Morgunblaðið - 23.04.2009, Page 38

Morgunblaðið - 23.04.2009, Page 38
38 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 2009 Þegar fréttin kom um að Ranna hefði kvatt þetta jarðlíf sunnudaginn 5. apríl toguðust á í mér léttir fyrir hennar hönd að baráttan varð ekki lengri og líka mikil eftirsjá. Minningarnar fylltu huga minn og allar góðar. Vináttusamband í rúm- lega hálfa öld er afar mikils virði. Minningarnar eru margar og um þær má hafa bæði sögð og ósögð orð. Ég minnist samveru okkar í Gaul- verjabæ. Ranna varð fljótt hnyttin í svörum og hafði hárbeittan og háðsk- an húmor. Það kom oftar en ekki af stað hlátursköstum, þar sem við frænkurnar skiptumst á að vera í kasti. Amma hennar Guðfinna (Erla) og móðurbróðir, Þorsteinn, voru skáld. Kannski var það í genunum hennar að elska bækur, því engan veit ég meiri lestrarhest. Hún sagði mér oft frá góðum bókum, sem hún hafði verið að lesa og við höfðum það fyrir sið að skiptast á jólabókunum í byrjun nýs árs. Ég minnist heimsókna í Búrfell. Sérstaklega er minnisstæð ferð sem við mæðgurnar fórum til Óla og Rönnu að áliðnu sumri. Við gengum inn í Búrfellsgjá, tíndum ber og borð- uðum berjaskyr. Ég minnist hjóla- ferðar niður að Sviðugörðum. Við frænkurnar áttum góðan dag hjá Siggu frænku. Ekki má gleyma frænkuhittingunum sem síðast varð frændfólkshittingur, sem Ranna leiddi saman ásamt öðrum. Þar hitt- umst við barnabörn ömmu og afa í Seljatungu. Fleiri minningar verða ekki tíund- aðar hér en tryggð hennar og um- hyggja fyrir mér og mínum geymdar í hjartanu um ókomna tíð. Þegar fjölskyldan flutti aftur á Sel- foss byrjaði Ranna að vinna á leik- skóla og fann fljótt að hún vildi vinna á þeim vettvangi. Hún lærði til leik- skólakennara og varð leikskólastjóri í Leikskólanum Árbæ, sem þá var byggðasamlag við nágrannasveitar- félögin og börnin um 25. Síðar var byggt í Fosslandinu og leikskólinn stækkaður í 98 barna skóla. Það var því mikil aukning á umsvifum, bæði hvað varðar barnafjölda og manna- forráð. Þú veist í hjarta þér kvað vindurinn að vegur drottnarans er ekki þinn. Heldur þar sem gróanda þytur fer og menn þerra svitann af enni sér og tár af kinn, og tár af kinn. Þ.V. Kveðjustund okkar á fimmtudag 2. apríl er mér dýrmæt. Sendum Óla, Guðjóni, Ara Má, Önnu Margréti, Gauja frænda og öðrum í fjölskyld- unni samúðarkveðjur héðan af Engjaveginum. Takk fyrir samfylgdina, mín kæra. Sigríður Ólafsdóttir. Mikið finnst mér undrastutt síðan við krakkarnir í Seljatungu og Gaul- verjabæ vorum að setja upp leikrit. Einmitt á þessum árstíma, þá var handhægt að setja upp svið í hlöð- unni, þegar lítið var orðið eftir af heyi. Leikstjórinn í þessum frum- sömdu listgjörningum var án undan- tekninga Ranna. Það kom einhvern veginn af sjálfu sér – og hún fór létt með að láta kvartanir yngri frænkna og systur sem vind um eyru þjóta, ef þær voru með eitthvert múður vegna hlutverkaskipunar. Þar komu fram stjórnunarhæfileikar hennar, hún þurfti sjaldnast að beita hörðu eða vera með hávaða, það varð allt eitt- hvað svo áreynslulaust og ljúft ná- Rannveig Ágústa Guðjónsdóttir ✝ Rannveig ÁgústaGuðjónsdóttir fæddist á Tryggva- götu 4 á Selfossi hinn 6. desember 1952. Hún lést á Heilbrigð- isstofnun Suðurlands á Selfossi sunnudag- inn 5. apríl sl. Útför hennar fór fram frá Selfoss- kirkju 18. apríl sl. lægt henni. Rúm 40 