Morgunblaðið - 26.04.2009, Page 38
Oddný
Kristjánsdóttir
✝ Oddný Kristjáns-dóttir fæddist í
Akurholti í Eyjahreppi
2. febrúar 1935. Hún
lést á sjúkrahúsi
Akraness fimmtudag-
inn 2. apríl sl.
Oddný var jarð-
sungin frá Borgarneskirkju laugardag-
inn 11. apríl sl.
Meira: mbl.is/minningar
38 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. APRÍL 2009
Selhellu 3 Hafnarfirði
Sími 517 4400 • www.englasteinar.is
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug
við andlát og útför móður okkar, tengdamóður,
ömmu, langömmu og langalangömmu,
PÁLÍNU GUÐRÚNAR GÍSLADÓTTUR,
Skálafelli,
Suðursveit.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Heilbrigðisstofnunar
Suðausturlands fyrir góða umönnun.
Ingunn Jónsdóttir, Eggert Bergsson,
Róshildur Jónsdóttir, Eyþór Ingólfsson,
Þorvaldur Þ. Jónsson, Stella Kristinsdóttir,
Sigurgeir Jónsson, Elísabet Jensdóttir,
Þóra V. Jónsdóttir, Þorsteinn Sigfússon,
ömmubörn, langömmubörn
og langalangömmubarn.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, hlýju og
vinarhug við andlát og útför elskulegrar móður
okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og
langalangömmu,
INGIBJARGAR JÓNSDÓTTUR,
dvalarheimilinu Grund,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á deild A-2 fyrir
kærleiksríka umönnun.
Guðmann Sigurbjörnsson, Kristín Aradóttir,
Rósa Jónsdóttir, Sigursveinn Sigurðsson,
Hólmfríður Jónsdóttir,
Guðjón Rögnvaldsson,
ömmubörn, langömmubörn og langalangömmubarn.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug
við andlát og útför
VALS GUÐMUNDSSONAR
frá Efra-Apavatni.
Þórdís Skaptadóttir,
Skapti Valsson, Jórunn Gunnarsdóttir,
Dóra Sjöfn Valsdóttir, Birgir Sveinsson,
María Ýr Valsdóttir, Rúnar Sigurðsson,
Guðmundur Valsson, Marta K. Lárusdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
skilja eftir spor sem enginn annar
hefur gert.
Farðu í friði, kæri vinur, hjá mér
muntu ávallt eiga stað,
Þinn vinur,
Örn Héðinsson.
Það er sárt að horfa á eftir kær-
um vini á besta aldri, vini sem kom
í heimsókn til mín fyrir aðeins örfá-
um vikum, þá kátur, hress og með
húmorinn í lagi – eins og venjulega.
Það er óskiljanlegt og maður trúir
því vart að hann sé burtu genginn.
Eftir stendur söknuður, tómleiki og
jafnvel reiði yfir því hvernig fór.
Gísli Þór Reynisson var mikið
ljúfmenni, leiftrandi persónuleiki,
greindur og maður alls fagnaðar.
Hann náði miklum árangri í við-
skiptum, var fylginn sér og ákveð-
inn í hvívetna. Leiðir okkar Gísla
lágu fyrst saman á árinu 1998. Það
var um það leyti er Gísli var að
kaupa Laima og stofna önnur fyr-
irtæki í Lettlandi. Gísli stóð fyrir
uppbyggingu Nordic Industri Park
í Olaine í Lettlandi sem voru með
fyrstu alvöru iðn-görðunum sem
byggðir voru upp í baltnesku lönd-
unum. Í einni af fyrstu ferðum mín-
um til Riga sem síðar urðu all-
margar bauð Gísli mér að skoða
verksmiðjuna sem hann hafði þá
einkavætt og sem varð grunnurinn
að NIP. Verksmiðjan hafði séð Sov-
étríkjunum fyrir plastíhlutum í m.a.
bifreiðar, en hrundi þegar ríkin liðu
undir lok. Heimsóknin til Olaine var
hvað minnisstæðust fyrir það að
byggingarnar voru fjölmargar og
stórar, alls um 80 þús. fm að flat-
armáli og í svo slæmu ásigkomulagi
að ekki þótti öruggt að ganga um
þær sökum hættu á hruni. NIP iðn-
garðurinn, sem var opnaður í febr-
úar 2000 var og er hinn glæsilegasti
og varð sá fyrsti af mörgum sem
síðar voru stofnaðir af Gísla og fé-
lögum. Seinni árin hefur Gísli stofn-
að til fjölda viðskipta og má segja
að á toppnum tróni kaup Nordic
Partners á hótel- og veitingastaða-
keðju af Remmen fjölskyldunni í
Danmörku.
