. Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár ásamt skýrslu endurskoðenda lagður fram til staðfestingar. 3. Ákvörðun um ráðstöfun tekjuafgangs félagsins eða hvernig mæta skuli halla. 4. Ákvörðun um tillögu stjórnar um starfskjarastefnu félagsins. 5. Ákvörðun um þóknun til stjórnar. 6. Kosning stjórnar félagsins. 7. Kjör endurskoðenda (endurskoðunarfélags). 8. Önnur mál löglega fram borin. Framboð til stjórnar skal tilkynna skriflega til félagsstjórnar, Síðumúla 24, Reykjavík, skemmst fimm dögum fyrir aðalfundinn. Í tilkynningunni skal greina nafn frambjóðanda, kennitölu, heimilisfang, upplýsingar um aðalstarf, önnur stjórnarstörf, menntun, reynslu og hlutafjáreign í félaginu, hagsmunatengsl við helstu viðskiptaaðila og samkeppnisaðila félagsins, sem og hluthafa sem eiga meira en 10% í félaginu. Reikninga félagsins og tillögur má nálgast á vef TM, www.tm.is eða á aðalskrifstofu viku fyrir fundinn. Stjórn Tryggingamiðstöðvarinnar hf. TM Síðumúla 24 // Sími 515 2000 // tm@tm.is // www.tm.is Eftir Sigtrygg Sigtryggsson sisi@mbl.is TILLAGA til þingsályktunar frá viðskiptanefnd Alþingis um að rík- isstjórnin hlutist til um að fram fari listfræðislegt mat á listaverkum bankanna náði ekki fram að ganga á lokaspretti Alþingis. Nefndin lagði til að því mati yrði lokið fyrir 1. októ- ber í haust, en ljóst er að sú tíma- setning mun ekki standast. Álfheið- ur Ingadóttir, formaður nefndarinnar, segir leitt að svona skyldi fara. Hún telur einsýnt að þetta mál verði tekið upp aftur þeg- ar þing kemur saman að nýju. Eins og margoft hefur komið fram eru um 4.000 listaverk af marg- víslegum toga í listasöfnum bank- anna, þar af um 1.700 í Landsbanka Íslands, um 1.200 í Kaupþingi og tæplega 1.100 verk hjá Íslands- banka, sem áður hét Glitnir. Í umsögn, sem Aðalsteinn Ingólfs- son lisfræðingur lét viðskiptanefnd í té vegna afgreiðslu málsins, leggur hann til að Listasafn Íslands verði umsjónaraðili með þessum listaverk- um, enda yfirlýst meginsafn ís- lenskrar myndlistar í eigu íslenska ríkisins (þjóðarinnar). Listasafnið býr við þrengsli „Listasafnið á nú u.þ.b. 11.000 listaverk en býr við mikil þrengsli og skert fjárráð, sem m.a. hefur komið niður á mannaráðningum og sýning- arstarfsemi. Eigi safnið að taka við 4.000 verkum til viðbótar þarf það að leigja 4-500 fermetra geymslu- húsnæði einhvers staðar í Reykjavík og gera það þannig úr garði að það standist ýtrustu kröfur sem gerðar eru til listaverkageymslu, þ.e. með sérútbúnum rekkum, nýjustu bruna- vörnum og hita- og kuldajöfn- unarkerfi,“ segir Aðalsteinn. Þessu til viðbótar þyrfti að ráða starfsfólk og allt myndi þetta kalla á viðbót- arkostnað fyrir ríkið upp á tugi milljóna króna. Í áliti sínu fullyrðir Aðalsteinn að um það bil þriðjungur þeirra verka, sem nú er að finna í söfnum bank- anna þriggja, ef ekki fleiri, muni ekki standast gæðakröfur Lista- safns Íslands. „Hér er að mestu leyti um að ræða verk sem keypt eða leyst voru til bankanna áður en þeir voru einka- væddir, ýmis undirmálsverk eftir þekkta og lítt þekkta listamenn eða verk eftir leikmenn víða um land, keypt af útibússtjórum hér og þar í gustukaskyni eða tekin