ár eru nú liðin frá þessum bernskuvorum. Og nú er þessi yndislega frænka okkar horfin af heimi, svo allt, allt of fljótt. Hún ólst upp í sveit- inni í Gaulverjabæ, næstelst í hópi 4 systk- ina, hjá foreldrum sín- um Guðjóni og Mar- gréti. Guðjón er móðurbróðir okkar og samgangur milli heim- ilanna í Seljatungu og Gaulverjabæ var mikill. Krakkahóp- urinn á svipuðum aldri og samrýmd- ur. Ranna hafði létta og ljúfa lund, hún var bráðgreind og lestrarhestur mikill, stundaði íþróttir og keppti um tíma fyrir ungmennafélagið í sveit- inni, Samhygð. Hún var hvarvetna hrókur alls fagnaðar, hláturmild með blik í auga. Hún kynntist manni sín- um, Ólafi Árnasyni, ung að árum. Og fljótlega komu börnin, drengirnir tveir, Guðjón Helgi og Ari Már á þremur árum, og eftir nokkurt hlé heimasætan Anna Margrét. Móður- hlutverkið leysti Ranna af hendi með mikilli prýði, og þau hjón áttu alla tíð hlýlegt og fallegt heimili. Hún starf- aði á leikskóla um langt árabil, dreif sig síðan í fjarnám við Kennarahá- skólann og útskrifaðist sem leik- skólakennari. Síðustu árin var hún leikskólastjóri í leikskólanum Árbæ á Selfossi, og víst er, að þau eru ekki fá, börnin á Selfossi, sem minnast henn- ar með hlýju þakklæti í dag. Á fullorðinsárum okkar hittumst við ekki eins oft og við hefðum kannski viljað. En alltaf þegar við hittumst, var eins og við hefðum sést síðast í gær, alltaf nóg að spjalla um og hlæja að, rifja upp atvik frá liðnum tímum. Þær eru svo margar mynd- irnar sem renna í gegnum hugann; Ranna með Guðjón Helga nýfæddan, Ranna og Óli í heimsókn í sumarbú- stað, hafandi hjólað frá Selfossi upp í Hreppa; Ranna í fimmtugsafmælinu sínu, geislandi glöð í faðmi fjölskyldu og vina. Eftir snarpa baráttu við krabbameinið hefur nú leikstjórinn okkar gengið hljóðlega út úr salnum, eftir sitja persónur og leikendur og sakna sárt. Mestur harmur er kveð- inn að Óla, börnunum, öldruðum föð- ur og systkinum. Við sendum þeim innilegar samúðarkveðjur og lútum höfði í virðingu og þökk fyrir sam- fylgdina. Ingibjörg, Sigurður og Einar Vig- fúsarbörn frá Seljatungu. Eimpípan blístrar í síðasta sinn; sé ég að komin er skilnaðarstund. Hugstola sleppi ég hendinni þinni. Handtakið slitnar, sem þakkaði kynni, samvistir allar og síðasta fund. – Sálirnar tengjast við tillitið hinsta taug, sem að slítur ei fjarlægðin blá. Brenna í hjartnanna helgidóm innsta hugljúfar minningar samveru- stundunum frá., (Erla.) Hversu erfitt er ekki að sætta sig við það að hún Rannveig Ágústa frænka mín skuli kvödd svo snemma burt frá mikilvægum verkefnum sem hún naut og glímdi við. Þau mikil- vægustu voru uppvöxtur barna- barnanna, umhyggja fyrir fjölskyld- unni og síðan stjórnun og rekstur Leikskólans Árbæjar á Selfossi. Ranna var mikil fagmanneskja og lagði metnað sinn í að byggja upp góðan leikskóla með áherslu á hreyf- ingu og heilsu, umhverfismennt og félagslega færni barnanna. Hún lagði sig fram um að auka við þekkingu sína sem kennari og skólastjóri, afl- aði sér framhaldsmenntunar í leik- skólafræðum og stjórnun til að geta betur tekist á við krefjandi viðfangs- efni til hagsbóta fyrir nemendur sína. Við Ranna vorum bæði systra- og bræðrabörn og því voru samskipti okkar mikil allt frá barnæsku. Sem barn var ég „kúarektor“ í Gaul- verjabæ og gafst þá oft tími til leikja og starfs með frændsystkinum