Morgunblaðið - 26.04.2009, Blaðsíða 31
Umræðan 31
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. APRÍL 2009
VITA | Skútuvogi 13a | Sími 570 4444
VITA er lífið
Skráðu þig í netklúbbinn – VITA.is
Mallorca í vor
VITA er ný ferðaskrifstofa
í eigu Icelandair Group.
GROUP
Dagskrá fyrir Gott fólk 60+
Fararstjóri: Rebekka Kristjánsdóttir
Skemmtanastjóri: Bjarney Lea Guðmundsdóttir
Dvöl á Mallorca sameinar allt sem fólk yfir sextugt
sækist eftir á sólarstað. Við bjóðum farþegum að
velja á milli ýmissa úrvalsgististaða á Playa de Palma.
Í boði eru skoðunarferðir með fararstjóra og að
auki verður farið í leikfimi, mini-golf, gönguferðir
og haldin spilakvöld og kvöldvökur.
Heilsurækt
Félagsvist/mini-golf
Ganga/stafaganga
Skemmtikvöld
3.–27. maí
í 24 nætur
Hotel Cosmopolitan
Verð frá 98.900 kr.*
og 15.000 Vildarpunktar
á mann m.v. 2 í tvíbýli með hálfu fæði. Verð m.v. 5.000 kr.
afslátt til félaga í Gott fólk 60+
* Verð án Vildarpunkta en með klúbbafslætti: 108.900 kr.
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
V
IT
45
98
6
04
.2
00
9
hálft fæði
Allra
síðustu
sæ
tin!
RECEPTIE KONINGINNEDAG 2009
De Consul Generaal der Nederlanden, de heer Bjarni Finnsson,
en zijn echtgenote heten alle Nederlanders hartelijk welkom op
de Koninginnedagreceptie te houden op
Donderdag 30. april
van 17.00 - 19.00 uur
in Rafveituheimilinu
Rafstöðvarvegi við Elliðarár, 110 Reykjavík.
Wie aan de uitnodiging gehoor wil geven wordt verzocht zich
vóór 28. april op te geven bij het Consulaat, tel. 533 1002.
Op werkdagen geopend tussen 10:00 en 12:00.
Of via e-mail: holland@holland.is
BRYNJAR Níelsson hrl. ritar
grein í Morgunblaðið í dag, 15.
apríl. Þar voru orð í tíma töluð, og
þó fyrr hefði verið. Þegar ég
heyrði í hinum norsk-franska
rannsóknarspekingi í sjónvarpi
fyrir nokkru, fékk ég strax ógeð á
málflutningi hennar og fullyrð-
ingum um eigin hæfileika. Hafi ég
skilið hana rétt, þá státaði hún að
því að hafa rannsakað og dæmt í
einhverjum stórum frönskum
fjársvikamálum, og þótti henni
það allt til fyrirmyndar. Undir
þetta tóku fjölmiðlar og stjórn-
málamenn og gerðu sig að fíflum.
Eru allir búnir að gleyma karlin-
um á Akureyri, sem var sektaður
fyrir að aka (eða hjóla) yfir gatna-
mót á rauðu? Hann var ekki sátt-
ur við, að sama embætti hafði
rannsakað og dæmt í máli hans,
fór með málið til Evrópu með
þeim afleiðingum, að breyta varð
öllum lögum um réttarfar og skip-
an ákæruvalds og dómstóla hér á
landi. Eru allir búnir að gleyma
djöfulganginum í Hafskipsmálinu
og öllum þeim mistökum, sem þá-
verandi ríkissaksóknari, Hall-
varður Einvarðsson, gerði í fljót-
ræði til að þjóna kalli sorpblaða
og framagosa í stjórnmálum? Ég
varð svo gáttaður, þegar norsk-
franski spekingurinn var settur
við hliðina á hinum sérstaka sak-
sóknara frá Akranesi, að ég sagði
við sjálfan mig: „Nú segði ég af
mér.“ Ráðning konunnar flokkast
undir það, sem nú er kallað „po-
pularismi“. Meðan íslenskt mál
var í heiðri haft í fjölmiðlum, skól-
um og á Alþingi hét þetta lýð-
skrum, en það er orð, sem ekki
má nota lengur til að móðga ekki
sjálfkjörna fulltrúa þjóðarinnar,
sem fóru út á götur með potta og
pönnur og reyndu að kveikja í
húsi Alþingis. Er betra að vera
„pöbull“ en lýður?
