Morgunblaðið - 26.04.2009, Síða 21

Morgunblaðið - 26.04.2009, Síða 21
21 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. APRÍL 2009 Ég á reyndar einn frænda sem er í hljómsveit og hann er ekki einu sinni blóðskyldur mér. Kristín Þóra Jóhannsdóttir, sigurvegari í Söngvakeppni framhaldsskólanna. Það var ekki stefna Sjálfstæðisflokksins að sigla þjóð- arskútunni í strand. Sverrir Leósson útgerðarmaður, í grein í Morgunblaðinu. Vændi verður alltaf nógu falið til þess að þeir sem kaupa það geti gert það án þess að upp um þá komist og alltaf nógu sýnilegt til þess að hægt sé að selja það. Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta, spurð hvort að með nýlegri lagabreytingu um að gera kaup á vændi refsiverð hverfi vændi undir yfirborðið. Það mega ekki vera svona grunsemdir uppi um að það séu hagsmunatengsl og óeðlileg afskipti af fyrirtækjum. Það verður allt að vera uppi á borði. Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra vill að Ríkisendurskoðun fari yfir fjármál stjórnmálaflokkanna. Það er þýðingarlaust að tala um lýð- ræðishalla á ESB svo lengi sem við fáum ekki að kjósa á upplýstum og lýð- ræðislegum forsendum. Auður Jónsdóttir rithöfundur, á fundi hreyfingarinnar Við erum sammála, sem berst fyrir því að Ísland taki upp aðild- arviðræður við ESB. Þetta er langstærsta málið og Samfylk- ingin selur það mál ekki aftur. Björgvin G. Sigurðsson, efsti maður á lista flokksins í Suðurkjördæmi á borgarafundi í útsendingu RÚV. Ég tel að samstarf eftir kosningar komi ekki til álita nema Evrópumálin séu þar leyst. Atli Gíslason, oddviti Vinstri grænna í Suð- urkjördæmi, á sama fundi. Ég hef miklar efasemdir um olíuvinnslu á Drekasvæðinu. Mér finnst menn tala um þetta núna sem einhverja töfralausn fyrir íslenskt atvinnulíf. Kolbrún Halldórsdóttir, umhverfisráðherra. M.a. varð til, a.m.k. um tíma, fámenn stétt milljarðamæringa sem gat leyft sér fáránlegan lífsstíl sem engin for- dæmi eru fyrir í Íslandssögunni. Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra í grein í Morgunblaðinu. Ummæli ’ 24 þýskar og ítalskar sprengjuflug- vélar vörpuðu farmi sínum á borgina Guernica í Baskahéruðum Spánar mánudaginn 26. apríl 1937. Fjöldi fólks lést í árásinni og eyðileggingin var gríðarleg. Árásin varð Pablo Pi- casso innblástur að því fræga verki, Guernica, sem lýsir þjáningu og eyði- leggingu stríðs. Verkið hefur fyrir margt löngu öðlast sess sem eins konar friðartákn, sífelld áminning um skelfingu stríðsrekstrar. Guernica var fimm þúsund manna bær, en í apríl 1938 voru þar líklega fleiri, því þangað leituðu flóttamenn úr spænska borgarastríðinu. Í stríð- inu tókust á sveitir lýðræðiskjör- innar, vinstrisinnaðrar ríkisstjórnar og sveitir falangista, undir stjórn Francos hershöfðingja. Falangistar voru dyggilega studdir af Þjóð- verjum og Ítölum, enda hug- myndafræðilegur skyldleiki með þeim, nasistum og fasistum. Falangistar vildu leggja borgina Bilbao undir sig og sóttu stíft í norð- ur. Sigur á herjum lýðræðissinna í Guernica var mikilvægur áfangi á þeirri leið. Sprengjuregn Fyrstu sprengjurnar féllu síðdegis þennan dag. Þær féllu á bæinn, en næsta sprengjuregn á brýr og vegi að bænum. Um kvöldmatarleytið kom mesta sprengjuregnið. Þrír fjórðu allra bygginga í bænum voru jafnaðir við jörðu í árásunum og önnur hús voru mikið skemmd. Eftirleikur falangista var auðveld- ur; þeir lögðu bæinn undir sig og höfðu þar öll völd þremur dögum síð- ar. Enn er óljóst hversu mikið mann- fall var í Guernica. Skömmu eftir árásina sögðu Baskar að a.m.k. 1.654 hefðu látist og 889 særst. Sú tala var lengst af talin nokkuð nákvæm, en á síðari árum hefur hún verið dregin í efa af sagnfræðingum, sem segja að 250-300 hafi látist. Eins og ávallt í stríði virðist sann- leikurinn fyrsta fórnarlambið og erf- itt að henda reiður á honum. Falang- istar sögðu lýðræðissinna hafa brennt bæinn þegar þeir flýðu og þannig sjálfir valdið mestu skemmd- unum. Og dagblað, sem fylgdi Franco hershöfðingja að málum, hélt því fram árið 1970 að aðeins 12 hefðu lát- ist í Guernica mánudaginn 26. apríl 1937. rsv@mbl.is Á þessum degi... 26. APRÍL 1937 SPRENGJUR FALLA Á GUERNICA Stepp ehf Ármúla 32 Sími 533 5060 www.stepp.is stepp@stepp.is G ra fí k a 2 0 0 9 GÓLFEFNI ÞEKKING ÞJÓNUSTA TEPPI FYRIR GISTIHEIMILI LAGERSALA LÍN DESIGN www.lindesign.is/lagersala Úrval rúmteppa, púða, dúka, rúmfatnaðar ásamt ýmsu öðru. Sýniseintök og lítillega útlitsgallaðar vörur með allt að 80% afslætti. Lagersalan er á Malarhöfða 8, í brekkunni fyrir aftan Ingvar Helgason. Opið í dag sunnudag 10–16. AÐEINS ÞESSA EINU HELGI. TÆKIFÆRI Í MIÐBÆNUM LANDIC PROPERTY er eitt stærsta fasteignafélag á Norðurlöndum og sérhæfir sig í útleigu fasteigna til langs tíma. Kringlunni 4–12 | 103 Reykjavík www.landic.is TIL LEIGU Í AÐALSTRÆTI 8 Um er að ræða gott verslunar- og þjónustuhúsnæði í Aðalstræti 8 í Reykjavík. Stærð er 260 m2−360 m2 og einnig er laus kjallarinn, um 160 m2. Hægt að leigja saman eða sitt í hvoru lagi. Húsnæðið er í góðu ástandi, er eitt opið rými, og býður upp á mikla möguleika. Nánari upplýsingar fást hjá Ingu Rut Jónsdóttur í síma 660 6828 eða á irj@landicproperty.is. H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA - 0 9 - 0 6 8 1 Tómasarmessa í Breiðholtskirkju Sunnudaginn 26. apríl kl. 20 Fjölbreytt tónlist og fyrirbæn Orð Guðs og máltíð Drottins

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.