Morgunblaðið - 26.04.2009, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 26.04.2009, Qupperneq 33
Umræðan 33BRÉF TIL BLAÐSINS MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. APRÍL 2009 NÚ ÞEGAR kreppir að fjárhag landsmanna gengur bygging margra nýrra húsa ekki eins hratt og ætlað var. Þar af leið- andi standa margir grunnar og hús auð og hálfbyggð um all- an bæ. Fyrir börn eru þessir staðir oft spennandi og líta út fyrir að vera tilvaldir staðir til að fara í ærslafulla elting- arleiki. En við sem erum eldri vitum betur. Í grunnum og nýbyggingum leynast margar hættur. Þar safnast oft fyrir vatn sem getur verið dýpra en það lítur út fyrir að vera og oft þarf ekki mikið til því ung börn geta drukknað í grunnum drullupolli. Hálfbyggð hús eru full af hættum fyrir börnin okkar. Þar eru veggir sem hægt er að príla uppá og auðvelt að detta niður. Járn standa útúr veggjum og auðvelt er að skera sig illa á þeim eða detta á þau. Hættu- legust eru þó steypustyrktarjárnin sem standa uppúr gólfum því börn að leik geta fallið og járnin stungist í gegnum þau. Aðrar slysahættur geta skapast af timbri, steypu- styrktarmótum og nöglum eða skrúfum sem oft vilja liggja útum allt. Einnig eru oft stórhættuleg verkfæri skilin eftir í nýbyggingum, sem lítil börn geta óvart sett í gang og slasað sig á. Auðvitað á að vera vel girt í kring- um byggingasvæðin þannig að börn- in komist ekki inn en því miður er sú ekki raunin. Því miður er ekki að sjá að ástandið breytist á næstunni. Foreldrar sem búa í nágrenni við nýbyggingar ættu að ganga um svæðið og skoða það. Er einhver möguleiki á að loka húsinu/ grunninum og gera svæðið hættu- minna fyrir börnin? Nauðsynlegt er að foreldrar/ forráðamenn brýni fyr- ir börnum sínum að leika sér alls ekki á þessum svæðum. Sérstaklega nú þegar sólin hækkar á lofti og bjart er fram eftir kvöldi. Þá vilja börnin gjarnan fá að vera úti að leika eftir kvöldmat, en á þeim tíma eru þau oft orðin þreytt eftir eril dagsins og því meiri hætta á að þau slasi sig. Þau verða valtari á fótunum og ef umhverfið er hættulegt getur byltan því miður orðið mun alvarlegri. Foreldrar, endilega ræðið þessar hættur við börnin ykkar. DAGBJÖRT H. KRISTINSDÓTTIR, hjúkrunarfræðingur/verk- efnastjóri á slysavarnasviði Slysa- varnafélagsins Landsbjargar. Framtíðarleiksvæði barnanna okkar Frá Dagbjörtu H. Kristinsdóttur Dagbjört H. Kristinsdóttir HVERS vegna þessi hatursáróður um krónuna; er hún ekki mælikvarði á verðmætasköpun þjóðarinnar, hvati til frekari útflutn- ings í núverandi ástandi? Fisk- veiðar eru frum- undirstaða út- flutnings, trygging fyrir fæðuöryggi. Kost- urinn við lágt skráð gengi krón- unnar er, að út- flutnings- atvinnugreinarnar hafa betri samkeppnisstöðu þótt markaðsverð hafi lækkað vegna kreppu erlendis. Hvernig voru aðstæður sjávar- útvegs á útrásartímabilinu? Krónan var of hátt skráð og greiddi óhóflega niður innflutning er olli óheyrilegum viðskiptahalla. Miða þarf núverandi aðstæður við verðmæti útflutnings, innflutningur við gjaldeyrisöflun er ekki ráðlegur fyrir skuldsetta þjóð, að lifa umfram efni. Samskipti þjóðarinnar við erlendar þjóðir munu hægt og hægt komast í gott horf; en við þurfum þolinmæði til að standast framangreinda erfiðleika. Fjárfestar eru tortryggnir vegna alheimskreppu en það verður ekki viðvarandi ástand síst gagnvart þjóð sem er auðug að auðlindum, er fjár- festar munu horfa til. Fyrst