Morgunblaðið - 26.04.2009, Qupperneq 35
Minningar 35
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. APRÍL 2009
ÍSLENSKAR
LÍKKISTUR
Góð þjónusta - Gott verð
Starmýri 2, 108 Reykjavík
553 3032
Opið 11-16 virka daga
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is
Vaktsími: 565 5892 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur
Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is
Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför
Hermann Jónasson Yvonne Tix
✝
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
ÞÓRÐUR SNÆBJÖRNSSON,
dvalarheimilinu Hlíð,
áður til heimilis að Stafholti 14,
Akureyri,
er lést sunnudaginn 12. apríl, verður jarðsunginn
frá Akureyrarkirkju mánudaginn 27. apríl kl. 13.30.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vildu
minnast hins látna er bent á Hjartavernd Norðurlands.
Snæbjörn Þórðarson, Liv Gunnhildur Stefánsdóttir,
Helga Kristrún Þórðardóttir, Karl Jónsson,
Haukur Þórðarson, Kristbjörg Jónsdóttir,
Örn Þórðarson, Ingibjörg Eyjólfsdóttir,
Hrafn Þórðarson, Ragnheiður Sveinsdóttir,
Karl Birgir Þórðarson, Eygló Anna Sigurðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær móðir, amma, langamma og langalang-
amma,
ÓLÖF ÓLAFSDÓTTIR
frá Djúpavogi,
lést á hjúkrunarheimilinu í Neskaupstað
miðvikudaginn 22. apríl.
Sjöfn Magnúsdóttir, Magnús Herjólfsson,
Björgvin Sveinsson, Rósa Benediktsdóttir,
Þórður Sveinsson, Karen Kjartansdóttir,
Heiðar Sveinsson,
Auður Sveinsdóttir, Þorgils Arason,
Sigurður Sveinsson, Brynhildur Sigurðardóttir,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn.
Steinsmiðjan MOSAIK
Hamarshöfða 4 • 110 Reykjavík • sími 587 1960 • www.mosaik.is
MIKIÐ ÚRVAL AF LEGSTEINUM
OG FYLGIHLUTUM
Sendum myndalista
Óskar
Halldórsson
✝ Óskar Hall-dórsson fæddist
á Arnarhóli í Vestur-
Landeyjum 20. apríl
1928. Foreldrar hans
voru hjónin Halldór
Jóhannsson og Sig-
ríður Guðbjörg Guð-
mundsdóttir á Arnarhóli. Árið 1932
fluttist fjölskyldan búferlum að Syðri-
Úlfsstöðum í Austur-Landeyjum og bjó
hann þar til ársins 2003 er hann flutti
í Gullsmára 10 í Kópavogi. Eftirlifandi
systkini Óskars eru Sigríður og Albert
en Karl, sem var elstur þeirra systk-
ina, er látinn.
Eiginkona Óskars var Auður Kristín
Sigurðardóttir, fædd 6. janúar 1935 í
Kúfhól, Austur-Landeyjum, dáin 20.
nóvember 2003. Óskar og Auður eign-
uðust þrjú börn: Drengur, f. 18. des-
ember 1954, en hann lést skömmu
eftir fæðingu, Kristín Hulda, f. 11.
mars 1957, og Jóhannes Arnar, f. 18.
júlí 1964, d. 6. október 1973. Börn
Kristínar eru: Auður Ósk Vilhjáms-
dóttir, f. 21. maí 1983, gift Sigurjóni
Jónssyni, og Halldór Vilhjálmsson, f.
26. júlí 1986.
Óskar og Auður bjuggu á Syðri-
Úlfsstöðum frá 1957, í fyrstu í fé-
lagsbúi við foreldra Óskars en tóku
svo við búinu. Óskar lést hinn 7. des-
ember sl. og var útför hans gerð frá
Krosskirkju, Austur-Landeyjum 17.
desember sl.
Meira: mbl.is/minningar
Sigríður
Ágústsdóttir
✝ Sigríður Ágústs-dóttir fæddist 12.
desember 1923 á
Geiteyjarströnd í Mý-
vatnssveit. Hún lést
5. apríl síðastliðinn á
Dvalarheimilinu Hlíð á
Akureyri.
