Morgunblaðið - 23.04.2009, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 23.04.2009, Blaðsíða 48
48 Dagbók MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 2009 Sudoku Frumstig 4 7 3 2 6 3 6 9 5 2 9 8 1 3 1 5 7 4 7 8 6 5 2 1 4 3 2 8 7 9 1 6 8 3 4 7 9 1 3 7 3 2 4 5 9 4 2 3 4 2 9 7 5 9 4 4 8 1 8 3 1 8 6 5 3 9 7 2 7 6 1 6 1 8 5 9 3 4 7 2 2 5 3 1 4 7 8 9 6 4 7 9 8 2 6 1 5 3 8 2 4 6 5 9 3 1 7 5 9 1 7 3 2 6 8 4 7 3 6 4 8 1 5 2 9 9 6 7 3 1 8 2 4 5 3 8 5 2 7 4 9 6 1 1 4 2 9 6 5 7 3 8 3 5 6 4 2 8 1 9 7 1 4 8 5 9 7 6 3 2 2 9 7 3 6 1 8 5 4 5 7 9 2 8 3 4 1 6 8 1 4 7 5 6 3 2 9 6 2 3 9 1 4 7 8 5 9 8 1 6 7 5 2 4 3 4 6 2 8 3 9 5 7 1 7 3 5 1 4 2 9 6 8 3 2 9 4 7 5 8 6 1 4 6 1 2 8 3 9 5 7 7 5 8 6 1 9 3 4 2 9 7 3 5 6 4 2 1 8 6 1 2 8 3 7 5 9 4 8 4 5 9 2 1 7 3 6 5 9 7 1 4 2 6 8 3 1 3 6 7 5 8 4 2 9 2 8 4 3 9 6 1 7 5 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er fimmtudagur 23. apríl, 113. dagur ársins 2009 Orð dagsins: Enginn á meiri kærleik en þann að leggja líf sitt í sölurnar fyr- ir vini sína. (Jh. 15, 13.) Víkverji hefur ekki gert upp hugsinn þótt aðeins séu þrír dagar til kosninga. Ekkert freistar Vík- verja, engin stjórnmálahreyfing. Víkverja verður tíðum hugsað til allra fögru fyrirheitanna sem gefin voru í kjölfar hrunsins mikla. Þá var sagt að tekið yrði til, endurnýjað yrði á hinum pólitíska vettvangi og allt skyldi upp á borðið. Prófkjör flokk- anna gáfu tóninn eða hitt þó heldur. x x x Nær daglega frá hruninu hafalandsmenn beðið eftir aðgerð- um þeim sem lofað var, aðgerðum sem koma eiga illa stöddum heim- ilum og fyrirtækjum í landinu til að- stoðar. Lítið sést þó til þessara sömu aðgerða. Vextir eru enn þeir hæstu á byggðu bóli og eru allt að drepa. Engar alvöruaðgerðir hafa sést vegna margföldunar íbúðalána og að sama skapi greiðslubyrði lánanna. Aðeins hefur verið hent í landsmenn bráðabirgðalausnum, vandanum hef- ur verið skotið á frest. x x x Og það er það sem Víkverji óttastsvo mjög, að kreppunni hafi ein- faldlega verið skotið á frest til sunnu- dagsins 26. apríl eða fram yfir kosn- ingar. Landsmenn muni vakna upp við vondan draum að loknum kosn- ingum og þá fyrst ríði höggið af. x x x Víkverji brá sér í Þjóðleikhúsið ádögunum að sjá Kardimom- mubæinn eftir Thorbjörn Egner. Upppfærslan stóð undir öllum vænt- ingum Víkverja, hverja mínútu og gott betur. Eðli málsins samkvæmt voru börn í meirihluta leikhúsgesta en þeir sem teljast eiga fullorðnir, skemmtu sér ekkert síður en blessuð börnin. Víkverji kom léttur í hjarta og sinni út úr Þjóðleikhúsinu. Hann hugsaði með sér að það ætti að vera valkostur á lyfseðlum lækna að haka við miða í leikhús. Í þeirri skemmtun sem leikhúsið er, felst mun meiri lækningamáttur í hamförunum miðjum en nokkru pilluglasi. Víkverji mælir eindregið með að allir sjái Kardimommubæinn, helst tvisvar. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 hlífðarlaust, 8 endurbót, 9 falla, 10 sár, 11 oft, 13 flanaði, 15 end- urtekningar, 18 formæð- ur, 21 bjargbúa, 22 snú- in, 23 dysjar, 24 hörkutóls. Lóðrétt | 2 heyskap- artæki, 3 gleðjum, 4 hugleysingi, 5 gjálfra, 6 tómt, 7 opi, 12 ekki göm- ul, 14 tók, 15 at, 16 gamla, 17 happið, 18 ranga, 19 milli- göngumann, 20 magurt. