Morgunblaðið - 26.04.2009, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 26.04.2009, Blaðsíða 16
16 Viðtal MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. APRÍL 2009 hugsunar. Við höfum einfaldlega mikla sam- félagsvitund og tjáum okkur í því sem við er- um að gera; ögrum og setjum gamla hluti í annað samhengi þannig að þeir fá nýja merkingu án þess að ganga beinlínis í endurnýjun líf- daga. Mörgum finnst póstkortin og forsíðumyndirnar fyndnar, en við prentum þær eftir alls konar gömlum myndum, og notum á skissubækurnar, sem við götum og gormum hér inn af búðinni. Húmor, prakkaraskapur og ögrun haldast stundum í hendur hjá okkur.“ Á mörkunum Bæði eru trúuð, en játa fúslega að hafa gam- an af að brjóta hefðir, hræra öllu saman, eins og þau segja, og binda sig hvorki við form né tækni. Þótt þau þvertaki fyrir að vilja særa nokkurn mann hafa sum verkanna farið fyrir brjóstið á fólki. Bolur með andlitsmynd af manni með þyrnikórónu og áletruninni Hangs- ari fellur í þann flokkinn. Af tillitssemi við við- kvæma tóku þau bolinn úr sölu, en benda rétti- lega á að hvergi hafi staðið að maðurinn táknaði Jesú. „Hann hékk að vísu líka aðgerðarlaus,“ segir Bragi glottandi. Þau féllu frá hugmynd- inni að bol með mynd af Jesú með orðið Mom tattúverað á öxlina. Ekki er ólíklegt að ein gerðin af mörgum ís- skápsseglum, sem þau framleiða með sér- stökum vélum bæði í búðinni og heima hjá sér, veki áþekk viðbrögð: Þekkt helgimynd af Maríu mey, en nú með lepp fyrir öðru auganu. Hin Marían útskýrir hugmyndina, sem raunar er ekki komin til af góðu. „Ég greindist með MS 2001 og fékk sjóntaugabólgu, sem er einn fylgi- kvilli sjúkdómsins. Ég var því blind á öðru aug- anu um tíma og þurfti að nota lepp. Viðbrögð fólks voru ótrúleg, ég hefði ekki vakið meiri at- hygli þótt ég hefði gengið um með stígvél á höfðinu. Í framhaldinu datt okkur í hug að setja lepp á eitthvað klassískt og fannst ekkert van- heilagt við það.“ Vegna sjúkdómsins og kastanna sem honum fylgja hefur María ekki fullt starfsþrek og þarf stundum að leggjast inn á spítala. Það gerðist einmitt þegar búsáhaldabyltingin stóð sem hæst. „Lokað vegna mótmæla, erum á Aust- urvelli“ stóð á spjaldi sem ekki-verslunarfólkið hengdi í búðargluggann hjá sér. Margir sem lögðu leið sína á Austurvöll fyrstu helgar bylt- ingarinnar muna eflaust eftir Maríu með bleikt spjald með áletruninni: Vilt þú segja upp ráð- herra, seðlabankastjóra eða bankaráði Seðla- bankans? „Þetta var pólitísk aðgerð, sem ég setti upp sem gjörning, og bauð fólki að segja bréflega upp tilteknum ráðamönnum og kvitta svo undir. Eyðublöðin lágu líka frammi í Rani- mosk. Tiltækið fékk gríðarlega góðar móttökur og líka meðal sjúklinga og starfsfólks á St. Jós- efsspítalanum í Hafnarfirði, þar sem ég lagðist inn með gjörningsverkið í farteskinu, en þá voru einmitt uppi hugmyndir um að loka spít- alanum.“ Á meðan stóð Bragi vaktina á Austurvelli. Huliðshjálmur og rómantík Þótt María og Bragi séu samtaka og sam- mála um flest, ef ekki allt, sem borið hefur á góma í samtalinu, algjörar samlokur að eigin sögn, voru þau afar ólík þegar þau kynntust. „Hann var með antípat á nútímalist, á kafi í vef- hönnun, sem hann kenndi líka, og rúnapæl- ingum á meðan ég var upptekin af hugmyndal- ist,“ segir María. Þar fyrir utan var aldursmunurinn töluverður, en Bragi er 48 ára og María 36. En hvar lágu saman leiðir? spyr ég forvitin. Þau vilja helst ekki útlista það ná- kvæmlega, en þó kemur upp úr dúrnum að það var fyrir ellefu árum á 22, en þangað höfðu bæði vanið komur sínar um langa hríð og umgengist mikið sama fólkið, miðbæjarrottur, en aldrei á sama tíma. „Það var eins og okkur væri ekki ætlað að hittast fyrr, værum með huliðshjálma,“ segir María, sem loks kom þó auga á Braga í mannhafinu. „….........