mín- um, einnig fengu þau stundum frí frá sveitastörfunum og dvöldu hjá okkur á Selfossi og oft var þá glatt á Hjalla. Ranna var snemma bókhneigð og las allt sem hún náði í. Allar barnabækur voru marglesnar og auk þeirra renndi hún í gegnum hverja skáld- söguna af annarri barn að aldri. Hún bjó snemma yfir miklum orðaforða og kunni frá ýmsu að segja sem við sem seinlæsari vorum þekktum ekki. Mörg spaugileg orðatiltæki flugu og talsmáti hennar og tilsvör gátu verið beinskeytt og hnyttin. Að lokinni hefðbundinni skóla- göngu fór Ranna út á vinnumarkað- inn og vann við ýmis störf. Ung kynntist hún mannsefni sínu, Ólafi Árnasyni, og stofnuðu þau heimili. Eftir að börnin þeirra þrjú voru fædd ákvað hún að hefja framhaldsnám og innritaðist í Fósturskóla Íslands það- an sem hún brautskráðist sem leik- skólakennari. Hún var góður náms- maður, veittist námið létt þó að ekki gæfist alltaf mikill tími sökum barna- uppeldisins. Ranna var félagsvera, hafði ánægju af samskiptum við fólk og naut því skólaverunnar. Hún var vinur vina sinna, traust og trú- mennska skiptu hana mestu máli. Áður en veikindi hennar dundu yf- ir áttum við þess kost að fara með Rönnu og Óla til Vopnafjarðar þar sem við hlýddum á lestur úr ljóðum ömmu okkar og móðurbróður. Bæði nutum við þess að vera á slóðum feðr- anna. En samvistir af þessu tagi urðu því miður of fáar. Hún tókst af miklu æðruleysi á við sjúkdóm sinn þótt hún mætti sín lítils gagnvart hinum illvíga vágesti. Það er sárt að sjá á eftir henni frænku minni en sárar er það eiginmanni, föður, börnum og barnabörnum. Ég og fjölskylda mín vottum þeim einlæga samúð og biðj- um algóðan Guð að blessa minningu Rannveigar Ágústu. Þó að sleppi hendi hönd, hinsti nálgast fundur, eigi slitna andans bönd algerlega sundur. (Erla.) Trausti Þorsteinsson. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Elsku hjartans Ranna, okkur skortir orð til þess að lýsa hve sárt það er að hugsa til þess að þinni jarð- vist sé lokið. Reynum að skilja, með því að ein- blína á að þér hefur verið ætlað mik- ilvægt starf á himnum, sem enginn annar hefði getað leyst, svo sérstök varst þú. Þökkum þér alla vináttu og tryggð, með völdum línum úr ljóði, sem eru okkur svo minnisstæðar og komu upp í hugann þegar við reynum að koma tilfinningum okkar og þökkum á blað, Guð geymi þig, elsku vin- kona. Sofðu, engill, sofðu, því nú er komin nótt sjálfsagt eru fleiri sem sofa einnig rótt. Fáum ekki skilið hvað ræður öllu hér og ekki heldur hvers vegna var sótt, einmitt að þér. Sofðu engill sofðu, við biðjum fyrir þér svo Drottins höndin leiði þig hvar sem hann er. Við varðveitum með lotningu minning- una um þig er vörðuð verður leið þín upp á æðra stig. Sofðu, engill, sofðu, við þökkum auðmjúk þér, sem gafst okkur svo mikið í jarðvist þinni hér. Við eigum bara erfitt með að sætta okkur við það að þú sért tekin burtu og flutt á annan stað. Sofðu, ljúfust, kæra og lúrðu undir sæng megi Drottinn geyma þig undir hlýjum væng. Við hittumst bara aftur þegar húmar aftur að og Drottinn vill fá fleiri á þennan ljúfa stað. (Þorbjörg Gísladóttir) Elsku Óli, Guðjón, Ari Már og Anna Margrét, tengdabörn, barna- börn, systkini og aðrir aðstandendur, megi Guð og allir góðir vættir um- vefja ykkur, leiða og styrkja á þess- um sorgartíma. En minninguna eigið þið og hana tekur enginn frá ykkur. Þið