Morgunblaðið - 23.04.2009, Blaðsíða 44
V i n n i n g u r
Kr. 7.000 Kr. 14.000 (tvöfaldur)
161 9064 17709 23422 32083 40534 46681 54732 62996 70258
227 9514 17795 23490 32161 40621 47495 55583 63113 70611
469 9642 17899 23846 32164 40635 47548 55667 63158 70654
1403 9854 17980 23870 32178 40727 47572 56180 63834 70865
1411 9948 18613 23885 32317 41223 47947 56401 63847 71176
1422 10402 18819 24026 32485 41419 48081 56496 64027 71315
1773 10548 18824 24153 32753 41459 48084 56533 64123 72020
1933 10844 18891 24384 33243 41509 48713 56767 64726 72422
1996 11307 18957 24734 33394 41734 48792 56906 64741 72657
2089 11639 19181 24749 33509 42281 48798 57450 64756 72771
2625 11694 19292 25097 33660 42461 48873 57528 64896 73152
2653 11955 19479 25181 33935 42499 49064 57582 65013 73228
2768 12111 19521 25300 34014 42552 49165 58289 65281 73244
2992 12274 19567 25395 34268 42982 49929 58578 65416 73600
3197 12415 19629 25445 34269 43343 50030 58838 65578 73610
3394 12497 20091 25541 34486 43407 50100 59364 65756 73769
3408 12661 20167 25879 34487 43419 50160 59865 66095 74772
4104 12705 20198 26381 34894 43424 50415 60030 66206 75144
4136 12978 20284 26798 35180 43576 50802 60076 66342 75282
4353 13040 20322 27926 35249 43806 50970 60138 66382 75364
4489 13822 20349 28139 36178 43862 51139 60550 66635 76441
4577 14237 20363 28353 36252 44010 51226 60658 66816 76846
4614 14388 20511 28393 36304 44229 51706 60670 66830 76952
4690 14418 20623 28608 36524 44482 51764 60889 66947 77176
4813 15145 20653 28637 37084 44591 51829 61162 67317 77455
4902 15226 20721 28865 37244 44657 51894 61197 67592 77631
5284 15473 21420 29310 37524 44815 51951 61222 67722 77682
6118 15704 21584 29788 37644 44825 51967 61258 67808 77779
6576 15808 21638 30362 38022 44882 52756 61530 68146 77978
6753 15825 21671 30690 38233 45099 52852 61703 68215 78434
7009 15880 21830 30693 38252 45284 53175 61820 68247 78445
7014 15923 21853 30721 38395 45542 53472 62043 68293 78477
7050 16361 21972 30811 38759 45758 53655 62064 68317 78676
7359 16413 22031 31162 38783 45802 53689 62212 38595 78900
7458 17225 22188 31311 38956 46030 53705 62245 69033 78979
7466 17237 22394 31603 39326 46250 53890 62246 69048 79136
7629 17343 22400 31607 39390 46337 54059 62280 69160 79204
8056 17504 22415 31613 39402 46518 54123 62562 69225 79296
8102 17661 22616 31692 39446 46614 54313 62864 69919 79688
8427 17668 22640 31769 39873 46637 54419 62972 70210 79712
44 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 2009
Hann situr við eld-
húsborðið heima á
Hlöðum, hönd hans
hvílir á borðinu. Hann horfir hugs-
andi út um gluggann, í átt að Möðru-
vallafjalli. Allt í einu skælbrosir
hann. Hvað skyldi hann pabbi vera
að hugsa um núna kemur upp í huga
Stefán Halldórsson
✝ Stefán Hall-dórsson fæddist á
Hlöðum í Hörgárdal
20. maí 1927. Hann
lést á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Ak-
ureyri laugardaginn
4. apríl 2009.
Útför Stefáns fór
fram frá Glerárkirkju
11. apríl sl.
Meira: mbl.is/minningar
minn þegar ég kem inn
úr dyrunum.
Þessi mynd af hjart-
kærum pabba mínum
mun aldrei líða mér úr
minni. Þótt hann hafi
nú kvatt mig þá verður
hún ávallt greypt í
huga minn og mun
fylgja mér um ókomna
tíð – veita mér huggun
í hvert sinn sem ég
kem í sveitina.