ég skal bara við- urkenna það, mér þótti hann svo fal- legur að ég gekk að honum og spurði hvort ég mætti kyssa hann!“ Þetta kvöld segj- ast þau hafa kjaftað fram á morgun og ekki stoppað síðan. Ekki leið á löngu þar til þau stilltu saman strengi sína í lífi sem list. Þrátt fyrir allt áttu þau margt sameiginlegt, bæði óforbetranlegir safnarar, áhugafólk um liðna tíð og sífellt að búa til eitthvað nýtt. Eftir hálfs árs kynni opnuðu þau ásamt fleirum Gallerí Fiskinn á Skóla- vörðustíg og stóðu fyrir sýningaröðinni Hættu- leg kynni, þar sem þau öttu saman tveimur ólík- um listamönnum. Áður og um svipað leyti kenndi María listasögu í Borgarholtsskóla, var umsjónarmaður Listasmiðju Hins hússins og starfaði í Góða hirðinum, nytjamarkaði Sorpu. Draumur hennar var að búa til gjörning sem væri verslun, sem á mánaðarfresti breyttist t.d. úr bókabúð í fatabúð í fiskbúð. „En ég hætti við, sá að þetta yrði svo mikið vesen. Ranimosk, sem þýðir skran, dót og drasl, svo eitthvað sé nefnt, er svolítið sprottin út frá þessari hugmynd.“ Manían og hvatvísin Bragi, sem núna starfar við innsetningu aug- lýsinga á Fréttablaðinu, var áður umbrots- maður á Helgarpóstinum og Pressunni auk þess sem hann vann á fjölritunarstofu í árdaga netsins. „Ákveðið var að tölvuvæða fyrirtækið og þá neyddist ég til að læra tæknina og var síð- an beðinn að kenna á forritið þegar ég hætti. Ég fór að þróa mig áfram í vefhönnun, opnaði this.is/bragi, sem hefur verið óbreyttur frá 1994, og er orðinn hálfgerður minnisvarði frá þessum tíma,“ segir hann um tildrög þess að hann varð einn fyrsti vefhönnuður á Íslandi. „Annars hef ég aldrei getað tollað við eitt- hvað eitt í einu,“ segir hann skyndilega og út- skýrir að geðhvarfasýki sé um að kenna. „Ég á ógrynni af hálfkláruðum myndum, tónlist, fræðiverkum og bara öllum andskotanum og er að stúdera allt milli himins og jarðar,“ bætir hann við. Og líka að með jafnvægislyfjum, sem hann taki, sé hann hættur að fara í þunglyndi eins og þegar hann var unglingur. Þeim er sjúkdómurinn ekkert launungarmál. María er á því að manían, sem er frekar viðvar- andi hjá manni hennar, geti sífellt af sér stór- kostlegar hugmyndir. Hvatvísi hennar og hrif- næmi verði svo til þess að þau hrindi þeim í framkvæmd í sameiningu. „Ég þarf þó stundum að slökkva á Braga,“ segir hún og brosir kank- víslega til bónda síns, sem hefur gengið um gólf drjúga stund. „Já, ég er skrýtin skrúfa,“ segir hann hugsi. Yfirlýsingin kemur svo sem ekki á óvart, ég hafði lesið það á eftirlætisbolnum hans. Kannski eru þau bæði skrýtnar skrúfur, en þó augljóslega ekki með lausa skrúfu. Að minnsta kosti hljómar einkar jarðbundið og greindarlega þegar þau segja að það versta við velgengnina sé að verða fórnarlömb hennar. Þá hætti að vera gaman. Tjáningarmáti Bolir með margræðum yfirlýs- ingum hafa lengi verið partur af götukúltúrnum. Póstkort María og Bragi prenta póstkort af ýmsu tagi. Neðst er Undrakonan, sem er partur af teiknimyndaseríu eftir Braga og er ádeila á dómstóla. Pólitískur gjörningur María með bleika gjörninginn í búsáhaldabyltingunni . Forsíður Gamlar sjónvarpsstjörnur ganga aftur á forsíðum skissubóka. Dótarí Í hinni einu sönnu Ranimosk-skúffu er alls konar skart og dótarí í einum hrærigraut.Ísskápsseglar Myndirnar eru sumar fyndnar eða sætar, aðrar ögrandi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.