Morgunblaðið - 26.04.2009, Síða 29

Morgunblaðið - 26.04.2009, Síða 29
29 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. APRÍL 2009 Morgunblaðið/Kristinn Gamla lagið Hefðbundin kosningabarátta, með kosningafundum, brosandi frambjóðendum á almannafæri, blöðrum og barmmerkjum, hefur varla sézt nema síðustu vikuna fyrir kosningar. Margt bendir til að kosningabarátta muni taka breytingum, sem fyrstu merki sjást nú um. Þ egar þetta er ritað á laug- ardagsmorgni er verið að opna kjörstaði í þingkosn- ingunum. Kosningabar- áttan hefur að mörgu leyti verið óvenjuleg. Boðað var til kosninganna með stutt- um fyrirvara og eftir það fóru skoðanaskipti flokk- anna fyrir kosningarnar að miklu leyti fram í þingsölum. Þinghaldið stóð svo lengi að það er í raun varla nema síðustu vikuna, sem hefðbundin kosningabarátta hefur farið fram. Hófstilltari kosningabarátta Meðal annars af þessum sökum hefur kosn- ingabaráttan verið hófstilltari en oftast áður af hálfu flokkanna og þeir hafa augljóslega varið til hennar minna fé en tíðkazt hefur und- anfarin ár. Þar kemur sjálfsagt tvennt til. Ann- ars vegar eru flokkarnir allir á hausnum eftir dýrar kosningar árin 2006 og 2007. Þrengt hef- ur verið að fjáröflunarmöguleikum þeirra með nýjum lögum um fjármál stjórnmálaflokka. Hins vegar hafa kjósendur einfaldlega ekki smekk fyrir „glamúr“ af því tagi, sem einkennt hefur kosningabaráttu undanfarinna ára og flestir tengja nú við góðærið, sem endaði með ósköpum. Morgunblaðið hefur iðulega gagnrýnt það sem það hefur kallað auglýsingastofustjórn- mál; þar sem auglýsingamenn og ímynd- arfræðingar hafa legið yfir útliti og orðfæri flokksleiðtoga og auglýsingum með brosandi fólki í fallegum fötum hefur verið dembt yfir þjóðina, en innihaldið verið í öðru sæti. Frægt er þegar frambjóðendur Framsóknarflokksins í borgarstjórnarkosningunum vörðu vel á aðra milljón í fatakaup fyrir kosningarnar 2006 til að ganga í augun á kjósendum. Haft var fyrir satt að einn frambjóðandinn hefði aldrei verið í sömu jakkafötunum á tveimur auglýsingum. Að þessu sinni virðast bæði fata- og auglýs- ingareikningar flokkanna lægri en undanfarin ár. Hins vegar er spurning hvort meiri áherzla hefur verið lögð á innihaldið í kosningaboð- skapnum. Vegna þess hvað mikið hefur gengið á í baráttunni við kreppuna og kosningarnar voru boðaðar með skömmum fyrirvara, gafst flokkunum ekki mikill tími til að endurskoða stefnu sína. Kosningabaráttan var að verulegu leyti keyrð á gömlum klisjum. En kannski stendur þetta til bóta. Fjármögnun kosningabaráttu Í kosningabaráttunni stal umræða um fjármál flokkanna senunni frá málefnaumræðum í tví- gang; fyrst þegar sagt var frá háum fjár- styrkjum FL Group og Landsbankans til Sjálfstæðisflokksins á árinu 2006 og svo aftur þegar upplýsingar um styrki FL Group og Baugs til prófkjörsframbjóðenda í Samfylk- ingu, Sjálfstæðisflokki og Framsóknarflokki komu upp á yfirborðið. Stjórnmálamennirnir kvörtuðu undan áhuga fjölmiðla á þessum málum. Fréttaflutn- ingurinn átti hins vegar fullt erindi við kjós- endur, af því að hann varpaði ljósi á þau nánu tengsl fjármálalífs og stjórnmálalífs, sem margir telja að hafi átt þátt í því hversu hátt fall íslenzka fjármálageirans varð síðastliðið haust. Eftir að upplýsingarnar um risastyrk- ina til Sjálfstæðisflokksins komu fram, lögðu bæði sá flokkur og Samfylkingin