Við Gísli höfðum stefnt að því um
alllangt skeið að fara saman í veiði-
ferð og ákváðum við síðasta sumar
ásamt nokkrum félögum að leita
fanga í Þingvallavatni um miðjan
maí 2009. Sú veiðiferð verður farin,
að vísu einum færri en áætlað var
en ég þykist þess fullviss að Gísli
verði með okkur í anda. Mér barst í
vikunni mynd sem tekin var á
gamlárskvöld 2008 af Gísla og föður
mínum, þeir báðir kampakátir, sá
eldri í sérsaumuðu Savile Row föt-
unum sínum og sá yngri í sérsaum-
uðum officera-búningi. Nú eru þeir
báðir allir – fóru með 3ja daga
millibili. Ég hugsa með hlýhug til
allra þeirra ánægjustunda sem við
Gísli áttum saman hvort sem var á
heimilum okkar, á Þingvöllum eða í
útlöndum.
Megi minningin um góðan dreng
varðveitast í hugum okkar allra og
veita Önnu Möggu, börnunum og
allri fjölskyldunni styrk til fram-
tíðar.
Einar Þór Þórhallsson.
Hann kom til mín á skrifstofuna í
Helsinki einn vordag árið 1993 til
að kynna sig og það sem hann hafði
á prjónunum. Hann hét Gísli Þór
Reynisson. Hann hafði hleypt heim-
draganum ungur og hafði farið til
náms í Bandaríkjunum aðeins 18
ára gamall og ekki snúið heim eftir
það. Honum var mikið niðri fyrir og
leist mér vel á hann. Hann var
byrjaður í viðskiptum í Finnlandi,
aðallega í verkefnum í Rússlandi og
Eistlandi með finnskum og eist-
neskum vinum sínum. Ekki grunaði
mig þá að þessi heimsókn ætti eftir
að verða upphaf náins samstarfs til
margra ára.
Fjórum áður síðar hófum við
samstarf. Gísli hafði þá ákveðið að
helga starfskrafta sína viðskipta-
tækifærum í Lettlandi. Varð það úr
að í ársbyrjum 1997 gekk ég til liðs
við Gísla og lettneskan viðskipta-
félaga hans Daumants Vitols. Verk-
efnið var fjárfesting í fyrirtækinu
European Plastic Industries, sem
Gísli hafði stofnað fáum vikum áður
utan um einkavæðingu fyrrverandi
áttundu stærstu plastverksmiðju
Sovétríkjanna. Nokkru síðar var
það fyrirtæki sett undir sjálfstætt
eignarhaldsfélag, sem hlaut nafnið
Nordic Industries og sem við urð-
um sameigendur að. Skiptum við
með okkur verkum þannig að ég
tók að mér að verða stjórnarfor-
maður og hann framkvæmdastjóri.
Síðar bættust nýir hluthafar í hóp-
inn og í stjórn.
Gísli var alltaf meirihlutahluthafi
í þessum félögum og réð að mestu
ferðinni um viðskiptahugmyndir og
tækifæri. Nordic Industries undir
daglegri stjórn Gísla átti eftir að
skilja eftir sig merkan kapítula í
sögu hins nýfrjálsa Lettlands.
Gömlu plastverksmiðjunni sem bar
merki hrunins heimsveldis og sem
sem bæði Andropov og Gorbachov
höfðu heimsótt á sovéttímanum, var
árið 1999 breytt í 80.000 fm nútíma-
lega iðngarða undir nafninu Nordic
Industrial Park og enn aðrir 40.000
fm iðngarðar voru reistir ári síðar.
Rýmið var leigt út til ýmiskonar at-
vinnustarfsemi. Í einu herbergi var
komið upp minjasafni um Sovéttím-
ann. Þá voru keypt þekktustu fyr-
irtækin í köku-, sælgætis- og
drykkjarvöruframleiðslu í landinu,
þ.e. Staburadz, Laima og Gutta,
auk þátttöku í fjölda smærri fyr-
irtækja í ýmsum greinum iðnaðar-
,hafnarþjóustu og hugbúnaðar með
yfir 2000 starfsmenn. Það var siglt
mikinn og sú saga verður örugglega
síðar skráð.