eigið hug okkar allan. Ingibjörg og Sjöfn. Stórt skarð var höggvið í sam- starfshópinn þegar Rannveig Á. Guð- jónsdóttir leikskólastjóri í Árbæ lést sunnudaginn 5. apríl s.l. Rannveig hóf störf 1987 á gæsluvellinum við Stekkholt á Selfossi. Síðan starfaði hún í leikskólanum Ásheimum, en þar sem Rannveig vildi gera vel það sem hún tók sér fyrir hendur fór hún í Fósturskóla Íslands og útskrifaðist þar sem leikskólakennari með glæsi- brag 1992. Rannveig fór í framhalds- nám í stjórnun við Kennaraháskóla Íslands og útskrifaðist þaðan 2006. Eftir útskriftina 1992 hóf hún störf sem deildarstjóri í leikskólanum Glaðheimum. Í janúar 1998 lá leið hennar í leikskólann Árbæ þar sem hún varð leikskólastjóri og stýrði þar óslitið þar til hún varð að láta af störf- um vegna veikinda fyrir ári síðan. Leikskólinn Árbær flutti í nýtt og stærra húsnæði 2002 og 2006 voru tvær deildir settar við leikskólann þannig að hann varð 6 deilda. Rannveig var glæsileg og tignar- leg kona. Framkoma hennar, eðlis- læg gleði og hláturinn gerðu það að verkum að hún var hrókur alls fagn- aðar og við minnumst hennar fyrir lífsgleði, jákvæðni og kímnigáfu. Rannveig valdi ekki alltaf auðveld- ustu leiðina, enda keppniskona og tilbúin að leggja ýmislegt á sig til þess að komast í mark. Stundum þurfti að hnippa í Rannveigu þegar keppnisskapið gerði það að verkum að hún fór á undan sjálfri sér. Rann- veig lét aldrei deigan síga gagnvart velferð barna og hafði mikinn metnað fyrir hönd leikskólans. Þannig var Rannveig, metnaðarfullur fagmaður sem Sveitarfélagið Árborg var svo lánsamt að hafa sem leikskólastjóra. Með henni höfum við upplifað margt saman, skemmtilegt, erfitt, þroskandi og árangursríkt. Fyrir það viljum við þakka og biðjum góðan guð að styrkja fjölskyldu Rannveigar og vini. Kristín Eiríksdóttir, Ingibjörg Stefánsdóttir, Heiðdís Gunn- arsdóttir, Eygló Aðalsteinsdóttir, Ásthildur Bjarnadóttir, Helga Geirmundsdóttir, Ísrún Alberts- dóttir, M. Sigríður Jakobsdóttir og Sigríður Pálsdóttir. „Sá sem vildi losna við alla sorg og söknuð, yrði að kaupa það því dýra verði að elska ekkert í heiminum.“ ( Sigurður Nordal) Þessi orð flugu mér í hug þegar Rannveig Ágústa Guðjónsdóttir, vin- kona mín, eða Ranna eins og við köll- uðum hana ávallt, kvaddi þennan heim langt um aldur fram. Ranna var alin upp í Gaulverjabæ og ég kynntist henni ekkert að ráði fyrr en á unglingsárum, en hafði ein- staka sinnum séð hana og vitað af henni með Hjördísi æskuvinkonu minni. Þegar við vorum komnar í Gagn- fræðaskólann frétti ég að stelpan úr Flóanum myndi verða í skólanum á Selfossi næstu vetur. Mér leist satt að segja ekkert á blikuna. Myndi hún ekki samstundis stela minni bestu vinkonu frá mér? Hvernig myndi þetta eiginlega fara? En það var ekkert við þessu að gera. Ranna kom í skólann og frá fyrsta degi fann ég að áhyggjur mín- ar voru algjörlega óþarfar. Hún hreif mig strax með glaðværð sinni og einlægni og það var eins og við hefðum þekkst alla tíð. Hún stal ekki vinkonu minni frá mér heldur eignaðist ég þarna aðra yndislega vinkonu. Þetta voru áhyggjulaus og spenn- andi ár og margt að gerast, skóli, skemmtanir, pískur, hlátur og pínu- lítið kæruleysi. Um þetta leyti kynntist Ranna honum Óla Árna. Óli var vel kynntur hér á Hrauni því hann hafði átt hér heima um tíma og einnig verið vinnu- strákur nokkur