Axel Kristjánsson
Popularismi/-
lýðskrum
Höfundur er lögmaður.
LÍFRÍKI í fersk-
vatni er viðkvæmt fyrir
álagi frá þéttbýli en
það getur birst með
fjölmörgum hætti. Yf-
irborðsvatn getur inni-
haldið áburðarefni, eit-
urefni, olíur,
þungmálma, salt af götum o.s.frv.
Vegir, bílastæði og aðrir vatnsþéttir
yfirborðsfletir valda breytingu á
rennslisháttum með auknum vatns-
borðssveiflum og stórum flóðum.
Framkvæmdir, manngerðir bakkar,
breyting á farvegi, nýjar lífverur,
mikil lýsing og umferð farartækja
eru allt álagsþættir sem hafa áhrif á
lífverur og vistkerfi ferskvatns. Á
ósasvæðum eru hafnamannvirki,
landfyllingar á strandsvæðum, báta-
umferð og mengun frá þeim. Þegar
ár renna um þéttbýli safnast slíkir
álagsþættir upp og hafa veruleg nei-
kvæð áhrif. Oft er erfitt að benda á
einn þátt sem hefur afgerandi áhrif
á lífríki, heldur er um að ræða sam-
verkandi áhrif margra þátta.
Þegar litið er á árnar þrjár sem
renna um mesta þéttbýli landsins,
Elliðaár, Úlfarsá og Leirvogsá, má
sjá að flestir þeir þættir sem taldir
eru hér að framan eiga við þær.
Breytingar á Elliðaám eiga sér
u.þ.b. aldar langa sögu sem hófust
með vatnsveitu 1909 og virkjun 1921
en síðan tók hver framkvæmdin við
af annarri. Kvíslar voru stíflaðar,
Árbæjarlón myndað, hækkað var á
Elliðavatni og það stækkað. Byggð
og vegamannvirki eru nú með öllum
ánum og ekki færri en sjö brýr eru
yfir árnar. Vatn af götum og plönum
fór óhindrað út í árnar. Mikil lýsing
berst í árnar. Ósasvæðin fóru ekki
varhluta af framkvæmdum. Mikil
uppfylling var sett út í Elliðavoginn
(Geirsnef) og bátahafnir skammt
undan. Iðnaðarsvæði var við ósa
ánna.
Það gerist svo árið 1997 að mikið
fall varð í laxastofni Elliðaáa af óút-
skýrðum ástæðum. Það gerðist eins
og eftir bókinni, mikið álag og líf-
ríkið lætur undan og birtist okkur í
verulegri fækkun laxa. Ábyrgðarað-
ilar ánna, Reykjavíkurborg og Orku-
veita Reykjavíkur, vakna af dval-
anum. Samþykkt var í borgarráði að
hafa svo nefnda árhelgi 100 metra
meðfram ánum. Að ráði nefndar sem
borgin skipaði voru settar í fram-
kvæmd kostnaðarsamar mótvæg-
isaðgerðir til að endurheimta laxa-
stofninn. Þær fólust í að rekstri
virkjunarinnar var breytt á þá lund
að nú er veitt lágmarksvatni á V-
kvísl ánna sem áður var þurr á vet-
urna og einnig á kaflann frá Árbæj-
arlóni að virkjun í A-kvísl. Sú gleði-
lega breyting hefur orðið að þar er
nú sjálfklakið seiðauppeldi. Veita
vatns frá Elliðavatni að Árbæjarlóni
hefur verið milduð m.t.t. rennsl-
isbreytinga. Tryggt var rennsli í s.k.