upp í skuldir þegar engin önnur verðmæti fund- ust í fórum skuldara. Listaverkasöfn bankanna þarf því að grisja verulega áður en hægt verður að sameina þau þeirri safneign Listasafnsins, sem fyrir er,“ segir Aðalsteinn. Í upphaflegri þingsályktun- artillögu, sem nokkrir þingmenn fluttu, sagði að mikill fjöldi lista- verka, sem verið höfðu í eigu bank- anna og þar með sameign þjóð- arinnar, hefði runnið til einkaaðila við einkavæðingu bankanna árið 2003. Aðalsteinn segist taka heils- hugar undir að um afar vafasaman gjörning hafi verið að ræða. „En svo horft sé á jákvæðar hliðar þessa gjörnings, þá fullyrðir und- irritaður að bankarnir hafi verið mjög meðvitaðir um þá ábyrgð sem þeir tókust á hendur með „yfirtöku“ listaverkanna. A.m.k. tveir þeirra, Landsbankinn og Kaupþing, kapp- kostuðu að bæta við söfn sín nýjum verkum eftir helstu listamenn þjóð- arinnar og leituðu aðstoðar sérfræð- inga við hvaðeina sem viðkom þess- um verkum,“ segir hann. Þannig hafi Landsbankinn einn og sér bætt við sig um 450 listaverkum á þeim fimm árum, sem hann var í eigu einka- aðila. Í bankanum hafi farið fram stöðugar viðgerðir á eldri listaverk- um, þau hafi ævinlega verið aðgengi- leg sérfræðingum og áhugamönnum um myndlist og verkin hafi reglu- lega verið lánuð á sýningar. Listaverkin féllu á tíma  Listfræðingur vill að Listasafn Íslands hafi umsjón með söfnum bankanna  Telur að þriðjungur verkanna standist ekki gæðakröfur Listasafnsins Morgunblaðið/Sverrir Við Tjörnina Listasafn Íslands á nú um það bil 11 þúsund listaverk. Ef söfn bankanna fara undir verndarvæng safnsins bætast við um 4.000 listaverk. Í HNOTSKURN »Mörg verkanna eru óað-skiljanlegur hluti af inn- réttingum bankanna og ekki má hrófla við þeim, segir Að- alsteinn. »Nefnir hann sem dæmifreskur eftir Jón Stef- ánsson og Kjarval, vegg- málverk eftir Jón Engilberts og þrívíðar veggmyndir eftir Gerði Helgadóttur og Sig- urjón Ólafsson. »Þá eru mörg listaverk áveggjum útibúa bankanna víðs vegar um landið. Tiltölulega ódýr og farsæl lausn er að fela bönkunum að geyma lista- verk þjóðarinnar áfram í þeim geymslum sem þau hafa komið upp með ærnum tilkostnaði og nota þau áfram í svipuðum til- gangi og þeir hafa gert til þessa, segir Aðalsteinn Ingólfsson. Í því fælist einnig að bankarnir myndu áfram bera kostnað af for- vörslu verkanna og flutningum milli sýningarstaða. Í sameiningu yrði bönkunum gert að bera kostn- að af því að koma upp samræmdu skráningarkerfi og fella það að skráningarkerfi Listasafns Íslands. Hins vegar myndu bankarnir hvorki leggja fé til frekari kaupa á listaverkum né leysa til sín verk upp í skuldir, nema í samráði við Listasafn Íslands. Aðalsteinn leggur ennfremur til að bankarnir ráði sameiginlegan tilsjónarmann yfir listaverkasöfn- unum. Hann verði tengiliður þeirra við Listasafn Íslands, sjái um að grisja listaverkin í samráði við safnið, samræmi skáningarkerfi bankanna og safnsins og líti eftir söfnunum. Listaverkin verði áfram geymd í bönkunum KAMPUR, frístundamiðstöð Aust- urbæjar-, Háteigs- og Hlíðaskóla, stendur fyrir hátíð á Miklatúni í dag, sumardaginn fyrsta. Dagurinn hefst með réttindagöngu barna, í