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 raust, 4 gepil, 7 bútur, 8 reyfi, 9 fit, 11 iðni, 12 bana, 14 nagla, 15 senn, 17 krás, 20 mis, 22 lukka, 23 kópur, 24 asnar, 25 lánið. Lóðrétt: 1 rebbi, 2 urtan, 3 torf, 4 gort, 5 peyja, 6 leifa, 10 Ingvi, 12 inn, 13 bak, 15 selja, 16 nakin, 18 ræpan, 19 skráð, 20 maur, 21 skál. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. a4 Rc6 7. Bc4 Db6 8. Rxc6 bxc6 9. 0-0 e6 10. a5 Db8 11. He1 Be7 12. Bf4 e5 13. Be3 Bd8 14. Ha3 Db4 15. Dd3 0-0 16. Hd1 Bc7 17. Ha4 Db7 18. Ha3 Db4 19. Hda1 d5 20. exd5 cxd5 21. Bxd5 Hd8 22. Hb3 Dh4 23. g3 Dh5 24. Bb6 Bxb6 25. Hxb6 e4 Staðan kom upp á alþjóðlega Reykjavíkurskákmótinu sem lauk fyrir nokkru í Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhúsinu. Sænska skákkonan Christin Andersson (2.132) hafði hvítt gegn Svanbergi Pálssyni (1.720). 26. Bxf7+! Kxf7 27. Hxf6+ gxf6 28. Dxd8 Dc5 29. Dxf6+ og svartur gafst upp enda taflið tapað eftir 29. … Kxf6 30. Rxe4+. Hvítur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Tólfti slagurinn. Norður ♠ÁKG108 ♥D5 ♦Á73 ♣D43 Vestur Austur ♠D964 ♠32 ♥32 ♥G10984 ♦G102 ♦D954 ♣G965 ♣K10 Suður ♠75 ♥ÁK76 ♦K86 ♣Á872 Suður spilar 6G. David Bird hefur skrifað heila bók um sex grönd. Þótt viðfangsefnið sé þröngt eru efnistökin víð og bókin hin skemmtilegasta. Bird ríður á vaðið með spili eftir Ron heitinn Andersen (1941-1998). Þetta var í tvímenningi og sagnir einfaldar: 1G í suður og 6G í norður. Útspil ♦G. Andersen drap heima á kóng og svínaði í spaða. Tók næst ♥D og, fór heim á ♥K og spilaði litlu laufi að blindum. Lítið úr vestrinu og lítið úr borði. Þegar ♣K datt í ásinn síðar voru 12 slagir í húsi. Úrvinnsla Andersens á laufinu rést að hluta til af borðtilfinningu (vestur var fljótur að fylgja lit), en fleira kom til: Þegar að úrslitastundinni kom hafði sagnhafi í raun teiknað upp 11 slagi fyrir vörnina. Myndi vestur dúkka með ♣K og eiga á hættu að gefa yfirslag. Andersen hélt ekki. (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Það er ekki allt gull sem glóir og margt fyrirheitið fer fyrir lítið þegar til kastanna kemur. Til þess að ná árangri verður þú að gera málamiðlanir. (20. apríl - 20. maí)  Naut Dagurinn hentar ekki til að stofna til viðskiptasambanda. Sýndu þolinmæði og þá mun málflutningur falla um sjálfan sig. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Samskipti þín við fólkið í kringum þig eru með besta móti. Hvaða álit sem þeir hafa á verkum þínum skaltu bara vera sallarólegur. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Ákveðnir þættir verða að vera fyrir hendi ef tiltekið verkefni á að ganga upp. En hófsemi hentar þér miklu betur. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Sökum þess að þú munt sennilega flytja eða skipta um starf á næstunni hugs- arðu mikið um það. Allt sem þú tekur þér fyrir hendur er úthugsað, íhaldssamt og vandlega undirbúið. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Þú dregst að fólki sem tekst að virð- ast tilfinningalega ósnertanlegt. Vertu op- inn fyrir nýjum tækifærum. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Þú leggur hart að þér þessa dagana og munt að öllum líkindum uppskera árangur erfiðis þíns. Mundu að það er vegna þess að þú veist um hvað þú ert að tala. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Baktjaldamakk og leynilegar samræður gætu leitt í ljós verðmætar upp- lýsingar. Ekki taka það sem aðrir segja al- varlega, eitthvað gruggugt er á seyði. Taktu þig á. