Morgunblaðið - 26.04.2009, Side 22

Morgunblaðið - 26.04.2009, Side 22
22 Knattspyrna MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. APRÍL 2009 Eftir Orra Pál Ormarsson orri@mbl.is Þ að var á dægilegu eft- irmiðdegi sumarið 1983 að leiðir okkar Luton Town lágu saman í Smá- löndunum í Svíþjóð – af öllum stöðum. Ég var í sumarfríi en Lutonliðar í æfingaferð til að búa sig undir strembið tímabil í Englandi. Félagið lék um þær mundir í efstu deild og hafði innan sinna vébanda kempur á borð við Paul Walsh, Ricky Hill og Brian Stein. Það lá því fyrir um leið og ég sá leik Luton Town og Smálandaúrvalsins aug- lýstan í sjoppu í grenndinni að ég myndi ekki láta þennan viðburð framhjá mér fara. Það brunnu þegar eldar milli mín og ensku knattspyrn- unnar á þessum tíma. Eldar sem aldrei munu slokkna. Setinn var Svarfaðardalur í stúk- unni þegar mig bar að garði og því ekki um annað að ræða en standa upp á rönd. Vallarstarfsmaður vísaði mér til stæðis. Flautað var til leiks og einbeitingin var svo mikil að ég gerði mér ekki grein fyrir því fyrr en allmargar mínútur voru liðnar af leiknum að ég stóð beint fyrir aftan varamannabekk Luton Town. Geðs- hræringin var mikil þegar ég áttaði mig á þeirri staðreynd. Svo nálægt stóð ég goðunum að auðveldlega hefði mátt klóra Brian Stein bak við eyrun og flétta Paul Walsh, sem kom af velli í leikhléi, hefði ég haft til þess kunnáttu. Ég hlýddi dáleiddur á mál þeirra Luton-manna enda þótt ég skildi ekki allt sem þeim fór á milli, rétt orðinn tólf ára gamall. Á þessum tímapunkti í mínu lífi hafði ég ekki kom- ist nær stjörn- unum. Síðan eru liðin 26 ár og ljómi Luton Town hefur fölnað. Ekki er víst að ég myndi gera mér ferð til að sjá Kevin Nic- holls, Sam Parkin og Asa Hall spila enda þótt hver sé að verða síðastur að sjá þetta forn- fræga félag leika í deild- arkeppninni. Það mun yf- irgefa hana í vor eftir 89 ára samfellda veru. Neðsta sætið í neðstu deild er hlutskipti Luton Town á þessu vori. Knattspyrnufélagið Luton Town var stofnað 11. apríl 1885 þegar tvö félög í hattagerðarborginni frægu sameinuðust, The Wanderers og Ex- celsior. Það er engin tilviljun að gælu- nafn félagsins er „Hattararnir“. Luton Town tók upp atvinnu- mennsku sex ár- um síðar, fyrst fé- laga í suðurhluta Englands. Félagið ritaðist inn í deildakeppnina 1897 en dró sig í hlé þremur árum síðar vegna dræmrar aðsóknar á leiki og mikils launa- og ferðakostnaðar. Á þessum árum voru öll helstu félögin með bæki- stöðvar í norðurhluta landsins. Luton Town var á hrakhólum fyrstu árin en 1905 flutti félagið inn á hinn sögufræga leikvang Kenil- worth Road, þar sem það er enn til húsa. Hann var raunar seldur upp í skuldir fyrir nokkrum árum en fé- lagið leigir hann síðan. Skoraði tíu mörk í einum leik Luton Town var utan deilda allar götur til ársins 1920 að það sneri aft- ur í deildarkeppnina. Treglega gekk að klífa metorðastigann og það var ekki fyrr en árið 1937 að félagið vann sér þátttökurétt í 2. deild með því að vinna þá þriðju. Joe Payne, miðherji liðsins, fór mikinn þann vetur og gerði hvorki fleiri né færri en 55 mörk í 39 leikjum, þar á meðal tíu stykki í einum og sama leiknum. Það met stendur enn á landsvísu. Luton Town vann sér langþráð sæti í efstu deild vorið 1955 og næstu ár á eftir átti það nokkurri velgengni að fagna. Hápunkturinn var vorið 1959 þegar félagið lék til úrslita um bikarinn gegn Nott- ingham Forest. Sá leikur tapaðist raunar. Sama vetur var Syd Owens, leikmaður Luton, valinn leikmaður ársins í ensku knattspyrnunni. Eftir þetta hallaði undan fæti. Ári síðar féll