Ég er ákaflega stolt
af því að vera dóttir
hans pabba, ég leit upp
til hans og bar fyrir honum ómælda
virðingu. Oft leitaði ég í viskubrunn
hans en það var fátt sem hann ekki
vissi. Bækur voru hans gimsteinar
og af þeim átti hann ógrynni. Ég
naut góðs af þessum fjársjóði og sótti
óspart í hann og oftar en ekki undir
handleiðslu hans.
Nærvera pabba var svo sterk og
hún mun umlykja mig áfram þótt
hann sé horfinn yfir móðuna miklu.
Takk fyrir allt sem þú gafst mér,
hjartans pabbi minn.
Heillin þín,
Þórgunnur Stefánsdóttir.
Elsku afi minn, nú þarf ég að
kveðja þig. Mínar fyrstu minningar
um þig, afi minn, var hvernig þú
tókst alltaf á móti mér í sveitinni,
straukst mér um vangann með þinni
stóru sterku hendi og sagðir „sæl
heillin“ Þá náði ég þér rétt upp að
hné. Ég var mikið í sveitinni þegar
ég var barn, á kvöldin þegar dags-
verkin voru búin sast þú lengi fram
eftir í suðurherberginu og vannst í
bókunum þínum, ýmist við að skrifa
eða lesa. Alltaf barst ljós úr herberg-
inu þegar allir voru farnir að sofa og
mikið var notalegt að vita af þér
þarna.
Oft var gaman þegar þú komst
heim úr „bænum“ þá komstu ósjald-
an með Ópal eða brjóstsykur handa
okkur.
Þú varst viskubrunnur og hjálp-
aðir mér oft í mínu námi, það var
ekki hægt að finna betri mann til að
fara yfir ritgerðir, sérstaklega ef
þær tengdust sagnfræði. Þegar ég
varð eldri áttaði ég mig betur á því
hversu duglegur og merkilegur mað-
ur þú varst. Þú sast í ótalmörgum
nefndum og ráðum, varst hrepp-
stjóri, bóndi og ekki síst tólf barna
faðir.
Þú vannst nánast fram á síðasta
dag, það var nú bara síðast í haust
sem þú og amma fóruð í það að svíða
kindahausa úti í bragga þó svo að
orkan væri ekki mikil hjá þér. Þegar
ég hugsa til þín sé ég þig úti á túni
með orf og ljá, þú barst virðingu fyrir
jörðinni og því sem hún gaf og nýttir
allt. Þú varst mikill skógræktandi og
munu trén þín ávallt minna á þig. Ég
er stolt af því að hafa átt þig sem afa,
ég er stolt að vera ættuð frá Hlöðum.
Þú elskaðir sveitina þína, fjöllin og
hafið.
Í nótt er gott að gista Eyjafjörð
og guðafriður yfir strönd og vogum.
Í skini sólar skarta haf og jörð
og skýjabólstrar slegnir rauðum logum.
Það veit hver sál, að sumar fer í hönd,
en samt er þögn og kyrrð um mó og
dranga,
og hvorki brotnar bára upp við strönd
né bærist strá í grænum hlíðarvanga.
Svo ljúft er allt í þessum heiða hyl,
svo hátt til lofts og mjúkur barmur jarðar,
að víst er engin veröld fegri til
en vornótt björt í hlíðum Eyjafjarðar.
(Davíð Stefánsson.)
Þegar ég horfi á okkar fallegu
sveit mun ég alltaf hugsa til þín, þú
og amma eruð sveitin mín. Ég kveð
þig, afi minn, vonandi fæ ég seinna
að heyra þig segja „sæl heillin“.
Elsku amma, guð gefi þér styrk í
sorginni.
Jóhanna Þ.
Elsku afi, eftir að við fluttumst til
Frakklands fyrir sex árum hafa
kveðjustundirnar verið margar og
oft erfiðar, en núna er komið að því
að við kveðjum þig í síðasta sinn.