Jarðarför Sigríðar fór fram frá Ak-
ureyrarkirkju föstudaginn 17. apríl sl.
Meira: mbl.is/minningar
Sólrún
Kjartansdóttir
✝ Sólrún Kjart-ansdóttir fæddist
í Reykjavík 25. sept-
ember 1932. Hún lést
á Hjúkrunarheimilinu
Eir 31. mars 2009.
Útför Sólrúnar var
gerð í kyrrþey.
Meira: mbl.is/minningar
Eygló Guðrún
Kristjánsdóttir
✝ Eygló Guðrúnfæddist 25. októ-
ber 1988 á HSS. Hún
lést 7. apríl 2009 á
skammtímavistuninni
Heiðarholti í Garði.
Útför Eyglóar fór
fram frá Safn-
aðarheimilinu í Sandgerði laugardaginn
18. apríl síðastliðinn.
Meira: mbl.is/minningar
Ketill Leósson
✝ Ketill Leóssonfæddist á Lundi í
Kópavogi 23. október
1947. Hann lést á
líknardeild Landspít-
alans í Kópavogi 5.
apríl sl.
Ketill var jarðsung-
inn frá Selfosskirkju 11. apríl sl.
Meira: mbl.is/minningar
Anna Bryndís
Árnadóttir
✝ Anna BryndísÁrnadóttir fædd-
ist á Akureyri 27.
ágúst 1947. Hún lést á
Fjórðungssjúkrahús-
inu á Akureyri þann
12. apríl síðastliðinn.
Anna Bryndís var
jarðsungin frá Akureyrarkirkju föstudag-
inn 17. apríl síðastliðinn.
Meira: mbl.is/minningar
Snorri Jónsson
✝ GuðmundurSnorri Jónsson
fæddist í Reykjavík
23. október 1913.
Hann lést á hjúkr-
unarheimilinu Sóltúni
28. mars sl. Útför
Snorra fór fram 2.
apríl síðastliðinn.
Meira: mbl.is/minningar
Ingólfur
Guðbrandsson
✝ Ingólfur Guð-brandsson fædd-
ist á Kirkjubæj-
arklaustri 6. mars
1923. Hann lést á
Landspítalanum 3.
apríl sl. Útför Ingólfs
fór fram 17. apríl síð-
astliðinn.
Meira: mbl.is/minningar
Margrét
Oddsdóttir
✝ Margrét Odds-dóttir fæddist í
Hlíð í Kollafirði,
Strandasýslu, 7. jan-
úar 1928. Hún lést á
Sjúkrahúsi Akureyrar
11. apríl sl. Útför Mar-
grétar fór fram frá
Akureyrarkirkju föstudaginn 24. apríl.
Meira: mbl.is/minningar
✝ Ingvar Bjarnasonvar fæddur á
Neskaupstað 8. sept-
ember 1929, hann
lést á Hrafnistu í
Hafnarfirði þann 10.
apríl.
Hann var sonur
Guðrúnar Halldórs-
dóttur frá Hliði á
Eyrarbakka og
Bjarna Vilhelmssonar
frá Neskaupstað. Al-
systkini Ingvars eru
Hulda f. 1918. Stefán
f. 1920 látinn. Sigríð-
ur f. 1921. Guðfinna f. 1922, látin.
Fjóla f. 1924, látin. Bjarni f. 1925.
Þuríður f. 1926. Lilja f. 1927 látin.
Lilja f. 1928. Olga f. 1930. Guðrún
f. 1932. Kolbeinn f. 1933. Halldór f.
1935. Þórður f. 1937. Hálfsystkini
Ingvars móðurmegin voru Ásta
Strandberg f. 1911, látin og Bald-
vin Ólafsson f. 1915, látinn. Hálf-
systkini föðurmegin Indíana f.
1904, látin. Einar Hans f. 1912, lát-
inn. Fanney f. 1913, látin. Gísli f.
1917, látinn. Unnur Fjóla f. 1920.
Ingvar fór ungur að
aldri til sjós fyrir
austan. Hann fluttist
um tvítugt suður til
Hafnarfjarðar. Þar
stundaði hann einnig
sjó. Í Hafnarfirði
giftist hann Aðal-
björgu Björnsdóttur
f. 12. september
1933. Þau eignuðust
7 börn: Anna f. 28
nóvember 1951. Guð-
rún f. 30. maí 1953.