sumur. Framtíðin var ráðin. Ranna hafði eignast traustan og góðan lífsföru- naut. Alvara lífsins tók við, gifting, bú- skapur, meiri menntun, barneignir, uppeldi og vinna. Það var í mörg horn að líta. Þau eignuðust þrjú myndarbörn og von er á áttunda barnabarninu. Ranna var stolt af fjölskyldu sinni og henni var mjög umhugað um vel- gengni þeirra. Hún menntaði sig sem leikskóla- kennari og veitti leikskólanum Árbæ forstöðu þar til hún þurfti að hætta vinnu vegna veikinda sinna. Nú hefur rödd hennar hljóðnað og hlátur hennar heyrist ekki framar. En minningin um góða konu lifir. Ég er þakklát fyrir að hafa kynnst Rönnu og fyrir allar góðu stundirnar sem ég hef átt með henni og fjöl- skyldu hennar. Þær verða mér ógleymanlegar. Við Hrafnkell kveðjum með sorg og söknuði góða vinkonu og sendum fjölskyldunni allri innilegar samúðar- kveðjur. Sigríður Gestsdóttir. Í dag kveðjum við Rannveigu Guð- jónsdóttur, leikskólastjóra okkar til margra ára. Sumir hafa unnið með henni í áraraðir, aðrir hafa eingöngu hitt hana sl. ár þegar hún kom í heim- sókn til að heilsa upp á vinnufélagana og börnin. Þegar við fengum frétt- irnar um að hún væri dáin, þá hitt- umst við öll í salnum í Árbæ. Til okk- ar kom sr. Óskar H. Óskarsson, prestur í Selfosskirkju. Hann vildi að við segðum eitthvað sem minnti okk- ur á Rönnu. Það var margt. En upp úr stendur: Glæsileg kona, hlý mann- eskja, góður vinur, góður leiðtogi, góður hlustandi, hláturmild, skemmtileg, fordómalaus, keppnis- manneskja, heilbrigð manneskja, hugsunarsöm, úrræðagóð, huggandi, drífandi og alltaf tilbúin til að vera fremst í flokki þegar eitthvað skemmtilegt var í vændum. Hún var tilbúin til að veita fólki tækifæri þegar aðrir þorðu ekki. Hún var til staðar fyrir þá sem á þurftu að halda, hún var foringi sem lét liðið sitt sitja fyrir og var alltaf tilbúin til að hjálpa. Ógleymanleg verður okkur Kaup- mannahafnarferðin sl. vor, hún þá nýbúin að fá þessar niðurstöður að hún væri með krabbamein. Ekki lét hún það aftra sér frá því að koma með okkur í þessa ferð. Í ferðinni varð til ógrynni minninga sem eru ómetanlegar í hjörtum okkar. Bar- átta hennar var þá rétt að hefjast, við tók erfið lyfjameðferð sem tók á hana og allt hennar fólk, vonin var sterk og enginn átti heitari ósk en þá að allt færi vel. En nú réttu ári eftir að hún greinist er hún öll, síðasta orrustan töpuð. Hún hafði stundum á orði að það væri galli við leikskólastjórastarfið hversu lítill tími gæfist til að njóta samvista við börnin, en sá hluti starfsins hugnaðist henni vel. Hvað hún var stolt þegar börnin voru að út- skrifast úr Árbæ og ýmsar stundir sem við áttum með henni í leik og starfi rifjast upp. Íslenskri tungu unni hún mjög og átti ekki erfitt með að mæla fram ýmsa speki sem ekki er á allra vörum dagsdaglega enda er dagur íslenskrar tungu ávallt í heiðri hafður í Árbæ. Öllum sem kynntust henni þótti vænt um hana, djúp er virðing okkar fyrir henni og hennar verður sárt saknað og það á svo sannarlega við hana þetta spakmæli: „ Góður maður ber gott fram úr góðum sjóði hjart- ans.“ En umfram allt var hún Ranna okkar allra sem við minnumst með söknuði, en jafnframt gleði yfir að hafa fengið að kynnast henni og deila með henni sorgum og gleði um stund. Við vottum eftirlifandi fjölskyldu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.