Það var alltaf jafn gaman að heim-
sækja þig og ömmu í sveitina. Fara
með þér í göngutúr, skoða öll trén
sem þú hafðir gróðursett og dýrin
sem þér þótti svo vænt um. Koma
svo inn til ömmu og fá nýbakaðar
kökur og brauð.
Við lofum að hugsa vel um allar
bækurnar sem þú hefur gefið okkur
og komum til með að hugsa til þín í
hvert skipti sem við lesum góða bók.
Við eigum eftir að sakna þín mjög
mikið, elsku afi.
Ragnheiður Vala, Stefán
Freyr og Steinunn Vala.
Stór, bjartur, sjálfur sér sam-
kvæmur, endalaus uppspretta fróð-
leiks, eru nokkur orð sem koma í
huga minn þegar ég hugsa um hann
afa minn. Ég hugsa til baka um allar
þær stundir sem við áttum saman.
Ég mun búa að þeim alla mína ævi,
segja mínum börnum og barnabörn-
um frá. Mín skærasta minning um
afa var þegar við löbbuðum út í fjós.
Afi minn, þessi stóri maður, að leiða
mína litlu hönd, horfandi niður til
mín og segja mér hvað ég sé lík henni
mömmu minni. Hönd mín hvarf inn í
hans. Ég fann hvað ég var örugg, ég
var svo rosalega stolt af því að hafa
fengið að ganga við hlið hans, bara
við tvö á leiðinni í fjósið. Fyrir eitt
skref sem afi tók, tók ég mörg lítil en
afi var ekki að drífa sig, gaf mér tíma
til að halda í við sig, alltaf að horfa
niður til mín og athuga hvort ekki
væri í lagi með mig. Ég man að hann
horfði í kringum sig og virti fyrir sér
sveitina, heimahagana, jörðina sem
hann var svo stoltur af, ég hugsaði að
hann hlyti að sjá allan heiminn því
hann var svo stór.
Ég kveð þig, afi minn, með sorg,
yfir því að vita hver eigi nú að halda í
mína litlu hönd og segja mér sögur
úr sveitinni og með gleði yfir öllum
þeim skiptum sem þú hélst í mína
litlu hönd.
Um engi og tún
og ásinn heima
ég aftur reika,
sezt í brekkuna
silkimjúka
og sóleyjarbleika.
Milt var sunnan
við moldarbarðið
og melinn gráa.
Þar fagna mér ennþá
fífillinn guli
og fjólan bláa.
Engan leit ég
mót ljósi himins
ljúfar brosa
en dúnurt fríða,
sem dagsins bíður
í döggvuðum mosa.
(Davíð Stefánsson frá Fagraskógi.)
Góða ferð,
þitt stolta barnabarn,
Anna.
Elsku afi.
Það er skrítið að koma heim á
Hlaðir og þú ert ekki heima, þú ert
ekki úti í fjósi, eða úti að brasa. Þú
varst nefnilega alltaf eitthvað að
brasa. Það er líka skrítið að hlaupa
ekki upp í suðurherbergi og sjá þig
sitja við skrifborðið þitt að skrifa eða
lesa í bókum. Já þú varst sko mikill
bókakarl og mér fannst þú vita allt.
En elsku afi það voru sko forrétt-
indi að fá að alast upp í sveitinni ykk-
ar ömmu, að geta hlaupið til ykkar á
hvaða tíma sem er. Þegar ég var í
Þelamerkurskóla kom ég til ykkar
ömmu á hverjum degi eftir skóla og
þegar ég hugsa til baka var þetta svo
yndislegur tími. Ég fékk að baka
með ömmu á meðan þú, Klængur og
Sighvatur sinntuð útiverkunum,
stundum kom ég líka og hjálpaði
ykkur. Ég fékk líka stundum að fara
með þér og ömmu í bæinn og það var
mjög gaman. Þá skruppum við oft á
teríuna og fengum okkur eitthvað að
borða.
Þú varst líka svo duglegur að setja
niður grænmeti og radísurnar og
rófurnar voru besta nammi í heimi.
Einnig komst þú alltaf og hjálpaðir
okkur að taka upp kartöflunar með
Klængi og það skipti sko engu máli
hvernig viðraði eða hvort þú værir
slappur – þú bara komst.