Eddubæjarkvísl sem oft hefur þorn-
að í minnsta rennsli. Gerð var áætl-
un um hreinsun allra yfirborðslagna
er í árnar renna með settjörnum.
Það verk er komið vel á veg, þó síð-
asta hlutanum hafi verið frestað.
Hreinsun Elliða- og Grafarvogs af
skolpmengun er lokið. Kópavogsbær
hefur ákveðið hreinsun afrennsl-
isrotþróa frá byggð við Elliðavatn og
gert sérstakar ráðstafanir vegna
frárennslis frá frekari byggð. Dregið
hefur verið úr veiðiálagi á lax í Ell-
iðaám og netaveiðum var hætt í El-
liðavatni sem áður voru stundaðar
að nokkru marki eftir stangveiðitím-
ann. Hver svo sem ástæðan er þá fór
laxastofn Elliðaánna að rétta úr
kútnum aftur og hefur verið að nálg-
ast meðalgengd síðustu fjögur árin.
Í ljósi þessarar sögu er það óskilj-
anlegt að nú eigi aftur að fara að
ganga á svæðin næst ánum og það
með framkvæmdum sem ekki geta
talist brýnar. Þegar verið er að
byggja hesthúsahverfi í Almanna-
dal, því þarf þá að byggja hesthús
fyrir allt að 800 hesta rétt við Elliða-
árnar? Það er einnig illskiljanlegt af
hverju ekki er hægt að draga lær-
dóm af sögu Elliðaánna og hlífa hin-
um ánum, Úlfarsá og Leirvogsá, við
sömu örlögum. Á síðustu árum hefur
næsta umhverfi þeirra áa verið gjör-
breytt. Breytingar sem tóku 100 ár
við Elliðaár tóku 10 ár við Úlfarsá.
Þegar sveitarfélög hafa mótað til-
lögur að skipulagi í nágrenni áa og
vatna hefur reynst afar erfitt að fá
því skipulagi breytt svo nokkru nemi
m.t.t. verndunar lífríkis.
Sem dæmi má nefna að þá gerði
Veiðimálastofnun alvarlegar at-
hugasemdir við nýtt íþróttasvæði við
Úlfarsá. Svör bárust og niðurlag
þeirra var: „Ekki verður séð að
hvorki íþróttavellir né lýsing á svæð-
inu hafi nokkur áhrif á fiskigengd
eða afkomu fiskistofna, aðstæður til
veiða eða lífríki árinnar.“ Þar með
var lagaskyldan uppfyllt en lífríkinu
blæðir.
Til þess að verndun lífríkis vatna-
kerfa í þéttbýli sé virk þurfa sveit-
arfélög strax í upphafi skipulags-
vinnu að taka þarfir lífríkisins inn í
dæmið, ekki eftir að fullmótaðar til-
lögur liggja fyrir hvað aðra þætti
snertir. Við skipulagsvinnu þarf
einnig að líta á vatnasvið sem eina
heild en ekki sem búta og loks þarf
að vakta lífríki og umhverfisþætti til
þess að hægt sé að grípa strax til
mótaðgerða ef í óefni stefnir.
Álag á lífríki Elliðaáa,
Úlfarsár og Leirvogsár
Þórólfur Antonsson
og Friðþjófur Árna-
son skrifa í tilefni af
væntanlegum fram-
kvæmdum í ná-
grenni Elliðaáa
» Í ljósi þessa er það
óskiljanlegt að nú
eigi aftur að fara að
ganga á svæðin næst án-
um og það með fram-
kvæmdum sem ekki
geta talist brýnar.
Þórólfur Antonsson
Höfundar starfa við rannsóknir
á laxfiskum.
Friðþjófur Árnason
Nöfn
fermingarbarna á
mbl.is
FERMINGAR
2009
NÝTT Á
mbl.is
Fáðu úrslitin
send í símann þinn