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Þú þarft að taka þér tak og koma skipulagi á líf þitt, því þessi ring- ulreið veldur þér og öðrum mestu vand- ræðum. Virðuleg framkoma þín segir meira en sæmileg saga. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Eitthvað sem þú hélst að þú skildir virðist flóknara en nokkru sinni fyrr. Hikaðu ekki við að leita uppi sálu- félaga sem kann að meta gjörðir þínar. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Þetta er góður dagur til að ræða vandamál sem koma upp í starfi. Færðu tekjur og gjöld til bókar og gerðu allt upp án þess að draga nokkuð undan. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Tilboðin berast til þín úr öllum átt- um svo þú ert í mestu vandræðum með að ákveða hverjum þú átt að taka og hverjum ekki. Nýttu þetta sem best þér til fram- dráttar. Stjörnuspá 23. apríl 1121 Jón Ögmundsson helgi, fyrsti biskup á Hólum, lést, um 69 ára. Jónsmessa Hólabiskups um vorið er haldin til minn- ingar um þetta. Jón var tekinn í dýrlingatölu á Íslandi um 1200. 23. apríl 1951 Þátturinn „Óskalög sjúklinga“ hóf göngu sína. Hann var vikulega á dagskrá, lengst af á laugardögum, þar til í október 1987 og „var um áratugaskeið einn vinsælasti þáttur útvarps- ins“, sagði í bókinni Útvarp Reykjavík. 23. apríl 1960 Söngsveitin Fílharmónía, sem stofnuð var árið áður, söng í fyrsta sinn opinberlega við flutning á Carmina Burana í Þjóðleikhúsinu undir stjórn Róberts Abrahams Ott- óssonar. Þjóðleikhúskórinn og Sinfóníuhljómsveitin tóku einnig þátt í flutningnum. 23. apríl 1972 Sjötugsafmælis Halldórs Lax- ness var minnst á ýmsan hátt. Hann var kjörinn heið- ursborgari Mosfellshrepps og útnefndur heiðursdoktor við heimspekideild Háskóla Ís- lands. 23. apríl 2008 Lögregla handtók um tuttugu manns og lagði hald á sextán flutningabíla í aðgerðum vegna mótmæla bílstjóra gegn eldsneytisverði og fleiru á Suðurlandsvegi við Rauða- vatn. Mótmælin höfðu þá stað- ið af og til í fjórar vikur. „Pip- arúða og kylfum beitt á mótmælendur,“ sagði Frétta- blaðið. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson Þetta gerðist … KARL Jónsson, trygginga- og markaðsfulltrúi, reiknar með að slaka á í dag og fara með fjölskyld- una í afmælisveislu Kaupfélags Skagfirðinga. Karl hélt hinsvegar myndarlega upp á fertugsafmælið í gærkvöldi á skemmtistaðnum Mælifelli á Sauð- árkróki í faðmi vina og vandamanna. Þar spilaði hljómsveitin Herramenn fyrir dansi, en Karl var meðlimur hennar á árum áður. „Við stofnuðum hljómsveit 1982 sem hét Bad boys. Síðan breyttist nafnið í Metan og fyrir Músíktilraunir 1988 hétum við Herramenn. Við erum líklega eina hljóm- sveitin sem hefur farið þrisvar í Músíktilraunir, undir nýju nafni í hvert sinn, og komist í úrslit í öll skiptin.“ segir Karl en í tvö síðari skiptin lenti hljómsveitin í 2. sæti. Eftirminnilegasta afmæli Karls er tvítugsafmælið þegar hann hélt veislu í félagsheimilinu í Melsgili. „Ég man að þrátt fyrir villimennsk- una sem þar var voru skreyttar nokkrar brauðtertur. Miðað við um- gjörð afmælisins komu brauðterturnar gríðarlega á óvart og vöktu lukku.“ Karl er kvæntur Guðnýju Jóhannesdóttur, ritstjóra héraðs- fréttablaðsins Feykis, og samanlagt eiga þau fjögur börn, einn kött og tvær kindur. ylfa@mbl.is Karl Jónsson á fertugsafmæli í dag Herramenn leika fyrir dansi Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.