Morgunblaðið - 26.04.2009, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 26.04.2009, Blaðsíða 13
13 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. APRÍL 2009 STJÓRNARINNAR Lokið við efnahagsáætlun Miðað við áætlunina frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum þarf að skera niður fjárlög þessa árs um 30-35 milljarða frá þjóðhagsáætlun í janúar. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn gerir ráð fyrir að Ísland nái frumjöfnuði 2011 og síðan jöfnuði á fjárlögum árið 2013. Það kallar á viðbótarniðurskurð, sem hljóðar að minnsta kosti upp á 30-35 milljarða á árinu 2010. Lögð er áhersla á mikilvægi þess að ná jafnvægi á skömmum tíma í ríkisfjár- málum, til þess að viðspyrnu verði náð og flýtt fyrir efnahagsbata. En jafnframt að þess verði gætt að ganga ekki of langt, þannig að enn frekar dragi úr veltu í þjóðfélaginu og samdrátturinn aukist með aðgerðum ríkisins. Ljóst er að ný ríkisstjórn þarf að hafa hraðar hendur, svo efnahagsáætlun liggi fyrir um mitt ár, en samkvæmt heimildum er sú vinna nú þegar nokkuð á veg komin. Óhætt er að fullyrða, að efnahagsáætlunin, sem lýtur að því hvernig loka megi gatinu á fjárlögum, sé forsenda viðbótarlána frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Skattahækkanir Ríkisstjórnin hefur ekki sýnt á nein spil nema hátekju- skattinn. Þar er gert ráð fyrir 3% viðbótarskatti á tekjur einstaklinga yfir 500 þúsund krónur og hjóna sem hafa yfir 1 milljón á mánuði og 5% álag til viðbótar á tekjur yfir 700 þúsund krónur á mánuði hjá einstaklingum og 1.400 þúsund krónur hjá hjónum. Fjármálaráðherra telur að það geti skilað ríkissjóði 3,5-4 milljörðum króna, en sjálfstæðismenn telja að það skili aldrei nema 2,7-2,9 milljörðum. Einnig hafa Vinstri grænir boðað hækkun á fjármagnstekjuskatti með hærra frítekjumarki og hækkun á „stóreignaskatti“. Sporna við atvinnuleysi Skráð atvinnuleysi var 8,9% í mars á þessu ári eða að meðaltali 14.546 manns og fjölgaði atvinnulausum um 1.270 manns frá því í febrúar, að því er fram kemur í skýrslu Vinnumálastofn- unar. Atvinnuleysi er mest á Suðurnesjum, 14,3% og minnst á Vestfjörðum, 2,3%. Íslendingar eiga ekki að venjast langvarandi atvinnuleysi og víst er að krafa verður gerð til stjórnvalda að mæta þessum vanda. Ný ríkis- stjórn verður dæmd af því, hvort henni tekst að stöðva vítahring atvinnuleysis og gjaldþrota. Afstaða í loftslagsmálum Í desember verður alþjóðleg umhverfisráðstefna í Kaupmannahöfn, sem ætlað er að fylgja eftir Kyoto-samkomulaginu. Ekki hefur verið skýrt hvaða afstöðu Íslendingar hyggjast taka í þeim viðræðum. Ágreiningur er á milli flokka og jafn- vel innan Samfylkingarinnar um það hvort Ísland eigi að sækja um undanþágu vegna losunar gróðurhúsalofttegunda hér á landi á grundvelli vistvænnar og sjálfbærrar orkunýtingar. Þung skuldabyrði heimila og fyrirtækja Skilyrðin hafa verið einkar óhagstæð í íslensku efnahagslífi á undanförnum mánuðum. Háir vextir, mikil verðbólga og gengis- hrun krónunnar hefur grafið undan heimilum og fyrirtækjum, sem eru orðin afar skuldsett og ráða illa við þunga greiðslubyrði. Slegið hefur verið á að um 40 þúsund einstaklingar séu með neikvæða eiginfjárstöðu og víst er að ekkert annað brennur meira á fjölskyldunum í landinu, einkum ungu fólki sem nýverið hefur fest kaup á húsnæði og skuldsett sig fyrir því. Mikið veltur á því, hvernig stjórnvöld taka á þessum vanda. Eignaumsýslufélag ríkisins Deilt er um hvort bankarnir ráði við að leysa vandamálin sem fyrirtækin glíma við eða hvort flytja eigi fyrirtæki yfir í eignaumsýslufélag á vegum ríkisins. Hefur þá einkum verið horft á „þjóðhagslega hagkvæm“ fyrirtæki og í því samhengi kom Icelandair til tals hjá fjármálaráðherra á fundi á Egilsstöðum í vikunni. Þar vakti hann máls á því, að ef ríkið tæki reksturinn yfir, mætti hefja á ný ferðir til „fé- lagslega hagkvæmra áfangastaða“ eins og Egilsstaða. Hin leiðin er sú að leysa vandamál fyrirtækjanna innan bankakerfisins, þar sem sérþekkingin er til staðar. Til þess væri nauðsynlegt að efla bankana, meðal annars með sameiningu og hagræðingu, og gera þeim þannig kleift að ráða við stærri fyrirtæki í viðskiptum. Örva nýsköpun í atvinnulífinu með skattalegum hvötum Flestir eru sammála um nauðsyn þess að beita skattalegum hvötum til nýsköpunar, rannsóknar- og þróunarstarfs og sjálf- stæðismenn vilja jafnframt endurvekja hlutabréfaafslátt til almennings með skilgreind efnahagsleg markmið í huga. Afnám verðtryggingar? Verðtrygging er heimilum og fyrirtækjum þungbær, þar sem lánaáhættan hvílir alfarið á lántakendum. Gengishrun krón- unnar kynti undir verðbólgunni og lánin hækkuðu í gegnum verðtrygginguna, sem aftur jók ójöfnuðinn í samfélaginu. Á móti þarf að huga að hagsmunum lífeyris- sjóða, sem þurfa að geta ávaxtað sitt pund, án þess að ævisparnaðurinn fuðri upp á verðbólgubálinu. Verðtryggingin hefur hinsvegar ekki gefið lífeyrissjóðun- um það öryggi sem gengið var út frá. Endurreisn bankakerfisins Ekki hefur enn verið skilið á milli nýju og gömlu bankanna, hvorki hafa verið settir upp efnahagsreikningar fyrir nýju bankana né ákveðið hvert eigið fé þeirra verður, og ekki hefur verið ákveðið hvað verður um þá í framtíðinni. Þetta takmarkar svigrúm þeirra til að styðja við bakið á fyrirtækjum og heimilum. Ef bankar geta ekki veitt súrefni til fyrirtækjanna eiga þau ekki kost á að þróa sína starfsemi og það hefur neikvæð áhrif á atvinnustigið. Leggja grunn að bættu lánshæfismati ríkissjóðs Innan 3-4 ára mun ríkið þurfa að endurfjármagna hluta af skuldum sínum á almennum markaði án aðkomu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Endurskoða reglugerðarumhverfi fjármálamarkaða Allir stjórnmálaflokkar hafa lýst yfir vilja til þess að skerpa á lagaumhverfi fjármálafyrirtækja og herða eftirlit. ótal margt fleira er á verkefnaskrá nýrrar ríkisstjórnar, eins og fram kemur í samantekt Péturs Blöndal

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.