Ég gleymi því heldur ekki hvað ég
var glöð fyrsta veturinn sem ég bjó í
Reykjavík, þá mundir þú eftir af-
mælinu mínu og hringdir í mig. Þú
spurðir mig hvernig veðrið væri og
ég sagði að það væri alltaf rigning,
þá hlóstu. Það var líka dásamlegt að
fá þig í brúðkaup okkar Mána síðast-
liðið sumar, þrátt fyrir að þú værir
búinn að vera lasinn. Það var mér
mikils virði.
Ég veit, afi minn, að nú líður þér
betur og ég veit líka að þú fylgist
með okkur og ert heima á Hlöðum
þegar við komum í heimsókn. Guð
geymi þig elsku afi minn.
Elsku amma mín, hugur minn er
hjá þér.
Þín
Dröfn.
Elsku afi er nú farinn frá okkur.
Við eigum svo góðar minningar
um þig úr sveitinni sem verða okkur
ávallt kærar. Litlum hlutum eins og
að gróðursetja með þér trén sem
voru þér svo kær munum við t.d.
aldrei gleyma. Við lærðum ungar að
passa hvar við stigum og að vera var-
kárar í kringum litlu trén. Það varst
þú sem kenndir okkur allt um sveit-
ina og labbaðir með okkur um hana
þvera og endilanga. Við munum vel
eftir löngu göngutúrunum þar sem
við tíndum fallega steina saman sem
við geymdum svo vel. Þú varst alltaf
til staðar og öllum svo góður. Nú
þegar páskarnir eru að ganga í garð
munum við einnig vel eftir því úr
bernsku að þrátt fyrir allan þennan
fjölda af barnabörnum þá gleymduð
þið amma engum og gáfuð öllum
páskaegg, sem gladdi okkur gris-
lingana voðalega mikið. Þannig
minnumst við þín, elsku afi okkar,
með gleði í hjarta og hugsum til þín
með miklum söknuði. Blessuð sé
minning þín.
Þótt þú sért horfinn úr þessum heimi
og við hittum þig ekki um hríð
þá er minningin eins og ljós sem lifir
sem lýsa mun um ókomna tíð.
Við þökkum fyrir þessi góðu ár
og biðjum að þú hvílir rótt
því þótt missirinn sé erfiður og sár
þá munt þú lifa í hjarta okkar um
ókomin ár.
(Höf. ók.)
Hvíl í friði elsku afi
Laufey og Anna Margrét.
Gróa og Guðrún
unnu keppnina um
Súgfirðingaskálina
Gróa Guðnadóttir og Guðrún K.
Jóhannesdóttur unnu öruggan sig-
ur í keppni um Súgfirðingaskálina.
Keppnin var fimm lotur og giltu
fjögur beztu skorin til verðlauna.
Alls spiluðu 13 pör í mótinu.
Gróa Guðnad. – Guðrún K. Jóhannesd. 517
Einar Ólafss. – Þorsteinn Þorsteinsson 479
Jón Óskar Carlss. – Karl Ómar Jónss. 464
Sigurp. Ingibergss. – Arngr. Þorgrímss.
458
Guðbjörn Björnss. – Steinþór Bendiktss.
456
Meðalskor 432 stig.
Úrslit í lokalotunni.
Guðbjörn Björnss. – Steinþór Bendiktss.
123
Jón Óskar Carlss. – Karl Ómar Jónss. 121
Gróa Guðnad. – Guðrún K. Jóhannesd. 120
Spilastjóri var Sigurpáll Ingi-
bergsson.
Í mótslok afhenti Björn Guð-
björnsson, félagi í Súgfirðingafélag-
inu, þremur efstu pörum verðlaun
til minningar um góðan árangur í
skemmtilegu móti. Auk þess var
Guðrúnu og Gróu afhent Súgfirð-
ingaskálin í annað skipti.
Sigurvegarar frá upphafi:
2009 Gróa Guðnad. – Guðrún K. Jóhann-
esd.