Luton Town í aðra deild og árið 1965 var félagið komið alla leið niður í fjórðu deild. Eyjólfur hresstist þó aftur og vet- urinn 1973-74 lék Luton Town aftur meðal þeirra bestu. Sú sæla varaði þó aðeins í tvo vetur, félagið féll með naumindum 1975. Velmegun undir stjórn Pleats David Pleat tók við starfi knatt- spyrnustjóra á Kenilworth Road ár- ið 1978 og markaði sú ráðning upp- hafið að mesta velmegunarskeiði félagsins. Luton Town endurheimti sæti sitt í efstu deild 1982 og hélt því í áratug. Það sló í gegn með skemmtilegum sóknarleik þegar á fyrsta ári enda þótt það hafnaði að lokum í átjánda sæti. Leikgleðin skein af liðinu og auk kunnustu kappanna, sem getið var hér í upp- hafi, má nefna menn á borð við Mal Donaghy, Brian Horton, Paul Ell- iott, Clive Goodyear og markvörðinn Jake Findley. Síðar á níunda áratugnum skrýddust búningi Luton Town menn eins og Steve Foster (með ennisbandið), Mick Harford, Mark Stein (bróðir Brians), Les heitinn Sealey, Mike Newell og Roy Weg- erle. Mörgum er í fersku minni að Ken- ilworth Road var um tíma þakinn gervigrasi á níunda áratugnum. Lut- on Town fylgdi þar fordæmi Queen’s Park Rangers og voru menn sann- færðir um að þetta undirlag væri framtíðin. Raunin reyndist önnur og enska knattspyrnusambandið bann- aði gervigras alfarið árið 1988. Luton Town féll úr efstu deild árið 1992 og hefur ekki átt afturkvæmt Hattur orðinn Hið fornfræga félag Luton Town er fallið úr deild- arkeppninni í Englandi eftir 89 ára samfellda veru. Saga félagsins er sannkölluð rússíbanareið en vegur þess var mestur á níunda áratugnum þegar það varð meðal annars deildarbikarmeist- ari – og lék í fimbulkulda í Laugardalnum. Stóri Eldri Stein-bróðirinn, Brian, gerði 130 mörk fyrir Luton. Litli Yngri Stein- bróðirinn, Mark, lék síðar með Chelsea. Í fannferginu á Englandi í janúar 1985 sá Luton Town sér leik á borði og hélt sem leið lá til Ís- lands til að leika knattspyrnu. Fresta þurfti fjölda leikja víðsvegar um Evrópu þessa helgi en á nýlögðu gervigrasinu í Laugardal var renni- færi. Það var því upplagt fyrir Lu- tonliða að koma hingað til að halda sér í æfingu. Veg og vanda af heim- sókninni hafði Halldór Einarsson, betur þekktur sem Henson. Andstæðingur Luton í fyrsta al- vöruleiknum sem háður var á gervi- grasinu í Laugardal var úrval leik- manna úr Reykjavík og fóru gestirnir með sigur af hólmi, 3:1. Tim Breacker, Brian Stein og Mick Harford gerðu mörk Luton Town en Akureyringurinn Gunnar Gíslason svaraði fyrir Reykvíkinga. Enda þótt jörð væri auð í Reykja- vík hinn 20. janúar 1985 beit kuld- inn í ber læri og hendur Lutonliða og einn leikmanna liðsins, miðvörð- urinn Steve Foster, trúði Morg- unblaðinu fyrir því að leik loknum að hann hefði aldrei leikið í svona ógurlegum kulda áður. „Hendurnar á mér voru eins og ísklumpar!“ Heimamenn höfðu vaðið fyrir neðan sig og mættu til leiks í sokkabuxum og með vettlinga. Í niðurlagi leikskýrslu Morg- unblaðsins sem „SH“ skrifar undir segir: „Leikmenn Luton sýndu skemmtilega takta á köflum, en lið- ið er vissulega ekki eitt af betri lið- um ensku 1. deildarinnar [sem var í raun og veru efsta deild á þeim tíma]. Liðið er nú í næstneðsta sæti deildarinnar en er þekkt fyrir að leika skemmtilega knattspyrnu engu að síður.“ Á sautjánda hundrað manns sáu leikinn en eitthvað mun hópurinn hafa grisjast er á leið vegna kuld- ans. „Hendurnar á mér voru eins og ísklumpar!“ Hr. Luton Ricky Hill hristir Ómar Torfason af sér í Laugardalnum. Stjórinn Mick Harford stýrir liði Luton Town í dag.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.