þegar næst eðlilegt við- skiptalegt jafnvægi má ef til vill huga að öðrum gjaldmiðli ef það er fyrir víst betri kostur til að mæla verð- mætasköpun þjóðarinnar. Besta trygging framtíðar nú er að búa að því sem fyrir er í landinu, efla og nýta innlenda framleiðslu til að spara gjaldeyri í nánustu framtíð. Hræðsluáróður um að þjóðin sé fyr- irlitin og einskis metin má ekki skerða sjálfsmynd og framtak; undirstöðuna til að taka á skuldum þjóðarinnar og efla framfarir í landinu. Vel menntað ungt fólk mun upp rísa, skapa verð- mæti í framtíðinni, stofna fyrirtæki er verða byggð á nýsköpunarkrafti þeirra; betra samfélag verður til með siðlegra gildismat, á íslenskum grunni, fyrirmynd annarra þjóða. SIGRÍÐUR LAUFEY EINARSDÓTTIR, BA – Guðfræði/djákni. Krónan er raunhæfur gjaldmiðill Frá Sigríði Laufeyju Einarsdóttur Sigríður Laufey Einarsdóttir Í UMRÆÐU um sjávarútvegsmál að undanförnu hafa frambjóðendur til Alþingis ítrekað vísað með frjáls- legum hætti til álits mannrétt- indanefndar Sameinuðu þjóð- anna (CCPR 1306/2004) í máli tveggja sjómanna sem keyptu sér bát og fóru að veiða í atvinnu- skyni án þess að hafa veiðiheim- ildir. Rétt er að benda á að nefndin klofnaði í afstöðu sinni. Enn mik- ilvægara er þó að gera sér grein fyr- ir því að það sem meirihluti nefnd- arinnar sendi frá sér er aðeins álit, en hvorki úrskurður eða dómsorð. Nefndin er ekki dómstóll, úrskurð- arnefnd eða gerðardómur. Nefndin er álitsgjafi og álit hennar hefur ekki skuldbindandi gildi að landsrétti fyr- ir íslensk stjórnvöld eða dómstóla. Bæði Hæstiréttur Íslands (H 455/ 2004) og Mannréttindadómstóll Evr- ópu (MDE 40169/05) hafa dæmt að íslenska fiskveiðistjórnunarkerfið brjóti ekki gegn mannréttinda- ákvæðum íslensku stjórnarskrár- innar eða ákvæðum Mannréttinda- sáttmála Evrópu. Hvað vakir fyrir frambjóðendum sem halda þessu áliti á lofti sem hin- um stóra sannleik þegar gildi þess er nákvæmlega ekkert fyrir íslenskum lögum og dómstólum? SIGURÐUR SVERRISSON, upplýsinga- og kynningarfulltrúi LÍÚ. Fiskveiðistjórnun á Íslandi er ekki mannréttindabrot Frá Sigurði Sverrissyni Sigurður Sverrisson LANDSFUNDUR Vinstri grænna sem haldinn var fyrir skemmstu áréttaði stefnu Íslands varð- andi Ísrael og Palest- ínu sem mótuð var einróma á Alþingi 18. maí 1989. Þar var lögð áhersla á að virða bæri sjálfs- ákvörðunarrétt palestínsku þjóð- arinnar, tilverurétt Ísraelsríkis og jafnframt rétt palestínskra flótta- manna til að snúa aftur til fyrri heimkynna sinna. Í ályktun Al- þingis var vísað til ályktana Ör- yggisráðs Sameinuðu þjóðanna frá 1967 og 1973 um að bundinn yrði endi á hernámið og herteknu landi skilað. Þá var vísað til margítrek- aðra ályktana SÞ varðandi rétt flóttafólks. Landsfundurinn minnti á að öll þessi grundvallaratriði eru í fullu gildi og þeim ber að fylgja eftir í verki, og í framhaldi af því að íslenskum stjónvöldum bæri að viðurkenna þau stjórnvöld sem palestínska þjóðin kýs sér. Lýðræðislega kjörin stjórnvöld á Gaza Það er í raun ólíðandi annað en að íslensk stjórnvöld viðurkenni þau stjórnvöld sem Palestínumenn kjósa sér. Þetta á ekki síst við þeg- ar kosningar hafa farið eins lýð- ræðislega fram og hugsast getur við erfiðar aðstæður hernáms, eins og þær sem fram fóru í ársbyrjun 2006. Hamas-samtökin, sem voru sigurvegarar þeirra kosninga, mynduðu í kjölfarið ríkisstjórn að tilhlutan Abbas forseta og síðar var mynduð þjóðstjórn. Hvorug stjórn- in