samstarfi við UNICEF, frá Austur- bæjarskóla kl. 13. Gengið verður niður á Miklatún þar sem fjölbreytt dagskrá hefst kl. 14. Þar er lögð áhersla á að sýna afrakstur vinnu barna og unglinga í hverfinu með Barnasáttmála SÞ. Yngri börnin úr skólunum þrem- ur syngja lög sem fjalla um réttindi barna, unglingarnir verða með söngatriði og auk þess munu þeir selja boli sem voru hannaðir með barnasáttmálann að leiðarljósi. Einnig fer fram áheitasöfnun fyr- ir UNICEF. Morgunblaðið/Heiddi Börn fara í réttindagöngu Sjálfstæðismenn hafa ekki útfært hugmyndir um hvar skera eigi niður í ríkisgeir- anum eða sam- eina stofnanir o.s.frv. Flokk- urinn hefur kynnt tillögur sínar í ríkisfjár- málum, m.a. um 20 milljarða hagræðingu (5%) í mennta-, velferðar- og heilbrigð- iskerfinu. Þá eigi að ná fram hag- ræðingu í öðrum hlutum rík- isrekstrarins sem skili 10 milljarða sparnaði. Tryggvi Þór Herberts- son, frambjóðandi í Norðaust- urkjördæmi, segir að hugmyndir um flatan niðurskurð séu ekki hag- kvæmasta leiðin. Þessar tillögur sjálfstæðismanna eigi ekki að valda skerðingu á þjónustu. omfr@mbl.is Þjónustan verði ekki skert Tryggvi Þór Herbertsson STUTT BORIST hafa svör frá Sjálfstæðis- flokknum við 8 af 9 spurningum sem Morgunblaðið lagði fyrir flokkana um fjárstyrki frá fyrirtækjum á árinu 2006. Skv. upplýsingum skrifstofu flokksins lágu ekki fyrir gögn til að hægt væri að svara spurningu nr. 8. Svör annarra flokka við spurningun- um birtust í blaðinu 16. apríl. Með svörum Sjálfstæðisflokksins fylgdi einnig yfirlýsing um að Sjálfstæðis- flokkurinn sé reiðubúinn í samstarfi við aðra flokka að fela Ríkisendur- skoðun að gera úttekt á fjármálum sínum síðastliðin ár. 1. Með hvaða hætti var efnt til fjár- söfnunar af hálfu flokksins á meðal fyrirtækja í lok árs 2006, áður en ný lög um fjármál stjórnmálaflokka tóku gildi? Fjársöfnun var í höndum fjármála- ráðs flokksins. 2. Hver eða hverjir tóku ákvörðun um þá fjársöfnun? Um venjubundna fjársöfnun var að ræða. 3. Tók formaður flokksins, þing- menn eða aðrir kjörnir fulltrúar þátt í söfnuninni með því að hafa samband við fyrirtæki og/eða forsvarsmenn þeirra? Fjársöfnun fyrir flokkinn er og hef- ur ávallt verið í höndum fjármálaráðs. 4. Var sett eitthvert hámark af hálfu flokksins á styrki, sem mætti þiggja? Nei, en almennt fóru styrkir ekki yfir 5 milljónir króna. 5. Hverjir vissu af styrkjunum? Heildaryfirsýn var á borði for- manns og framkvæmdastjóra. 6. Hverjir tóku ákvörðun um að þiggja styrki, sem bárust? Formaður og framkvæmdastjóri. 7. Hvaða styrki þáði flokkurinn umfram 300.000 krónur? Þegar hefur verið birtur listi yfir styrki umfram 1.000.000 krónur. 8. Hvenær bárust styrkir frá hverju fyrirtæki flokknum? 9. Eiga þær tölur, sem þegar hafa verið gefnar upp af hálfu flokksins um styrki á árinu 2006, eingöngu við um fé, sem safnað var af aðalskrifstofu flokksins eða eru einnig inni í þeim styrkir, sem veittir voru einstökum félögum og samtökum innan flokks- ins? Þær eiga eingöngu við um að- alskrifstofuna. Ekki var sett há- mark á styrki Sjálf- stæðisflokksins Svör við spurningum um styrki 2006
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.