2008 Arnar Barðason – Hlynur Antonss.
2007 Arnar Barðason – Hlynur Antonss.
2006 Karl Bjarnason – Valdimar Ólafss.
2005 Ásgeir Sölvason – Guðni Ólafsson
2004 Gróa Guðnad. – Guðrún K. Jóhann-
esd.
2003 Guðbj. Björnss. – Steinþór Bene-
diktss.
2002 Guðbj. Björnss. – Steinþór Bene-
diktss.
Bridsdeild FEB
í Reykjavík
Tvímenningskeppni spiluð í Ásgarði,
Stangarhyl, fimmtud. 16. apríl.
Spilað var á 13 borðum. Meðalskor 312
stig. Árangur N-S
Júlíus Guðmss. – Magnús Halldórsson 373
Auðunn Guðmundss. – Björn Árnas. 343
Guðrún Jörgensen – Sigrún Pétursd. 338
Árangur A-V
Friðrik Jónsson – Tómas Sigurjónss. 369
Sigurður Jóhannss. – Siguróli Jóhannss.
362
Ágúst Helgas. – Haukur Harðarson 362
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is
V i n n i n g a s k r á
51. útdráttur 22. apríl 2009
A ð a l v i n n i n g u r
Kr. 2.000.000 kr. 4.000.000 (tvöfaldur)
1 5 8 6 0
V i n n i n g u r
Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur)
1 0 1 1 6 1 7 5 6 8 2 1 6 2 9 5 4 1 4 6
V i n n i n g u r
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
6442 23892 32660 45433 67611 75520
9278 32146 44628 47851 73878 79795
V i n n i n g u r
Kr. 12.000 Kr. 24.000 (tvöfaldur)
1 4 8 1 2 9 4 7 2 1 0 6 8 3 3 5 5 5 4 7 1 6 9 5 2 6 8 2 5 6 5 3 8 7 2 7 1 4
6 8 4 1 4 1 3 2 2 3 2 5 0 3 3 8 0 4 4 7 7 3 8 5 2 7 2 4 5 7 1 2 0 7 2 7 1 5
1 5 5 0 1 5 0 7 5 2 3 2 8 7 3 4 0 0 1 4 8 7 5 3 5 2 8 5 7 5 7 2 5 4 7 3 2 8 2
1 7 1 1 1 5 8 4 9 2 4 3 8 1 3 5 1 4 9 4 9 2 3 8 5 2 8 7 3 5 8 3 4 2 7 4 0 1 8
2 7 7 8 1 5 8 5 5 2 5 1 3 4 3 6 1 0 9 4 9 3 7 0 5 2 9 4 1 5 8 3 9 0 7 4 6 2 4
2 8 2 1 1 6 6 7 1 2 7 2 3 6 3 8 3 6 9 5 0 1 1 4 5 2 9 6 4 5 8 4 0 1 7 5 1 3 4
4 7 0 3 1 6 7 3 1 2 8 7 7 7 3 9 0 2 4 5 0 1 4 7 5 3 0 9 4 5 9 5 0 6 7 6 6 5 0
4 7 3 1 1 6 7 9 6 2 8 8 8 1 3 9 9 2 4 5 1 0 3 3 5 3 5 2 1 6 1 3 4 8 7 6 8 7 1
6 0 3 2 1 6 8 9 6 2 9 1 8 1 4 2 5 2 7 5 1 0 5 5 5 3 9 4 9 6 1 6 3 8 7 9 2 0 9
9 3 6 2 1 9 8 9 5 2 9 5 8 1 4 4 5 1 8 5 1 5 9 5 5 4 0 9 7 6 6 7 3 3
9 4 8 3 1 9 9 3 5 3 0 3 4 9 4 5 7 4 4 5 1 6 3 5 5 5 8 7 7 6 7 8 4 6
9 9 9 1 2 0 0 2 4 3 0 7 0 0 4 6 3 2 3 5 1 7 5 3 5 5 9 1 1 6 8 0 7 8
1 0 2 9 9 2 1 0 3 4 3 1 9 2 4 4 6 5 8 7 5 1 8 0 5 5 6 2 2 6 7 0 1 8 6
Næsti útdráttur fer fram 30. apríl 2009
Heimasíða á Interneti: www.das.is