var viðurkennd af Íslandi né neinu NATÓ-landi eða öðrum vest- rænum ríkjum, nema Noregi. Ísr- ael og Bandaríkjastjórn réðu ferð- inni. Íslenskum stjórnvöldum ber við núverandi aðstæður að hafa stjórn- málasamband við báðar rík- isstjórnir Palestínumanna. Annars vegar er stjórn Salams Fayyads sem Abbas skipaði til bráðabirgða og situr í Ramallah. Ísland hefur stjórnmálasamband við þessi stjórnvöld sem kallast PA eða Palestinian National Authority, en þau eiga sér ekki þingræðislega fótfestu. Það gera hins vegar stjórnvöldin á Gaza sem styðjast við meiri- hluta löggjafarþings- ins sem kosið var í ársbyrjun 2006 en stjórn Ismaels Han- iyeh var hins vegar sett af í júní 2007. Það gerði Abbas forseti sem situr enn þótt kosningatímabil hans hafi runnið út 9. jan- úar. Málið er þannig einkar flókið. Starfandi eru tvær ríkisstjórnir í þessu litla landi og hvorug er eig- inleg ríkisstjórn nema að nafninu til. Allt landið er jú hernumið og hernámsyfirvöldin skammta Palest- ínumönnum verkefnin, segja þeim fyrir verkum og gera þeim um leið ókleift að byggja upp og viðhalda eðlilegu samfélagi. Nú standa yfir viðræður milli Hamas og Fatah og ellefu annarra stjórnmálasamtaka um þjóðstjórn, endurskipulagningu PLO og fleiri mikilvæg mál. Við- ræður þessar lofa góðu. En bæði Bandaríkjastjórn og Ísraelsstjórn eru fyrirfram farnar að hóta slíkri stjórn illu og algerri einangrun, einsog þeirri fyrri. Þessi ríki sem kalla sjálf sig lýðræðisleg, sætta sig ekki við að lýðræði fái að ráða í Palestínu. Rjúfum herkvína um Gaza Íslensk stjórnvöld verða að leggja af mörkum til þeirrar bar- áttu að rjúfa herkvína sem er um Gaza og sem hefur enn ekki verið aflétt. Hluti af því er að hafa sam- band við stjórnvöld á Gaza, einsog Norðmenn gera. Grimmdarlegu stríði Ísraelsríkis gegn palestínsku þjóðinni er langt í frá lokið með 22 daga árásarhrinu á innikróaða íbúa Gazasvæðisins. Því er haldið áfram bæði á Gaza og Vesturbakkanum og sérstaklega með herkvínni um Gaza. Enn er ekki farið að hleypa inn byggingarefni til að reisa heim- ili úr rústunum. Enn er helstu lífs- nauðsynjum ekki hleypt í gegn nema í mjög takmörkuðum mæli og enn eru íbúarnir innilokaðir. Árásirnir á Gaza hafa opnað augu margra fyrir árásarstefnu Ísraels sem hefur verið samfelld og sjálfri sér samkvæm frá árinu 1948, þegar um 700 þúsund palestínskir íbúar hrökkluðust undan hryðjuverkastríði og urðu að stærsta flóttamannavandamáli sög- unnar, vanda sem er enn óleystur. Æ fleiri sjá að að hér er um þjóð- ernishreinsanir að ræða og jaðrar við þjóðarmorð. Hlustum ekki á stríðsæsingamenn Nýyfirstaðnar kosningar í Ísrael voru sigur stríðsafla sem engan áhuga hafa á friði hvað þá heldur réttlæti gagnvart Palestínumönn- um. Nú hefur verið mynduð rík- isstjórn í Ísrael undir forystu Ben- jamins Netanyahu. Hann var á móti Óslóarsamkomlaginu og hefur staðfastlega rekið áróður gegn friði við Palestínumenn. Allt tal sem kann að heyrast í aðra átt úr þeim herbúðum er einskis virði og haft í frammi til að blekkja almennings- álitið og þóknast Bandaríkjastjórn, Evrópusambandinu og Rússum. Hlustum ekki á innantóman áróður þeirra. Horfum á gerðir þeirra. Fordæmi utanríkisráðherra Þessi staða gerir enn frekar en áður kröfu til þess að íslensk stjórnvöld endurmóti afstöðu sína til Ísraels. Ekki verður bundinn endi á yfirgang þessa ríkis gagn- vart sínum nágrönnum með kurt- eislegum tilmælum eða ályktunum þar