og Fram- sóknarflokkurinn fram upplýsingar um styrki, sem þeir nutu frá fyrirtækjum. Af þessum upplýsingum gátu kjósendur dregið þá álykt- un, að viðskiptablokkirnar, sem voru alls ráð- andi í fjármálalífi landsmanna, hefðu styrkt þessa þrjá flokka í ríkum mæli. Flokkarnir sóttu milljónastyrki til stórfyrirtækjanna á síðustu vikum ársins 2006, jafnvel eftir að þeir höfðu samþykkt á Alþingi löggjöf sem bannaði slíka styrki, með þeim rökum að þeir yllu tor- tryggni. Auðvitað veldur það síðan tortryggni kjósenda, þegar þessir styrkir koma fram í dagsljósið! En ekki hvað? Ekki er hægt að segja að flokkarnir séu búnir að gera fyllilega hreint fyrir sínum dyr- um í þessum efnum. Þeir hafa t.d. ekki upplýst hvaða styrki undirsamtök þeirra fengu beint frá fyrirtækjum. Þar eru greinilega einhverjir stórir styrkir á ferðinni. Samfylkingin upplýsti að kjörnir fulltrúar flokksins hefðu haft milli- göngu um að afla styrkja frá fyrirtækjum, en ekki hefur komið fram af hálfu flokksins hverj- ir af þeim fulltrúum, sem nú sækjast eftir end- urkjöri, hefðu verið í þeim hópi. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra lagði til í Zetunni, umræðuþætti á vef Morg- unblaðsins, mbl.is, fyrr í þessari viku að Rík- isendurskoðun yrði fengin til að fara yfir fjár- mál flokkanna og styrki til þeirra á árunum 2000 til 2006, þar til ný lög tóku gildi. For- ystumenn allra flokka hafa tekið undir þetta. Hverjir styrktu prófkjörin? Eftir að fréttir birtust um háa styrki stórfyr- irtækja til frambjóðenda í prófkjörum hefur verið lagt til að við slíka úttekt yrði bætt skoð- un á styrkjum til prófkjörsframbjóðenda og bókhald þeirra opinberað. Slík úttekt er nauð- synleg til að hreinsa út grunsemdir um óeðli- leg tengsl frambjóðenda við fyrirtæki. Auðvit- að spyr hinn almenni kjósandi, hvort stjórnmálamenn geti þegið stóra styrki frá fjársterkum fyrirtækjum eða einstaklingum, án þess að það brengli dómgreind þeirra á nokkurn hátt ef þeir þurfa síðar að taka ákvörðun, sem snertir hagsmuni viðkomandi aðila. Nýju lögin um fjármál stjórnmálaflokka og frambjóðenda voru sett til að girða fyrir að slíkar grunsemdir vöknuðu. Það, sem komið hefur fram um fjármögnun prófkjöra ein- stakra frambjóðenda fyrir kosningarnar 2006 og 2007, gefur tilefni til að allar upplýsingar komi upp á borðið. Enginn frambjóðandi vill verða fyrstur til að opinbera bókhald sitt; flestir sem hafa verið spurðir, segjast hins veg- ar vera til í slíkt ef aðrir geri slíkt hið sama. Hugsanlega er ekki hægt að þvinga einstaka frambjóðendur til að gefa upp hverjir styrktu þá, en flokkarnir eiga að taka sig saman um að hvetja frambjóðendurna til að gefa þessar upplýsingar. Og flestir hljóta að taka þátt í því, nema auðvitað að þeir telji sig hafa eitthvað að fela. Holl umræða Umræðan um styrki til stjórnmálaflokka og frambjóðenda er holl. Og þau mörk, sem nýju lögin um fjármál flokka og frambjóðenda setja kostnaði við kosningabaráttu eru líka holl. Flokkarnir munu ekki aftur fara út í dýrar, vit- lausar og yfirborðslegar auglýsingaherferðir vegna þess að þeir munu einfaldlega ekki hafa efni á þeim. Ríkisstyrkir til stjórnmálaflokk- anna hafa verið hækkaðir, en munu ekki hækka meira um sinn. Skattgreiðendur hafa einfaldlega ekki efni á slíku. Þeir munu gera þá kröfu að flokkarnir stilli kostnaði við starf- semi sína í hóf og