Á þessum árum áttum við náið
persónulegt samstarf sem var í
senn gefandi og ánægjulegt enda
var Gísli ákaflega lifandi og
skemmtilegur ungur maður og
hrókur alls fagnaðar í hópi sam-
starfsmanna og vina. Árið 2004
skildu leiðir í viðskiptum okkar og
Gísli fékk nýja félaga til samstarfs í
félagi undir nafninu Nordic Part-
ners.
Með Gísla er genginn, óvenju-
legur og litríkur athafnamaður, ein-
staklingur sem lifði sterkt, afrekaði
mikið og deyr ungur líkt og þeir
sem guðirnir elska. Í Lettlandi skil-
ur hann eftir sig djúp spor þar sem
hans verður sárt saknað. Í mínum
huga lifa ljúfsárar minningar um
eftirminnilega samferð í Riga á
mótunartíma nýrrar Evrópu.
Ég votta Önnu, börnunum, for-
eldrum Gísla og systkinum innilega
samúð.
Þorsteinn Ólafsson.
Gísli Þór Reynisson
Frans
Magnússon
✝ Frans Magn-ússon fæddist í
Búdapest í Ungverja-
landi 27. maí 1937.
Hann lést á Sjúkra-
húsi Akraness 7. apríl
síðastliðinn. Útför
hans fór fram frá
Akraneskirkju 17. apríl síðastliðinn.
Meira: mbl.is/minningar
Ingibjörg
Björnsdóttir
✝ Ingibjörg Björns-dóttir ljósmóðir
fæddist í Hrísey 18.
febrúar 1917. Hún
lést á Dvalarheimilinu
Hlíð á Akureyri 17.
apríl síðastliðinn. Út-
för Ingibjargar
Björnsdóttur fór fram frá Glerárkirkju
24. apríl síðastliðinn.
Meira: mbl.is/minningar
Eggert Þór
Steinþórsson
✝ Eggert Þór Stein-þórsson fæddist í
Stykkishólmi 4. jan-
úar 1945. Hann lést á
hjartadeild Landspít-
alans við Hringbraut
8. apríl síðastliðinn.
Útför Eggerts Þórs
var gerð 17. apríl síðastliðinn.
Meira: mbl.is/minningar
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins:
mbl.is – smella á reitinn Senda efni
til Morgunblaðsins – þá birtist val-
kosturinn Minningargreinar ásamt
frekari upplýsingum.
Skilafrestur | Ef birta á minning-
argrein á útfarardegi verður hún að
berast fyrir hádegi tveimur virkum
dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur
birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Greinar, sem berast eftir að útför
hefur farið fram, eftir tiltekinn skila-
frests eða ef útförin hefur verið gerð
í kyrrþey, eru birtar á vefnum,
www.mbl.is/minningar. Æviágrip
með þeim greinum verður birt í
blaðinu og vísað í greinar á vefnum.
Lengd | Minningargreinar sem
birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að
senda lengri grein. Engin lengdar-
mörk eru á greinum sem birtast á
vefnum. Hægt er að senda örstutta
kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15
línur. Ekki er unnt að tengja við-
hengi við síðuna.
Minningargreinar
Fyrrverandi sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi
1981 - 1985,
MARSHALL BREMENT,
frá New York,
lést í Tucson, Arizona, 6. apríl sl.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á að senda
samúðarkveðjur sínar til bandaríska sendiráðsins
sem mun koma þeim til fjölskyldunnar.
Vinsamlegast athugið að setja heimilisfang sendanda á umslögin til þess
að fjölskyldan geti haft samband óski hún þess.
Bandaríska sendiráðið
Laufásvegi 21
101 Reykjavík
Former U.S. Ambassador to Iceland 1981 - 1985,
MARSHALL BREMENT,
From New York,
Died in Tucson, Arizona, April 6th.
For those who would like to offer condolences, please forward them
to the U.S. Embassy. We will collect and send them to the family.
Please include your return address on the envelopes, should the
family wish to contact you.
U.S. Embassy
Laufásvegur 21
101 Reykjavík
Minningar á mbl.is