Bjarni f. 30. desem-
ber 1955. Lilja f. 24.
ágúst 1959. Stefán f. 2. janúar
1961. Þröstur f. 14. janúar 1963.
Birna f. 14. janúar 1965. Ingvar og
Aðalbjörg slitu samvistum 1984.
Ingvar starfaði í Ísal 35 síðustu
starfsárin sín. Hann bjó alla tíð í
Hafnarfirði og síðustu 3 árin á
Hrafnistu í Hafnarfirði. Barna-
börnin eru 17 og barnabarnabörn-
in eru 15.
Útför hans hefur farið fram í
kyrrþey að hans eigin ósk.
Meira: mbl.is/minningar
Eitt sinn verða allir menn að deyja
og vissulega er það svo. Hinn 10.
apríl síðastliðinn, eða á föstudaginn
langa, var runnin upp sú stund hjá
fyrrverandi tengdaföður mínum,
Ingvari Bjarnasyni, lengst af búsett-
um í Hafnarfirði. Þegar ég heimsótti
hann á Hrafnistu fyrir nokkrum vik-
um var mér það ljóst að hann ætti
ekki langt eftir og ég er ekki frá því
að hann hafi verið búinn að sætta sig
við það. Þetta umhverfi átti ekki
beint við hann þó honum hafi eflaust
liðið vel við þessar aðstæður.
Mig langar í nokkrum orðum að
minnast hans eftir rúmlega 30 ára
kynni. Ingvar var fæddur og uppal-
inn á Neskaupstað í hópi 17 systkina.
Tólf ára gamall missti hann föður
sinn og það má rétt ímynda sér hvort
ekki hefur verið erfitt um vik að sjá
þessum barnafjölda farborða, enda
var Ingvar farinn að stunda sjó-
mennsku upp úr fermingu til að
draga björg í bú. Ingvar minntist
Neskaupstaðar ávallt með hlýhug
þrátt fyrir augljósar þrengingar í
æsku. Fyrstu árin sem hann kom
austur í heimsókn til minnar fjöl-
skyldu, fórum við stundum saman út
á Neskaupstað og það leyndi sér
ekki gleðin sem skein úr andliti hans
við að fara á bryggjurnar, rifja upp
gamlar minningar og kíkja á húsið
þar sem hann ólst upp.
Ungur að árum fluttist Ingvar síð-
an til Hafnarfjarðar þar sem hann
kynntist fyrrum eiginkonu sinni, Að-
albjörgu Björnsdóttur og varð þeim
sjö barna auðið. Það má geta nærri
að það hafi oft þurft að vinna langan
vinnudag framan af þeirra búskap-
arárum til að seðja marga munna.
Ingvar stundaði þá ýmist sjó-
mennsku eða vann við fiskvinnslu í
landi auk annarra starfa. Hann var
hamhleypa til vinnu og dró aldrei af
sér, enda var hann eftirsóttur hvar
sem hann kom. Seinni hluta starfs-
ævinnar vann hann í Álverinu í
Straumsvík og hafði oft orð á því
hversu gríðarlegur munur væri þar á
aðstöðu og aðbúnaði starfsfólks frá
því sem hann þekkti úr fiskvinnsl-
unni, þó það hafi mikið breyst hin
síðari ár.
Ingvar hafði léttan og skemmti-
legan húmor og gat komist snilldar-
lega að orði þegar því var að skipta.
Hann var yfirleitt vel liðinn af sam-
starfsfólki, kom til dyranna eins og
hann var klæddur og smjaðraði aldr-
ei fyrir öðrum. Hann sagði sína
meiningu umbúðalaust og gat verið
mjög hreinskilinn svo fólki stóð
stundum ekki alveg á sama. Hann
var mikill gleðimaður á yngri árum
og hafði gaman af því að skemmta
sér og dansaði meðan hann hafði
þrek til. Þá var hann einnig góður
söngmaður, hafði fallega rödd, þó
aldrei syngi hann í kór að ég best
veit. Síðasta dansinum er lokið.
Blessuð sé minning Ingvars
Bjarnasonar.
Einar Baldursson.
Ingvar Bjarnason