sníði sér stakk eftir vexti, rétt eins og heimili og fyrirtæki í landinu verða nú að gera. Það er sömuleiðis jákvætt að kostnaður við prófkjör getur ekki framar farið út í sömu vit- leysu og fyrir kosningarnar 2006 og 2007. Það stóð endurnýjun á listum fyrir þrifum, að menn þurftu helzt að eiga peninga sjálfir eða hafa greiðan aðgang að fjársterkum aðilum til að geta boðið sig fram í prófkjöri. Þetta hefur ekki sízt komið niður á konum og ungu fólki. Nú verður það vonandi árennilegra að gefa kost á sér til starfa í stjórnmálum, a.m.k. kostnaðarins vegna. Nýjar baráttuaðferðir Flokkarnir munu þurfa að leita nýrra leiða til að auka tekjur sínar og lækka kostnað. Þeir munu í vaxandi mæli þurfa að reiða sig á félagsgjöld og framlög frá almennum flokksmönnum. Og nú þegar ber á því að þeir leiti leiða til að ná til kjósenda með ódýrari hætti en áður. Flokkarnir eru til dæmis mun duglegri nú en áður að nota Netið til að dreifa hugmyndum og áróðri. Helzta nýjungin fyrir þessar kosn- ingar er áhrifarík nýting möguleika netsjón- varpsins, þar sem sjálfstæðismenn virðast fara fremstir í flokki, en aðrir flokkar hafa einnig látið til sín taka. Myndskeið með allmörgum frambjóðendum má nú sjá á Youtube-vefnum. Þessi leið er áreiðanlega einhver sú áhrifarík- asta til að ná til yngri kjósenda, sem oft eru ekki mjög móttækilegir fyrir hefðbundnum baráttuaðferðum flokkanna. Netið er ekki aðeins áhrifaríkt, heldur er dreifikostnaður þar aðeins brot af því sem þarf að kosta til, eigi að notast við auglýsingar í hefðbundnum miðlum, dagblöðum og sjón- varpi. Netið er sömuleiðis vettvangur, þar sem hægt er að eiga gagnvirk samskipti við kjós- endur, þótt þeir möguleikar séu enn að veru- legu leyti ónýttir hjá flokkunum. Netmiðlar, sem eru ýmist óháðir eða laus- tengdir flokkunum, hafa líka haft sitt að segja í kosningabaráttunni. Þar má nefna vefi eins og AMX, Smuguna, Pressuna, Eyjuna, Völlinn og Herðubreið. Pólitískar umræður fara fram á umræðusvæðum þeirra og stundum eru þeir fyrstir með fréttir, sem hinir hefðbundnari miðlar taka upp í framhaldinu. Þessir miðlar bæta við umræðuna og veita „stóru“ fjölmiðlunum aðhald, bæði með gagn- rýnni umræðu um fréttaflutning og efnistök og með því að flytja fréttir, sem stærri fréttastof- ur hafa ef til vill ekki komið auga á. Í sumum tilvikum er hlutlægur fréttaflutningur af því tagi, sem ritstjórnir stóru dagblaðanna, út- varps- og sjónvarpsstöðvanna leitast við að halda uppi, þó augljóslega látinn lönd og leið. Það er ekki alltaf gott að greina á milli frétta, fréttaskýringa og leiðara í þessum miðlum. En ef lesendur vita hvaðan menn koma og hvað þeir ætla sér, gerir það kannski ekki svo mikið til. Jákvæð þróun Ýmislegt bendir til að þessar kosningar marki nokkur þáttaskil í því hvernig kosningabarátta er háð. Í fyrsta sinn þiggja flokkarnir ekki styrki frá stórfyrirtækjum fyrir kosningar og munu heldur ekki geta farið til þeirra með reikningana eftir kosningar. Flokkarnir þurfa augljóslega að draga saman seglin og eyða minna til baráttunnar. Sama á við um fram- bjóðendur í prófkjörum. Flokkarnir þurfa að vera útsjónarsamari í baráttuaðferðum sínum og munu nýta sér nýja miðla í vaxandi mæli. Allt er þetta heldur jákvætt, þegar upp er staðið. Kosningabarátta með nýju sniði Reykjavíkurbréf 250409

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.