sem vísað er til ályktana SÞ og alþjóðalaga og réttar. Ísraelskir stjórnmálaleiðtogar, leyniþjónustan og herforingarnir sem stjórna ferð- inni, líta greinilega svo á að Ísrael sé hafið yfir lög og rétt. Finna þarf nýjar leiðir til að knýja á um breytta stefnu í Ísrael. Þar hefur núverandi utanrík- isráðherra Íslands sýnt gott for- dæmi. Utanríkisráðherrar annarra Evrópulanda mættu taka hann sér til fyrirmyndar. Með því að neita að taka á móti ísraelskum ráðherra í kjölfar árásanna á Gaza og nú ný- verið með því að hafa ekki tíma til að taka á móti nýjum sendiherra Ísraels, er ráðherrann að senda mjög ákveðin og skýr skilaboð um að Íslendingar sætti sig ekki við árásarstefnu Ísraelsríkis og að ekki verði um eðlilegt stjórnmála- samband að ræða, nema Ísrael breyti um stefnu. Ný sniðgöngu- hreyfing - BDS Ný hreyfing fer nú um heiminn sem kallast BDS, boycott - divest - sanction (sniðganga, hætta fjárfest- ingum, viðskiptabann). Þetta á við um viðskipti á sem flestum sviðum, þar á meðal í menningarmálum, hvort sem það er symfónía, fótbolti eða Eurovision. Það eru slíkar að- ferðir sem komu Apartheid- stjórninni frá í Suður-Afríku. Hér er mælt með friðsamlegum mót- mælum sem hver og einn getur tekið þátt í til að kom Ísraelsstjórn í skilning um að stríð og kúgun er ekki valkostur. Mikilvægt er að stjórnvöld bæði hjá ríki og sveit- arstjórnum, fyrirtæki og almenn- ingur taki þátt í þessu átaki sem leitt getur til gjörbreyttrar stefnu, öllum til góðs. Við þurfum öll að gera allt sem í okkar valdi stendur, stórt og smátt, til að stuðla að rétt- látum friði í Austurlöndum nær. Viðurkennum palestínsk stjórnvöld bæði í Ramallah og Gaza Sveinn Rúnar Hauksson skrifar um málefni Palestínu »Nýyfirstaðnar kosn- ingar í Ísrael voru sigur stríðsafla sem engan áhuga hafa á friði hvað þá heldur réttlæti gagnvart Palestínu- mönnum. Sveinn Rúnar Hauksson Höfundur er læknir og formaður Fé- lagsins Ísland-Palestína. BÆJAR- FULLTRÚAR Sam- fylkingarinnar í Kópa- vogi eru eins og rispuð plata. Nú síðast birtist grein eftir þau Guðríði Arnardóttur og Haf- stein Karlsson í Morg- unblaðinu með sömu tuggunni og var í síð- ustu grein á undan og raunar greininni þar á undan líka. Það skiptir engu þótt þeim sé svar- að. Sannleikurinn skiptir þau engu máli. Til dæmis hefur Ólafur Þór Gunnarsson, bæjarfulltrúi Vinstri grænna í Kópavogi, rifjað upp fyrir þeim á bæjarstjórnarfundi 14. apríl sl. að samstaða var um að leggja fjár- muni í erlenda menningardaga eins og áður. Ekki er hann talsmaður meirihlutans í bæjarstjórn. Ólafur Þór minnti þau líka á um- ræður um írska menningardaga en bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar halda því fram að ég hafi aldrei gert grein fyrir þeim og þykjast koma af fjöllum. Minnisleysið er sem betur fer ekki algilt í minnihlutanum. Bæjarstjóra ber að framkvæma í samræmi við fjárhagsáætlun og því eru írskir menning- ardagar komnir á kopp- inn. Samfylkingin leggst hinsvegar gegn fram- kvæmdum fyrr en fjár- hagsáætlun, sem var þverpólitísk samstaða um, hefur verið endur- skoðuð. Skyldi vera fleira en menn- ingarstarfsemi í fjárhagsáætlun bæj- arins sem Samfylkingin vill ýta á undan sér og hafa í orði en ekki á borði? Einu sinni enn Eftir Gunnar I. Birgisson Gunnar I. Birgisson »Minnisleysið er sem betur fer ekki algilt í minnihlutanum. Höfundur er bæjarstjóri í Kópavogi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.